Taffy skrifaði:
Hallo, Kann ich trotz der unterschiedlichen Lauflängen die Drops Sky in dieser Anleitung durch Merino Extrafine ersetzen? Danke!
29.08.2026 - 14:16DROPS Design svaraði:
Liebe Taffy, ja gerne so lange Sie die gleiche Maschenprobe haben, die Garnmenge wird aber verschieden sein, da beide Garne eine unterschiedliche Lauflänge haben; benutzen Sie den Garnumrechner, so bekommen Sie die neue passende Garnmenge. Viel Spaß beim Stricken!
31.08.2026 - 16:00
Cherry Pop Cardigan#cherrypopcardigan |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu, i-cord og kúlum. Stærð 2 – 14 ára.
DROPS Children 50-21 |
|||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig (= 6 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 4 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig (= 6 lykkjur): Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Á EFTIR LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjóninn með því að stinga vinstri prjóni aftan í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-5-6-6 næstu hnappagötum með ca 7-7½-6½-7-7-6½-7½ cm á milli hverra hnappagata. Neðsta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs á fram- og bakstykki. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Þegar lykkjur eru auknar jafnt út í skiptinguna yfir í stroff, þá verður útaukningin jafnari ef aukið er út þar sem lykkjurnar verða síðan prjónaðar brugðnar, sléttprjónið heldur þá fallega áfram inn í stroffið. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir laskalínu. Mynstrið er einungis prjónað á ermum. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 94-94-94-106-106-106-110 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Sky. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 6 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og 6 kantlykkjur að framan með i-cord. Haldið svona áfram með stroff í 3-3-3½-3½-4-4-4 cm – síðasta umferðin er prjónuð frá réttu. Setjið 1 merki innan við kant að framan í annarri hlið á stykki (= miðja að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 3,5. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett á milli 2 lykkja slétt, þessar 2 lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og það á að auka út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur. Laskalykkjur eru alltaf prjónaðar í sléttprjóni. Teljið 19-19-19-23-23-23-23 lykkjur (= framstykki), setjið 1. merki á undan næstu lykkju, teljið 16 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki á undan næstu lykkju, teljið 24-24-24-28-28-28-32 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. merki á undan næstu lykkju, teljið 16 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki á undan næstu lykkju. Það eru 19-19-19-23-23-23-23 lykkjur eftir í umferð fyrir framstykki. Prjónið næstu umferð frá röngu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið brugðið fram að næsta merki, prjónið 16 lykkjur brugðið samtímis sem aukið er út um 1 lykkju fyrir miðju í þessum lykkjum (= 17 lykkjur fyrir ermi), prjónið brugðið fram að næsta merki (= bakstykki), prjónið 16 lykkjur brugðið samtímis sem aukið er út um 1 lykkju fyrir miðju í þessum lykkjum (= 17 lykkjur fyrir ermi), prjónið brugðið þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið kant að framan eins og áður = 96-96-96-108-108-108-112 lykkjur. Prjónið sléttprjón og MYNSTUR fram og til baka með kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið útskýringu að ofan hvernig auka á út, JAFNFRAMT sem prjónað er MYNSTUR A.1 til A.3 á ermum. ATH: Örin sýnir síðustu umferð í hverri stærð (á við um A.1 og A.3. Munið eftir að fella af fyrir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan. UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið kant að framan eins og áður, * prjónið slétt þar til 1 lykkja er eftir á undan næsta merki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1, prjónið A.2, prjónið A.3, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* einu sinni til viðbótar, prjónið slétt þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið kant að framan eins og áður (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið með kant að framan í hvorri hlið eins og áður – munið að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er í LASKALÍNA. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 14-14-15-16-17-18-19 sinnum (= 28-28-30-32-34-36-38 umferðir prjónaðar) = 208-208-216-236-244-252-264 lykkjur. Munið að fylgja prjónfestunni. Útaukningu fyrir ermar er nú lokið, prjónið sléttprjón með kanta að framan og mynstur á ermum eins og áður (= A.2) jafnframt því sem aukið er út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á UNDAN 1. og 3. merki og á EFTIR 2. og 4. merki (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 5-6-7-6-7-8-7 sinnum til viðbótar = 228-232-244-260-272-284-292 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út alls 19-20-22-22-24-26-26 sinnum á framstykkjum/bakstykki og 14-14-15-16-17-18-19 sinnum á ermum. Haldið áfram í sléttprjóni með kanta að framan og mynstur á ermum eins og áður án þess að auka út þar til stykkið mælist 13-14-15-15-16-17-18 cm frá merki fyrir miðju að framan – síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 39-40-42-46-48-50-50 Lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 43-43-45-47-49-51-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-10-10-10-10 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 64-66-70-74-78-82-86 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 43-43-45-47-49-51-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-10-10-10-10 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 39-40-42-46-48-50-50 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 154-162-174-186-194-202-206 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður þar til stykkið mælist 28-30-32-35-36-39-45 cm frá merki fyrir miðju að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT því sem aukið er út um 24-28-32-36-36-36-36 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 (ekki er aukið út yfir kanta að framan) – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 178-190-206-222-230-238-242 lykkjur og prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið – munið eftir útaukning) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 31-33-35-38-40-43-49 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 34-36-38-41-43-46-52 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 43-43-45-47-49-51-53 lykkjur af þræði frá ermi í annarri hlið á stykki á hringprjón 3,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-8-10-10-10-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 49-51-55-57-59-61-63 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-8-10-10-10-10-10 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Haldið áfram með A.2 hringinn, 4 lykkjur fyrir miðju undir ermi eiga alltaf að vera prjónaðar í sléttprjóni að loka máli – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 8-10-8-9-10-11-12 cm alls 3-3-4-4-4-4-4 sinnum = 43-45-47-49-51-53-55 lykkjur í umferð. Prjónið þar til ermin mælist 19-24-28-32-35-39-42 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 9-7-9-7-9-11-9 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 52-52-56-56-60-64-64 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 22-27-31-35-39-43-46 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cherrypopcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 50-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.