Marisa skrifaði:
Ho un bimbo che non ha compiuto i tre anni. Quale taglia mi consigliate?. Grazie
09.10.2026 - 14:50DROPS Design svaraði:
Buongiorno Marisa, in fondo alla pagina può trovare lo schema con le misure per scegliere la taglia corretta. Buon lavoro!
10.10.2026 - 09:44
Guyane skrifaði:
Combien de mailles pour une veste de grandeur de 4 ans? Je débute dans le tricot. 2- Les aiguilles à double pointes . C'est comment sont-elles faites? Merci beaucoup
12.08.2026 - 23:50DROPS Design svaraði:
Bonjour Guyanne, la taille 3/4 ans correspond à la 2ème taille, choisissez les indications en 2ème position dans la liste de chaque nombre, autrement dit, vous monterez 104 mailles avec une aiguille circulaire 2,5. Découvrez nos aiguilles doubles pointes ici. Bon tricot!
13.08.2026 - 09:44
Snow Funfetti Cardigan#snowfunfetticardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og i-cord. Stærð 2 – 14 ára.
DROPS Children 50-30 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig (= 6 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 4 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig (= 6 lykkjur): Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Á EFTIR LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjóninn með því að stinga vinstri prjóni aftan í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-5-5-6 næstu hnappagötum með ca 6½-7-6-6½-6½-7½-6½ cm á milli hverra hnappagata. Neðsta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs á fram- og bakstykki. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Þegar lykkjur eru auknar jafnt út í skiptinguna yfir í stroff, þá verður útaukningin jafnari ef aukið er út þar sem lykkjurnar verða síðan prjónaðar brugðnar, sléttprjónið heldur þá fallega áfram inn í stroffið. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir laskalínu. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 101-103-109-111-117-119-125 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Baby Merino. Prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: 6 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 6 kantlykkjur að framan með i-cord. Haldið svona áfram með stroff í 3½-3½-4-4-4½-4½-4½ cm. Setjið 1 merki innan við kant að framan í annarri hlið á stykki (= miðja að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 3. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju, þessar lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og það á að auka út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur. Teljið 20-20-22-22-24-24-26 lykkjur (= framstykki), setjið 1. merki í næstu lykkju, teljið 15 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 27-29-31-33-35-37-39 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 15 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju. Það eru 20-20-22-22-24-24-26 lykkjur eftir í umferð fyrir framstykki. Prjónið sléttprjón fram og til baka með kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjur – lesið leiðbeiningar að ofan. Munið eftir að fella af fyrir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, aukið er út hvoru megin við laskalykkjurnar frá réttu alls 17-19-21-22-23-24-24 sinnum (= 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð) = 237-255-277-287-301-311-317 lykkjur. Munið að fylgja prjónfestunni. Útaukningu fyrir ermar er nú lokið, en haldið áfram að auka út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki í annarri hverri umferð 6-6-5-6-6-6-7 sinnum til viðbótar (= 4 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð) = 261-279-297-311-325-335-345 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út alls 23-25-26-28-29-30-31 sinnum á framstykki/bakstykki og 17-19-21-22-23-24-24 sinnum á ermum. Prjónið síðan sléttprjón og kanta að framan án þess að auka út þar til stykkið mælist 14-15-15-16-17-18-19 cm frá merki við miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 44-46-49-51-54-55-58 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 49-53-57-59-61-63-63 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-8-8-10-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 75-81-85-91-95-99-103 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 49-53-57-59-61-63-63 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-8-8-10-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 44-46-49-51-54-55-58 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 179-189-199-209-219-229-243 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður þar til stykkið mælist 26-28-30-32-33-35-41 cm frá merki fyrir miðju að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT því sem aukið er út um 38-40-44-48-50-52-52 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 (ekki er aukið út yfir kanta að framan) – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 217-229-243-257-269-281-295 lykkjur og prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukning) þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 29-31-33-35-37-39-45 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 32-34-36-38-40-42-48 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 49-53-57-59-61-63-63 lykkjur af þræði frá ermi í annarri hlið á stykki á hringprjón 3 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-8-10-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 57-61-65-67-71-73-75 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-8-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 4-4-5-5½-6-6-8 cm alls 4-5-5-5-5-6-5 sinnum = 49-51-55-57-59-61-65 lykkjur í umferð. Prjónið þar til ermin mælist 18-22-26-30-33-36-40 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 11-11-11-13-15-15-15 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 60-62-66-70-74-76-80 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 21-25-29-33-37-40-44 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #snowfunfetticardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 50-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.