DROPS Super Sale - 7 tegundir af bómullargarnir á afslætti í allan mars!
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpaka, 23% Jedwab
frá 902.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4510.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Lilac Serenade Cardigan

Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri, ermalykkjur prjónaðar upp við handveg og prjónað fram. Stærð XS - XXXL.

Velja stærð:


DROPS 266-9

#lilacserenadecardigan

DROPS Design: Mynstur as-213
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
125-150-150-175-175-200-225 gr litur 13, Gallabuxnablár

TÖLUR:
DROPS TALA NR 612: 6-6-6-7-7-7-7 stykki.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: Lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
19 lykkjur á breidd og 25 umferðir á hæð með sléttprjóni með prjóna nr 4 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpaka, 23% Jedwab
frá 902.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4510.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

0
0

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.
Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING:
Öll útaukning er gerð frá réttu.
Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð frá röngu er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan:
Í BYRJUN UMFERÐAR (= uppslátturinn snýr til hægri):
Færið uppsláttinn af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni.
Í LOK UMFERÐAR (= uppslátturinn snýr til vinstri):
Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat.
Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD:
RÉTTA: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.
RANGA: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD:
RÉTTA: : Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni.
RANGA: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að lykkjur hafa verið fitjaðar upp fyrir hálsmáli. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 7½-8-8-7-7-7½-8 cm á milli hverra hnappagata. Stillið af að neðsta hnappagatið sé staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs á fram- og bakstykki.

LEIÐBEININGAR PRJÓN:
Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig:
Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum).
Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 3 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr í miðju á þessum 3 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum.
Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka ofan frá og niður á hringprjóna hvort fyrir sig niður að handvegi. Síðan eru stykkin sett saman og fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við, fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.
Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermar prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli.

VINSTRI ÖXL BAKSTYKKI:
Fitjið upp 21-22-23-25-25-26-28 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Brushed Alpaca Silk.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt, prjónið A.1 (= 11-11-11-11-13-13-13 lykkjur), prjónið 6-6-8-8-8-10-10 lykkjur slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 6-6-8-8-8-10-10 lykkjur brugðið, prjónið A.1, prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur brugðið.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2 sinnum (= 4 umferðir prjónaðar) – síðasta prjónaða umferðin er síðasta umferðin í A.1.

Aukið síðan út að hálsmáli, prjónið þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 6-6-8-8-8-10-10 lykkjur slétt, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar = 22-23-24-26-26-27-29 lykkjur.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 7-7-9-9-9-11-11 lykkjur brugðið, prjónið A.1, prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur brugðið.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 7-7-9-9-9-11-11 lykkjur slétt, fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 24-25-26-28-28-29-31 lykkjur.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 9-9-11-11-11-13-13 lykkjur brugðið, prjónið A.1, prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur brugðið.
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 9-9-11-11-11-13-13 lykkjur slétt. Klippið þráðinn. Leggið stykkið til hliðar og prjónið hægri öxl eins og útskýrt er að neðan.

HÆGRI ÖXL BAKSTYKKI:
Fitjið upp 21-22-23-25-25-26-28 lykkjur á hringprjón 4.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 6-6-8-8-8-10-10 lykkjur slétt, prjónið A.1 (= 11-11-11-11-13-13-13 lykkjur), prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur brugðið, prjónið A.1, prjónið 6-6-8-8-8-10-10 lykkjur brugðið.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2 sinnum (= 4 umferðir prjónaðar) – síðasta prjónaða umferðin er síðasta umferðin í A.1.

Aukið síðan út að hálsmáli, prjónið þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 6-6-8-8-8-10-10 lykkjur slétt, prjónið A.1 (= 11-11-11-11-13-13-13 lykkjur), prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur brugðið, prjónið A.1, prjónið 6-6-8-8-8-10-10 lykkjur brugðið, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar = 22-23-24-26-26-27-29 lykkjur.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 7-7-9-9-9-11-11 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur brugðið, prjónið A.1, prjónið 7-7-9-9-9-11-11 lykkjur brugðið, fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 24-25-26-28-28-29-31 lykkjur.
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið 9-9-11-11-11-13-13 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt.
Klippið ekki þráðinn, síðan eru axlirnar settar saman fyrir bakstykki eins og útskýrt er að neðan.

BAKSTYKKI:
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig:
Prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur brugðið, prjónið A.1, prjónið 9-9-11-11-11-13-13 lykkjur brugðið, fitjið upp 31-31-33-33-37-39-39 nýjar lykkjur á umferð fyrir hálsmál, prjónið yfir lykkjurnar frá vinstri öxl frá röngu þannig: Prjónið 9-9-11-11-11-13-13 lykkjur brugðið, prjónið A.1, prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur brugðið = 79-81-85-89-93-97-101 lykkjur.
Nú er prjónað fram og til baka í sléttprjóni með alls 4 mynstureiningum í mynstri (= A.1) á bakstykki, næsta umferð er prjónuð frá réttu til að setja niður mynstrið þannig:
Prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt, prjónið A.1 (= 11-11-11-11-13-13-13 lykkjur), prjónið 9-9-11-11-11-13-13 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 9-9-11-11-11-13-13 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 9-9-11-11-11-13-13 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 9-9-11-11-11-13-13 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 18-18-17-18-18-18-19 cm frá uppfitjunarkanti – stillið af að síðasta umferðin sem var prjónuð sé síðasta umferðin í A.1 (= ranga). Aukið nú út í hvorri hlið fyrir handveg.

ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG:
UMFERÐ 1 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og prjónið 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 3 lykkjur slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið eins og áður – munið að prjónað uppsláttinn eins og útskýrt er í LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-4-6-6-8-9-9 sinnum (= 6-8-12-12-16-18-18 umferðir prjónaðar) = 85-89-97-101-109-115-119 lykkjur í umferð.
Stykkið mælist ca 20-21-22-23-24-25-26 cm frá uppfitjunarkanti á öxl, endið með umferð frá röngu. Klippið þráðinn. Prjónið nú framstykkin eins og útskýrt er að neðan.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 21-22-23-25-25-26-28 lykkjur á hringprjón 4.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt, prjónið A.1 (= 11-11-11-11-13-13-13 lykkjur), prjónið 6-6-8-8-8-10-10 lykkjur slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 6-6-8-8-8-10-10 lykkjur brugðið, prjónið A.1, prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur brugðið.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-4-6-6-6-8-8 sinnum (= 8-8-12-12-12-16-16 umferðir prjónaðar) – síðasta umferðin sem var prjónuð er síðasta umferðin í A.1.

Aukið síðan út að hálsmáli, prjónið þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 6-6-8-8-8-10-10 lykkjur slétt, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar = 22-23-24-26-26-27-29 lykkjur.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 7-7-9-9-9-11-11 lykkjur brugðið, prjónið A.1, prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur brugðið.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 7-7-9-9-9-11-11 lykkjur slétt, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar = 23-24-25-27-27-28-30 lykkjur.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 8-8-10-10-10-12-12 lykkjur brugðið, prjónið A.1, prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur brugðið.
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 8-8-10-10-10-12-12 lykkjur slétt, fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 25-26-27-29-29-30-32 lykkjur.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 9-9-11-11-11-13-13 lykkjur brugðið, prjónið A.1, prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur brugðið.
UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 9-9-11-11-11-13-13 lykkjur slétt, 1 lykkju brugðið, fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 27-28-29-31-31-32-34 lykkjur.
UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur brugðið, 1 lykkju slétt, prjónið 9-9-11-11-11-13-13 lykkjur brugðið, prjónið A.1, prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur brugðið.
UMFERÐ 9 (= rétta): Prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 9-9-11-11-11-13-13 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt, fitjið upp 19-19-20-20-22-23-23 nýjar lykkjur í lok umferðar = 46-47-49-51-53-55-57 lykkjur.

Nú þegar útaukningu fyrir hálsmáli er lokið, prjónið kant að framan og mynstur þannig:
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – sjá útskýringu að ofan (= 6 lykkjur), prjónið 5-5-6-6-6-7-7 lykkjur brugðið, prjónið A.1, prjónið 9-9-11-11-11-13-13 lykkjur brugðið, prjónið A.1, prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur brugðið.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 9-9-9-11-11-11-13-13 lykkjur slétt, prjónið A.1, 5-5-6-6-6-7-7 lykkjur slétt, prjónið hægri kant að framan með i-cord, munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.

Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til stykkið mælist 18-18-17-18-18-18-19 cm frá uppfitjunarkanti – stillið af að síðasta umferðin sem var prjónuð sé síðasta umferðin í A.1 (= ranga). Nú er aukið út í hlið fyrir handveg.

ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG:
UMFERÐ 1 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og prjónið 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið eins og áður út umferðina.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið eins og áður – munið að prjónað uppsláttinn eins og útskýrt er í LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-4-6-6-8-9-9 sinnum (= 6-8-12-12-16-18-18 umferðir prjónaðar) = 49-51-55-57-61-64-66 lykkjur í umferð.
Stykkið mælist ca 20-21-22-23-24-25-26 cm frá uppfitjunarkanti á öxl, endið með umferð frá röngu. Klippið þráðinn. Prjónið nú framstykki eins og útskýrt er að neðan.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 21-22-23-25-25-26-28 lykkjur á hringprjón 4.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 6-6-8-8-8-10-10 lykkjur slétt, prjónið A.1 (= 11-11-11-11-13-13-13 lykkjur), prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur brugðið, prjónið A.1, prjónið 6-6-8-8-8-10-10 lykkjur brugðið.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-4-6-6-6-8-8 sinnum (= 8-8-12-12-12-16-16 umferðir prjónaðar) – síðasta umferðin sem var prjónuð er síðasta umferðin í A.1.

Aukið síðan út að hálsmáli, prjónið þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 6-6-8-8-8-10-10 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur brugðið, prjónið A.1, prjónið 6-6-8-8-8-10-10 lykkjur brugðið, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar = 22-23-24-26-26-27-29 lykkjur.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 7-7-9-9-9-11-11 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur brugðið, prjónið A.1, prjónið 7-7-9-9-9-11-11 lykkjur brugðið, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar = 23-24-25-27-27-28-30 lykkjur.
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið 8-8-10-10-10-12-12 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur brugðið, prjónið A.1, prjónið 8-8-10-10-10-12-12 lykkjur brugðið, fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 25-26-27-29-29-30-32 lykkjur.
UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 9-9-11-11-11-13-13 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt.
UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur brugðið, prjónið A.1, prjónið 9-9-11-11-11-13-13 lykkjur brugðið, prjónið 1 lykkju slétt, fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 27-28-29-31-31-32-34 lykkjur.
UMFERÐ 9 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 9-9-11-11-11-13-13 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt.
UMFERÐ 10 (= ranga): Prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur brugðið, prjónið A.1, prjónið 9-9-11-11-11-13-13 lykkjur brugðið, prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur brugðið, fitjið upp 19-19-20-20-22-23-23 nýjar lykkjur í lok umferðar = 46-47-49-51-53-55-57 lykkjur.

Nú þegar útaukningu fyrir hálsmáli er lokið, prjónið kant að framan og mynstur þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – sjá útskýringu að ofan (= 6 lykkjur), prjónið 5-5-6-6-6-7-7 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 9-9-11-11-11-13-13 lykkjur slétt, prjónið A.1, 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur brugðið, prjónið A.1, prjónið 9-9-9-11-11-13-13 lykkjur brugðið, prjónið A.1, prjónið 5-5-6-6-6-7-7 lykkjur brugðið, prjónið vinstri kant að framan með i-cord.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til stykkið mælist 18-18-17-18-18-18-19 cm frá uppfitjunarkanti – stillið af að síðasta prjónaða umferðin sé síðasta umferðin í A.1 (= ranga). Nú er aukið út í hlið fyrir handveg.

ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG:
UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og prjónið eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 3 lykkjur slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið eins og áður – munið að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er í LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-4-6-6-8-9-9 sinnum (= 6-8-12-12-16-18-18 umferðir prjónaðar) = 49-51-55-57-61-64-66 lykkjur í umferð.

Stykkið mælist ca 20-21-22-23-24-25-26 cm frá uppfitjunarkanti á öxl, endið með umferð frá röngu. Klippið ekki þráðinn, stykkin verða nú prjónuð saman til að mynda fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
Prjónið eins og áður yfir 49-51-55-57-61-64-66 lykkjur frá vinstra framstykki, fitjið upp 11-11-13-13-15-19-23 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið eins og áður yfir 85-89-97-101-109-115-119 lykkjur frá bakstykki, fitjið upp 11-11-13-13-15-19-23 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið eins og áður yfir 49-51-55-57-61-64-66 lykkjur frá hægra framstykki = 205-213-233-241-261-281-297 lykkjur.
Prjónið mynstur og sléttprjón með kanta að framan eins og áður, í hliðum á fram- og bakstykki er prjónuð 1 mynstureining af A.1 (= 11-11-11-11-13-13-13 lykkjur) mitt í 11-11-13-13-15-19-23 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi og það eiga að vera 7-9-11-13-13-15-21 lykkjur í sléttprjóni hvoru megin við mynstureiningu fyrir miðju undir ermi – þ.e.a.s. prjónið alls 10 mynstureiningar af A.1 í kringum fram- og bakstykkið (= 2 mynstureiningar á hvoru framstykki, 4 mynstureiningar á bakstykki og 1 mynstureining undir hvorri ermi).
Prjónið þar til stykkið mælist 45-47-49-51-53-55-57 cm frá uppfitjunarkanti á öxl – prjónið síðustu umferðina frá röngu.

Í næstu umferð frá réttu, byrjið stroffið, stroffið á að ganga fallega upp í mynstri, prjónið þannig:
Skipið yfir í hringprjón 3, prjónið kant að framan eins og áður, prjónið 0-0-1-1-1-0-0 brugðið, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 1-1-0-0-0-1-1 lykkjur slétt, endið með kant að framan eins og áður.
Þegar stroffið mælist 3 cm, fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti á öxl.

FRÁGANGUR-1:
Saumið axlasaumana.

ERMAR:
Ermin er prjónuð frá handvegi og niður.
Notið hringprjón 4 og prjónið upp lykkjur aðeins fast (notið e.t.v. fínni prjón).
PRJÓNIÐ UPP LYKKJUR ÞANNIG:
Byrjið í miðju lykkjunni á nýjum lykkjum sem voru fitjaðar upp undir erminni - prjónið upp 84-88-94-98-102-110-118 lykkjur í kringum handveginn - stillið af þannig að prjónuð sé upp 1 lykkja í axlasauminn og jafnmargar lykkjur hvoru megin við axlasauminn.

Setjið 2 merki í umferðina hvoru megin við 11-11-11-11-13-13-13 lykkjur fyrir miðju ofan á ermi (þ.e.a.s. miðjulykkjan = lykkja í axlasaumnum), prjónið 1 mynstureiningu af A.1 yfir þessar lykkjur.

ERMAKÚPA:
Til að flíkin passi betur er prjónað sléttprjón og mynstur með stuttum umferðum fram og til baka yfir ermakúpuna, byrjun umferðar er fyrir miðju undir ermi og prjónað er þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 1 lykkja hefur verið prjónuð fram hjá A.1 fyrir miðju ofan á öxlinni (þ.e.a.s. prjónið allt A.1 fyrir miðju ofan á öxlinni á milli merkja í umferð og 1 lykkju sléttprjón), snúið stykkinu – sjá LEIÐBEININGAR PRJÓN.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 1 lykkja hefur verið prjónuð fram hjá A.1, snúið stykkinu við.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur fram hjá þar sem stykkinu var snúið við síðast, snúið stykkinu við.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur fram hjá þar sem stykkinu var snúið við síðast, snúið stykkinu við.
Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4.
Prjónið þar til stykkinu hefur verið snúið við alls 20-20-22-22-26-26-30 sinnum (= 10-10-11-11-13-13-15 sinnum í hvorri hlið og síðasta umferðin er prjónuð frá röngu).

Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ:
Í síðasta skipti sem umferð 4 er prjónuð, endið umferðina með því að snúa stykkinu við, prjónið síðan frá réttu að byrjun umferðar (= miðja undir ermi).
Setjið 1 merkiþráð í miðjulykkjuna undir ermi, merkiþráðurinn er notaður þegar lykkjum er fækkað undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu.
Prjónið nú í hring með A.1 á milli merkja eins og áður og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru á meðan lykkjum er fækkað undir ermi - sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig:
Þegar ermin hefur verið prjónuð í 1 umferð, fækkið um 2 lykkjur, fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 14-14-15-13-11-11-11 sinnum = 56-60-64-72-80-88-96 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 21 cm frá miðju efst á öxl – ermin mælist ca 13-13-12-12-11-11-9 cm frá miðju undir erminni – stillið af að síðasta umferðin sem prjónuð er sé umferð 1 eða 2 í A.1.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) – stillið stroffið af til að passa við brugðnu lykkjurnar í A.1. Þegar stroffið mælist 3 cm, fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 24 cm frá miðju efst á öxl.

HÁLSMÁL:
Notið hringprjón 3, byrjið frá réttu við miðju að framan og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 6 kantlykkjum að framan, prjónið síðan upp ca 95-95-103-103-115-121-121 lykkjur í kringum hálsmál, endið með því að taka upp 1 lykkju í hverja af síðustu 6 kantlykkjum að framan = 107-107-115-115-127-133-133 lykkjur, fjöldi lykkja verður að vera deilanlegur með 2 + 1.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 6 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið og 1 lykkja slétt) þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 6 kantlykkjur að framan eins og áður.

Prjónið stroff með kantlykkjum að framan fram og til baka í 3-3-3-3-3½-3½-3½ cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

FRÁGANGUR-2:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

Slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu = Slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
Brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu = Brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
Á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt frá réttu og brugðið frá röngu – það á að myndast gat = Á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt frá réttu og brugðið frá röngu – það á að myndast gat
Prjónið 3 lykkjur slétt, lyftið 3 lykkjunum til baka yfir á vinstri prjón, steypið næst ystu lykkjunni á vinstri prjóni yfir ystu lykkjuna, þannig að þessi lykkja liggi utan um ystu lykkjuna, steypið næst ystu lykkjunni á vinstri prjóni yfir ystu lykkjuna einu sinni til viðbótar, þannig að þessi lykkja liggi einnig utan um síðustu lykkjuna (= 2 lykkjur færri), lyftið til baka síðustu prjónuðu lykkjuna yfir á hægri prjón =
Prjónið 3 lykkjur slétt, lyftið 3 lykkjunum til baka yfir á vinstri prjón, steypið næst ystu lykkjunni á vinstri prjóni yfir ystu lykkjuna, þannig að þessi lykkja liggi utan um ystu lykkjuna, steypið næst ystu lykkjunni á vinstri prjóni yfir ystu lykkjuna einu sinni til viðbótar, þannig að þessi lykkja liggi einnig utan um síðustu lykkjuna (= 2 lykkjur færri), lyftið til baka síðustu prjónuðu lykkjuna yfir á hægri prjón
Prjónið 3 lykkjur slétt, steypið næst ystu lykkjunni á hægri prjóni yfir ystu lykkjuna, þannig að þessi lykkja liggi utan um síðustu lykkjuna sem var prjónuð, steypið næst ystu lykkjunni á hægri prjóni yfir ystu lykkjuna einu sinni til viðbótar, þannig að þessi lykkja liggi einnig utan um síðustu lykkjuna (= 2 lykkjur færri) = Prjónið 3 lykkjur slétt, steypið næst ystu lykkjunni á hægri prjóni yfir ystu lykkjuna, þannig að þessi lykkja liggi utan um síðustu lykkjuna sem var prjónuð, steypið næst ystu lykkjunni á hægri prjóni yfir ystu lykkjuna einu sinni til viðbótar, þannig að þessi lykkja liggi einnig utan um síðustu lykkjuna (= 2 lykkjur færri)
Diagram for DROPS 266-9
Diagram for DROPS 266-9

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lilacserenadecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 266-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.