Lilac Serenade Top#lilacserenadetop |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri, ermalykkjur prjónaðar upp við handveg og prjónað fram. Stærð XS - XXXL.
DROPS 266-10 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð frá röngu er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Í BYRJUN UMFERÐAR (= uppslátturinn snýr til hægri): Færið uppsláttinn af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. Í LOK UMFERÐAR (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 3 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr í miðju á þessum 3 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka ofan frá og niður á hringprjóna hvort fyrir sig niður að handvegi. Síðan eru stykkin sett saman og fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermar prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. VINSTRI ÖXL BAKSTYKKI: Fitjið upp 21-22-23-25-25-26-28 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt, prjónið A.1 (= 11-11-11-11-13-13-13 lykkjur), prjónið 6-6-8-8-8-10-10 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 6-6-8-8-8-10-10 lykkjur brugðið, prjónið A.1, prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2 sinnum (= 4 umferðir prjónaðar) – síðasta prjónaða umferðin er síðasta umferðin í A.1. Aukið síðan út að hálsmáli, prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 6-6-8-8-8-10-10 lykkjur slétt, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar = 22-23-24-26-26-27-29 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 7-7-9-9-9-11-11 lykkjur brugðið, prjónið A.1, prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur brugðið. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 7-7-9-9-9-11-11 lykkjur slétt, fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 24-25-26-28-28-29-31 lykkjur. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 9-9-11-11-11-13-13 lykkjur brugðið, prjónið A.1, prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur brugðið. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 9-9-11-11-11-13-13 lykkjur slétt. Klippið þráðinn. Leggið stykkið til hliðar og prjónið hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRI ÖXL BAKSTYKKI: Fitjið upp 21-22-23-25-25-26-28 lykkjur á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 6-6-8-8-8-10-10 lykkjur slétt, prjónið A.1 (= 11-11-11-11-13-13-13 lykkjur), prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur brugðið, prjónið A.1, prjónið 6-6-8-8-8-10-10 lykkjur brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2 sinnum (= 4 umferðir prjónaðar) – síðasta prjónaða umferðin er síðasta umferðin í A.1. Aukið síðan út að hálsmáli, prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 6-6-8-8-8-10-10 lykkjur slétt, prjónið A.1 (= 11-11-11-11-13-13-13 lykkjur), prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur brugðið, prjónið A.1, prjónið 6-6-8-8-8-10-10 lykkjur brugðið, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar = 22-23-24-26-26-27-29 lykkjur. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 7-7-9-9-9-11-11 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur brugðið, prjónið A.1, prjónið 7-7-9-9-9-11-11 lykkjur brugðið, fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 24-25-26-28-28-29-31 lykkjur. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið 9-9-11-11-11-13-13 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt. Klippið ekki þráðinn, síðan eru axlirnar settar saman fyrir bakstykki eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI: Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur brugðið, prjónið A.1, prjónið 9-9-11-11-11-13-13 lykkjur brugðið, fitjið upp 31-31-33-33-37-39-39 nýjar lykkjur á umferð fyrir hálsmáli, prjónið yfir lykkjurnar frá vinstri öxl frá röngu þannig: Prjónið 9-9-11-11-11-13-13 lykkjur brugðið, prjónið A.1, prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur brugðið = 79-81-85-89-93-97-101 lykkjur. Nú er prjónað fram og til baka í sléttprjóni með alls 4 mynstureiningum í mynstri (= A.1) á bakstykki, næsta umferð er prjónuð frá réttu til að setja niður mynstrið þannig: Prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt, prjónið A.1 (= 11-11-11-11-13-13-13 lykkjur), prjónið 9-9-11-11-11-13-13 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 9-9-11-11-11-13-13 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 9-9-11-11-11-13-13 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 9-9-11-11-11-13-13 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 18-18-17-18-18-18-19 cm frá uppfitjunarkanti – stillið af að síðasta umferðin sem var prjónuð sé síðasta umferðin í A.1 (= ranga). Aukið nú út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og prjónið 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið eins og áður – munið að prjónað uppsláttinn eins og útskýrt er í LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-4-6-6-8-9-9 sinnum (= 6-8-12-12-16-18-18 umferðir prjónaðar) = 85-89-97-101-109-115-119 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 20-21-22-23-24-25-26 cm frá uppfitjunarkanti á öxl, endið með umferð frá röngu. Klippið þráðinn. Prjónið nú framstykkin eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 21-22-23-25-25-26-28 lykkjur á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt, prjónið A.1 (= 11-11-11-11-13-13-13 lykkjur), prjónið 6-6-8-8-8-10-10 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 6-6-8-8-8-10-10 lykkjur brugðið, prjónið A.1, prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-4-6-6-6-8-8 sinnum (= 8-8-12-12-12-16-16 umferðir prjónaðar) – síðasta umferðin sem var prjónuð er síðasta umferðin í A.1. Aukið síðan út að hálsmáli, prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 6-6-8-8-8-10-10 lykkjur slétt, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar = 22-23-24-26-26-27-29 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 7-7-9-9-9-11-11 lykkjur brugðið, prjónið A.1, prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur brugðið. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 7-7-9-9-9-11-11 lykkjur slétt, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar = 23-24-25-27-27-28-30 lykkjur. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 8-8-10-10-10-12-12 lykkjur brugðið, prjónið A.1, prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur brugðið. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 8-8-10-10-10-12-12 lykkjur slétt, fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 25-26-27-29-29-30-32 lykkjur. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 9-9-11-11-11-13-13 lykkjur brugðið, prjónið A.1, prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur brugðið. UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 9-9-11-11-11-13-13 lykkjur slétt, 1 lykkju brugðið, fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 27-28-29-31-31-32-34 lykkjur. UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur brugðið, 1 lykkju slétt, prjónið 9-9-11-11-11-13-13 lykkjur brugðið, prjónið A.1, prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur brugðið. UMFERÐ 9 (= rétta): Prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 9-9-11-11-11-13-13 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt. Klippið þráðinn. Nú er vinstra framstykkið prjónað eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 21-22-23-25-25-26-28 lykkjur á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 6-6-8-8-8-10-10 lykkjur slétt, prjónið A.1 (= 11-11-11-11-13-13-13 lykkjur), prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur brugðið, prjónið A.1, prjónið 6-6-8-8-8-10-10 lykkjur brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-4-6-6-6-8-8 sinnum (= 8-8-12-12-12-16-16 umferðir prjónaðar) – síðasta umferðin sem var prjónuð er síðasta umferðin í A.1. Aukið síðan út að hálsmáli, prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 6-6-8-8-8-10-10 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur brugðið, prjónið A.1, prjónið 6-6-8-8-8-10-10 lykkjur brugðið, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar = 22-23-24-26-26-27-29 lykkjur. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 7-7-9-9-9-11-11 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur brugðið, prjónið A.1, prjónið 7-7-9-9-9-11-11 lykkjur brugðið, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar = 23-24-25-27-27-28-30 lykkjur. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið 8-8-10-10-10-12-12 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur brugðið, prjónið A.1, prjónið 8-8-10-10-10-12-12 lykkjur brugðið, fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 25-26-27-29-29-30-32 lykkjur. UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 9-9-11-11-11-13-13 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt. UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur brugðið, prjónið A.1, prjónið 9-9-11-11-11-13-13 lykkjur brugðið, prjónið 1 lykkju slétt, fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 27-28-29-31-31-32-34 lykkjur. UMFERÐ 9 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 9-9-11-11-11-13-13 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt. Ekki klippa þráðinn, stykkin eru nú prjónuð saman í eitt framstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur brugðið, prjónið A.1, prjónið 9-9-11-11-11-13-13 lykkjur brugðið, fitjið upp 25-25-27-27-31-33-33 nýjar lykkjur á umferð fyrir hálsmáli, prjónið yfir lykkjurnar frá hægri öxl frá röngu þannig: Prjónið 9-9-11-11-11-13-13 lykkjur brugðið, prjónið A.1, prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur brugðið = 79-81-85-89-93-97-101 lykkjur. Nú er prjónað fram og til baka í sléttprjóni með alls 4 mynstureiningum í mynstri (= A.1) á framstykki, prjónið næstu umferð frá réttu til að setja niður mynstrið þannig: Prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt, prjónið A.1 (= 11-11-11-11-13-13-13 lykkjur), prjónið 9-9-11-11-11-13-13 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 9-9-11-11-11-13-13 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 9-9-11-11-11-13-13 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 9-9-11-11-11-13-13 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 4-5-4-6-4-3-5 lykkjur slétt. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 18-18-17-18-18-18-19 cm frá uppfitjunarkanti – stillið af að síðasta prjónaða umferðin sé síðasta umferð í A.1 (= ranga). Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og prjónið 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið eins og áður – munið að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er í LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-4-6-6-8-9-9 sinnum (= 6-8-12-12-16-18-18 umferðir prjónaðar) = 85-89-97-101-109-115-119 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 20-21-22-23-24-25-26 cm frá uppfitjunarkanti á öxl, endið með umferð frá röngu. Klippið ekki þráðinn, stykkin verða nú prjónuð saman til að mynda fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir 85-89-97-101-109-115-119 lykkjur frá vinstra framstykki, fitjið upp 11-11-13-13-15-19-23 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið eins og áður yfir 85-89-97-101-109-115-119 lykkjur frá bakstykki, fitjið upp 11-11-13-13-15-19-23 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) = 192-200-220-228-248-268-284 lykkjur. Prjónið hringinn með mynstur og sléttprjón eins og áður, í hliðum á fram- og bakstykki er prjónuð 1 mynstureining af A.1 (= 11-11-11-11-13-13-13 lykkjur) mitt í 11-11-13-13-15-19-23 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi og það eiga að vera 7-9-11-13-13-15-21 lykkjur í sléttprjóni hvoru megin við mynstureiningu fyrir miðju undir ermi – þ.e.a.s. prjónið alls 10 mynstureiningar af A.1 í kringum fram- og bakstykkið (= 4 mynstureiningar framstykki, 4 mynstureiningar á bakstykki og 1 mynstureining undir hvorri ermi). Umferðin byrjar eftir síðustu mynstureiningu með A.1 undir ermi. Prjónið þar til stykkið mælist 45-47-49-51-53-55-57 cm frá uppfitjunarkanti á öxl – stillið af að síðasta prjónaða umferðin sé umferð 1 eða 2 í A.1. Skipið yfir í hringprjón 3, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) – stillið stroffið af þannig að það passi með brugðnar lykkjur í A.1, stroffið á að ganga fallega upp í mynstrið. Þegar stroffið mælist 3 cm, fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti á öxl. FRÁGANGUR: Saumið axlasaumana. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handvegi og niður. Notið hringprjón 4 og prjónið upp lykkjur aðeins fast (notið e.t.v. fínni prjón). PRJÓNIÐ UPP LYKKJUR ÞANNIG: Byrjið í miðju lykkjunni á nýjum lykkjum sem voru fitjaðar upp undir erminni - prjónið upp 84-88-94-98-102-110-118 lykkjur í kringum handveginn - stillið af þannig að prjónuð sé upp 1 lykkja í axlasauminn og jafnmargar lykkjur hvoru megin við axlasauminn. Setjið 2 merki í umferðina hvoru megin við 11-11-11-11-13-13-13 lykkjur fyrir miðju ofan á ermi (þ.e.a.s. miðjulykkjan = lykkja í axlasaumnum), prjónið 1 mynstureiningu af A.1 yfir þessar lykkjur. ERMAKÚPA: Til að flíkin passi betur er prjónað sléttprjón og mynstur með stuttum umferðum fram og til baka yfir ermakúpuna, byrjun umferðar er fyrir miðju undir ermi og prjónað er þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 1 lykkja hefur verið prjónuð fram hjá A.1 fyrir miðju ofan á öxlinni (þ.e.a.s. prjónið allt A.1 fyrir miðju ofan á öxlinni á milli merkja í umferð og 1 lykkju sléttprjón), snúið stykkinu – sjá LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 1 lykkja hefur verið prjónuð fram hjá A.1, snúið stykkinu við. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur fram hjá þar sem stykkinu var snúið við síðast, snúið stykkinu við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur fram hjá þar sem stykkinu var snúið við síðast, snúið stykkinu við. Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4. Prjónið þar til stykkinu hefur verið snúið við alls 20-20-22-22-26-26-30 sinnum (= 10-10-11-11-13-13-15 sinnum í hvorri hlið og síðasta umferðin er prjónuð frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er prjónuð, endið umferðina með því að snúa stykkinu við, prjónið síðan frá réttu að byrjun umferðar (= miðja undir ermi). Setjið 1 merkiþráð í miðjulykkjuna undir ermi, merkiþráðurinn er notaður þegar lykkjum er fækkað undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. Prjónið nú í hring með A.1 á milli merkja eins og áður og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru á meðan lykkjum er fækkað undir ermi - sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Þegar ermin hefur verið prjónuð í 1 umferð, fækkið um 2 lykkjur, fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 14-14-15-13-11-11-11 sinnum = 56-60-64-72-80-88-96 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 21 cm frá miðju efst á öxl – ermin mælist ca 13-13-12-12-11-11-9 cm frá miðju undir erminni – stillið af að síðasta umferðin sem prjónuð er sé umferð 1 eða 2 í A.1. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) – stillið stroffið af til að passa við brugðnu lykkjurnar í A.1. Þegar stroffið mælist 3 cm, fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 24 cm frá miðju efst á öxl. HÁLSMÁL: Notið hringprjón 3, prjónið upp lykkjur í kringum hálsmál innan við 1 lykkju frá réttu þannig: Byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp ca 94-94-102-102-114-120-120 lykkjur – lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 3-3-3-3-3½-3½-3½ cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lilacserenadetop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 40 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 266-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.