30% AFSLÁTTUR á 5 tegundum af mjúku ullargarni
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 396.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3564.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Crossing Sand Cardigan

Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Cotton Light. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópsku berustykki, köðlum og i-cord. Stærð XS - XXXL.

Velja stærð:


DROPS 268-23

#crossingsandcardigan

DROPS Design: Mynstur cl-148
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS COTTON LIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
450-500-550-600-650-700-750 gr litur 21, Ljós Beige

TÖLUR:
DROPS TALA NR 521: 6-7-7-7-7-7-8 stykki.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: Lengd 40 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni með prjóna nr 4 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 396.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3564.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

0
0

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1:
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn.
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2:
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn.
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn.

KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD:
Í BYRJUN UMFERÐAR:
Prjónið kant að framan þannig (= 6 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 4 lykkjur í garðaprjóni.
Í LOK UMFERÐAR:
Prjónið kant að framan þannig (= 6 lykkjur): Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.
Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 6 lykkjur eru eftir í umferð þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að lykkjur hafa verið fitjaðar upp fyrir hálsmáli. Fellið síðan af fyrir 5-6-6-6-6-6-7 næstu hnappagötum með ca 6½-6-6-6-6½-6½-6 cm á milli hverra hnappagata. Stillið af að neðsta hnappagatið sé staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs á fram- og bakstykki.

LEIÐBEININGAR ERMI:
Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf.
Stykkið er prjónað samkvæmt útskýringu 1-5.
1- BAKSTYKKI:
Fitjaðar eru upp lykkjur aftan í hnakka og bakstykkið er prjónað fram og til baka niður á við jafnframt því sem lykkjum er aukið út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl.
2- FRAMSTYKKI:
Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, framstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni.
3- BERUSTYKKI:
Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar á sama hringprjón – prjónað er þannig:
Prjónið lykkjur frá öðru framstykkinu, prjónið upp lykkjur fyrir ermi meðfram hlið á framstykki, prjónið lykkjur frá bakstykki, prjónið upp lykkjur fyrir ermi meðfram hlið á hinu framstykkinu og prjónið síðustu lykkjur frá framstykki = síðan er berustykkið prjónað yfir allar lykkjur fram og til baka frá miðju að framan.
4- ÚTAUKNING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
Jafnframt því sem berustykkið er prjónað, á að auka út lykkjur fyrir ermar, fyrst er aukið út fyrir ermar og síðan er aukið út bæði fyrir fram- og bakstykki og ermar.
5- FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
Þegar allar lykkjur hafa verið auknar út og berustykkið hefur verið prjónað að tilgreindu máli, á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka.

-------------------------------------------------------

BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 33-35-37-37-39-39-39 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Cotton Light.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Nú á að auka út í hvorri hlið innan við 3 lykkjur, prjónið þannig:
UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt.
UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið 3 lykkjur brugðið.
Á EFTIR UMFERÐ 3:
Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 11-11-11-12-12-13-13 sinnum (= 22-22-22-24-24-26-26 umferðir prjónaðar), eftir síðustu útaukningu eru = 77-79-81-85-87-91-91 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Finnið hægri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, hægri hlið á stykki = hægri öxl.
Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig:
Byrjið á að prjóna upp 1 lykkju alveg yst í horni á öxl (= kantlykkja), prjónið síðan upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (= 22-22-22-24-24-26-26 lykkjur) = 23-23-23-25-25-27-27 lykkjur fyrir öxl.
Setjið 1 merki í stykkið inn að hálsmáli. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu.

Prjónið fyrstu umferð brugðið frá röngu JAFNFRAMT sem aukið er út um 1-1-1-1-1-2-2 lykkjur jafnt yfir = 24-24-24-26-26-29-29 lykkjur.

Prjónið síðan þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 4-4-4-6-6-3-3 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1, prjónið A.2 alls 2-2-2-2-2-3-3 sinnum, prjónið A.3.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið A.3, prjónið A.2 alls 2-2-2-2-2-3-3 sinnum, prjónið A.1, prjónið 4-4-4-6-6-3-3 lykkjur sléttprjón – frá röngu er mynstrið alltaf prjónað með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið umferð 1 og 2 þar til A.3 er lokið á hæðina = 37-37-37-39-39-42-42 lykkjur. Útaukning fyrir hálsmál hefur verið gerð til loka. Stykkið mælist ca 11 cm frá merki. Ca 2-2-2-1-1-1-1 cm af dýpt á hálsmáli kemur til með að teygja sig yfir á bakstykkið.
Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er prjónuð vinstri öxl meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig:
Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju (= 22-22-22-24-24-26-26 lykkjur.
Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu.

Prjónið fyrstu umferð brugðið frá röngu JAFNFRAMT sem aukið er út um 1-1-1-1-1-2-2 lykkjur jafnt yfir = 24-24-24-26-26-29-29 lykkjur.

Prjónið síðan þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið A.4, prjónið A.2 alls 2-2-2-2-2-3-3 sinnum, prjónið A.5, prjónið 4-4-4-6-6-3-3 lykkjur sléttprjón.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 4-4-4-6-6-3-3 lykkjur sléttprjón, prjónið A.5, prjónið A.2 alls 2-2-2-2-2-3-3 sinnum, prjónið A.4 – frá röngu, mynstrið er alltaf prjónað með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Endurtakið UMFERÐ 1 og 2 þar til A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina = 37-37-37-39-39-42-42 lykkjur.
Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða hjálparprjón, prjónið nú upp ermarnar og tengið allar lykkjurnar saman til að mynda berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Byrjið á að fitja upp 13 lykkjur á hringprjón 4, prjónið síðan frá réttu yfir vinstra framstykkið með mynstri eins og áður (munið að halda áfram með sömu umferð í öllum mynsturteikningum, þ.e.a.s. A.2 byrjar á umferð 9):
Prjónið 2 lykkjur brugðið, A.1x, prjónið A.2 alls 3-3-3-3-3-4-4 sinnum, A.5, prjónið 2-2-2-4-4-1-1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki í umferðina, prjónið upp 23 lykkjur meðfram hlið vinstra framstykkisins (= lykkjur fyrir ermi - lykkjurnar eru fitjaðar upp innan við ystu lykkjuna), setjið 1 merki í umferðina, prjónið fyrstu 2 lykkjurnar af bakstykkinu slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykkinu, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki í umferðina, prjónið upp 23 lykkjur meðfram hlið hægra framstykkis (= lykkjur fyrir ermi - lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkjuna), setjið 1 merki í umferðina, prjónið lykkjurnar frá hægra framstykki frá réttu þannig:
Prjónið fyrstu 2 lykkjurnar slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 2-2-2-4-4-1-1 lykkjur slétt, A.1, prjónið A.2 alls 3-3-3-3-3-4-4 sinnum, prjónið A.5x, prjónið 2 lykkjur brugðið, endið með því að fitja upp 13 nýjar lykkjur í umferðinni = 219-221-223-231-233-243-243 lykkjur.

Það eru 23 lykkjur á hvorri ermi, 49-49-49-51-51-54-54 lykkjur á hvoru framstykki og 75-77-79-83-85-89-89 lykkjur á bakstykki.

Síðan á að prjóna stykkið fram og til baka. Í næstu umferð frá röngu er aukið út um 2 lykkjur á hvorri ermi innan við merkin – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið þannig:
Prjónið 6 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – sjá útskýringu að ofan, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 6 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, prjónið brugðið fram að fyrsta merki, færið prjónamerkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri (= 25 lykkjur fyrir ermi), færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið brugðið fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri (= 25 lykkjur fyrir ermi), færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið brugðið þar til 15 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 6 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, endið með 6 kantlykkjur að framan með i-cord = 223-225-227-235-237-247-247 lykkjur.

Prjónið fram og til baka með mynstri eins og áður jafnframt því sem aukið er út á ermum í hverri umferð frá réttu – munið eftir HNAPPAGAT og LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 6 kantlykkjur að framan með i-cord, A.6, A.1x, prjónið A.2 alls 3-3-3-3-3-4-4 sinnum, A.5, prjónið slétt fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið slétt fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 3-3-3-5-5-2-2 lykkjur slétt, A.1, prjónið A.2 alls 3-3-3-3-3-4-4 sinnum, A.5x, A.7, endið með 6 kantlykkjur að framan með i-cord.

UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur með 6 kantlykkjum að framan í hvorri hlið eins og áður.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 14-15-15-16-14-11-7 sinnum (= 28-30-30-32-28-22-14 umferðir prjónaðar). Það eru 53-55-55-57-53-47-39 lykkjur á hvorri ermi, 49-49-49-51-51-54-54 lykkjur á hvoru framstykki og 75-77-79-83-85-89-89 lykkjur á bakstykki = 279-285-287-299-297-291-275 lykkjur.

Aukið síðan út fyrir báðar ermar og fram- og bakstykki, aukið út fyrir fram- og bakstykki 2 lykkjur innan við merkið þannig að það verði 2 lykkjur í sléttprjóni á milli útaukningar fyrir fram- og bakstykki og útaukningar fyrir ermi. Prjónið þannig:

UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið kant að framan og mynstur eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á framstykki á undan fyrsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki á undan næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið mynstur eins og áður þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið kant að framan eins og áður (= 8 lykkjur fleiri).
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur með 6 kantlykkjum að framan í hvorri hlið eins og áður.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 5-7-9-10-13-17-22 sinnum (= 10-14-18-20-26-34-44 umferðir prjónaðar). Aukið hefur verið út samtals 20-23-25-27-28-29-30 sinnum fyrir ermar og 5-7-9-10-13-17-22 sinnum fyrir fram- og bakstykki. Það eru 63-69-73-77-79-81-83 lykkjur á hvorri ermi, 54-56-58-61-64-71-76 lykkjur á hvoru framstykki og 85-91-97-103-111-123-133 lykkjur á bakstykki = 319-341-359-379-397-427-451 lykkjur.

Stykkið á nú að mælast ca 14-16-18-19-20-21-21 cm á erminni, þegar peysan er brotin tvöföld upp við öxlina, á hún að mælast ca 20-22-24-25-26-27-27 cm frá toppi á öxl.
Skiptið nú berustykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar.

SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið 54-56-58-61-64-71-76 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 63-69-73-77-79-81-83 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-6-8-10-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 85-91-97-103-111-123-133 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 63-69-73-77-79-81-83 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-6-8-10-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 54-56-58-61-64-71-76 lykkjur eins og áður (= framstykki).
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 201-215-229-245-263-293-317 lykkjur í umferð.
Prjónið sléttprjón og mynstur með 6 kantlykkjum að framan í hvorri hlið eins og áður. Prjónið þar til stykkið mælist 40-42-44-46-48-50-52 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að aftan – síðasta umferðin er prjónuð frá röngu.
Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT því sem aukið er út um 24-30-36-40-48-48-54 lykkjur jafnt yfir í umferð (lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan), skipið yfir á hringprjón 3 og prjónið þannig:
Prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 7 lykkjur eru eftir – munið eftir útaukningunni, endið með 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður = 225-245-265-285-311-341-371 lykkjur.
Prjónið stroff og kanta að framan í 4-4-4-5-5-5-5 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Peysan mælist 44-46-48-51-53-55-57 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að aftan og ca 46-48-50-52-54-56-58 cm frá toppi á öxl.

ERMAR:
Setjið 63-69-73-77-79-81-83 lykkjur frá ermi af þræði á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 4-6-8-10-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir erminni – sjá LEIÐBEININGAR ERMI = 67-75-81-87-91-95-99 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 4-6-8-10-12-14-16 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn.
Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð á eftir skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig:
Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 2-2-1-1-1-1-1 cm alls 3-4-5-5-3-2-1 sinnum = 61-67-71-77-85-91-97 lykkjur í umferð.
Prjónið síðan þar til ermin mælist 10-9-7-5-5-4-5 cm frá skiptingunni.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 13-13-15-17-17-17-19 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 74-80-86-94-102-108-116 lykkjur.
Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 14-13-11-10-10-9-10 cm frá skiptingunni og ca 28-29-29-29-30-30-31 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp á öxl.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp ca 109-115-121-121-125-125-125 lykkjur í kringum hálsmál á hringprjón 3, lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1 – það er prjónuð upp 1 lykkja í hverja af 6 kantlykkjum að framan í hvorri hlið.
Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 6 kantlykkjur að framan með i-cord, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt) þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 6 kantlykkjur að framan með i-cord. Prjónið fram og til baka í stroffprjóni með 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið í 3½-3½-4-4-4-4½-4½ cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstra framstykki.

Mynstur

Slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu = Slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
Brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu = Brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
Setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = Setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
Setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = Setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
Setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni = Setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
Setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni = Setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
Fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar = Fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar
Fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = Fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar
Hoppið yfir þessa lykkju, farið beint í næstu mynsturteikningu = Hoppið yfir þessa lykkju, farið beint í næstu mynsturteikningu

Diagram for DROPS 268-23
Diagram for DROPS 268-23
Diagram for DROPS 268-23
Diagram for DROPS 268-23

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #crossingsandcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 268-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (4)

country flag Portia Joy skrifaði:

Hi! Tusen hjertelig takk for oppskriften, det var en glede å strikke hele veien. Og instrusksene var veldig klare. Jeg trodde at europeiske bærestykke var veldig vanskelig å få toø, men jeg klarte det på første forsøk. Og den sitter om støpt på meg. Jeg kommer til å stikke det igjen med lett ullgarn. Veldig fornøyd, tusen takk!!!!

13.04.2026 - 09:20

country flag Ineke skrifaði:

Aha, daar zit het! De tekst:"De telpatronen tonen het patroon aan de goede kant" begreep ik het als: "De telpatronen tonen de heengaande naalden". Hartelijk dank voor de uitleg!

05.04.2026 - 16:59

country flag Helene skrifaði:

Hello, That the button to print the pattern is not working for this pattern

31.03.2026 - 16:09

DROPS Design svaraði:

Hi Helene, I checked it out. It works. Try again or change the browser. Happy knitting!

31.03.2026 - 16:42

country flag Ineke skrifaði:

Heb n.a.v. proeflapje nld dikte aangepast. Achterpand klopt, maar voorpanden zijn na breien A1, A2 en A3 (42 steken) bijna dubbel zo lang dan de 11cm v.a. de markeerder. Hierdoor wordt het samenvoegen van de panden niet mooi .wat doe ik fout?

31.03.2026 - 16:01

DROPS Design svaraði:

Dag Ineke,

Heb je er rekening mee gehouden dat in de telpatronen zowel de heengaande als de teruggaande naalden zijn getekend?

04.04.2026 - 21:15