Rose Cloud Cardigan#rosecloudcardigan |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Alpaca eða DROPS Flora. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, áferðamynstri og i-cord. Stærð XS - XXXL.
DROPS 267-32 |
|||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig (= 7 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur að framan þannig (= 7 lykkjur): Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 7 næstu hnappagötum með ca 6½-6½-7-7-7-7½-7½ cm á milli hverra hnappagata. Stillið af að neðsta hnappagatið sé staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. UPPHÆKKUN: Til að gera peysuna aðeins hærri aftan í hnakkanum þegar prjónað er í kringum berustykkið, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er hér að neðan. Sleppið þessum kafla ef þið viljið ekki upphækkun. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í umferð (= miðja að aftan), lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN og prjónið næstu 6 umferðir fram og til baka þannig: UMFERÐ 1 (prjónuð frá réttu): Prjónið eins og áður þar til prjónaðar hafa verið 13-14-15-16-17-18-19 lykkjur fram hjá merkiþræði fyrir miðju að aftan, snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 2: Prjónið 26-28-30-32-34-36-38 lykkjur brugðið, snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 3: Prjónið 39-42-45-48-51-54-57 lykkjur slétt, snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 4: Prjónið 52-56-60-64-68-72-76 lykkjur brugðið, snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 5: Prjónið 65-70-75-80-85-90-95 lykkjur slétt, snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 6: Prjónið 78-84-90-96-102-108-114 lykkjur brugðið, snúið stykkinu og herðið á þræði. Prjónið slétt út umferðina (kantur að framan er prjónaður eins og áður), snúið og prjónið 1 umferð brugðið (kantur að framan er prjónaður eins og áður). Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er í mynstri. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 136 lykkjur), mínus 20 lykkjur í hvorri hlið og deilið lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 11) = 8,7. Í þessu dæmi er aukið út eins og útskýrt er að neðan í 9. hverja lykkju. ATH: Passið upp á að auka ekki út yfir síðustu 20 lykkjurnar á hvorri hlið við miðju að framan, þetta er gert til að halda miðju að framan sem röð af sléttum lykkjum þegar berustykki er prjónað í hring. Öll útaukning er gerð frá réttu. Þessi samhverfa útaukning býr til 1 nýja lykkju. Fylgdu leiðbeiningum 1 - 4 að neðan: 1. Haldið þræðinum sem prjónað er með aftan við stykkið. Lyftið yfir fyrstu lykkju á vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið. 2. Stingið vinstri prjóni aftan við lyftu lykkjuna og inn á milli lyftu lykkjunnar og næstu lykkju á hægri prjóni. 3. Myndið nýja lykkju með uppslætti með þræðinum sem prjónað er með utan um hægri prjón og dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna þannig að það myndast 1 ný lykkja á hægri prjóni. 4. Fjarlægið ysta hluta lykkjunnar af vinstri prjóninum og prjónið síðan hinn endann á lykkjunni í gegnum fremri lykkjubogann. Nú hefur þú aukið út um 1 lykkju. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: Aukið út 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 8 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr fyrir miðju í þessum 8 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt – það á að myndast gat (= 2 lykkjur fleiri). MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning er lesin frá hægri til vinstri þegar prjónað er frá réttu og frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Hægt er að prjóna upphækkun aftan í hnakka. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermarnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 136-140-144-148-156-164-172 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Alpaca eða DROPS Flora. Prjónið fyrstu umferðina frá röngu þannig: 7 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD - sjá útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og 7 kantlykkjur að framan með i-cord. Frá réttu, prjónið stroff þannig: 7 kantlykkjur að framan með i-cord, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og 7 kantlykkjur að framan með i-cord. Haldið áfram með stroffið svona í 3-3-3-3½-3½-4-4 cm. Setjið 1 merki að innanverðu í kant að framan í annarri hlið stykkisins (= miðja að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skipið yfir á hringprjón 3 og prjónið fyrstu umferðina frá réttu, byrjið frá miðju að framan þannig: Prjónið sléttprjón með 7 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður og aukið út um 11-13-15-17-19-25-27 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið kant að framan eins og áður – munið eftir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan = 147-153-159-165-175-189-199 lykkjur í umferð. Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan við hnakka – lesið útskýringu að ofan, haldið síðan áfram eins og útskýrt er að neðan. Ef þið viljið ekki upphækkun, prjónið eins og útskýrt er að neðan. Prjónið síðan sléttprjón og kanta að framan. Munið að fylgja prjónfestunni. Þegar berustykkið mælist 2-2-3-3-3-3-3 cm frá merki, aukið út um 26-28-30-32-34-36-38 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (ekki auka út yfir ystu 20 lykkjurnar í hvorri hlið) = 173-181-189-197-209-225-237 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 4-5-6-6-6-6-7 cm frá merki, aukið út um 26-30-34-36-40-42-46 lykkjur jafnt yfir = 199-211-223-233-249-267-283 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 5-6-7-7-7-7-7-8 cm frá merki og næsta umferð á að vera prjónuð frá réttu, prjónið MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan og prjónið fyrstu umferðina frá réttu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið A.1 þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.2, prjónið kant að framan eins og áður. Frá röngu, prjónið þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið A.2, prjónið A.1 þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið kant að framan eins og áður. Haldið áfram með mynstur svona, mynsturteikningin er endurtekin á hæðina. JAFNFRAMT eru lykkjur auknar út jafnt yfir eins og útskýrt er hér að neðan – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (stillið af þannig að aukið sé út í einingu með sléttprjóni í mynstrinu og að ekki sé aukið út yfir ystu 20 lykkjurnar í hvorri hlið): Þegar berustykkið mælist 6-7-8-8-8-8-9 cm frá merki, aukið út um 28-32-34-36-40-42-46 lykkjur jafnt yfir = 227-243-257-269-289-309-329 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 8-9-10-10-10-10-11 cm frá merki, aukið út um 28-32-34-36-40-42-46 lykkjur jafnt yfir = 255-275-291-305-329-351-375 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 10-11-12-12-12-12-13 cm frá merki, aukið út um 28-32-34-36-40-42-46 lykkjur jafnt yfir = 283-307-325-341-369-393-421 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 12-13-14-14-14-14-15 cm frá merki, aukið út um 28-32-34-36-40-42-46 lykkjur jafnt yfir = 311-339-359-377-409-435-467 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 14-15-16-16-16-16-17 cm frá merki, aukið út um 22-24-26-36-40-42-46 lykkjur jafnt yfir = 333-363-385-413-449-477-513 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 16-17-19-18-18-19-20 cm frá merki, aukið út um 22-24-26-20-22-24-26 lykkjur jafnt yfir = 355-387-411-433-471-501-539 lykkjur. Útaukningu er nú lokið í stærðum XS, S og M. Í stærðum L, XL, XXL og XXXL, aukið út í síðasta sinn eins og útskýrt er hér að neðan. Þegar útaukningu er lokið í öllum stærðum, prjónið síðan frá ALLAR STÆRÐIR. Þegar berustykkið mælist 0-0-0-20-20-22-23 cm frá merki, aukið út um 0-0-0-18-20-22-24 lykkjur jafnt yfir = 355-387-411-451-491-523-563 lykkjur. ALLAR STÆRÐIR: Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka, prjónið mynstrið eins og áður án þess að auka út þar til stykkið mælist 19-20-22-23-23-25-27 cm frá merki við miðju að framan. Skiptið nú stykkinu í fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT og næsta umferð er prjónuð, skiptið berustykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 57-62-67-72-77-84-91 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 70-76-78-88-98-100-106 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 101-111-121-131-141-155-169 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 70-76-78-88-98-100-106 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), og prjónið síðustu 57-62-67-72-77-84-91 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 231-251-275-295-319-351-383 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 8-8-10-10-12-14-16 lykkjurnar sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi og látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðir þegar aukið er út í hliðum á fram- og bakstykki. Prjónið fram og til baka frá miðju að framan yfir allar lykkjur með mynstri og kant að framan eins og áður – passið upp á að mynstrið haldi áfram rétt eftir berustykkið. Þegar stykkið mælist 5 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri) – ATH: Stillið af þannig að útaukningar séu gerðar í einingu með sléttprjóni. Aukið svona út með 5-5-5½-5½-5½-5½-5½ cm millibili alls 4 sinnum = 247-267-291-311-335-367-399 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist ca 40-42-44-45-45-47-48 cm frá merki við miðju að framan – ca 7-7-7-8-9-9-10 cm eru eftir að loka máli. Prjónið síðan sléttprjón og kanta að framan þar til stykkið mælist 44-46-48-50-50-52-54 cm frá merki. Í næstu umferð frá réttu, byrjið stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 57-61-65-69-77-85-93 lykkjur jafnt yfir í umferð – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (ekki auka út yfir kanta að framan) = 304-328-356-380-412-452-492 lykkjur, prjónið þannig: Skipið yfir í hringprjón 2,5 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið - munið eftir útaukningu) þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 47-49-51-53-54-56-58 cm frá merki við miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá topp á öxl. ERMAR: Setjið 70-76-78-88-98-100-106 lykkjur af erminni af öðrum þræðinum á hringprjón 3 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir erminni - sjá LEIÐBEININGAR ERMI = 78-84-88-98-110-114-122 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 8-8-10-10-12-14-16 nýjar lykkjur undir erminni - umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið A.3 í hring – passið upp á að mynstrið haldi rétt áfram eftir berustykkið - JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir erminni – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur með 2 cm millibili alls 4-4-4-3-3-1-0 sinnum = 70-76-80-92-104-112-122 lykkjur – ATH: Stillið af þannig að úrtakan sé í einingu með sléttprjóni. Prjónið síðan slétt þar til ermin mælist 12-12-10-10-11-9-8 cm frá skiptingunni. Prjónið síðan sléttprjón þar til ermin mælist 15-15-13-13-13-12-10 cm frá skiptingunni. Skipið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 14-16-16-16-16-20-22 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 84-92-96-108-120-132-144 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 18-18-16-16-17-15-14 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #rosecloudcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 45 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 267-32
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.