Caramel Stripes Sweater#caramelstripessweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Daisy eða DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópsku berustykki og röndum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 268-28 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- RENDUR: 1 mynstureining með röndum mælist ca 2,3 cm. Á bakstykki og framstykki byrja rendurnar ekki á sömu stöðum, það er mikilvægt að rendurnar passi á berustykkinu. Byrjið að prjóna rendur á bakstykki þannig: Prjónið 1-3-5-1-5-5-1 umferðir í litnum Natur, prjónið síðan rendur þannig: * 1 umferð í litnum Ljós Nougat / Ljós Taupe, 5 umferðir í litnum Natur *, prjónið frá *-*. Byrjið að prjóna rendur á framstykkjum þannig: Prjónið 1-1-5-5-5-5-5 umferðir í litnum Natur, prjónið síðan rendur þannig: * 1 umferð í litnum Ljós Nougat / Ljós Taupe, 5 umferðir í litnum Natur *, prjónið frá *-*. LEIÐBEININGAR RENDUR (á við um rendur þegar prjónað er í hring): Þegar berustykkið er prjónað í hring á byrjun umferðar að vera innan við merki á milli bakstykkis og hægri ermi (þ.e.a.s. umferðin byrjar þar sem 3. Merkin voru sett í byrjun á berustykki). Til að fá fallega skiptingu í byrjun og lok umferðar þegar rendurnar eru prjónaðar, er hægt að prjóna þannig: Skiptið yfir í nýja lit og prjónið 1 umferð. Fyrsta lykkjan í 2. umferð er prjónuð þannig: Lyftið upp fyrstu lykkju frá fyrri umferð á prjóninn, prjónið þessa lykkju slétt saman með fyrstu lykkju á vinstri prjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: Þegar lykkjur eru auknar út jafnt yfir í skiptingunni yfir í stroff, er mikilvægt að auka út þar sem lykkjurnar verða síðan prjónaðar brugðið, sléttprjóni heldur þá fallega áfram inn í stroffið. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Stykkið er prjónað samkvæmt útskýringu 1-5. 1. BAKSTYKKI: Fitjaðar eru upp lykkjur aftan í hnakka og bakstykkið er prjónað fram og til baka niður á við jafnframt því sem lykkjum er aukið út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. 2. FRAMSTYKKI: Er prjónað í 2 stykkjum (= hvoru megin við hálsmál). Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, framstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni. 3. BERUSTYKKI: Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar á sama hringprjón – prjónað er þannig: Lykkjur eru prjónaðar frá öðru framstykkinu, lykkjur prjónaðar upp fyrir ermi meðfram hlið á framstykki, bakstykkið er prjónað, lykkjur prjónaðar upp fyrir ermi meðfram hinu framstykkinu og hitt framstykkið prjónað = síðan er berustykkið prjónað fram og til baka yfir allar lykkjur frá ca miðju að framan. 4. ÚTAUKNING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt því sem berustykkið er prjónað, eru lykkjur einungis fyrst auknar út fyrir hálsmáli og ermum og síðan er aukið út bæðifyrir fram- og bakstykki og ermar. Jafnframt eftir síðustu útaukningu fyrir hálsmáli eru framstykkin sett saman við miðju að framan, síðan er stykkið prjónað í hring. 5. FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar allar lykkjur hafa verið auknar út og berustykkið hefur verið prjónað að tilgreindu máli, á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við og í hring, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður í hring. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 34-34-36-36-38-38-38 lykkjur á hringprjón 4,5 með litnum Natur í DROPS Daisy eða DROPS Merino Extra Fine. Lesið RENDUR í útskýringu að ofan og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið og fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið slétt og fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar. Á EFTIR UMFERÐ 2: Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til aukið hefur verið út alls 10-11-11-12-12-12-13 sinnum í hvorri hlið (= 20-22-22-24-24-24-26 umferðir prjónaðar), á eftir síðustu útaukningu eru = 74-78-80-84-86-86-90 lykkjur í umferð. Í stærð XS, S, XL, XXL og XXXL var síðasta umferðin í litnum Ljós Nougat/Ljós Taupe og í stærð M og L hafa verið prjónaðar 4 umferðir í litnum Natur í lokin á stykki. Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón. Munið að fylgja prjónfestunni. HÆGRI ÖXL: Finnið hægri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, hægri hlið á stykki = hægri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli, notið litinn Natur. Passið uppá að prjóna fallega upp lykkjurnar innan við útauknu lykkjurnar svo að kanturinn verði fallegur þar sem þær eru prjónaðar upp = 20-22-22-24-24-24-26 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur brugðið, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið. Nú eru 2 sýnilegar umferðir í garðaprjóni frá réttu með 2 lykkjur sléttprjón í hvorri hlið. Prjónið nú sléttprjón og RENDUR – munið eftir að byrja með réttan lit. Prjónið þar til stykkið mælist ca 8-8-8-8-10-10-10 cm – til að rendurnar passi þegar berustykkið er sett saman á næsta umferð að vera 1-1-3-3-3-3-3 umferð í litnum Natur. Nú eru lykkjur auknar út við hálsmál (samtímis sem rendurnar halda áfram eins og áður) þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-3-4-4-5-5-5 sinnum (= 6-6-8-8-10-10-10 umferðir prjónaðar) = 23-25-26-28-29-29-31 lykkjur. Í stærð XS, S, XL, XXL og XXXL er síðasta umferðin prjónuð í litnum Ljós Nougat / Ljós Taupe og í stærð M og L hafa verið prjónaðar 4 umferðir í litnum Natur. Setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRI ÖXL: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi, notið litinn Natur. Passið uppá að prjóna fallega upp lykkjurnar innan við útauknu lykkjurnar svo að kanturinn verði fallegur þar sem þær eru prjónaðar upp = 20-22-22-24-24-24-26 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur brugðið, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið. Nú eru 2 sýnilegar umferðir í garðaprjóni frá réttu með 2 lykkjur sléttprjón í hvorri hlið. Prjónið nú sléttprjón og RENDUR – munið eftir að byrja með réttan lit. Prjónið þar til stykkið mælist ca 8-8-8-8-10-10-10 cm – til að rendurnar passi þegar berustykkið er sett saman á næsta umferð að vera 1-1-3-3-3-3-3 umferð í litnum Natur. Nú eru lykkjur auknar út við hálsmál (samtímis sem rendurnar halda áfram eins og áður) þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-3-4-4-5-5-5 sinnum (= 6-6-8-8-10-10-10 umferðir prjónaðar) = 23-25-26-28-29-29-31 lykkjur. Í stærð XS, S, XL, XXL og XXXL er síðasta umferðin prjónuð í litnum Ljós Nougat / Ljós Taupe og í stærð M og L hafa verið prjónaðar 4 umferðir í litnum Natur. Síðan eru framstykkin og bakstykkið sett saman og prjóna á upp lykkjur fyrir ermar samtímis sem útaukning fyrir hálsmáli og rendurnar halda áfram, prjónið eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: UMFERÐ 1 (= rétta): Byrjið frá réttu með lykkjur frá vinstra framstykki: Prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á framstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki hér, prjónið upp 20-20-22-22-28-28-28 lykkjur meðfram hlið á vinstra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjur eru prjónaðar upp innan við ystu lykkju), setjið 1 merki, setjið til baka lykkjur frá bakstykki á prjóninn, prjónið fyrstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki, prjónið upp 20-20-22-22-28-28-28 lykkjur meðfram hlið á hægra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkju), setjið 1 merki, setjið til baka lykkjur frá hægra framstykki á prjóninn, prjónið fyrstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri) prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið síðustu 3 lykkjur slétt = 158-166-174-182-198-198-206 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið yfir allar lykkjur. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið slétt fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt = 164-172-180-188-204-204-212 lykkjur. Útaukningu fyrir hálsmáli er nú lokið. Fitjið upp 24 nýjar lykkjur í lok umferðar fyrir hálsmáli = 188-196-204-212-228-228-236 lykkjur. Það hafa verið prjónaðar 3-3-1-1-3-3-3 umferðir í litnum Natur. Stykkið mælist ca 12-12-13-13-15-15-15 cm frá merki. 2 cm af dýpt á hálsmáli nær að teygja sig yfir á bakstykkið. Prjónið nú stykkið í hring, lesið LEIÐBEININGAR RENDUR – til að rendurnar komi til með að halda fallega áfram, klippið þráðinn og umferðin er færð til þannig að hægt sé að byrja umferðina á undan 3. merki (= hægri öxl að aftan) og prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið slétt yfir allar lykkjur án þess að auka út. UMFERÐ 2: Prjónið slétt yfir allar lykkjur og aukið út 1 lykkju hvoru megin við hvora ermi eins og áður – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, lykkjufjöldinn á hvorri ermi eykst, lykkjufjöldinn á framstykki og bakstykki er sá sami. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 7-9-8-7-3-2-1 sinnum (= 14-18-16-14-6-4-2 umferðir prjónaðar, aukið hefur verið út alls 8-10-9-8-4-3-2 sinnum á ermum = 36-40-40-38-36-34-32 lykkjur á hvorri ermi og 72-76-78-82-84-84-88 lykkjur á framstykki/bakstykki) = 216-232-236-240-240-236-240 lykkjur. Nú á að auka út bæði á ermum og fram- og bakstykki – aukið er út fyrir fram- og bakstykki innan við 2 lykkjur í hvorri hlið á framstykki/bakstykki – prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið slétt án þess að auka út. Munið eftir RENDUR, byrjun umferðar á að vera innan við merkið á milli bakstykki og hægri ermi. UMFERÐ 2: Færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið 68-72-74-78-80-80-84 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið 68-72-74-78-80-80-84 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt (= 8 lykkjur fleiri, þ.e.a.s. aukið hefur verið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og erma). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 10-11-14-16-20-23-25 sinnum (= 20-22-28-32-40-46-50 umferðir prjónaðar). Aukið hefur verið út alls 18-21-23-24-24-26-27 sinnum á ermum og 10-11-14-16-20-23-25 sinnum á fram- og bakstykki = 56-62-68-70-76-80-82 lykkjur á hvorri ermi og 92-98-106-114-124-130-138 lykkjur á framstykki/ bakstykki = 296-320-348-368-380-420-440 lykkjur. Ermin mælist ca 14-16-18-18-18-20-21 cm – þegar peysan er brotin tvöföld saman við öxl, á stykkið að mælast ca 19-21-24-24-25-27-28 cm frá yst á öxl og niður meðfram handveg. Ef stykkið mælist styttra en þetta, prjónið áfram að tilgreindu máli án útaukningar. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 56-62-68-70-76-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 92-98-106-114-124-130-138 lykkjur í slétt (= framstykki), setjið næstu 56-62-68-70-76-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið síðustu 92-98-106-114-124-130-138 lykkjur í sléttprjóni og kaðlaprjóni eins og áður (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 200-216-232-252-272-288-308 lykkjur. Prjónið sléttprjón (rendurnar halda áfram eins og áður) hringinn þar til stykkið mælist 46-48-50-52-53-55-57 cm frá uppfitjunarkanti fyrir miðju að aftan – stillið af að prjónaðar séu minnst 3 umferðir í litnum Natur á undan stroffi, stroffið er prjónað í litnum Natur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5, lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 í útskýringu að ofan og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 52-56-60-64-72-76-80 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 252-272-292-316-344-364-388 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60-62 cm frá miðju að aftan og 52-54-56-58-60-62-64 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 56-62-68-70-76-80-82 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-10-10-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 64-72-78-82-88-94-98 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar hér. Prjónið hringinn í sléttprjóni og röndum eins og áður. Þegar prjónuð hefur verið 1 umferð á eftir skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 2-2-3-3-3-3-3 sinnum í annarri hverri umferð, fækkið síðan um 2 lykkjur 2-4-4-4-5-6-6 sinnum í hverjum 5-6-4-4-7-3-3 cm = 56-60-64-68-72-76-80 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 36-35-33-33-33-32-31 cm frá skiptingunni – stillið af að það séu minnst 3 umferðir í litnum Natur á undan stroffi og stroffið er prjónað í litnum Natur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 12-12-16-16-16-20-20 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 68-72-80-84-88-96-100 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 54-55-55-55-56-57-57 cm frá öxl. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 3,5 og litinn Natur. Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 100 til 114 lykkjur í kringum hálsmálið innan við 1 lykkju (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 4-4-4-4-5-5-5 cm. Prjónið 1 umferð slétt og fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #caramelstripessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 45 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 268-28
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.