Lemon Zest Cardigan#lemonzestcardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS BabyMerino og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með evrópsku berustykki og kanti í klukkuprjóni. Stærð XS - XXXL.
DROPS 268-1 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir 6-6-7-7-7-7-8 hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = prjónið 2 lykkjur saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist hnappagat. Efsta hnappagatið á að vera staðsett ca 8-8½-7½-7½-8-8-7½ cm frá efri kanti, neðsta hnappagatið ca 2 cm frá neðri kanti. Þau 3-3-4-4-4-4-5 hnappagöt sem eru eftir eru staðsett jafnt yfir með ca 8-8½-7½-7½-8-8-7½ cm millibili. Fellt er af fyrir síðasta hnappagatinu í kanti í hálsmáli. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar fyrir lykkjufjölda og breyttu eftir þörfum. Stykkið er prjónað samkvæmt útskýringu 1-5. 1 BAKSTYKKI: Fitjaðar eru upp lykkjur aftan í hnakka og bakstykkið er prjónað fram og til baka niður á við jafnframt því sem lykkjum er aukið út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. 2 FRAMSTYKKI: Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, framstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni. 3 BERUSTYKKI: Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar á sama hringprjón – prjónað er þannig: Prjónið annað framstykkið, prjónið upp lykkjur fyrir ermi meðfram hlið á framstykki, prjónið lykkjur frá bakstykki, prjónið upp lykkjur fyrir ermi meðfram hlið á hinu framstykkinu og prjónið síðustu lykkjur frá framstykkinu = síðan er berustykkið prjónað yfir allar lykkjur fram og til baka frá miðju að framan. 4 ÚTAUKNING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt því sem berustykkið er prjónað, á að auka út lykkjur fyrir fram- og bakstykki og ermar, fyrst eru lykkjur einungis auknar út fyrir ermar og síðan eru lykkjur auknar út bæði á fram- og bakstykki og ermum. 5 FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar allar lykkjur hafa verið auknar út og berustykkið hefur verið prjónað að tilgreindu máli, á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Lykkjur eru prjónaðar upp við miðju að framan og kantar að framan prjónaðir. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 32-32-34-36-38-40-40 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði DROPS Baby Merino og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út um 1 lykkju til hægri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til vinstri, 3 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 10-10-10-10-10-11-11 sinnum (= 20-20-20-20-20-22-22 umferðir prjónaðar), eftir síðustu útaukningu eru = 72-72-74-76-78-84-84 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón. HÆGRA FRAMSTYKKI: Finnið hægri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, hægri hlið á stykki = hægri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Byrjið á að prjóna upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 20-20-20-20-20-22-22 lykkjur. Setjið 1 merki í stykkið inn að hálsmáli. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 6-6-7-7-7-8-9 cm, aukið út lykkjur inn við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 6-6-6-6-6-6-6 sinnum (= 12-12-12-12-12-12-12 umferðir prjónaðar) = 26-26-26-26-26-28-28 lykkjur. Í lok næstu umferð frá réttu eru fitjaðar upp 11-11-12-13-14-15-15 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar = 37-37-38-39-40-43-43 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, fyrsta lykkjan er kantlykkja og er prjónuð í GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan. Útaukningu fyrir hálsmáli er nú lokið. Stykkið mælist ca 11-11-12-12-12-13-14 cm frá merki. Smá hluti af dýpt á hálsmáli nær að teygja sig yfir á bakstykkið. Dýpt hálsmáls að framan = 9-9-9-9-9-10-11 cm. Dýpt hálsmáls að aftan = 2-2-3-3-3-3-3 cm. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan þar til framstykkið mælist 11-12-13-13-14-14-15 cm frá merki – endið umferðina frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju = 20-20-20-20-20-22-22 lykkjur. Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 6-6-7-7-7-8-9 cm, aukið út lykkjur fyrir hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 6-6-6-6-6-6-6 sinnum (= 12-12-12-12-12-12-12 umferðir prjónaðar) = 26-26-26-26-26-28-28 lykkjur. Í lok næstu umferð frá röngu eru fitjaðar upp 11-11-12-13-14-15-15 nýjar lykkjur í lok umferðar = 37-37-38-39-40-43-43 lykkjur. Útaukningu fyrir hálsmáli er nú lokið. Stykkið mælist ca 11-11-12-12-12-13-14 cm frá merki. Smá hluti af dýpt á hálsmáli nær að teygja sig yfir á bakstykkið. Dýpt hálsmáls að framan = 9-9-9-9-9-10-11 cm. Dýpt hálsmáls að aftan = 2-2-3-3-3-3-3 cm. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan þar til framstykkið mælist 11-12-13-13-14-14-15 cm frá merki – endið umferð frá röngu, ekki klippa þráðinn. Síðan eru framstykkin og bakstykkið sett saman og lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermi eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: UMFERÐ 1 (= rétta): Byrjið frá réttu með lykkjur frá vinstra framstykki: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki hér, prjónið upp 22-22-24-24-26-26-28 lykkjur meðfram hlið á vinstra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjur eru prjónaðar upp á undan ystu lykkju), setjið 1 merki, prjónið fyrstu 2 lykkjur frá bakstykki slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki, prjónið upp 22-22-24-24-26-26-28 lykkjur meðfram hlið á hægra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjurnar eru prjónaðar upp á undan ystu lykkju), setjið 1 merki, setjið til baka lykkjur frá hægra framstykki á prjóninn, prjónið fyrstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið yfir lykkjur frá hægra framstykki (síðasta lykkjan er kantlykkja og er alltaf prjónuð í garðaprjóni = 186-186-194-198-206-218-222 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 1 kantlykkju eins og áður, prjónið brugðið fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið brugðið fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið út umferðina eins og áður = 190-190-198-202-210-222-226 lykkjur. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 1 kantlykkju eins og áður, prjónið slétt fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið slétt fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið út umferðina eins og áður = 194-194-202-206-214-226-230 lykkjur. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 1 kantlykkju eins og áður, prjónið brugðið fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið brugðið fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið út umferðina eins og áður = 198-198-206-210-218-230-234 lykkjur. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið eins og áður fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið slétt fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið út umferðina eins og áður = 202-202-210-214-222-234-238 lykkjur. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið 1 kantlykkju eins og áður, prjónið brugðið án þess að auka út. Á EFTIR UMFERÐ 6: Prjónið umferð 5 og 6 7-5-5-6-3-2-0 sinnum til viðbótar (= 14-10-10-12-6-4-0 umferðir prjónaðar). Aukið hefur verið út alls 11-9-9-10-7-6-4 sinnum fyrir ermar = 44-40-42-44-40-38-36 lykkjur á hvorri ermi, 36-36-37-38-39-42-42 lykkjur á hvoru framstykki og 70-70-72-74-76-82-82 lykkjur á bakstykki = 230-222-230-238-234-242-238 lykkjur. Síðan á að auka út bæði á ermum og á fram- og bakstykki, aukið er út á fram- og bakstykki 2 lykkjum á undan merki þannig að það eru 2 lykkjur á milli útaukninga fyrir fram- og bakstykki og útaukningu fyrir ermar – næsta umferð er prjónuð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið eins og áður þar til til 2 lykkjur eru eftir á undan fyrsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki á undan næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkju slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið út umferðina eins og áður (= 8 lykkjur fleiri og aukið hefur verið út í hvorri hlið um 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykki og erma). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið með 1 kantlykkju í hvorri hlið eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til aukið hefur verið út alls 6-10-11-13-16-19-22 sinnum (= 24-40-44-52-64-76-44 umferðir prjónaðar). Aukið hefur verið út alls 17-19-20-23-23-25-26 sinnum á ermum = 56-60-64-70-72-76-80 lykkjur á hvorri ermi, 42-46-48-51-55-61-64 lykkjur á hvoru framstykki og 82-90-94-100-108-120-126 lykkjur á bakstykki = 278-302-318-342-362-394-414 lykkjur. Ermin mælist ca 13-14-15-17-17-19-20 cm – þegar peysan er brotinn saman tvöföld við öxlina, á stykkið að mælast ca 19-20-22-24-24-26-28 cm frá yst á öxl og niður meðfram handvegi. Ef stykkið mælist minna en þetta er prjónað áfram að réttu máli án útaukningar. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 42-46-48-51-55-61-64 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 56-60-64-70-72-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-10-12-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 82-90-94-100-108-120-126 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 56-60-64-70-72-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-10-12-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 42-46-48-51-55-61-64 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 178-194-206-222-242-266-282 lykkjur. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í hvorri hlið þar til stykkið mælist 46-48-49-51-52-54-56 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að aftan, endið með eina umferð frá réttu og aukið jafnframt út um 1 lykkju í síðustu umferð = 179-195-207-223-243-267-287 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): 1 kantlykkja eins og áður, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, 1 kantlykkja. UMFERÐ 2 (= rétta): 1 kantlykkja, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, 1 kantlykkja. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 í 4-4-4-4-5-5-5 cm, endið með eina umferð frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Peysan mælist ca 50-52-53-55-57-59-61 cm frá miðju að aftan og 52-54-56-58-60-62-64 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 56-60-64-70-72-76-80 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-10-12-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 62-66-72-80-84-88-94 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-6-8-10-12-12-14 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 8-6-4½-3-2½-2-1½ cm alls 4-6-8-11-12-13-15 sinnum = 54-54-56-58-60-62-64 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 37-38-39-37-35-33-32 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið þannig: UMFERÐ 1: * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-*. UMFERÐ 2: * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-*. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 í 4-4-4-4-5-5-5 cm og fellið af með sléttum lykkjum. Ermin mælist alls 41-42-43-41-39-38-37 cm frá skiptingunni. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Notið hringprjón 2,5, byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp ca 109 til 137 lykkjur meðfram kanti á framstykki (prjónið upp innan við 1 kantlykkju), lykkjufjöldinn á að vera í oddatölu. Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): 1 kantlykkja eins og áður, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, 1 kantlykkja. UMFERÐ 2 (= rétta): 1 kantlykkja, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, 1 kantlykkja. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til kantur að framan mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm, endið með eina umferð frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Notið hringprjón 2,5, byrjið frá réttu neðst á hægra framstykki og prjónið upp ca 109 til 137 lykkjur meðfram kanti á framstykki (prjónið upp jafnmargar lykkjur og á vinstri kanti að framan og prjónið upp lykkjur innan við 1 kantlykkju), lykkjufjöldinn á að vera í oddatölu. Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): 1 kantlykkja eins og áður, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, 1 kantlykkja. UMFERÐ 2 (= rétta): 1 kantlykkja, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, 1 kantlykkja. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til kantur að framan mælist 1½-1½-1½-1½-2-2-2 cm. Nú er fellt af fyrir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan. Prjónið síðan þar til kantur að framan mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. + KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 2,5, byrjið frá réttu við miðju að framan, prjónið upp ca 81 til 101 lykkjur í kringum hálsmál innan við 1 lykkju (prjónið upp nokkrar auka lykkjur yfir kant að framan svo stroffið dragist ekki saman yfir kanta að framan – lykkjufjöldinn verður að vera í oddatölu). Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): 1 kantlykkja eins og áður, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, 1 kantlykkja. UMFERÐ 2 (= rétta): 1 kantlykkja, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, 1 kantlykkja. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til kantur í hálsmáli mælist 1½ cm, nú er fellt af fyrir 1 hnappagati í byrjun á næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 5 lykkjur eins og áður, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið næstu 2 lykkjur brugðið saman, prjónið út umferðina eins og áður. Haldið áfram þar til stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm, fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lemonzestcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 48 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 268-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.