Rhojn skrifaði:
Czy ten sweter jest robiony z air i kid Silk lub Alpaca i kid Silk czy z samego air lub Alpaca i kid Silk bo to nie jest dla mnie jasne
14.03.2026 - 09:03DROPS Design svaraði:
Witaj, ten sweter możesz wykonać albo 1 nitką włóczki DROPS Air, albo 1 nitką DROPS Alpaca+1 nitką DROPS Kid-Silk (2 nitki razem). Pozdrawiamy!
16.03.2026 - 16:37
Paula skrifaði:
Drops Airista ihanan pehmyt paita koossa xs. Onnistui täydellisesti ohjeen mukaan!
01.03.2026 - 16:13
Dhaze skrifaði:
Can I knit this pattern using a single strand of yarn group A (eg. baby merino)? Will I need to increase the no of stitches? If so, how do I calculate?
26.02.2026 - 19:42DROPS Design svaraði:
Hi Dhaze, This pattern is written for using a yarn from yarn group C. You will need 2 strands of a yarn from yarn group A to be able to use this pattern as written. It would be easier for you to find a pattern for a jumper using a yarn from group A (e.g., Baby Merino) rather than trying to adjust all the stitch counts. You can search for jumpers in Baby Merino using our search icon at the top of the page (magnifying glass). Regards, Drops Team.
27.02.2026 - 06:54
Erin Reiche skrifaði:
It would be very helpful if you could put the amount of positive or negative ease that is associated with each pattern. Might you consider doing that?
21.02.2026 - 07:00DROPS Design svaraði:
Hi Erin, thank you for your suggestion. Ease can indeed be helpful when choosing a size. However, the amount of positive or negative ease often depends on individual fit preferences, body shape, and the intended styling of the garment. For this reason, we primarily provide finished garment measurements, allowing knitters to calculate their preferred ease themselves. Happy knitting!
21.02.2026 - 10:28
Anna Maria skrifaði:
Nel modello non si capisce come umentare..ce scritto lavorare i giri 1 e 4 per un totale 8 volte.. ma si deve aumentare anche sul davanti e il dietro? Perché il giro 3 non è menzionato...come si procede?grazie
20.02.2026 - 08:57DROPS Design svaraði:
Buonasera Anna Maria, si devono ripetere i giri dall'1 al 4 per il numero di volte indicato, compreso il giro 3. Buon lavoro!
21.02.2026 - 16:46
Kristina skrifaði:
Vad menas med att man stickar 3 varv Rätt? Det är de tre varven efter uppläggningsmaskorna.
18.02.2026 - 19:18DROPS Design svaraði:
Hej Kristina. Det betyder att du stickar 3 varv med räta maskor. Mvh DROPS Design
19.02.2026 - 09:03
Stine skrifaði:
Guten Tag. Ich überlege, ob ich diesen Pullover stricken möchte. Aber ich hätte gerne eine andere Farbe, oder Farbkombination. ;-) Wie könnte ich die Farbe ändern? Und kann ich alles zusammen (inkl. Stricknadeln) direkt in einem CH Shop bestellen? Besten Dank und liebe Grüsse aus der Schweiz. Stine
15.02.2026 - 15:00
Bita skrifaði:
Bonjour, La photo : à t elle été tricotée avec drops air rose clair ou drops alpaca et drops kid silk ?
03.02.2026 - 18:57DROPS Design svaraði:
Bonjour Bita, le modèle photographié a été tricoté en DROPS Air. Bon tricot!
04.02.2026 - 17:17
Hanna skrifaði:
Verwirrend! Die Anleitung bezieht sich auf eine Jacke. Die Fotos zeigen jedoch einen Pullover. Eine Korrektur wäre sinnvoll! Ansonsten Dank an dieser Stelle für alle tollen und kostenlosen Anleitungen! Hanna
03.02.2026 - 10:58DROPS Design svaraði:
Liebe Hanna, der Fehler wurde behoben, die Anleitung für den Pullover ist online. Viel Spaß beim Stricken!
03.02.2026 - 13:47
Alina skrifaði:
Ich denke hier ist die Anleitung falsch, da hier über die Jacke in Runden gesprochen wird, hier handelt es sich aber um den Pullover, der wird doch sicher in Runden gearbeitet?
03.02.2026 - 09:28DROPS Design svaraði:
Liebe Alina, vielen Dank für den Hinweis, das wurde soeben korrigiert, nun finden Sie die richtige Anleitung für den Pullover. Viel Spaß beim Stricken!
03.02.2026 - 10:56
Rose Sugar Sweater#rosesugarsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Air eða 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og rúllukanti. Stærð XS - XXXL.
DROPS 267-12 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJUM (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjóninn með því að stinga vinstri prjóninum inn aftan í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn - svo ekki myndist gat. Á EFTIR LASKALYKKJUM (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 88-88-96-96-104-104-112 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði DROPS Air eða 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Skiptið yfir á hringprjón 3,5 (fitjað er upp með grófari prjónum til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 3 umferðir slétt (= rúllukantur). Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 3-3-3-3-3½-3½-3½ cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 31-31-33-33-35-35-37 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. Prjónið síðan með hringprjón 4,5. Nú eru sett 4 merki í stykkið jafnframt því sem prjónað er, merkin eru sett á milli 2 lykkja slétt, þessar 2 lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Prjónið 1 lykkju slétt áður en umferðin byrjar – þannig að umferðin byrjar á milli 2 lykkja slétt. Setjið 1. merki á undan næstu lykkju (= byrjun umferðar), prjónið 16 lykkjur (= ermi), Setjið 2. merki á undan næstu lykkju, prjónið 28-28-32-32-36-36-40 lykkjur jafnframt því sem aukið er út um 0-2-0-2-0-2-2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 28-30-32-34-36-38-42 lykkjur fyrir framstykki), Setjið 3. merki á undan næstu lykkju, prjónið 16 lykkjur (= ermi), Setjið 4. merki á undan næstu lykkju, prjónið 28-28-32-32-36-36-40 lykkjur jafnframt því sem aukið er út um 0-2-0-2-0-2-2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 28-30-32-34-36-38-42 lykkjur fyrir bakstykki) = 88-92-96-100-104-108-116 lykkjur í umferð. Nú á að auka út fyrir LASKALÍNA – lesið leiðbeiningar að ofan og prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). ATH: Í byrjun umferðar er aukið út á eftir 1. lykkju og í lok umferðar er aukið út á undan síðustu lykkju – aukið er út hvoru megin við 2 lykkjur slétt frá stroffi. UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón – munið eftir að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er í LASKALÍNA. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 9-9-10-12-13-12-12 sinnum (= 18-18-20-24-26-24-24 umferðir prjónaðar) = 160-164-176-196-208-204-212 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið og aukið síðan út þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón. UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu á framstykki og á bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á eftir 2. og 4. merki og á undan 3. og 1. merki – lykkjur eru ekki auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 8-9-9-9-9-11-12 sinnum (= 32-36-36-36-36-44-48 umferðir prjónaðar = 17-18-19-21-22-23-24 sinnum útaukning á ermum og 16-18-18-18-18-22-24 sinnum útaukning á framstykki/bakstykki) = 256-272-284-304-316-336-356 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út alls 25-27-28-30-31-34-36 sinnum á framstykki/bakstykki og 17-18-19-21-22-23-24 sinnum á ermum. Prjónið síðan sléttprjón án þess að auka út, þar til stykkið mælist 21-22-24-25-26-28-30 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 50-52-54-58-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-18-20-22 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 78-84-88-94-98-106-114 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 50-52-54-58-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-18-20-22 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 78-84-88-94-98-106-114 lykkjur sléttprjón (= alls 79-85-89-97-107-115 lykkjur á bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 172-188-200-216-232-252-272 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykkinu (= fyrir miðju í 8-10-12-14-18-20-22 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 44-46-48-50-51-53-55 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 20-20-24-24-24-28-32 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 192-208-224-240-256-280-304 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 48-50-52-54-56-58-60 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 50-52-54-58-60-62-64 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-10-12-14-18-20-22 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 58-62-66-72-78-82-86 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 8-10-12-14-18-20-22 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingu, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið um 2 lykkjur alls 4-5-6-8-10-11-12 sinnum í hverjum 10-8-6-4½-3-3-2½ cm = 50-52-54-56-58-60-62 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 37-38-36-36-34-33-31 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 6-4-6-4-6-4-6 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 56-56-60-60-64-64-68 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 41-42-40-40-39-38-36 cm frá skiptingunni. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #rosesugarsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 267-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.