Sunset Sorbet Cardigan#sunsetsorbetcardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð stór / oversize peysa úr DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu, röndum í litatónum og i-cord. Stærð XS - XXXL.
DROPS 267-18 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur að framan þannig (= 7 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur að framan þannig (= 7 lykkjur): Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 10-10½-9-9-9½-9½-10 cm á milli hverra hnappagata. Stillið af að neðsta hnappagatið sé staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs á fram- og bakstykki. RENDUR-1 (berustykki og fram- og baksykki): Rendurnar eru prjónaðar í sléttprjóni með 3 þráðum DROPS Kid-Silk í eftirfarandi litum: 12 cm með 3 þráðum í litnum Ljós Ferskja, 4 cm með 2 þráðum í litnum Ljós Ferskja + 1 þræði í litnum Ljós Lavender, 4 cm með 2 þráðum í litnum Pastelbleikur + 1 þræði í litnum Ljós Lavender, 12-14-16-17-19-21-23 cm með 3 þráðum í litnum Pastelbleikur (skipting fyrir fram- og bakstykki og ermar er gerð í þessari rönd), 4 cm með 2 þráðum í litnum Pastelbleikur + 1 þræði í litnum Ljós Lavender, 4 cm með 2 þráðum í litnum Ljós Lavender + 1 þræði í litnum Pastelbleikur, prjónið að tilgreindu loka máli með 3 þráðum í litnum Ljós Lavender. RENDUR-2 (= ermar): Haldið áfram með síðasta lit í síðustu röndinni frá berustykki, þ.e.a.s. 3 þræðir í litnum Pastelbleikur, þar til ermin mælist 24-23-22-23-23-21-22 cm frá skiptingunni, 4 cm með 2 þráðum í litnum Pastelbleikur + 1 þræði í litnum Ljós Lavender, 4 cm með 2 þráðum í litnum Ljós Lavender + 1 þræði í litnum Pastelbleikur, prjónið að tilgreindu loka máli með 3 þráðum í litnum Ljós Lavender. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð frá röngu er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið til baka uppsláttinn yfir á vinstri prjóninn með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Þegar lykkjum er aukið út jafnt yfir út í skiptinguna yfir í stroff er mikilvægt að auka út þar sem lykkjurnar verða síðar prjónaðar brugðið, sléttprjónið heldur þá fallega áfram inn í stroffið. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 85-91-91-97-97-103-103 lykkjur á hringprjón 4 með 3 þráðum DROPS Kid-Silk í litnum Ljós Ferskja. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan með I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 7 kantlykkjur að framan með i-cord. Haldið svona áfram með stroff í 2-2-2-2-3-3-3 cm. Setjið 1 merki að innanverðu í kant að framan í annarri hliðinni á stykkinu (= miðja að framan), stykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 5,5. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í slétta lykkju og þessar lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Teljið 17-19-19-19-19-21-21 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1. merki í næstu lykkju, teljið 13-13-13-15-15-15-15 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 21-23-23-25-25-27-27 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 13-13-13-15-15-15-15 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju. Það eru 17-19-19-19-19-21-21 lykkjur eftir á prjóni fyrir hægra framstykki. Nú er prjónað sléttprjón og RENDUR-1, fram og til baka með kantlykkjum að framan eins og áður jafnframt er aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið leiðbeiningar að ofan með útskýringu hvernig auka á út og útskýringu á röndum, prjónið eins og útskýrt er að neðan. Munið eftir að fella af fyrir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan. UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið RENDUR-1 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið sléttprjón fram að 1. merki jafnframt því sem fækkað er um 0-1-1-0-0-1-1 lykkju á framstykki, haldið áfram í sléttprjóni JAFNFRAMT því sem aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri) og fækkið um 0-1-1-0-0-1-1 lykkju á framstykki (þ.e.a.s. á eftir 4. merki), prjónið kant að framan eins og áður = 93-97-97-105-105-109-109 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón, rendur og kanta að framan eins og áður (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA). UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttprjón, rendur og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga). Prjónið sléttprjón, rendur og kanta að framan eins og áður. Prjónið UMFERÐ 3 og 4 4-3-3-7-12-12-14 sinnum til viðbótar (= 6-5-5-9-14-14-16 sinnum útaukning á eftir stroffi = 12-10-10-18-28-28-32 umferðir prjónaðar á eftir stroffi) = 133-129-129-169-209-213-229 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið síðan og aukið út fyrir laskalínu þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttprjón, rendur og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón, rendur og kanta að framan eins og áður (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA). UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttprjón, rendur og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á framstykkjum og bakstykki, aukið út á undan 1. og 3. merki og á eftir 2. og 4. merki – lykkjur eru ekki auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttprjón, rendur og kanta að framan eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 8-9-10-8-6-7-7 sinnum (= 32-36-40-32-24-28-28 umferðir prjónaðar = 8-9-10-8-6-7-7 sinnum útaukning á ermum og 16-18-20-16-12-14-14 sinnum útaukning á framstykkjum/bakstykki) = 229-237-249-265-281-297-313 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út 22-23-25-25-26-28-30 sinnum á framstykkjum/bakstykki og 14-14-15-17-20-21-23 sinnum á ermum. Stykkið mælist ca 23-24-26-26-27-29-29 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar þá koma laskalykkjurnar til með að vera staðsettar aðeins inn á framstykkjum/bakstykki, þ.e.a.s. JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 40-42-44-46-48-52-55 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 41-41-43-47-51-51-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-18-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 67-71-75-79-83-91-97 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 41-41-43-47-51-51-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-18-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 40-42-44-46-48-52-55 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 163-175-187-199-211-231-247 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni, RENDUR-1 og kanta að framan eins og áður þar til stykkið mælist 50-52-54-55-56-58-60 cm frá merki fyrir miðju að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 30-32-34-38-40-42-46 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan) = 193-207-221-237-251-273-293 lykkjur, prjónað er þannig: Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningunni) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 2-2-2-2-3-3-3 cm, skiptið yfir á hringprjón 5,5, prjónið 1 umferð brugðið frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Peysan mælist 52-54-56-57-59-61-63 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 56-58-60-62-64-66-68 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 41-41-43-47-51-51-53 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 5,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-10-12-14-16-18-20 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 49-51-55-61-67-69-73 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 8-10-12-14-16-18-20 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón og RENDUR-2 hringinn – JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð eftir skiptinguna, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 2-2-2-3-5-4-4 sinnum í annarri hverri umferð = 45-47-51-55-57-61-65 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 42-41-40-41-40-38-39 cm frá skiptingunni – munið eftir röndum. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 9-9-9-9-11-11-13 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 54-56-60-64-68-72-78 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2-2-2-2-3-3-3 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5, prjónið 1 umferð slétt og fellið af með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 44-43-42-43-43-41-42 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sunsetsorbetcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 43 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 267-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.