Lace Diamond Cardigan#lacediamondcardigan |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, gatamynstri og kanti að framan með i-cord. Stærð XS - XXXL.
DROPS 266-2 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig (= 7 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig (= 7 lykkjur): Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-5-5-6-6 næstu hnappagötum með ca 7-7-7½-8-8-7-7½ cm á milli hnappagata. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um mynsturteikningu A.1 og A.5). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Laskalykkjan er prjónuð í sléttprjóni. Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið frá röngu – svo það myndist gat. Nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með merki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkið situr í þessari lykkju), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 93-109-109-109-125-125-125 lykkjur á hringprjón 3,5 með 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 7 kantlykkjur að framan með I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og 7 kantlykkjur að framan með i-cord. Haldið áfram með stroff í 3-3-3-4-4-4-4 cm – endið með 1 umferð frá röngu. Snúið stykkinu. Setjið 1 merki að innanverðu í kant að framan í annarri hliðinni á stykkinu (= miðja að framan), stykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 4,5. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í slétta lykkju og þessar lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Teljið 16-20-20-20-24-24-24 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1. merki í næstu lykkju, teljið 19-19-19-19-19-19-19 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 19-27-27-27-35-35-35 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 19-19-19-19-19-19-19 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju. Það eru 16-20-20-20-24-24-24 lykkjur eftir á prjóni fyrir hægra framstykki. Nú er prjónað MYNSTUR fram og til baka (kantar að framan eru prjónaðir eins og áður), jafnframt er aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið leiðbeiningar að ofan fyrir mynstur og útskýringu hvernig auka á út. Það er að segja prjónið frá réttu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið A.1 yfir 3-7-7-7-11-11-11 lykkjur, A.2 yfir 6 lykkjur (= vinstra framstykki), aukið út fyrir laskalínu á undan og á eftir laskalykkju, prjónið A.3 yfir 5 lykkjur, A.4 yfir 8 lykkjur og A.2 yfir 6 lykkjur (= ermi), aukið út fyrir laskalínu á undan og á eftir laskalykkju, prjónið A.3 yfir 5 lykkjur, A.4 yfir næstu 8-16-16-16-24-24-24 lykkjur (= 1-2-2-2-3-3-3 sinnum á breidd), A.2 yfir 6 lykkjur (= bakstykki), aukið út fyrir laskalínu á undan og á eftir laskalykkju, prjónið A.3 yfir 5 lykkjur, A.4 yfir 8 lykkjur, A.2 yfir 6 lykkjur (= ermi), aukið út fyrir laskalínu á undan og á eftir laskalykkju, prjónið A.3 yfir 5 lykkjur, A.5 yfir 4-8-8-8-12-12-12 lykkjur – lesið HNAPPAGAT í útskýringu að ofan og prjónið kanta að framan eins og áður (= hægra framstykki). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir laskalínu eins og útskýrit er að ofan í annarri hverri umferð, aukið er út hvoru megin við laskalykkjur þar til mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina. Munið að fylgja prjónfestunni. Nú hefur verið aukið út fyrir laskalínu alls 8 sinnum frá byrjun umferðar = 157-173-173-173-189-189-189 lykkjur í umferð. Lykkjurnar skiptast niður þannig: 35 lykkjur á hvorri ermi, 37-45-45-45-53-53-53 lykkjur á bakstykki og 25-29-29-29-33-33-33 lykkjur á hvoru framstykki (laskalykkjurnar eru taldar með á framstykkjum/bakstykki). Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð og prjónið mynstur þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið A.1 yfir 3-7-7-7-11-11-11 lykkjur, A.4 yfir 8 lykkjur, A.2 yfir 6 lykkjur (= vinstra framstykki), aukið út fyrir laskalínu á undan og á eftir laskalykkju, prjónið A.3 yfir 5 lykkjur, A.4 yfir 24 lykkjur og A.2 yfir 6 lykkjur (= ermi), aukið út fyrir laskalínu á undan og á eftir laskalykkju, prjónið A.3 yfir 5 lykkjur, A.4 yfir næstu 24-32-32-32-40-40-40 lykkjur (= 3-4-4-4-5-5-5 sinnum á breidd), A.2 yfir 6 lykkjur (= bakstykki), aukið út fyrir laskalínu á undan og á eftir laskalykkju, prjónið A.3 yfir 5 lykkjur, A.4 yfir 24 lykkjur, A.2 yfir 6 lykkjur (= ermi), aukið út fyrir laskalínu á undan og á eftir laskalykkju, prjónið A.3 yfir 5 lykkjur, A.4 yfir 8 lykkjur, A.5 yfir 4-8-8-8-12-12-12 lykkjur og prjónið kant að framan eins og áður (= hægra framstykki). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir laskalínu eins og áður í annarri hverri umferð, aukið er út hvoru megin við laskalykkjurnar þar til mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina. Aukið hefur verið út fyrir laskalínu alls 16 sinnum frá byrjun á stykki og mynsturteikning hefur verið prjónuð alls 2 sinnum á hæðina í öllum stærðum. Nú eru 221-237-237-237-253-253-253 lykkjur í umferð. Í stærð XS og S er útaukningu á ermum lokið, í stærð M og L er prjónað og aukið út á sama hátt 4 sinnum til viðbótar (þ.e.a.s. mynsturteikningin er prjónuð ½ sinnum til viðbótar á hæðina) og í stærð XL, XXL og XXXL er aukið út 8 sinnum til viðbótar (þ.e.a.s. mynsturteikningin er prjónuð 1 sinni til viðbótar á hæðina). Aukið hefur verið nú fyrir laskalínu alls 16-16-20-20-24-24-24 sinnum (mynsturteikningin hefur verið prjónuð alls 2-2-2½-2½-3-3-3 sinnum á hæðina frá byrjun á stykki) = 221-237-269-269-317-317-317 lykkjur í umferð. Lykkjum er skipt niður þannig: 51-51-59-59-67-67-67 lykkjur á hvorri ermi, 53-61-69-69-85-85-85 lykkjur á bakstykki og 33-37-41-41-49-49-49 lykkjur á hvoru framstykki (laskalykkjur eru taldar með á framstykkjum/bakstykki). Útaukningu fyrir ermar er nú lokið í öllum stærðum og nú á að auka út fyrir laskalínu einungis á framstykkjum og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. Í stærð M og L hefur verið prjónað að miðju í mynstureiningu á mynstri á hæðina – því skal gæta þess sérstaklega þegar prjónað er áfram, svo að mynstrið passi. Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð á framstykkjum og bakstykki og prjónið síðan mynstur þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið A.1 yfir 3-7-7-7-11-11-11 lykkjur, A.4 yfir 16-16-16-16-24-24-24 lykkjur, A.2 yfir 6-6-10-10-6-6-6 lykkjur (= vinstra framstykki), aukið út á undan laskalykkju, prjónið laskalykkju eins og áður, prjónið A.6 yfir 5 lykkjur, A.4 yfir 40-40-48-48-56-56-56 lykkjur og A.7 yfir 6 lykkjur (= ermi), prjónið laskalykkju eins og áður, aukið út eftir laskalykkju, prjónið A.3 yfir 5-5-9-9-5-5-5 lykkjur, A.4 yfir næstu 40-48-48-48-72-72-72 lykkjur (= 5-6-6-6-9-9-9 sinnum á breidd), A.2 yfir 6-6-10-10-6-6-6 lykkjur (= bakstykki), aukið út á undan laskalykkju, prjónið laskalykkju eins og áður, prjónið A.6 yfir 5 lykkjur, A.4 yfir 40-40-48-48-56-56-56 lykkjur, A.7 yfir 6 lykkjur (= ermi), prjónið laskalykkju eins og áður, aukið út á eftir laskalykkju, prjónið A.3 yfir 5 lykkjur, A.4 yfir 16-16-16-16-24-24-24 lykkjur, A.5 yfir 4-8-8-8-12-12-12 lykkjur og prjónið kant að framan eins og áður (= hægra framstykki). Haldið áfram með mynstur og aukið út á þennan hátt þar til aukið hefur verið út 8 sinnum fyrir laskalínu á framstykkjum/bakstykki (aukið hefur verið út alls 24-24-28-28-32-32-32 sinnum fyrir laskalínu á framstykkjum/bakstykki frá byrjun umferðar) = 253-269-301-301-349-349-349 lykkjur í umferð. Í stærð XS, S, M, XL og XXL er útaukning á framstykkjum/bakstykki lokið í stærð L og XXXL er prjónað og aukið út á sama hátt 4 sinnum til viðbótar eins og útskýrt er að neðan (þ.e.a.s. mynsturteikning er prjónuð ½ sinnum til viðbótar á hæðina). Prjónið nú í stærð L og XXXL þannig: Haldið áfram með mynstur og aukið út á sama átt (þ.e.a.s. framstykki/bakstykki) þar til aukið hefur verið út 0-0-0-4-0-0-4 sinnum fyrir laskalínu á framstykkjum/bakstykki (mynsturteikning hefur verið prjónuð 0-0-0-½-0-0-0-½ sinnum til viðbótar á hæðina). Aukið hefur verið út fyrir laskalínu alls 24-24-28-32-32-32-36 sinnum á framstykkjum/bakstykki frá byrjun umferðar. Mynsturteikning hefur verið prjónuð alls 3-3-3-3½-4-4-4½ sinnum á hæðina frá byrjun á stykki. Í nokkrum stærðum hefur verið prjónað að miðju í mynstureiningu á mynstri á hæðina – því skal gæta þess sérstaklega þegar prjónað er áfram, svo að mynstrið passi. Það eru 253-269-301-317-349-349-365 lykkjur í umferð. Lykkjurnar skiptast þannig: 51-51-59-59-67-67-67 lykkjur á hvorri ermi, 69-77-85-93-101-101-109 lykkjur á bakstykki og 41-45-49-53-57-57-61 lykkjur á hvoru framstykki. Stykkið mælist ca 20-20-23-27-27-27-30 cm frá merki við miðju að framan, nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Prjónið kant að framan og mynstur eins og áður yfir fyrstu 41-45-49-53-57-57-61 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 51-51-59-59-67-67-67 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 11-11-11-11-11-19-19 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), haldið áfram með mynstur eins og áður yfir næstu = 69-77-85-93-101-101-109 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 51-51-59-59-67-67-67 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 11-11-11-11-11-19-19 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið mynstur og kant að framan eins og áður yfir síðustu 41-45-49-53-57-57-61 lykkjur (= framstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 173-189-205-221-237-253-269 lykkjur. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu og prjónað er brugðið frá röngu (kantur að framan er prjónaður eins og áður). Í næstu umferð frá réttu heldur mynstur áfram,, sem nú þegar er byrjað, yfir allar lykkjur (kantar að framan eru prjónaðir eins og áður) og laskalykkjurnar og lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir hvorri ermi eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Þ.e.a.s. prjónið þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið A.1 yfir 3-7-7-7-11-11-11 lykkjur, prjónið A.4 þar til eftir eru 11-15-15-15-19-19-19 lykkjur, prjónið A.5 yfir 4-8-8-8-12-12-12 lykkjur og prjónið kant að framan eins og áður. Prjónið svona þar til stykkið mælist ca 35-37-39-41-42-44-46 cm frá merki við miðju að framan – endið eftir 1 heila eða 1 hálfa mynstureiningu af mynstri á hæðina. Prjónið 2 umferðir sléttprjón (kantur að framan er prjónaður eins og áður). Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 18-20-22-24-26-28-30 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 (lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan) = 191-209-227-245-263-281-299 lykkjur. Prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningunni) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 1-1-1-1-2-2-2 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 37-39-41-43-45-47-49 cm fá merki fyrir miðju að framan og ca 42-44-46-48-50-52-54 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 51-51-59-59-67-67-67 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 4. Prjónið síðan upp lykkjur undir ermi þannig: Byrjið á að prjóna upp 1 lykkju í hverja af 11-11-11-11-11-19-19 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi, prjónið mynstur eins og áður yfir lykkjur frá ermi – passið uppá að byrja í réttri umferð í mynstri – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 62-62-70-70-78-86-86 lykkjur. Setjið eitt merki í miðjulykkju sem prjónuð var upp undir ermi, prjónið fram til og með lykkju með merki í og prjónið þannig, nú byrjar umferðin eftir lykkju með merki í og prjónað er þannig: Prjónið 5-5-5-5-5-9-9 lykkjur sléttprjón, A.6 yfir 5 lykkjur eins og áður – passið uppá að mynstrið passi yfir lykkjur frá berustykki, prjónið A.4 yfir næstu 40-40-48-48-56-56-56 lykkjur eins og áður, A.7 yfir 6 lykkjur eins og áður og prjónið 6-6-6-6-6-10-10 lykkjur sléttprjón. Haldið áfram með mynstur sem nú þegar er byrjað hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 1-1-1-1-1-1½-1½ cm alls 7-7-7-7-7-11-11 sinnum = 48-48-56-56-64-64-64 lykkjur í umferð. Á eftir síðustu úrtöku kemur mynstur A.4 til með að ganga jafnt upp í umferð, byrjið umferðina á undan lykkju með merki í og prjónið A.4 umferðina hringinn. Prjónið síðan þar til ermin mælist ca 44-44-42-39-37-38-36 cm frá skiptingunni – endið eftir 1 heila eða 1 hálfa mynstureiningu á hæðina. Prjónið 2 umferðir sléttprjón. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 6 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 54-54-62-62-70-70-70 lykkjur. Þegar stroffið mælist 1-1-1-1-2-2-2 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist ca 46-46-44-41-40-41-39 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lacediamondcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 39 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 266-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.