Lara skrifaði:
Per questo modello posso sostituire il filato kid silk con Il brushed alpa silk?
01.10.2026 - 16:19DROPS Design svaraði:
Buonasera Lara, se vuole sostituire entrambi i filati e lavorare solo con Brushed Alpaca Silk, è possibile. Buon lavoro!
07.10.2026 - 16:50
Friederike skrifaði:
Hallo, ich vertrage leider kein Mohair-Garn. Kann ich statt der Kid Silk die Alpaca doppelt nehmen ohne umzurechnen?
29.09.2026 - 09:56DROPS Design svaraði:
Liebe Friederike, ja genau so können Sie stricken, verdoppeln Sie die Garnmenge Alpaca und beachten Sie wie immer, daß Ihre Maschenprobe stimmt. Viel Spaß beim Stricken!
30.09.2026 - 07:26
Micheline skrifaði:
Bonjour, avec quelles aiguilles faites vous les manches des top down, j'essaye celles pour les chaussettes c'est pas pratique, je ne trouve pas le materiel adéquat, 40 cm c'est trop long Merci
28.09.2026 - 12:38DROPS Design svaraði:
Bonjour Micheline, si l'aiguille circulaire de 40 cm est trop courte pour votre taille, vous pouvez utiliser des aiguilles doubles pointes ou bien la technique dite du magic loop avec une aiguille circulaire de 80 cm (cf vidéo). Bon tricot!
29.09.2026 - 08:45
Magdalena skrifaði:
Ponad 5 następnymi oczkami, nie rozumiem polecenia proszę o pomoc
10.09.2026 - 20:51DROPS Design svaraði:
Witaj Magdaleno, kolejne 5 oczek przerabiasz wg opisu. Czyli np. Przerobić 5 prawych, dalej przerabiać schemat A.4 ponad 5 następnymi oczkami (czyli przer. 1 raz schemat A.4), dalej przerabiać ścieg fantazyjny karczku, schemat A.2 ponad 40 następnymi oczkami (przer. 5 razy schemat A.2 na szerokość)..... Jak czytać schematy znajdziesz TUTAJ. Pozdrawiamy!
14.09.2026 - 20:10
Diane skrifaði:
Bonjour à vous. Je fais la taille xs. Je suis en train de faire les augmentations du devant et du dos Dans le diagramme À.4 est-ce normal qu’il y ait trois rangs à faire à l’endroit seulement. Car À. 5 en a un ( rang 8-9-10). Merci beaucoup. Bonne fin de journée. Diane
09.09.2026 - 21:58DROPS Design svaraði:
Bonjour Diane, tout à fait, c'est bien juste ainsi, le motif ajouré commence au début de A.5, raison pour laquelle il n'est pas dans A.4. Bon tricot!
10.09.2026 - 09:43
Lana skrifaði:
I really like this pattern, is it possible to add video of this pattern knitting, for less experienced users and ESL users? It would be fantastic, thank you.
19.08.2026 - 06:38DROPS Design svaraði:
Dear Lana, you can find videos & lessons for the techniques used in this pattern under both tabs Videos / Lessons next to the tab Pattern; feel free to use this section to ask any questions to get help while knitting. Happy knitting!
19.08.2026 - 07:41
Josefina skrifaði:
I love the pattern but has anyone tried adding back shaping? I’m thinking of adding some short rows but I’m not sure how to combine it with the lace.
06.08.2026 - 23:47DROPS Design svaraði:
Dear Josefina, if you like to work an elevation it might be easier to work it in rib before starting the lace pattern and the raglan increases. Happy knitting!
11.08.2026 - 10:16
Rara skrifaði:
Je voudrais tricoter ce pull avec 1 seul fils. Quelle quantité de laine et quel type de fils pour une taille S ? Merci
05.08.2026 - 10:14DROPS Design svaraði:
Bonjour Rara, découvrez ici les alternatives possibles avec 1 seul fil et les quantités correspondantes en fonction de la laine choisie. Bon tricot!
05.08.2026 - 16:56
Léonard skrifaði:
Bonjour ce modèle est merveilleux mais la laine kid sîlk gratte que peut on utiliser à la place Merci de vos conseils
23.07.2026 - 20:09DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Léonard, découvrez ici les alternatives possibles à Kid-Silk et les quantités correspondantes. Bon tricot!
04.08.2026 - 13:20
Hanna skrifaði:
Koon suurust s. Olen just lõpetanud esi- ja seljaosa kasvatamise ja mul on oluliselt rohkem silmuseid vardal kui juhend kirjutab. Peaks olema esi- ja seljaosal mõlemal 77 silmust, aga mul on üle 100. Kudusin mustrit läbi 3x ning kasvatasin igal teisel ringil juurde kokku 4 silmust. Kas iga teine ring tähendab, et kasvatan juurde mustriringil ja parempidisel ei kasvata?
20.07.2026 - 21:57DROPS Design svaraði:
Tere Hanna! Lugege mööda raglaanijoont alla (üles) kas kasvatusi on tehtud õige arv. Kasvatamine tuleb lõpetada, kui õige arv on saavutatud. Kui koetihedus ei ole õige, siis võib juhtuda, et vajalik pikkus saavutatakse enne vajalikku silmuste arvu saamist, või vastupidi, kududa on vaja veel ilma kasvatusteta. Kindlasti tuleks eset selga proovida (ajage lõng läbi silmuste, et need hargnema ei läheks), või vahemalt võrrelda mõõte keha mõõtudega. Lisakasvatused võivad ka tekkida kogemata skeemi valesti lugemisest. Kontrollige, et kasvatused on ainult raglaanisilmuste kõrval ja mustri õhksilmuste kõrvale on tehtud 2 kokku. Head kudumist!
28.07.2026 - 12:47
Lace Diamond Sweater#lacediamondsweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og gatamynstri. Stærð XS - XXXL.
DROPS 266-1 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. LASKALÍNA: Laskalykkjan er prjónuð í sléttprjóni. Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt – svo það myndist gat. Nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með merki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkið situr í þessari lykkju), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 80-96-96-96-112-112-112 lykkjur á hringprjón 3,5 með 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-3-4-4-4-4 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 30-34-34-34-37-37-37 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 4,5. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju og þessar lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Laskalykkjurnar eru prjónaðar í sléttprjóni. Setjið 1. merki í fyrstu lykkju, teljið 19 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 19-27-27-27-35-35-35 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 19 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru 19-27-27-27-35-35-35 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Prjónið MYNSTUR hringinn og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið leiðbeiningar að ofan fyrir mynstur og útskýringu hvernig auka á út. Prjónið mynstur þannig: Prjónið laskalykkju í sléttprjóni, aukið út fyrir laskalínu á eftir laskalykkju, prjónið A.1 yfir 5 lykkjur, A.2 yfir 8 lykkjur, A.3 yfir 6 lykkjur (= ermi), aukið út fyrir laskalínu á undan og á eftir laskalykkju, prjónið A.1 yfir 5 lykkjur, A.2 yfir 8-16-16-16-24-24-24 lykkjur (= 1-2-2-2-3-3-3 sinnum á breiddina), A.3 yfir 6 lykkjur (= framstykki), aukið út fyrir laskalínu á undan og á eftir laskalykkju, prjónið A.1 yfir 5 lykkjur, A.2 yfir 8 lykkjur, A.3 yfir 6 lykkjur (= ermi), aukið út fyrir laskalínu á undan og á eftir laskalykkju, prjónið A.1 yfir 5 lykkjur, A.2 yfir 8-16-16-16-24-24-24 lykkjur (= 1-2-2-2-3-3-3 sinnum á breiddina), A.3 yfir 6 lykkjur (= bakstykki), aukið út fyrir laskalínu. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir laskalínu eins og útskýrt er að ofan í annarri hverri umferð, aukið er út hvoru megin við laskalykkjurnar. Þegar mynsturteikningin hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina hefur verið aukið út fyrir laskalínu 8 sinnum, þegar mynstrið er prjónað síðar þá er pláss fyrir 2 mynstureiningar fleiri af A.2 á milli A.1 og A.3 í hvoru stykki á flíkinni. Haldið áfram með mynstur og útaukningu þar til aukið hefur verið út alls 16 sinnum (mynsturteikningin hefur verið prjónuð 2 sinnum á hæðina) = 208-224-224-224-240-240-240 lykkjur í umferð. Lykkjurnar skiptast niður þannig: 51 lykkjur á hvorri ermi, 53-61-61-61-69-69-69 lykkjur á framstykki/bakstykki (meðtaldar laskaykkjur á framstykki/bakstykki). Í stærð XS og S er útaukningu á ermum lokið, í stærð M og L er prjónað og aukið út á sama hátt 4 sinnum til viðbótar (þ.e.a.s. mynsturteikningin er prjónuð ½ sinnum til viðbótar á hæðina) og í stærð XL, XXL og XXXL er aukið út 8 sinnum til viðbótar (þ.e.a.s. mynsturteikningin er prjónuð 1 sinni til viðbótar á hæðina). Aukið hefur verið nú fyrir laskalínu alls 16-16-20-20-24-24-24 sinnum (mynsturteikningin hefur verið prjónuð alls 2-2-2½-2½-3-3-3 sinnum á hæðina frá byrjun á stykki) = 208-224-256-256-304-304-304 lykkjur í umferð. Lykkjum er skipt niður þannig: 51-51-59-59-67-67-67 lykkjur á hvorri ermi, 53-61-69-69-85-85-85 lykkjur á framstykki/bakstykki (meðtaldar laskalykkjur á framstykki/bakstykki). Útaukning fyrir ermar er nú lokið í öllum stærðum og nú á að auka út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. Í stærð M og L er prjónað að miðju í mynstureiningu á mynstri á hæðina, þegar prjóna á afram á mynstrið að halda áfram á framstykki og bakstykki, en á ermum á mynstrið að byrja á ermum í 1. umferð í mynsturteikningu eins og í hinum stærðunum. Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð á framstykki og bakstykki og prjónið síðan mynstur þannig: Prjónið laskalykkju eins og áður, prjónið A.4 yfir 5 lykkjur, A.1 yfir 40-48-48-48-56-56-56 lykkjur (= 5-6-6-6-7-7-7 sinnum á breiddina), A.5 yfir 6 lykkjur (= ermi), prjónið laskalykkju eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á eftir laskalykkju, prjónið A.1 yfir 5-5-9-9-5-5-5 lykkjur, A.2 yfir 40-48-48-48-74-74-74 lykkjur (= 5-6-6-6-9-9-9 sinnum á breiddina), A.3 yfir 6-6-10-10-6-6-6 lykkjur (= framstykki), aukið út fyrir laskalínu á undan laskalykkju, prjónið laskalykkju eins og áður, A.4 yfir 5 lykkjur, A.2 yfir 40-40-48-48-56-56-56 lykkjur (= 5-5-6-6-7-7-7 sinnum á breiddina), A.5 yfir 6 lykkjur (= ermi), prjónið laskalykkju eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á eftir laskalykkju, A.1 yfir 5-5-9-9-5-5-5 lykkjur, A.2 yfir 40-48-48-48-74-74-74 lykkjur (= 5-6-6-6-9-9-9 sinnum á breiddina), A.3 yfir 6-6-10-10-6-6-6 lykkjur (= bakstykki), aukið út fyrir laskalínu á undan laskalykkju. Haldið áfram með mynstur og aukið út á þennan hátt þar til aukið hefur verið út 8 sinnum fyrir laskalínu á framstykki/bakstykki (aukið hefur verið út alls 24-24-28-28-32-32-32 sinnum fyrir laskalínu á framstykki/bakstykki frá byrjun umferðar). Mynsturteikning hefur verið prjónuð 3-3-3½-3½-4-4-4 sinnum á hæðina – endið þegar eftir eru 1-1-9-9-1-1-1 umferðir í mynsturteikningu þannig að næsta umferð sé án mynsturs = 240-256-288-288-336-336-336 lykkjur í umferð. Í stærð XS, S, M, XL og XXL er útaukning á framstykki/bakstykki lokið. Prjónið síðan frá ALLAR STÆRÐIR eins og útskýrt er að neðan. Í stærð L og XXXL er prjónað og aukið út eins og útskýrt er að neðan. STÆRÐ L OG XXXL: Haldið áfram með mynstur og aukið út á sama hátt fyrir laskalínu 4-4 sinnum til viðbótar á framstykki/bakstykki (þ.e.a.s. mynsturteikningin hefur verið prjónuð ½-½ sinnum til viðbótar á hæðina) – endið þegar eftir eru 1-9 umferðir í mynsturteikningu þannig að næsta umferð sé án mynsturs = 304-352 lykkjur í umferð. ALLAR STÆRÐIR: Aukið hefur verið út fyrir laskalínu alls 24-24-28-32-32-32-36 sinnum á framstykki/bakstykki frá byrjun umferðar. Mynsturteikning hefur verið prjónuð alls 3-3-3½-4-4-4-4½ sinnum á hæðina frá byrjun umferðar (mínus 1 umferð). Í stærð M og XXXL hefur verið prjónað ca að miðju í mynstureiningu á mynstri á hæðina - því skal gæta þess sérstaklega þegar prjónað er áfram, svo að mynstrið passi. Það eru 240-256-288-304-336-336-352 lykkjur í umferð. Lykkjur skiptast þannig: 51-51-59-59-67-67-67 lykkjur á hvorri ermi, 69-77-85-93-101-101-109 lykkjur á framstykki/bakstykki. Stykkið mælist ca 20-20-23-27-27-27-30 cm frá merki fyrir miðju að framan, í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð í mynsturteikningu er prjónuð án mynsturs, þ.e.a.s. það er prjónað þannig: Prjónið laskalykkju slétt (tilheyrir bakstykki), fitjið upp 11-11-11-11-11-19-19 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), setjið næstu 51-51-59-59-67-67-67 lykkjur á þráð fyrir ermi, prjónið slétt yfir næstu 69-77-85-93-101-101-109 lykkjur (= framstykki), fitjið upp 11-11-11-11-11-19-19 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), setjið næstu 51-51-59-59-67-67-67 lykkjur á þráð fyrir ermi og prjónið síðustu 68-76-84-92-100-100-108 lykkjur slétt (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað áfram hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 160-176-192-208-224-240-256 lykkjur. Setjið eitt merki fyrir miðju í 11-11-11-11-11-19-19 lykkjur sem fitjaðar voru upp í byrjun fyrri umferðar. Til að byrja mynstrið rétt, prjónið slétt þar til 4-4-1-4-4-1-4 lykkjur eru eftir á undan lykkju með merki og prjónið A.2 hringinn héðan – byrjið í 1-1-9-1-1-1-9 umferð í A.2. Haldið áfram með mynstur A.2 hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 35-37-39-41-42-44-46 cm frá merki fyrir miðju að framan – endið eftir 1 heila eða ½ mynstureiningu af mynstri á hæðina. Prjónið 2 umferðir sléttprjón. Skiptið yfir á hringprjón 3,5, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 18-20-22-24-26-28-30 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 178-196-214-232-250-268-286 lykkjur. Þegar stroffið mælist 1-1-1-1-2-2-2 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 37-39-41-43-45-47-49 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 42-44-46-48-50-52-54 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 51-51-59-59-67-67-67 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 4,5. Prjónið síðan upp lykkjur undir ermi þannig: Byrjið á að prjóna upp 1 lykkju í hverja af 11-11-11-11-11-19-19 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi, prjónið mynstur eins og áður yfir lykkjur frá ermi – passið uppá að byrja í réttri umferð í mynstri – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 62-62-70-70-78-86-86 lykkjur. Setjið eitt merki í miðjulykkju sem prjónuð var upp undir ermi, prjónið fram til og með lykkju með merki í og prjónið þannig: Prjónið 5-5-5-5-5-9-9 lykkjur sléttprjón, A.4 yfir 5 lykkjur eins og áður – passið uppá að mynstrið passi yfir lykkjur frá berustykki, prjónið A.2 yfir næstu 40-40-48-48-56-56-56 lykkjur eins og áður, A.5 yfir 6 lykkjur eins og áður og prjónið 6-6-6-6-6-10-10 lykkjur sléttprjón. Haldið áfram með mynstur hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 1-1-1-1-1-1½-1½ cm alls 7-7-7-7-7-11-11 sinnum = 48-48-56-56-64-64-64 lykkjur í umferð. Á eftir síðustu úrtöku kemur mynstur A.2 til með að ganga jafnt upp í umferð, byrjið umferðina á undan lykkju með merki í og prjónið A.2 umferðina hringinn. Prjónið síðan þar til ermin mælist ca 44-44-42-39-37-38-36 cm frá skiptingunni – endið eftir 1 heila eða 1 hálfa mynstureiningu á hæðina. Prjónið 2 umferðir sléttprjón. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 6 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 54-54-62-62-70-70-70 lykkjur. Þegar stroffið mælist 1-1-1-1-2-2-2 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist ca 46-46-44-41-40-41-39 cm frá skiptingunni. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lacediamondsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 266-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.