Karine skrifaði:
Bonjour, Je viens de commencer à lire le patron et je n'y comprends rien pour le pull. J’ai l'impression que l’on fait le haut du dos ( sans l’écolure) Et apres pour relever les mailles alors là j’suis perdue. Y aurait il une vidéo?
07.01.2026 - 12:27DROPS Design svaraði:
Bonjour Karine, vous trouverez effectivement plusieurs vidéos mais également plusieurs leçons montrant les différentes étapes de ce type de modèle sous les onglets Vidéos / Leçons en haut de page, à droite de l'onglet "Explications". Si vous avez des questions, n'hésitez pas à utiliser cet espace. Bon tricot!
08.01.2026 - 09:06
Angelika skrifaði:
Der Pullover ist soo schön. Gibt es das Muster auch für erwachsene Frauen?
07.01.2026 - 12:21DROPS Design svaraði:
Liebe Angelika, vielen Dank für Ihr Feedback. Dieses konkrete Modell haben wir derzeit leider nicht in einer Version für erwachsene Frauen. Vielleicht möchten Sie sich jedoch das ähnliche Modell White Echo Sweater ansehen – möglicherweise könnte es Ihnen ebenfalls gut gefallen. Viel Spaß beim Stricken!
07.01.2026 - 18:37
Woodland Wander Sweater#woodlandwandersweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa og húfa fyrir börn úr DROPS Lima. Peysan er prjónuð ofan frá og niður með evrópskri / skáhallandi öxl og áferðamynstri. Húfan er prjónuð í hring í stroffprjóni. Stærð 2 – 14 ára.
DROPS Children 50-9 |
|||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. A.5 (A.5 á við um húfu). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með merki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með merki, 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt (merkið situr í þessari lykkju), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjið á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til lykkjufjöldi fyrir axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið smá skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er bakstykkið látið bíða á meðan framstykkið er prjónað. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 stykkjum. Byrjið á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, samtímis sem aukið er út við hálsmál. Endurtakið á hinni öxlinni. Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukningu er lokið fyrir hálsmáli. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Nú er framstykkið og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Prjónið MYNSTUR - lesið leiðbeiningar að ofan. Fitjið upp 29-29-33-33-33-37-37 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Lima. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið A.1x (þ.e.a.s. tvöfalt perluprjón) þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur í næstu umferð. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið A.1x (þ.e.a.s. prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur frá röngu) þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til vinstri, 3 lykkjur brugðið. Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 6-7-7-8-9-9-10 sinnum (= 12-14-14-16-18-18-20 umferðir prjónaðar), á eftir síðustu útaukningu eru = 53-57-61-65-69-73-77 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er nú stykkið mælt frá! Nú er prjónað mynstur yfir allar lykkjur með 1 kantlykkjur slétt í hvorri hlið þannig (þ.e.a.s. mynstrið er einnig prjónað yfir ystu 3 lykkjur í hverri umferð): Prjónið A.1x þar til stykkið mælist 1-1-1-1-1-2-2 cm frá merki yst í hlið. Prjónið A.2, endurtakið síðan A.2x. Þegar stykkið mælist 7-8-9-10-10-11-12 cm frá merki í hlið á að auka út fyrir handveg eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: Prjónið mynstur A.3a jafnframt því sem aukið er út fyrir handveg þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 1 lykkju slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið mynstur A.3a þar til 1 lykkja er eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 1 lykkju slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið mynstur A.3a eins og áður - nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur, endið með 1 lykkju slétt. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2 sinnum (= 4 umferðir prjónaðar) = 57-61-65-69-73-77-81 lykkjur í umferð. Klippið þráðinn og setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón (stykkið mælist ca 8-9-10-11-11-12-13 cm, mælt frá merki yst meðfram handveg). Nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju (= 12-14-14-16-18-18-20 lykkjur), endið með að prjóna upp 1 lykkju alveg yst í hornið á öxlinni (= kantlykkja) = 13-15-15-17-19-19-21 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki hér, stykkið er nú mælt frá þessu merki. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir – ATH! Til að mynstrið passi þegar framstykkin eru sett saman, byrjar mynstrið í 2-2-1-1-1-2-1 lykkju í A.1, prjónið 1 lykkju slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið A.1 eins og áður þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið síðan mynstur með umferð 2 og 3, þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er A.1x endurtekið. Prjónið svona þar til stykkið mælist 5-5-6-6-7-6-7 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Nú eru lykkjur auknar út við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 1 lykkju slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið mynstur eins og áður og endið með 1 lykkju slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið mynstur eins og áður og endið með 1 lykkju slétt. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 5-5-6-6-6-7-7 sinnum (= 10-10-12-12-12-14-14 umferðir prjónaðar) = 18-20-21-23-25-26-28 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Stykkið mælist ca 9-9-10-10-11-11-12 cm frá merki. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykkið prjónað meðfram hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru prjónaðar upp lykkjur meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Byrjið á að prjóna upp 1 lykkju alveg yst í horni á öxlinni (= kantlykkja), prjónið síðan upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (= 12-14-14-16-18-18-20 lykkjur) = 13-15-15-17-19-19-21 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki hér, stykkið er nú mælt frá þessu merki. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið A.1 eins og áður þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið síðan mynstur með umferð 2 og 3, þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er A.1x endurtekið. Prjónið svona þar til stykkið mælist 5-5-6-6-7-6-7 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Nú eru lykkjur auknar út við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið mynstur eins og áður þar til 1 lykkja er eftir í umferð, aukið út 1 lykkju til hægri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og endið með 1 lykkju slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið mynstur eins og áður og endið með 1 lykkju slétt. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 5-5-6-6-6-7-7 sinnum (= 10-10-12-12-12-14-14 umferðir prjónaðar) = 18-20-21-23-25-26-28 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Stykkið mælist ca 9-9-10-10-11-11-12 cm frá merki – passið uppá að hægra framstykkið sé jafn langt og vinstra framstykkið þannig að mynstrið passi. Síðan eru framstykkin sett saman eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI (hægra og vinstra stykki sett saman): Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 18-20-21-23-25-26-28 lykkjur frá hægra framstykki í mynstri eins og áður, fitjið upp 17-17-19-19-19-21-21 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið síðan 18-20-21-23-25-26-28 lykkjur frá vinstra framstykki í mynstri eins og áður = 53-57-61-65-69-73-77 lykkjur í umferð. Haldið áfram með A.1x þar til stykkið mælist ca 11-11-11-11-13-14-14 cm frá merki – passið uppá að mynstrið gangi upp yfir lykkjurnar sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmáli. Prjónið A.2 – þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er A.2x endurtekið á hæðina. Þegar stykkið mælist 17-18-19-20-22-23-24 cm á að auka út fyrir handveg eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: Prjónið mynstur A.3a jafnframt því sem aukið er út fyrir handveg þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 1 lykkju slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið mynstur A.3a þar til 1 lykkja er eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið mynstur A.3a eins og áður – nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur, endið með 1 lykkju slétt. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2 sinnum (= 4 umferðir prjónaðar) = 57-61-65-69-73-77-81 lykkjur í umferð. Framstykkið mælist ca 18-19-20-21-23-24-25 cm. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. Framstykkið er lengra en bakstykkið, ca 3 cm af hálsmálinu kemur til með að vera á bakhlið á stykkinu. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 57-61-65-69-73-77-81 lykkjur frá bakstykki í A.3x, fitjið upp 9-11-10-9-11-10-9 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (= í hlið undir ermi), prjónið 57-61-65-69-73-77-81 lykkjur frá framstykki í A.3x (Munið eftir að lykkjurnar sem fitjaðar eru upp undir ermi eru einnig prjónaðar inn í mynstur í næstu umferð, passið uppá að telja þannig að byrjað er í réttri lykkju í mynstri) og fitjið upp 9-11-10-9-11-10-9 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið undir ermi) = 132-144-150-156-168-174-180 lykkjur í umferð. Prjónið mynstur A.3x hringinn þar til A.3 (ásamt A.3a) mælist alls ca 4-4-5-5-6-7-7 cm – mynstrið gengur upp yfir allar lykkjur. Prjónið A.4 alls 1 sinni á hæðina. Nú er prjónað A.1 – síðan er A.1x endurtekið á hæðina þar til A.1/A.1x mælist 4-4-5-6-7-7-7 cm. Prjónið A.2, endurtakið síðan A.2x á hæðina þar til stykkið mælist 25-28-32-36-40-42-44 frá uppfitjunarkanti fyrir miðju að aftan. Prjónið 2 umferðir slétt. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 24-28-32-32-34-34-36 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 156-172-182-188-202-208-216 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 29-32-36-40-44-46-48 cm frá miðju að aftan og 32-35-39-43-47-49-51 cm frá öxl. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handveg og niður. Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = fyrir miðju ofan á öxl – ATH: Miðja ofan á öxl er ekki á sama stað og lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur nokkrum cm niður á framstykki. Notið hringprjón 4 og prjónið upp lykkjur aðeins fast (notið e.t.v. fínni prjón). PRJÓNIÐ UPP LYKKJUR ÞANNIG: Byrjið fyrir miðju í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – prjónið upp 62-66-70-74-78-82-86 lykkjur – stillið af að prjónaðar séu upp jafn margar lykkjur hvoru megin við merkið. ERMAKÚPA: Til að ermin passi betur er prjónað A.1x með stuttum umferðum fram og til baka yfir ermkúpuna, byrjun umferðar er við miðju undir ermi og prjónað er þannig. UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt frá miðju undir ermi þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merki ofan á öxl, prjónið A.1x yfir næstu 6 lykkjur, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið A.1x yfir fyrstu 8 lykkjurnar – lykkjurnar er prjónaðar jafnóðum inn í A.1x, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 2-2-2-2-3-3-3 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 2-2-2-2-3-3-3 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4. Prjónið þar til snúið hefur verið við 20 sinnum (= 10 sinnum í hvorri hlið og síðasta prjónaða umferðin er frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er prjónuð endar umferðin með að snúa stykkinu, síðan er prjónað frá réttu að byrjun umferðar (fyrir miðju undir ermi). Setjið 1 merki í miðjulykkju undir ermi, merkið er notað þegar fækka á lykkjum undir ermi. Lykkja með merki er alltaf prjónuð slétt. SÍÐAN ERMIN NIÐUR: Nú er prjónað í hring í mynstri A.1x eins og áður yfir allar lykkjur JAFNFRAMT sem lykkjum er fækkað undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Þegar prjónuð hefur verið 1 umferð byrjar úrtaka fyrir miðju undir ermi. Fækkað er um 2 lykkjur í hverjum 1½-2-2-2-2-2½-2½ cm alls 11-12-13-14-15-16-17 sinnum = 40-42-44-46-48-50-52 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 26-31-35-39-42-46-50 cm frá miðju ofan á öxl. Prjónið 2 umferðir slétt. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 8-8-8-10-10-10-10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 48-50-52-56-58-60-62 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 30-35-39-43-47-51-55 cm frá miðju ofan á öxl. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 3. Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 84-84-96-96-98-108-112 lykkjur í kringum hálsmál innan við 1 lykkju, prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er e.t.v. jafnaður út – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Húfan er prjónuð í hring neðan frá og upp, byrjað er á að prjóna með hringprjóni og skipt er yfir á sokkaprjóna þegar lykkjum fækkað í toppi á húfunni. HÚFA: Fitjið upp 100-104-108-112-116-120-128 lykkjur á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3,5 með DROPS Lima. Prjónið hringinn í stroffprjóni (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið). Munið að fylgja prjónfestunni. Þegar húfan mælist 9 cm, snúið stykkinu og herðið á þræði. Prjónið síðan stroffprjón eins og áður frá röngu (þetta er gert til að uppfitjunarkanturinn verði fallegur þegar brotið er uppá húfuna). Prjónið síðan stroffprjón eins og áður. Þegar húfan mælist 17-17-18-18-19-20-20 cm (það eru eftir ca 7-8-8-8-8-9-9 cm að loka máli), prjónið næstu umferð þannig: Prjónið A.5 alls 12-13-13-14-14-15-16 sinnum hringinn á húfunni og endið með 4-0-4-0-4-0-0 fyrstu lykkjur í A.5. Þegar A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 50-52-54-56-58-60-64 lykkjur í umferð. Prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið * 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 2-0-2-0-2-0-0 lykkjur eru eftir og endið með 2-0-2-0-2-0-0 lykkjur slétt = 38-39-41-42-44-45-48 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið slétt. UMFERÐ 3: Prjónið * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2-0-2-0-2-0-0 lykkjur eru eftir og endið með 2-0-2-0-2-0-0 lykkjur slétt = 26-26-28-28-30-30-32 lykkjur. UMFERÐ 4: Prjónið allar lykkjur 2 og 2 slétt saman = 13-13-14-14-15-15-16 lykkjur. ‚ Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 24-25-26-26-27-29-29 cm frá toppi og niður. Brjótið uppá neðstu 5-5-5-5-5-6-6 cm fyrir uppábrot. Húfan mælist ca 19-20-21-21-22-23-23 cm þegar brotið er uppá kantinn. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #woodlandwandersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 45 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 50-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.