Tze Moi skrifaði:
I really love this pattern and would like to knit one but with just 1 strand of yarn. What is the best substitute for it? Thank you.
13.11.2025 - 17:01DROPS Design svaraði:
Hi Tze, Our yarns are produced so that 1 yarn from group A + 1 yarn from group B is the same thickness as 1 yarn from group C. As this pattern uses A + B you can choose any yarn from Group C and work this pattern with the same stitch count and row numbers. You can find our yarn group C by clicking on Yarns and Needles at the top of the page, then Yarn groups lower right. We always recommend that you work a swatch before starting a project, to test your knitting tension. Regards, Drops Team.
14.11.2025 - 06:14
Kate skrifaði:
N y a t il pas une erreur dans la quantité de laine Daisy? je pense que c est 350 g de col 21 rouge carmin et 100 g de col 2 massepain
02.11.2025 - 19:08DROPS Design svaraði:
Bonjour Kate, effectivement, une correction va être faite, merci pour votre retour. Bon tricot!
03.11.2025 - 08:13
Crimson Cabin Sweater#crimsoncabinsweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Daisy og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, norrænu mynstri og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 264-37 |
||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 7. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 7. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn - svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermarnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfaldur að röngu og saumaður niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 84-88-92-96-100-104 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði DROPS Daisy í litnum Crimson Rauður og 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum Rauður. Skiptið yfir á hringprjón 4 (fitjað er upp með grófari prjónum til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegri). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til kantur í hálsmáli mælist 11 cm. Síðar er kantur í hálsmáli brotinn tvöfaldur og við frágang þá verður kantur í hálsmáli ca 5 cm. Setjið 1 merki eftir fyrstu 28-29-31-32-33-35 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 12-12-14-14-16-16 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 96-100-106-110-116-120 lykkjur. Prjónið síðan í sléttprjóni. Munið að fylgja prjónfestunni. Þegar berustykkið mælist 3-3-4-4-5-5 cm frá merki fyrir miðju að framan, aukið út um 20-20-26-26-28-32 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 116-120-132-136-144-152 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til berustykkið mælist 5-6-7-8-10-11 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú er prjónað MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan, þ.e.a.s. prjónið A.1 berustykkið hringinn jafnframt því sem aukið er út um 32-36-40-40-44-48 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 148-156-172-176-188-200 lykkjur (það er pláss fyrir 37-39-43-44-47-50 mynstureiningar með A.1 á eftir þessari útaukningu). Haldið áfram með mynstur – JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1 á að auka út lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Ör-1: Aukið út 32-32-36-40-44-48 lykkjur jafnt yfir = 180-188-208-216-232-248 lykkjur. Ör-2: Aukið út 30-34-38-42-44-52 lykkjur jafnt yfir = 210-222-246-258-276-300 lykkjur. Ör-3: Aukið út 22-26-26-30-36-32 lykkjur jafnt yfir = 232-248-272-288-312-332 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 22-23-24-25-27-28 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 44-46-52-56-58-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9-9-9-14-13-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið A.2 yfir næstu 76-80-85-88-94-102-110 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 44-46-52-56-58-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9-9-9-14-13-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið A.2 yfir síðustu 76-80-85-88-94-102-110 lykkjur (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig og byrjun umferðar er við skiptinguna á milli fram- og bakstykkis og ermi. Klippið þráðinn. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 162-174-186-204-222-240 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= fyrir miðju í 9-9-9-14-13-16 lykkjur sem fitjaðar eru upp undir ermi). Byrjið umferð við merki og prjónið hringinn, haldið áfram frá annarri umferð í A.2. Jafnframt eru lykkjur auknar út jafnt yfir í umferð með ör þannig: Ör-4: Aukið út 8-6-4-6-8-10 lykkjur jafnt yfir = 170-180-190-210-230-250 lykkjur. Ör-5: Aukið út 6-12-10-14-10-14 lykkjur jafnt yfir = 176-192-200-224-240-264 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið síðan sléttprjón með 1 þræði DROPS Daisy í litnum Crimson Rauður og 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum Rauður. Haldið áfram þar til stykkið mælist 51-51-53-53-55-57 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 4, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 20-16-20-24-24-24 jafnt yfir í umferð 1 = 196-208-220-248-264-288 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af. Peysan mælist 57-57-59-60-62-64 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 62-62-64-66-68-70 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 44-46-52-56-58-62 lykkjur frá ermi af þræði á hringprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 9-9-9-14-13-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 53-55-61-70-71-78 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 9-9-9-14-13-16 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn, merkiþráðurinn er settur á milli 2 lykkja. Setjið 1 merkiþráð í miðjulykkju mitt ofan á ermi. Prjónið A.2, en teljið út frá miðju – lykkjan með ör í A.2 á að passa við lykkju með merkiþræði fyrir miðju ofan á ermi - JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3-3-3-2-2-2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 8-8-5½-3½-3½-2½ cm alls 4-4-6-9-9-11 sinnum = 45-47-49-52-53-56 lykkjur í umferð. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið síðan með DROPS Daisy í litnum Crimson Rauður og DROPS Kid-Silk í litnum Rauður. Prjónið síðan þar til ermin mælist 38-37-37-36-35-34 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 7-5-7-8-7-8 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 52-52-56-60-60-64 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af. Ermin mælist ca 44-43-43-43-42-41 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið kantinn í hálsmáli niður þannig að það verður tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn í hálsmáli dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #crimsoncabinsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 264-37
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.