Tempest Tide Sweater#tempesttidesweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Lima. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og köðlum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 263-11 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALÍNU: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALÍNU: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjurnar eru prjónaðar upp í miðjunni undir erminni getur myndast lítið gat í opinu milli lykkjunnar frá fram- og bakstykki og erminni. Þú getur lokað þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli lykkjanna tveggja - þráðurinn er snúinn saman við fyrstu lykkjuna á milli fram- og bakstykkis og ermarinnar, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 108-116-116-124-124-132-132 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Lima. Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Setjið 1 merki eftir 41-43-43-45-45-47-47 lykkjur (= miðja að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 4. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju, þessar lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og það á að auka út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Setjið 1. merki í fyrstu lykkju, teljið 27 lykkjur (= ermi), Setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 25-29-29-33-33-37-37 lykkjur (= framstykki), Setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 27 lykkjur (= ermi), Setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru 5-29-29-33-33-37-37 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Prjónið nú áfram mynstur, í fyrstu umferð byrjar einnig útaukning fyrir laskalínu – lestu því báða næstu kafla áður en þú prjónar áfram. MYNSTUR. Prjónið sléttprjón á framstykki og bakstykki, A.1 yfir lykkjur á milli 1. og 2. merkis (= vinstri ermi) og A.2 yfir lykkjur á milli 3. og 4. merkis (= hægri ermi). Laskalykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið þá efstu 8 umferðir í mynstri (merktar með x í mynsturteikningu), aukið er út um 3 lykkjur í A.1/ A.2 í fyrstu umferð. UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og mynstur og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). ATH: Í byrjun umferðar er aukið út á eftir lykkju með 1. merki og í lok umferðar er aukið út á undan lykkju með 1. merki. UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón og mynstur. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 1-5-6-10-10-9-6 sinnum (= 2-10-12-20-20-18-12 umferðir prjónaðar) = 122-162-170-210-210-210-186 lykkjur. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið síðan og aukið út þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og mynstur og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón og mynstur. UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón og mynstur og aukið út fyrir laskalínu á framstykki og á bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á eftir 2. og 4. merki og á undan 3. og 1. merki – lykkjur eru ekki lengur auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón og mynstur. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 15-14-15-14-16-18-22 sinnum (= 60-56-60-56-64-72-88 umferðir prjónaðar = 15-14-15-14-16-18-22 sinnum útaukning á ermum og 30-28-30-28-32-36-44 sinnum útaukning á framstykki/bakstykki) = 302-330-350-378-402-426-450 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út alls 16-19-21-24-26-27-28 sinnum á ermum og 31-33-36-38-42-45-50 sinnum á framstykki/bakstykki. Stykkið mælist ca 22-24-26-28-30-32-36 cm frá merki fyrir miðju að framan, prjónið síðan að tilgreindu máli án þess að auka út. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu lykkju og haldið henni á prjóni, setjið næstu 62-68-72-78-82-84-86 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-12-14-16-18-20-22 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 89-97-103-111-119-129-139 lykkjur í sléttprjóni (= framstykki), setjið næstu 62-68-72-78-82-84-86 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-12-14-16-18-20-22 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 88-96-102-110-118-128-138 lykkjur í sléttprjóni (= 89-97-103-111-119-129-139 lykkjur á bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 202-218-234-254-274-298-322 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 42-44-46-48-49-51-53 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 20-22-24-26-28-30-32 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 222-240-258-280-302-328-354 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af. Peysan mælist 46-48-50-52-54-56-58 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 62-68-72-78-82-84-86 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 12-12-14-16-18-20-22 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 74-80-86-94-100-104-108 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 12-12-14-16-18-20-22 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón og mynstur hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig. Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 5-4-4-3-2½-2½-2 cm alls 8-9-9-11-12-12-12 sinnum = 58-62-68-72-76-80-84 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 43-41-40-38-36-34-31 cm frá skiptingunni. Fækkið um 1 lykkju í hverjum kaðli og 1 lykkju fyrir miðju undir ermi = 54-58-64-68-72-76-80 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið), passið uppá að stroffið passi yfir lykkjur í köðlum (yfir 5 lykkjur í kaðli er prjónuð 1 lykkja slétt / 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt / 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt). Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af. Ermin mælist ca 47-45-44-42-41-39-36 cm frá skiptingunni. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #tempesttidesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 263-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.