Soft Spire Cardigan#softspirecardigan |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með köðlum, v-hálsmáli og skáhallandi öxl. Stærð XS - XXXL.
DROPS 263-27 |
|||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: RÉTTA: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 4 lykkjur í garðaprjóni. RANGA: Prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: RÉTTA: Prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. RANGA: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 4 lykkjur í garðaprjóni. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Mynsturteikning er lesin frá hægri til vinstri þegar prjónað er frá réttu og frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu. Ef ekki eru nægar lykkjur í heilan kaðal, prjónið kaðlalykkjurnar í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan frá réttu (kantur að framan = 6 lykkjur): UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3. og 4. lykkju frá kanti fyrir miðju að framan slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, síðan halda lykkjurnar áfram frá framstykki eins og áður. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stykkið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm, fellið síðan af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist: XS: 11, 19 og 27 cm. S: 12, 21 og 29 cm. M: 12, 21 og 30 cm. L: 13, 23 og 32 cm. XL: 14, 24 og 33 cm. XXL: 14, 24 og 34 cm. XXXL: 14, 24 og 34 cm. (= fellt er af fyrir síðasta hnappagatinu rétt áður en úrtaka fyrir v-hálsmáli byrjar). LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breytið eftir þörfum. Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. Axlasaumar eru felldir af með því að prjóna 1 lykkju frá framstykki og 1 lykkju frá bakstykki slétt saman. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermar prjónaðar í hring niður á við. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 192-212-232-242-262-282-312 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Nepal. Prjónið umferð 1 þannig: Prjónið HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið stroff (= 3 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) þar til 10 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur slétt, 1 lykkju brugðið og VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD. Prjónið þar til stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið 1 umferð frá röngu með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur jafnframt því sem aukið er út um 36-40-44-46-50-54-60 lykkjur jafnt yfir í umferð með því að auka út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn í hverri einingu með 3 lykkjur brugðið (= 4 lykkjur slétt frá réttu) = 228-252-276-288-312-336-372 lykkjur. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið hægri kant að framan eins og áður, prjónið A.1 alls 18-20-22-23-25-27-30 sinnum, prjónið A.2 alls 18-20-22-23-25-27-30 sinnum, prjónið vinstri kant að framan eins og áður. Frá röngu eru prjónaðar sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur með kanta að framan eins og áður í hvorri hlið. Lesið HNAPPAGAT og haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 27-29-31-32-33-34-35 cm. Munið að fylgja prjónfestunni. Nú skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki. SKIPTING VIÐ HANDVEG: Í næstu umferð frá réttu skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og umferðin er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 52-58-64-64-70-76-82 lykkjur eins og áður (= framstykki ásamt kanti að framan), fellið af næstu 16-16-16-22-22-22-28 lykkjur fyrir handvegi, prjónið næstu 92-104-116-116-128-140-152 lykkjur eins og áður (= bakstykki), fellið af næstu 16-16-16-22-22-22-28 lykkjur fyrir handvegi og prjónið síðustu 52-58-64-64-70-76-82 lykkjur eins og áður (= framstykki ásamt kanti að framan). Framstykkin og bakstykkið er prjónað til loka hvert fyrir sig. Ekki klippa þráðinn, haldið áfram að prjóna vinstra framstykki eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 52-58-64-64-70-76-82 lykkjur. Haldið áfram með mynstur og kant að framan fram og til baka eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni og 2 lykkjur sléttprjón við handveg. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu. Í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli að innanverðu við kant að framan og 1 kaðal (= A.2) JAFNFRAMT sem í hlið er lykkjum fækkað fyrir handveg í hverri umferð frá réttu – lestu því báða næstu kafla áður en prjónað er áfram. Munið eftir að ef ekki eru nægilega margar lykkjur fyrir heilan kaðal (= 4 lykkjur slétt frá réttu) eru kaðlalykkjurnar prjónaðar í sléttprjóni. HANDVEGUR: Í hverri umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í byrjun umferðar þannig: Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, 2 lykkjur brugðið saman (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum fyrir handveg í annarri hverri umferð alls 7-7-7-7-13-13-13 sinnum (= 7-7-7-7-13-13-13 lykkjur færri fyrir ermar). V-HÁLSMÁL: Í hverri umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í lok umferðar þannig: Prjónið þar til 13 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur snúnar brugðið saman, endið með kaðal (= A.2) og kant að framan eins og áður. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 18 sinnum (= 18 lykkjur færri fyrir v-hálsmáli). Þegar úrtöku er lokið eru 27-33-39-39-39-45-51 lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 45-47-49-51-53-55-57 cm – síðasta umferð er prjónuð frá röngu. Nú er ekki lengur snúið í kaðli og fækka á lykkjum yfir mynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið A.3a , prjónið A.3b alls 2-3-4-4-4-5-6 sinnum, prjónið A.3c, prjónið kant að framan eins og áður. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir í umferð, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til A.3 er lokið á hæðina (= 9 umferðir prjónaðar) – síðasta umferðin er prjónuð frá réttu = 22-26-30-30-30-34-38 lykkjur. Prjónið síðan skáhallandi öxl þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið brugðið þar til eftir eru 3-4-5-5-5-6-7 lykkjur í umferð, snúið. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið slétt þar til eftir eru 6 lykkjur, prjónið kant að framan eins og áður. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið brugðið þar til eftir eru 6-8-10-10-10-12-14 lykkjur í umferð (þ.e.a.s. 3-4-5-5-5-6-7 lykkjum styttra en þegar snúið var við í fyrra skipti), snúið. UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið slétt þar til eftir eru 6 lykkjur, prjónið kant að framan eins og áður. UMFERÐ 5 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið brugðið þar til eftir eru 9-12-15-15-15-18-21 lykkjur í umferð (þ.e.a.s. 3-4-5-5-5-6-7 lykkjum styttra en þegar snúið var við í fyrra skipti), snúið. UMFERÐ 6 (= rétta): Prjónið slétt þar til eftir eru 6 lykkjur, prjónið kant að framan eins og áður. Látið ystu 15-19-23-23-23-27-31 lykkjurnar á öxl hvíla á þræði eða á hjálparprjóni, það á að fella þessar lykkjur af síðar saman með lykkjum frá vinstri öxl á bakstykki. Haldið áfram að prjóna kant að framan eins og áður og 1 kantlykkju í garðaprjóni yfir 7 lykkjur í kanti að framan í ca 8 cm. Fellið af. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 52-58-64-64-70-76-82 lykkjur. Haldið áfram með mynstur og kant að framan fram og til baka eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni og 2 lykkjur sléttprjón við handveg. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu. Í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli að innanverðu við kant að framan og 1 kaðal (= A.1) JAFNFRAMT sem í hlið er lykkjum fækkað fyrir handveg í hverri umferð frá réttu – lestu því báða næstu kafla áður en prjónað er áfram. Munið eftir að ef ekki eru nægilega margar lykkjur fyrir heilan kaðal (= 4 lykkjur slétt frá réttu) eru kaðlalykkjurnar prjónaðar í sléttprjóni. V-HÁLSMÁL: Í hverri umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í lok umferðar þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan og 5 lykkjur í mynstri eins og áður, prjónið 2 lykkjur brugðið saman (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 18 sinnum (= 18 lykkjur færri fyrir v-hálsmáli). Þegar úrtöku er lokið eru 27-33-39-39-39-45-51 lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 45-47-49-51-53-55-57 cm – síðasta umferð er prjónuð frá röngu. Nú er ekki lengur snúið í kaðli og fækka á lykkjum yfir mynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið A.4a, prjónið A.4b alls 2-3-4-4-4-5-6 sinnum, prjónið A.4c. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið kant að framan eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til A.4 er lokið á hæðina (= 8 umferðir prjónaðar) – síðasta umferðin er prjónuð frá röngu = 22-26-30-30-30-34-38 lykkjur. Prjónið síðan skáhallandi öxl þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið slétt þar til eftir eru 3-4-5-5-5-6-7 lykkjur í umferð, snúið. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til eftir eru 6 lykkjur, prjónið kant að framan eins og áður. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið slétt þar til eftir eru 6-8-10-10-10-12-14 lykkjur í umferð (þ.e.a.s. 3-4-5-5-5-6-7 lykkjur styttra en þegar snúið var við í fyrra skipti), snúið. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið kant að framan eins og áður. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið slétt þar til eftir eru 9-12-15-15-15-18-21 lykkjur í umferð (þ.e.a.s. 3-4-5-5-5-6-7 lykkjur styttra en þegar snúið var við í fyrra skipti), snúið. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið kant að framan eins og áður. Látið ystur 15-19-23-23-23-27-31 lykkjurnar á öxl hvíla á þræði eða á hjálparprjóni, það á að fella þessar lykkjur af síðar saman með lykkjum frá hægri öxl á bakstykki. Haldið áfram að prjóna kant að framan eins og áður og 1 kantlykkju í garðaprjóni yfir 7 lykkjur í kanti að framan í ca 8 cm. Fellið af. BAKSTYKKI: = 92-104-116-116-128-140-152 lykkjur. Mynstrið er prjónað fram og til baka eins og áður, en í hvorri hlið er prjónuð 1 kantlykkja í garðaprjóni og 2 lykkjur í sléttprjóni (= 14-16-18-18-20-22-24 kaðlar alls). Síðan er lykkjum fækkað fyrir handveg í hvorri hlið í hverri umferð frá réttu. Munið að ef ekki eru nægilega margar lykkjur í einn heilan kaðal (= 4 lykkjur slétt frá réttu) eru kaðlalykkjurnar prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 2 lykkjur í sléttprjóni, prjónið 2 lykkjur brugðið saman, prjónið mynstur eins og áður þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur snúnar brugðið saman, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 7-7-7-7-13-13-13 sinnum = 78-90-102-102-102-114-126 lykkjur (= 12-14-16-16-16-18-20 kaðlar alls). Prjónið mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 45-47-49-51-53-55-57 cm – síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Nú er ekki lengur snúið í kaðli og lykkjum er fækkað yfir mynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið A.5a, prjónið A.5b alls 11-13-15-15-15-17-19 sinnum, prjónið A.5c. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til A.5 er lokið á hæðina (= 8 umferðir prjónaðar) – síðasta umferð er prjónuð frá röngu = 54-62-70-70-70-78-86 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu eru lykkjur felldar af fyrir hálsmáli þannig: Prjónið 16-20-24-24-24-28-32 lykkjur slétt (= hægri öxl), fellið af næstu 22 lykkjur í öllum stærðum, prjónið 16-20-24-24-24-28-32 lykkjur slétt (= vinstri öxl). Nú á að prjóna skáhallandi öxl, haldið áfram með vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRI ÖXL: Prjónið skáhallandi öxl þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið út umferðina. UMFERÐ 2 (= rétta): Fellið af fyrstu lykkjuna (= 15-19-23-23-23-27-31 lykkjur fyrir öxl), prjónið slétt þar til eftir eru 3-4-5-5-5-6-7 lykkjur í umferð, snúið. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið brugðið út umferðina. UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið slétt þar til eftir eru 6-8-10-10-10-12-14 lykkjur í umferð (þ.e.a.s. 3-4-5-5-5-6-7 lykkjum styttra en þegar snúið var við í fyrra skipti), snúið. UMFERÐ 5 (= ranga): Prjónið brugðið út umferðina. UMFERÐ 6 (= rétta): Prjónið slétt þar til eftir eru 9-12-15-15-15-18-21 lykkjur í umferð (þ.e.a.s. 3-4-5-5-5-6-7 lykkjum styttra en þegar snúið var við í fyrra skipti), snúið. UMFERÐ 7 (= ranga): Prjónið brugðið út umferðina. Nú á að fella af þær 15-19-23-23-23-27-31 lykkjur sem eru eftir á öxl saman með 15-19-23-23-23-27-31 lykkjum af hjálparprjóni á vinstra framstykki, haldið prjónunum saman með bakstykki að þér og fellið af þannig: Prjónið 1 lykkju frá vinstra framstykki og 1 lykkju frá vinstra bakstykki 2 lykkjur brugðið saman, * prjónið 1 lykkju frá vinstra framstykki og 1 lykkju frá vinstra bakstykki 2 lykkjur brugðið saman, steypið síðan annarri lykkjunni af prjóni yfir síðustu lykkjuna *, prjónið frá *-* þar til allar lykkjur hafa verið felldar af. HÆGRI ÖXL: Prjónið skáhallandi öxl þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Fellið af fyrstu lykkju (= 15-19-23-23-23-27-31 lykkjur fyrir öxl), prjónið brugðið þar til eftir eru 3-4-5-5-5-6-7 lykkjur í umferð, snúið. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið brugðið þar til eftir eru 6-8-10-10-10-12-14 lykkjur í umferð (þ.e.a.s. 3-4-5-5-5-6-7 lykkjum styttra en þegar snúið var við í fyrra skipti), snúið. UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 5 (= ranga): Prjónið brugðið þar til eftir eru 9-12-15-15-15-18-21 lykkjur í umferð (þ.e.a.s. 3-4-5-5-5-6-7 lykkjum styttra en þegar snúið var við í fyrra skipti), snúið. UMFERÐ 6 (= rétta): Prjónið slétt út umferðina. Nú á að fella af þær 15-19-23-23-23-27-31 lykkjur sem eru eftir á öxl saman með 15-19-23-23-23-27-31 lykkjum af hjálparprjóni á hægra framstykki, haldið prjónunum saman með framstykkið að þér og fellið af þannig: Prjónið 1 lykkju frá hægra framstykki og 1 lykkju frá hægra bakstykki 2 lykkjur slétt saman, * prjónið 1 lykkju frá hægra framstykki og 1 lykkju frá hægra bakstykki 2 lykkjur slétt saman, steypið síðan annarri lykkjunni af prjóni yfir síðustu lykkjuna *, prjónið frá *-* þar til allar lykkjur hafa verið felldar af. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handveg og niður á við. Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = miðja ofan á öxl. Prjónið upp lykkjur í kringum handveg, notið hringprjón 4. Byrjið fyrir miðju í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi – prjónið upp 66-66-66-70-74-78-82 lykkjur innan við 1 kantlykkju – stillið af að prjónaðar séu upp jafnmargar lykkjur hvoru megin við merki. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpu til að ermin fái betra form og passi betur, umferðin byrjar fyrir miðju undir ermi og prjónað er þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 4 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 4 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4. Prjónið þar til snúið hefur verið við alls 22-22-22-22-24-24-24 sinnum (= 11-11-11-11-12-12-12 sinnum í hvorri hlið og síðasta umferðin er prjónuð frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er prjónuð þá endar umferð með að snúa stykkinu, prjónið síðan frá réttu að byrjun umferðar (miðja undir ermi). Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi, það á að nota hann þegar lykkjum er fækkað undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. Nú er prjónað í hring í sléttprjóni yfir allar lykkjur JAFNFRAMT sem lykkjum er fækkað undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Þegar ermin mælist 1 cm fyrir miðju undir ermi er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 5½-7-8½-5½-4½-3½-3 cm alls 7-6-5-7-8-9-11 sinnum = 52-54-56-56-58-60-60 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 49-49-47-48-48-46-45 cm frá miðju ofan á öxl, ermin mælist 38-38-36-37-36-34-33 cm frá miðju undir ermi. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff (= 3 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 8-6-9-9-7-10-10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 60-60-65-65-65-70-70 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-6-7-7-7 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 55-55-53-54-55-53-52 cm frá miðju ofan á öxl. FRÁGANGUR: Saumið kanta að framan frá hvoru framstykki saman – saumur = miðja að aftan, saumið síðan kanta að framan við lykkjur aftan í hnakka. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #softspirecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 263-27
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.