Winter Bliss Sweater#winterblisssweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, áferðamynstri og háum kraga. Stærð XS - XXXL.
DROPS 262-18 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA (þegar prjónað er fram og til baka): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á EFTIR LASKALYKKJU: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Á UNDAN LASKALYKKJU: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. LASKALÍNA (þegar prjónað er í hring): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Á EFTIR LASKALYKKJU: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Lykkjufjöldinn í mynsturteikningu A.2 er breytilegur á milli 8 og 9 lykkja vegna útaukninga og úrtöku í mynstri – allur lykkjufjöldi sem gefinn er upp í mynstri gerir ráð fyrir að í A.2 séu 8 lykkjur. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjurnar eru prjónaðar upp í miðjunni undir erminni getur myndast lítið gat í opinu milli lykkjunnar frá fram- og bakstykki og erminni. Þú getur lokað þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli lykkjanna tveggja - þráðurinn er snúinn saman við fyrstu lykkjuna á milli fram- og bakstykkis og ermarinnar, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð þannig að lykkjum fækkar í sléttri umferð. Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 3 lykkjur slétt (merkið situr í miðjulykkjunni), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Lykkjur eru fitjaðar upp fyrir hálsmáli og prjónað er fram og til baka á hringprjóna – jafnframt því sem lykkjur eru fitjaðar upp í hvorri hlið í umferð að tilgreindum lykkjufjölda og hálsmálið hefur verið formað til loka. Síðan er berustykkið prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er hár kragi hringinn. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. HÁLSMÁL: Fitjið 53-55-59-65-69-71-73 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Nepal. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju, þessar lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Laskalykkjurnar eru prjónaðar í sléttprjóni. Teljið 1-1-1-1-1-1-1 lykkju (= vinstri hlið að framan), setjið 1. merki í næstu lykkju, teljið 11-11-13-15-17-17-17 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 25-27-27-29-29-31-33 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 11-11-13-15-17-17-17 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju. Það er 1-1-1-1-1-1-1 lykkja eftir á prjóni í hægri hlið að framan. UPPLÝSINGAR ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM: Prjónið fram og til baka – JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli, aukið út fyrir LASKALÍNA og prjónið MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan, þ.e.a.s. fyrst er prjónað sléttprjón þar til prjónaðir hafa verið nokkrir cm eftir að hálsmálið hefur verið formað til loka, síðan er prjónað mynstur. Munið að fylgja prjónfestunni. PRJÓNIÐ OG AUKIÐ ÚT ÞANNIG: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur, fitjið síðan upp 1 nýja lykkju fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 9 lykkjur fleiri) = 62-64-68-74-78-80-82 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina eins og útskýrt er í LASKALÍNA), fitjið síðan upp 1 nýja lykkju fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 1 lykkja fleiri) = 63-65-69-75-79-81-83 lykkjur. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur, fitjið síðan upp 1 nýja lykkju fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 9 lykkjur fleiri) = 72-74-78-84-88-90-92 lykkjur. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina), fitjið síðan upp 1 nýja lykkju fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 1 lykkja fleiri) = 73-75-79-85-89-91-93 lykkjur. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið slétt, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur, fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 10 lykkjur fleiri) = 83-85-89-95-99-101-103 lykkjur. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina), fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 2 lykkjur fleiri) = 85-87-91-97-101-103-105 lykkjur. UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið slétt, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur, fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 10 lykkjur fleiri) = 95-97-101-107-111-113-115 lykkjur. UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina), fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 2 lykkjur fleiri) = 97-99-103-109-113-115-117 lykkjur. UMFERÐ 9 (= rétta): Prjónið slétt, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur, fitjið síðan upp 11-13-13-15-15-17-19 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 19-21-21-23-23-25-27 lykkjur fleiri) = 116-120-124-132-136-140-144 lykkjur. Hálsmálið hefur nú verið prjónað til loka og aukið hefur verið út 5 sinnum fyrir laskalínu hvoru megin við 4 laskalykkjur, það eru 37-39-39-41-41-43-45 lykkjur á framstykki/bakstykki (meðtaldar laskalykkjur) og 21-21-23-25-27-27-27 lykkjur á ermum (innan við laskalykkjur). Klippið þráðinn. Prjónið síðan stykkið í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan, færið því lykkjurnar frá vinstri prjóni yfir á hægri prjón fram að 3. merki (= hægri öxl að aftan) – ATH: Lykkjurnar eru ekki prjónaðar, heldur færðar til og þetta er gert til að mynstrið komi til með að passa þegar byrjun umferðar færist til. BERUSTYKKI: UMFERÐ 1: Prjónið slétt og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur (= 8 lykkjur fleiri). ATH: Aukið út á EFTIR merki í byrjun umferðar og á UNDAN merki í lok umferðar. UMFERÐ 2: Prjónið slétt (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina eins og útskýrt er í LASKALÍNA þegar prjónað er í hring). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til stykkið mælist 3-4-4-5-3-4-2 cm frá þar sem hálsmálið var formað til loka. Nú á að prjóna mynstur jafnframt því sem útaukning heldur áfram eins og áður, prjónið þannig: UMFERÐ 1: Aukið út fyrir laskalínu á eftir laskalykkju, prjónið A.1 fram að næsta merki, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkju (laskalykkjur eru alltaf prjónaðar í sléttprjóni), prjónið A.1 fram að næsta merki (byrjið A.1 með sömu lykkju (annað hvort slétt lykkja eða brugðin lykkja) eins og A.1 endaði með á undan laskalykkju – þetta á við í hvert skipti sem prjónað er perluprjón á eftir laskalykkju), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkju, prjónið A.1 fram að næsta merki, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkju, prjónið A.1 fram að síðasta merki, aukið út fyrir laskalínu á undan laskalykkju (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið A.1 eins og áður (munið eftir að laskalykkjur eru prjónaðar slétt og að uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina). Á EFTIR UMFERÐ 2: Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til aukið hefur verið út fyrir laskalínu alls 10-13-14-16-20-14-18 sinnum, ásamt útaukningu í hálsmáli (= 20-26-28-32-40-28-36 umferðir prjónaðar). Nú eru 47-55-57-63-71-61-71 lykkjur á framstykki/bakstykki (ásamt laskalykkjum) og 31-37-41-47-57-45-53 lykkjur á ermum (innan við laskalykkjur) = 156-184-196-220-256-212-248 lykkjur. Prjónið síðan og aukið út þannig (mynstrið heldur áfram eins og áður): UMFERÐ 1: Prjónið A.1 eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið A.1 eins og áður (munið eftir að laskalykkjur eru prjónaðar slétt og að uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina). UMFERÐ 3: Prjónið A.1 eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á EFTIR 1. og 3. merki í umferð og á UNDAN 2. og 4. merki í umferð (einungis er aukið út á framstykki/bakstykki – ekki á ermum = 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið A.1 eins og áður (laskalykkjur eru prjónaðar slétt og uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina). Á EFTIR UMFERÐ 4: Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 7-6-6-6-4-9-8 sinnum (= 28-24-24-24-16-36-32 umferðir prjónaðar), aukið hefur verið út 7-6-6-6-4-9-8 sinnum á ermum og 14-12-12-12-8-18-16 sinnum á framstykki/bakstykki = 240-256-268-292-304-320-344 lykkjur. Öll útaukning hefur verið gerð til loka, aukið hefur verið út alls 24-25-26-28-28-32-34 sinnum á framstykki/bakstykki og 17-19-20-22-24-23-26 sinnum á ermum = 75-79-81-87-87-97-103 lykkjur á framstykki/bakstykki og 45-49-53-59-65-63-69 lykkjur á ermum. Stykkið mælist ca 18-19-20-21-21-25-27 cm mælt fyrir miðju að framan (stykkið mælist ca 25-26-28-29-30-34-36 cm frá öxl þegar stykkið er brotið saman á öxl). Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið þá án þess að auka út að tilgreindu máli (mynstrið heldur áfram eins og áður). Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar stykkinu er skipt upp fyrir fram- og bakstykki og ermar þá koma laskalykkjurnar til með að verða staðsettar inn á framstykki/bakstykki, þ.e.a.s. JAFNFRAMT því sem næsta umferð er prjónuð þá skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 1-2-3-3-5-4-6 lykkjur eins og áður (þessar lykkjur tilheyra bakstykki), setjið næstu 45-47-49-55-57-57-59 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9-11-13-15-17-21-23 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 75-81-85-91-95-103-113 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 45-47-49-55-57-57-59 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9-11-13-15-17-21-23 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 74-79-82-88-90-99-107 lykkjur eins og áður (= afgangur af bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 168-184-196-212-224-248-272 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (í miðju af 9-11-13-15-17-21-23 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Haldið áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist ca 39-41-42-42-43-44-46 cm mælt frá hálsmáli við miðju að framan – stillið mælist ca 46-48-50-51-53-54-56 cm frá öxl – stillið af að prjónaðir séu minnst 5 cm sléttprjón á eftir síðustu rönd í áferðamynstri. Í næstu umferð byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 56-64-68-68-80-88-96 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 224-248-264-280-304-336-368 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið A.2 alls 28-31-33-35-38-42-46 sinnum í hring á fram- og bakstykki – munið eftir útaukningunni. Haldið svona áfram með mynstur þar til stroffið mælist ca 8-8-8-9-9-10-10 cm – endið eftir 3. eða 4. umferð í mynsturteikningu. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 47-49-50-51-52-54-56 cm frá hálsmáli fyrir miðju að framan og ca 54-56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 45-47-49-55-57-57-59 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 9-11-13-15-17-21-23 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 54-58-62-70-74-78-82 lykkjur. Setjið 1 merki í miðju af 9-11-13-15-17-21-23 nýjum lykkjum undir ermi – umferðin byrjar við merki. Prjónið A.1 hringinn – haldið áfram með mynstur frá berustykki. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1-1-1-1-1-1-1 cm frá skiptingunni, er lykkjum fækkað fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 2-2-2-2-2-3-3 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 2-2-2-2-2-2-2 cm alls 0-0-2-4-4-4-4 sinnum = 50-54-54-58-62-64-68 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 34-33-33-32-33-28-26 cm frá skiptingunni – stillið af að prjónaðir séu minnst 5 cm sléttprjón á eftir síðustu rönd í áferðamynstri. Í næstu umferð byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 22-18-26-22-26-24-28 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 72-72-80-80-88-88-96 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið A.2 alls 9-9-10-10-11-11-12 sinnum í hring á ermi – munið eftir útaukningunni. Haldið svona áfram með mynstur þar til stroffið mælist 12-12-12-13-13-14-14 cm – endið eftir 3. eða 4. umferð í mynsturteikningu. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 46-45-45-45-46-42-40 cm frá skiptingunni. HÁR KRAGI: Notið hringprjón 3,5, byrjið frá réttu og prjónið upp ca 76-80-84-92-96-100-104 lykkjur í kringum hálsmál innan við 1 lykkju. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út jafnt yfir til 98-104-108-120-124-130-134 – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 9-10-11-12-12-13-13 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterblisssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 262-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.