DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 5 tegundum af mjúku merino garni!
Product image DROPS Flora yarn
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 770.00 kr /50g
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15400.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2526

Soft Waves Sweater

Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Flora og 1 þræði DROPS Kid-Silk eða 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópsku berustykki og köðlum. Stærð XS - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 262-7

#softwavessweater

DROPS Design: Mynstur fl-100
Garnflokkur A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS FLORA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-350-400-400-450-500-550 gr litur 01, Natur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-175-200-200-225-250-275 gr litur 01, Natur

Eða notið:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
400-450-450-500-550-600-650 gr litur 100, Natur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-175-200-200-225-250-275 gr litur 01, Natur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni með 1 þræði í hvorri tegund með prjóna nr 3,5 = 10 x 10 cm.
MYNSTUR: 30 lykkjur á breidd og 28 umferðir á hæð með mynstri og 1 þræði í hvorri tegund með prjóna nr 3,5 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 770.00 kr /50g
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15400.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1:
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2:
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann.
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann.

LEIÐBEININGAR ERMI:
Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað samkvæmt útskýringu 1-5.
1
BAKSTYKKI: Fitjaðar eru upp lykkjur aftan í hnakka og bakstykkið er prjónað fram og til baka niður á við jafnframt því sem lykkjum er aukið út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Berustykkið er prjónað fram og til baka að tilgreindu máli.
2
FRAMSTYKKI: Er prjónað í 2 stykkjum (= hvoru megin við hálsmál). Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, framstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni, síðan eru nýjar lykkjur fitjaðar upp fyrir hálsmál við miðju að framan = framstykkin eru sett saman í eitt stykki. Framstykkið er prjónað fram og til baka að tilgreindu máli.
3
BERUSTYKKI: Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar á sama hringprjón – prjónað er þannig:
Lykkjur eru prjónaðar frá framstykki, lykkjur prjónaðar upp fyrir ermi meðfram annarri hlið á framstykki, bakstykkið er prjónað, lykkjur prjónaðar upp fyrir ermi meðfram hinni hliðinni á framstykki = síðan er berustykkið prjónað í hring yfir allar lykkjur.
4
ÚTAUKNING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt því sem berustykkið er prjónað, á að auka út lykkjur fyrir fram- og bakstykki og ermar, fyrst eru lykkjur einungis auknar út fyrir ermar og síðan eru lykkjur auknar út bæði á fram- og bakstykki og ermum.
5
FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar allar lykkjur hafa verið auknar út og berustykkið hefur verið prjónað að tilgreindu máli, á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við og í hring, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður í hring.

BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 46-46-46-46-58-58-58 lykkjur á hringprjón 3,5 með 1 þræði DROPS Flora og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir) eða 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir).
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið.
UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið A.1, A.2 alls 2-2-2-2-3-3-3 sinnum, A.3, A.4 alls 2-2-2-2-3-3-3 sinnum, A.5, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt.
UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til 3 lykkjur eru eftir 3 lykkjur, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur brugðið.
Á EFTIR UMFERÐ 3:
Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 18-21-24-27-27-30-33 sinnum (= 36-42-48-54-54-60-66 umferðir prjónaðar), síðan er umferð 2 prjónuð 1 sinni til viðbótar, á eftir síðustu útaukningu eru 120-132-144-156-168-180-192 lykkjur í umferð. ATH! Í hvert skipti sem A.1 og A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, er pláss fyrir 1 mynstureiningu fleiri af A.2 og A.4 hvoru megin við A.3.

Setjið 1 merki í hvora hlið þegar útaukningu er lokið, stykkið er nú mælt héðan.

Prjónið síðan þannig:
1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan, A.2 alls 9-10-11-12-13-14-15 sinnum, A.3, A.4 alls 9-10-11-12-13-14-15 sinnum og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Passið uppá að byrja í réttri umferð í A.2 og A.3 þannig að mynstrið haldi áfram með 5 umferðir á milli snúninga í hverjum kaðli á hæðina.

Prjónið mynstur eins og útskýrt er að ofan þar til stykkið mælist ca 7-8-9-10-11-12-13 cm frá merki í hlið – endið með umferð 4 í mynsturteikningu (= frá röngu). Setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón.

VINSTRI ÖXL:
Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl.
Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig:
Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju, að auki eru prjónaðar upp 3 lykkjur niður á við meðfram bakstykki = 40-46-52-58-58-64-70 lykkjur.
Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp.
Prjónið þannig – fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja, prjónið A.4 alls 6-7-8-9-9-10-11 sinnum, endið með 3 lykkjur brugðið. Þegar prjónað er eiga lykkjurnar að "mætast" beint yfir ofan lykkjurnar frá bakstykkinu – þ.e.a.s. sléttar lykkjur eiga að koma beint fyrir ofan sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur eiga að koma beint fyrir ofan brugðnar lykkjur.
Munið að A.4 er lesið frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu, þ.e.a.s. byrjið með 4 lykkjur brugðið (séð frá röngu).

Prjónið síðan mynstur eins og útskýrt er að ofan.
Þegar stykkið mælist 5-5-6-6-7-7-7 cm, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið út umferðina eins og áður.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur.
Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur, þ.e.a.s. prjónið frá réttu þannig: slétt lykkja, slétt lykkja, slétt lykkja, slétt lykkja, brugðin lykkja, brugðin lykkja, slétt lykkja slétt lykkja. Þegar auknar hafa verið út nægilega margar lykkjur í kaðal, eru lykkjur snúnar á sama hátt og afgangur af lykkjum í umferð.

Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 8 sinnum (= 16 umferðir prjónaðar) = 48-54-60-66-66-72-78 lykkjur. Stykkið mælist nú ca 11-11-12-12-13-13-13 cm. Klippið þráðinn og prjónið hægri öxl eins og útskýrt er að neðan.

HÆGRI ÖXL:
Finnið hægri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, hægri hlið á stykki = hægri öxl.
Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: ATH: Byrjið 3 lykkjum niður á bakstykki.
Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju = 40-46-52-58-58-64-70 lykkjur.
Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp.

Prjónið þannig – fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 3 lykkjur brugðið, prjónið A.6 alls 6-7-8-9-9-10-11 sinnum, endið með 1 kantlykkju. Lykkjurnar eiga að mætast á sama hátt yfir lykkjur frá bakstykki eins og á vinstri öxl. Munið eftir að A.6 er lesið frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu, þ.e.a.s. byrjið með 4 lykkjur brugðið (séð frá röngu).
Þegar stykkið mælist 5-5-6-6-7-7-7 cm, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur.
Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur, þ.e.a.s. prjónað er frá réttu þannig: slétt lykkja, slétt lykkja, slétt lykkja, slétt lykkja, brugðin lykkja, brugðin lykkja, slétt lykkja, slétt lykkja.
Þegar auknar hafa verið út nægilega margar lykkjur í kaðal, eru lykkjur snúnar á sama hátt og afgangur af lykkjum í umferð.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 8 sinnum (= 16 umferðir prjónaðar) = 48-54-60-66-66-72-78 lykkjur. Stykkið mælist nú ca 11-11-12-12-13-13-13 cm.

Í næstu umferð (= rétta) eru framstykkin prjónuð saman þannig:
Prjónið eins og áður yfir 48-54-60-66-66-72-78 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 24-24-24-24-36-36-36 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í umferð, prjónið eins og áður yfir 48-54-60-66-66-72-78 lykkjur frá vinstra framstykki = 120-132-144-156-168-180-192 lykkjur.

Prjónið síðan þannig:
1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan, A.2 alls 9-10-11-12-13-14-15 sinnum, A.3, A.4 alls 9-10-11-12-13-14-15 sinnum og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. ATH! Passið uppá að byrja í réttri umferð í A.2 og A.3 þannig að mynstrið haldi áfram með 5 umferðir á milli snúninga í hverjum kaðli á hæðina.

Haldið áfram með þessum hætti þar til stykkið mælist ca 16-17-18-19-20-21-22 cm – endið með umferð 4 í mynsturteikningu.

Síðan er framstykkið og bakstykkið sett saman og lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermi eins og útskýrt er að neðan.

UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið fyrstu 2 lykkjur frá framstykki slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið mynstur eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á framstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), prjónið upp 68-74-80-86-92-104-104 lykkjur meðfram hlið á vinstra framstykki og vinstra bakstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkju), prjónið fyrstu 2 lykkjur frá bakstykki slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið mynstur eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), prjónið upp 68-74-80-86-92-104-104 lykkjur meðfram hlið frá hægra bakstykki og hægra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkju), setjið 1 merki = 372-408-444-480-516-564-588 lykkjur.

Nú á að prjóna mynstur hringinn yfir allar lykkjur og auka á út fyrir ermar og fram- og bakstykki – þetta er gert samtímis, lestu því báða næstu kafla áður en þú prjónar áfram:

MYNSTUR:
Prjónið mynstur eins og áður yfir lykkjur frá framstykki (= síðasta umferð í mynsturteikningu).
Nýjar 68-74-80-86-92-104-104 lykkjur á vinstri ermi eru prjónaðar þannig (prjónið síðustu umferð í mynsturteikningu): Prjónið A.4 alls 7-8-9-9-10-10-10 sinnum, prjónið 2 lykkjur brugðið, prjónið A.2 alls 4-4-4-5-5-7-7 sinnum.
Prjónið mynstur eins og áður yfir lykkjur frá bakstykki.
Nýjar 68-74-80-86-92-104-104 lykkjur á hægri ermi eru prjónaðar þannig (prjónið síðustu umferð í mynsturteikningu): Prjónið A.4 alls 4-4-4-5-5-7-7 sinnum, prjónið 2 lykkjur brugðið, prjónið A.2 alls 7-8-9-9-10-10-10 sinnum. Haldið síðan áfram með mynstur yfir allar lykkjur, prjónið frá umferð 1 í mynsturteikningu.

ÚTAUKNING:
Nú á að auka út lykkjur hvoru megin við ysta kaðal í hvorri hlið á framstykki/bakstykki, þ.e.a.s. aukið er út hvoru megin við 4 kaðlana. Lykkjur eru auknar út í annarri hverri umferð, þannig:
Prjónið fyrsta kaðal á framstykki, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið fram að síðasta kaðli á framstykki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið kaðal eins og áður, aukið út 1 lykkju til vinstri, aukið út á sama hátt við fyrsta og síðasta kaðal á bakstykki og aukið út 1 lykkju til hægri á undan fyrsta kaðli á framstykki (= 8 útauknar lykkjur í hverri útaukningsumferð). Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur, þ.e.a.s. prjónið þannig: slétt lykkja, slétt lykkja, slétt lykkja, slétt lykkja, brugðin lykkja, brugðin lykkja, o.s.frv. Þegar auknar hafa verið út nægilega margar lykkjur í kaðal, eru lykkjur snúnar á sama hátt og afgangur af lykkjum í umferð.
AUKIÐ ÚT eins og útskýrt er að ofan í annarri hverri umferð alls 12 sinnum = 468-504-540-576-612-660-684 lykkjur.

Ermin mælist ca 9 cm í öllum stærðum – þegar peysan er brotin saman tvöföld við öxl, á stykkið að mælast ca 20-21-22-23-24-25-26 cm frá yst á öxl og niður meðfram handvegi. Ef stykkið mælist minna en þetta, er hægt að prjóna áfram að réttu máli án þess að auka út. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar.

SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Setjið fyrstu 2 lykkjur frá framstykki (= hálfur fyrsti kaðall sem aukið var út í hvorri hlið) á þráð fyrir ermi, prjónið næstu 138-150-162-174-186-198-210 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 96-102-108-114-120-132-132 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 138-150-162-174-186-198-210 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið síðustu 94-100-106-112-118-130-130 lykkjur á þráð fyrir ermi (= 96-102-108-114-120-132-132 lykkjur fyrir ermi), fitjið upp 6 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi).
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Stykkinu hefur verið skipt upp fyrir miðju í 4 köðlum sem aukið var út í hvorri hlið.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 288-312-336-360-384-408-432 lykkjur.
Prjónið mynstur eins og áður hringinn þar til stykkið mælist 50-52-54-56-57-59-61 cm, mælt frá efsta punkti á öxl, inn við hálsmál.
Skiptið yfir á hringprjón 2,5, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið), í fyrstu umferð er fækkað um 76-84-90-96-102-108-116 lykkjur jafnt yfir = 212-228-246-264-282-300-316 lykkjur.
Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm er fellt af.
Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64-66 cm.

ERMAR:
Setjið 96-102-108-114-120-132-132 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 3,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 102-108-114-120-126-138-138 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn.
Prjónið mynstur eins og áður hringinn, miðju 14 lykkjurnar undir ermi eru prjónaðar eins og útskýrt er í A.7. Þegar A.7 hefur verið prjónað til loka eru 4 lykkjur brugðið fyrir miðju undir ermi prjónaðar brugðið saman 2 og 2 = 90-96-102-108-114-126-126 lykkjur. Í stærð XXL og XXXL er prjónað A.7 einu sinni til viðbótar yfir 14 miðjulykkjurnar og síðan eru 4 miðjulykkjurnar prjónaðar brugðið saman 2 og 2 = 90-96-102-108-114-114-114 lykkjur.
Prjónið síðan þar til ermin mælist 40-40-39-38-35-34-33 frá skiptingunn.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í fyrstu umferð er fækkað um 24-26-28-28-30-30-30 lykkjur jafnt yfir = 66-70-74-80-84-84-84 lykkjur.
Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af. Ermin mælist ca 53-53-52-51-49-48-47 cm frá öxl.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 90 til 112 lykkjur í kringum hálsmál innan við 1 lykkju á hringprjón 2,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkju.

Mynstur

Slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu = Slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
Brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu = Brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
Setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = Setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
Setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = Setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
Setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni = Setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
Setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman af kaðlaprjóni = Setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman af kaðlaprjóni
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir = Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
2 lykkjur slétt saman = 2 lykkjur slétt saman
2 lykkjur brugðið saman = 2 lykkjur brugðið saman
Diagram for DROPS 262-7
Diagram for DROPS 262-7
Diagram for DROPS 262-7

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #softwavessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 262-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.