Afternoon Coffee Cardigan#afternooncoffeecardigan |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð stór / oversize peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, norrænu mynstri, i-cord og háu hálsmáli. Stærð XS - XXXL.
DROPS 262-10 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 6 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 6 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 6 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í hálsmáli mælist 3-3-3-4-3-4-4 cm, fellið síðan af fyrir 7 næstu hnappagötum með ca 8-8½-9-9-9½-9½-10 cm á milli hverra hnappagata. Stillið af að neðsta hnappagatið sé staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs á fram- og bakstykki. UPPHÆKKUN: Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun. Hoppaðu yfir þennan kafla ef þú vilt ekki hafa upphækkun. Setjið 1 merki fyrir miðju í umferð. Byrjið frá réttu og prjónið eins og áður þar til prjónaðar hafa verið 10-10-10-11-11-12-12 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN og prjónið 20-20-20-22-22-24-24 lykkjur brugðið. Snúið stykkinu og prjónið 30-30-30-33-33-36-36 lykkjur slétt, snúið stykkinu og prjónið 40-40-40-44-44-48-48 lykkjur brugðið. Snúið stykkinu og prjónið 50-50-50-55-55-60-60 lykkjur slétt, snúið stykkinu og prjónið 60-60-60-66-66-72-72 lykkjur brugðið. Snúið stykkinu og prjónið út umferðina (kantur að framan er prjónaður eins og áður), snúið stykkinu og prjónið 1 umferð brugðið (kantar að framan eru prjónaðir eins og áður). Prjónið berustykkið eins og útskýrt er í mynstri. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 106 lykkjur), mínus 12 lykkjur í hvorri hlið sem ekki á að auka út yfir og deilið þeim 82 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 10) = 8,2. Í þessu dæmi er aukið út í ca 8. hverja lykkju – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 fyrir útskýringu hvernig auka eigi út (lykkjum er ekki aukið út yfir ystu 12 lykkjur í hvorri hlið). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: Þessi samhverfa útaukning gefur 1 nýja lykkju. Fylgdu leiðbeiningum 1-4 að neðan: 1.Haldið þræðinum sem prjónað er með aftan við stykkið. Lyftið fyrstu lykkju á vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi lykkjuna brugðið. 2. Stingið vinstri prjóni aftan við lyftu lykkjuna og inn á milli lyftu lykkjunnar og næstu lykkju á hægri prjóni. 3. Sláið 1 sinni uppá prjóninn með þráðinn um hægri prjón og dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna þannig að það myndist 1 ný lykkja á hægri prjóni. 4. Sleppi fremri lykkjuboganum á lykkjunni af vinstri prjóni og prjónið síðan 1 lykkju slétt í fremri hlutann á hinum lykkjuboganum. Nú hefur verið aukið út um 1 lykkju. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Hægt er að prjóna upphækkun aftan í hnakka til að forma hálsmálið. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 126-130-134-138-142-150-154 lykkjur á hringprjón 4,5 með litinn Brúnn í DROPS Air. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 8 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) þar til 10 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 8 kantlykkjur að framan með i-cord. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 8 kantlykkjur að framan með i-cord, prjónið storff (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) þar til 10 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 8 kantlykkjur að framan með i-cord. Prjónið síðan UMFERÐ 1 og 2 – munið eftir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan. Prjónið þar til kantur í hálsmáli mælist 13-13-14-14-15-15-16 cm – jafnframt í síðustu umferð er fækkað um 20-20-20-22-20-24-22 lykkjur jafnt yfir = 106-110-114-116-122-126-132 lykkjur (fækkið lykkjum frá röngu í einingu með 2 lykkjur slétt frá röngu). Setjið 1 merki á innanverðan kant að framan í annarri hliðinni, stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið fyrstu umferð frá réttu með byrjun frá miðju að framan þannig: Prjónið kant að framan eins og áður og 4 lykkjur sléttprjón, prjónið síðan sléttprjón þar til 12 lykkjur eru eftir í umferð JAFNFRAMT sem aukið er út um 10-12-12-14-14-16-16 lykkjur jafnt yfir, prjónið 4 lykkjur sléttprjón og kant að framan eins og áður = 116-122-126-130-136-142-148 lykkjur í umferð. Nú er prjónuð UPPHÆKKUN aftan í hnakka – lesið leiðbeiningar að ofan. Þegar upphækkun hefur verið prjónuð til loka, prjónið þá berustykki eins og útskýrt er að neðan. Ef þú vilt ekki hafa upphækkun, prjónið þá áfram eins og útskýrt er að neðan. Prjónið síðan sléttprjón og kant að framan eins og áður. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar berustykkið mælist 3-3-3-3-3-3-3 cm frá merki, aukið út 32-35-37-40-42-46-48 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og -2 = 148-157-163-170-178-188-196 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 6-6-6-6-6-6-6 cm frá merki, aukið út 32-35-37-40-42-46-48 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og -2 = 180-192-200-210-220-234-244 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 9-9-9-9-9-10-10 cm frá merki, aukið út 29-35-39-41-43-47-49 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og -2 = 209-227-239-251-263-281-293 lykkjur. Þegar stykkið mælist 10-10-10-10-10-11-11 cm prjónið MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan og prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið A.1A þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.1B og prjónið kant að framan eins og áður. Haldið síðan áfram og prjónið mynstur fram og til baka þannig: JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1A eru lykkjur auknar út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og -2: Ör-1: Aukið út 30-36-36-36-42-42-42 lykkjur jafnt yfir = 239-263-275-287-305-323-335 lykkjur. Ör-2: Aukið út 18-18-24-24-30-30-36 lykkjur jafnt yfir = 257-281-299-311-335-353-371 lykkjur. Ör-3 (veljið ör fyrir rétta stærð): Aukið út 14-16-14-20-22-22-20 lykkjur jafnt yfir = 271-297-313-331-357-375-391 lykkjur. Prjónið síðan þar til berustykkið mælist ca 22-22-23-23-24-26-28 cm frá merki – öll útaukning á nú að vera lokið. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar (mynstrið heldur áfram á fram- og bakstykki og ermum). SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 46-50-52-55-60-63-67 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 49-55-59-61-65-67-67 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-14-16-18-18-20-24 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 81-87-91-99-107-115-123 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 49-55-59-61-65-67-67 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-14-16-18-18-20-24 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 46-50-52-55-60-63-67 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 197-215-227-245-263-281-305 lykkjur. Prjónið A.1 til loka (kantur að framan er prjónaður eins og áður). Prjónið síðan næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið A.2A þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.2B og prjónið kant að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. A.2A og A.2B er prjónað alls 1-1-2-2-2-2-3 sinnum á hæðina – JAFNFRAMT í síðustu umferð í síðasta skipti sem A.2A/A.2B er prjónað, er aukið út um 0-2-2-0-2-0-0 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) = 197-217-229-245-265-281-305 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið A.3A þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.3B og prjónið kant að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar A.3A og A.3B hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið þá sléttprjón og kant að framan með litnum Brúnn. Prjónið þar til stykkið mælist ca 49-51-53-53-55-56-58 cm frá merki fyrir miðju að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 81-85-89-97-101-113-125 lykkjur jafnt yfir í umferð (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan = 278-302-318-342-366-394-430 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið – munið eftir útaukningu) þar til 10 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 10-10-10-11-11-12-12 cm fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 59-61-63-64-66-68-70 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 64-66-68-70-72-74-76 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 49-55-59-61-65-67-67 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 12-14-16-18-18-20-24 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 61-69-75-79-83-87-91 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 12-14-16-18-18-20-24 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Að auki er sett 1 merki í miðjulykkju í umferð – merkið er notað þegar reikna á út hvar A.2A og A.3A á að byrja. Prjónið síðan mynstur jafnframt því sem lykkjum er fækkað, lesið allan textann á ermi áður en prjónað er áfram. Haldið áfram með A.1A frá berustykki yfir lykkjur á ermi hringinn – mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp fyrir miðju undir ermi, en passið uppá að mynstrið haldi áfram að vera rétt yfir lykkjur á berustykki. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1-1-1-1-1-1-1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í annarri hverri umferð alls 2-2-3-3-3-3-3 sinnum, fækkið síðan um 2 lykkjur í öðrum hverjum cm alls 0-2-2-2-2-3-3 sinnum = 57-61-65-69-73-75-79 lykkjur. Þegar A.1A hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.2A – teljið út frá lykkju með merki hvar A.2A á að byrja fyrir miðju undir ermi – lykkja með merki á að passa við merkingu fyrir miðjulykkju í A.2A. Prjónið A.2A alls 1-1-2-2-2-2-3 sinnum á hæðina. Prjónið síðan A.3A á sama hátt. Þegar A.3A hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið þá sléttprjón með litnum Brúnn. Prjónið þar til ermin mælist 35-36-35-36-35-32-31 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 23-23-27-27-27-29-33 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 80-84-92-96-100-104-112 lykkjur. Þegar stroffið mælist 10-10-10-11-11-12-12 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 45-46-45-47-46-44-43 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #afternooncoffeecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 36 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 262-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.