Dominique skrifaði:
Avez vous une vidéo pour le diagramme Maille endroit sans lâcher aiguille gauche + 1 jeté et maille endroit même maille dans le brin arriere Merci
22.09.2025 - 17:56DROPS Design svaraði:
Bonjour Dominique, tout à fait, retrouvez cette vidéo ici. Bon tricot!
24.09.2025 - 08:14
Mc skrifaði:
Bjr, Quelle vidéo me conseillez-vous pour apprendre à monter des mailles sous la manche, une fois les 40 mailles de la manche, mises en attente sur un fil ? Merci
03.09.2025 - 11:41DROPS Design svaraði:
Bonjour Mc, vous pouvez utiliser cette technique que vous retrouvez dans cette leçon ou bien cette vidéo au time code 7:45. Bon tricot!
03.09.2025 - 16:14
Mc skrifaði:
Merci beaucoup
02.09.2025 - 17:58
Mc skrifaði:
Bonjour Quand on divise les mailles, une fois l’ empiècement terminé, faut il tenir compte du marqueur du début d’ouvrage ou du marqueur qui a été mis une fois le col terminé 28 mailles après le début (taille 9/10 ans) merci
02.09.2025 - 11:17DROPS Design svaraði:
Bonjour Mc, vous devez mesurer l'ouvrage/l'empiècement à partir du marqueur placé après le col, autrement dit, divisez l'empiècement pour le dos/le devant et les manches quand il mesure 15 cm après ce marqueur (cf schéma). Bon tricot!
02.09.2025 - 17:23
Blue Rush Sweater#bluerushsweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki. Stærð 2 - 12 ára
DROPS Children 49-6 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafn, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 68 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 3) = 22,6. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna ca 22. og 23. hverja lykkju slétt saman. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er síðan prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 68-72-76-82-84-86 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með DROPS Air. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í . Prjónið stroff í 3-3-4-4-4-4 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 23-24-25-27-28-29 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á stuttan hringprjón 5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 3-2-1-2-4-1 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 = 65-70-75-80-80-85 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar berustykkið mælist 2-2-2-2-2-3 cm frá merki, prjónið MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið A.1 alls 13-14-15-16-16-17 sinnum hringinn á berustykki = 91-98-105-112-112-119 lykkjur. Í næstu umferð er fækkað um 1-3-5-7-7-4 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 = 90-95-100-105-105-115 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til berustykkið mælist 6-6-7-7-7-8 cm frá merki. Prjónið A.1 alls 18-19-20-21-21-23 sinnum berustykkið hringinn = 126-133-140-147-147-161 lykkjur. Í næstu umferð er fækkað um 6-3-5-7-2-6 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 = 120-130-135-140-145-155 lykkjur. Þegar stykkið mælist 10-11-12-12-13-13 cm frá merki, prjónið A.1 alls 24-26-27-28-29-31 sinnum berustykkið hringinn = 168-182-189-196-203-217 lykkjur. Í næstu umferð er fækkað um 4-6-1-0-3-5 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 = 164-176-188-196-200-212 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar berustykkið mælist 12-13-14-14-15-16 cm frá merki fyrir miðju að framan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 34-36-38-40-40-42 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 48-52-56-58-60-64 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 34-36-38-40-40-42 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 48-52-56-58-60-64 lykkjur sléttprjón (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig og byrjun umferðar er í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og ermi. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 108-116-124-128-136-144 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 26-29-32-35-39-41 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 4, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 14-14-14-16-14-16 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 122-130-138-144-152-160 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-4-4-4-4 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 29-32-36-39-43-45 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 33-36-40-44-48-50 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 34-36-38-40-40-42 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjón / sokkaprjóna 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-6-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 40-42-44-46-48-50 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-6-6-6-8-8 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn út umferðina – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 7-6½-7-8-10-11 cm alls 3-4-4-4-4-4 sinnum = 34-34-36-38-40-42 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 21-26-28-33-37-41 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 4-4-4-4-4-4 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 38-38-40-42-44-46 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-4-4-4-4 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 24-29-32-37-41-45 cm frá skiptingunni. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bluerushsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 49-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.