Vasiliki skrifaði:
I believe there is a mistake on i-cord edge on the pattern. You indicate what to do for the first and last 3 stitches, whereas the first and last 3 st on the same side should be knit on the same manner, if I am not mistaken. The correct version in my opinion should be: Right Side: K1, slip 1 with yarn in front, K1, and do the same on last 3 st Wrong Side: Slip 1 with yarn in front, K1, slip 1 with yarn in front, and do the same on last 3 st. I am correct?
29.05.2025 - 12:37
Vasiliki skrifaði:
Hello. I am lost with icord edges. When I slip a stitch purlwise with yarn in front I get a not expected result. Can you provide the link to a video?
29.05.2025 - 12:28DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Vasiliki, sure you can look at this video, note in that the video we only have 2 I-cord sts, so that it will be a bit different but just work at the beg of the row (slip 1, k1, slip 1) and and at the end of row (K1, slip 1, K1) - when slipping the stitches as if to purl, make sure the yarn is towards wrong side of piece. Happy knitting!
30.05.2025 - 08:54
Pearl skrifaði:
So to confirm : your "INCREASE TIP-1:" is a simple M1R ? Why having different names and videos for the same thing ? So confusing.
28.03.2025 - 11:49DROPS Design svaraði:
Dear Pearl, wen note that increasing from RS might be either left or right, so you just have to increase as explained in the pattern, to get the increase leaning in the correct way - this technique is not known by everyone with that name, reason why we just write how to increase, following these explanations will let you manage to increase as explained (either from RS - increase tip-1 or from WS - increase tip -2). Happy knitting!
28.03.2025 - 13:37
Pearl skrifaði:
Hello, I am lost with your increases types. And the videos are very confusing because they show an entire piece being knitted without sounds or comments, so I cannot see what you call "INCREASE TIP-1:" is for example. Is it a simple M1R ? I am not sure as you say we have to pick up the bar "from row below".
27.03.2025 - 16:59DROPS Design svaraði:
Dear Pearl, that's right - you can find both M;1R and M.1L also in this video (note that our videos have no sound just because not everyone can speak English, just make sure to follow the text under video. Hope it will help. Happy knitting!
28.03.2025 - 08:02
Sophie skrifaði:
Merci d'ajouter de plus en plus de photos et maintenant des vidéos! Il serait juste utile de savoir la taille tricotée sur le modèle, meme si nous avons des mesures cela permet d'avoir une idée.
24.03.2025 - 10:03
Alexandra skrifaði:
Bonjour Ce modèle est magnifique. Seule la légende est en Français. Les explications de ce modèle sont en anglais.
18.03.2025 - 10:32DROPS Design svaraði:
Bonjour Alexandra, les explications sont maintenant en français :) Bon tricot!
18.03.2025 - 14:30
Sailor Frill#sailorfrilltop |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónaður toppur úr DROPS Belle. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, i-cord og pífu með picot. Stærð S - XXXL.
DROPS 259-11 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. I-CORD: FYRSTU 3 LYKKJUR: Prjónið í hverri umferð þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið. SÍÐUSTU 3 LYKKJUR: Prjónið í hverri umferð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. PICOT: Fellið laust af frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, * stingið hægri prjóni á inn á milli fyrstu 2 lykkja á vinstri prjóni (þ.e.a.s. á milli lykkja á prjóni, ekki í gegnum lykkjurnar), sláið 1 sinni uppá hægri prjóninn, dragið uppsláttinn fram á milli lykkja og setjið uppsláttinn á vinstri prjón *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum (= 4 nýjar lykkjur á vinstri prjóni), prjónið slétt og fellið samtímis af 6 lykkjur (= 1. lykkja á hægri prjóni + 3 uppslættir + 2 lykkjur). Nú er haldið áfram að prjóna frá *-* + fellið af 6 lykkjur á sama hátt meðfram allri affellingunni þar til 1 lykkja er eftir í umferð. Klippið þráðinn og þræðið í gegnum síðustu lykkjuna. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjið á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við JAFNFRAMT því sem lykkjur eru auknar út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er bakstykkið látið bíða og framstykkið er prjónað. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 hlutum. Byrjið á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, prjónið mynstur samtímis sem aukið er út við hálsmál. Endurtakið á hinni öxlinni. Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukning fyrir hálsmál hefur verið gerð til loka. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Nú er framstykkið og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í hringum hálsmál fyrir kant í hálsmáli og í kringum handveg fyrir pífu. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 34-36-38-38-42-42 lykkjur á hringprjón 4 með litnum Rósarvatn DROPS Belle. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til eftir eru 3 lykkjur, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur brugðið. EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 10-10-10-11-11-12 sinnum (= 20-20-20-22-22-24 umferðir prjónaðar), á eftir síðustu útaukningu eru 74-76-78-82-86-90 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 8-9 cm frá uppfitjunarkanti fyrir miðju að aftan. Setjið 1 merki yst í hvora hlið. Héðan er nú stykkið mælt! Prjónið síðan í sléttprjóni og 3 lykkjur I-CORD í hvorri hlið – lesið leiðbeiningar að ofan. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Prjónið þar til stykkið mælist 11-9-9-10-11-11 cm frá merki yst meðfram handveg. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur i-cord eins og áður, 1 lykkja slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 4 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 1 lykkju slétt og 3 lykkjur i-cord eins og áður. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 3 lykkjur i-cord, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur i-cord eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 7-11-12-9-9-6 sinnum (= 14-22-24-18-18-12 umferðir prjónaðar) = 88-98-102-100-104-102 lykkjur í umferð. Útaukningu stærð S, M og L er nú lokið. Síðan er prjónað og aukið út í stærð XL, XXL og XXXL: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur i-cord, 1 lykkja slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 4 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 1 lykkju slétt og 3 lykkjur i-cord. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 3 lykkjur i-cord, 1 lykkja brugðið, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 4 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 1 lykkju brugðið og 3 lykkjur i-cord. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 0-0-0-3-4-8 sinnum (= 0-0-0-6-8-16 umferðir prjónaðar) = 88-98-102-112-120-134 lykkjur í umferð. Prjónið síðan í sléttprjóni og 3 lykkjur i-cord í hvorri hlið þar til stykkið mælist 16-17-18-19-20-21 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi, endið með umferð frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjurnar af þræðinum / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út við öxl þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju fram að merki í hlið við handveg = 20-20-20-22-22-24 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 3 lykkjur i-cord yst við handveg – munið eftir útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 7-7-8-8-8-8 cm, aukið út lykkjur við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur i-cord. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 3 lykkjur i-cord, prjónið brugðið út umferðina. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 5-5-6-6-7-7 sinnum (= 10-10-12-12-14-14 umferðir prjónaðar) = 25-25-26-28-29-31 lykkjur. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykki prjónað meðfram hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við merki á öxl og prjónið upp lykkjur inn við hálsmál þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 20-20-20-22-22-24 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 3 lykkjur i-cord yst við handveg. Þegar stykkið mælist 7-7-8-8-8-8 cm, aukið út lykkjur við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur i-cord, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir við hálsmál, aukið út til hægri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur i-cord. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 5-5-6-6-7-7 sinnum (= 10-10-12-12-14-14 umferðir prjónaðar) = 25-25-26-28-29-31 lykkjur. Síðan eru framstykkin sett saman eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI (hægra og vinstra stykki sett saman): Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 25-25-26-28-29-31 lykkjur frá hægra framstykki eins og áður, fitjið upp 24-26-26-26-28-28 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið 25-25-26-28-29-31 lykkjur frá vinstra framstykki eins og áður = 74-76-78-82-86-90 lykkjur í umferð. Prjónið síðan í sléttprjóni og 3 lykkjur i-cord í hvorri hlið þar til stykkið mælist 15-13-13-14-15-15 cm frá uppfitjunarkanti. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur i-cord eins og áður, 1 lykkja slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 4 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 1 lykkju slétt og 3 lykkjur i-cord eins og áður. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 3 lykkjur i-cord, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur i-cord eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 7-11-12-9-9-6 sinnum (= 14-22-24-18-18-12 umferðir prjónaðar) = 88-98-102-100-104-102 lykkjur í umferð. Útaukningu er nú lokið í stærð S, M og L. Síðan er prjónað og aukið út í stærð XL, XXL og XXXL þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur i-cord, 1 lykkja slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 4 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 1 lykkju slétt og 3 lykkjur i-cord. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 3 lykkjur i-cord, 1 lykkja brugðið, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 4 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 1 lykkju brugðið og 3 lykkjur i-cord. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 0-0-0-3-4-8 sinnum (= 0-0-0-6-8-16 umferðir prjónaðar) = 88-98-102-112-120-134 lykkjur í umferð. Prjónið síðan í sléttprjóni og 3 lykkjur i-cord í hvorri hlið þar til stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm frá uppfitjunarkanti, endið með umferð frá röngu. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. Stykkið er nú mælt héðan! FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 88-98-102-112-120-134 lykkjur frá framstykki eins og áður, fitjið upp 8-8-12-12-16-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir handveg), prjónið 88-98-102-112-120-134 lykkjur frá bakstykki eins og áður, fitjið upp 8-8-12-12-16-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir handveg) = 192-212-228-248-272-300 lykkjur í umferð. Nú er prjónað í hring í umferð. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist ca 20-21-22-23-23-24 cm frá handvegi. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 18-18-20-24-26-28 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 210-230-248-272-298-328 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5 cm er fellt af. Toppurinn mælist ca 42-44-46-48-50-52 cm, mælt frá innst við hálsmál. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 3 og litinn Rósarvatn. Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 94 til 118 lykkjur í kringum hálsmálið innan við 1 lykkju. Prjónið 3 umferðir sléttprjón. Skiptið yfir í litinn Sjávarblár og prjónið 1 umferð sléttprjón. Skiptið yfir á hringprjón 4 og fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum. PÍFA: Í kringum handveg eru lykkjur prjónaðar upp fyrir pífu. Pífan er prjónuð fram og til baka með stuttum umferðum áður en prjónað er í hring í umferðinni – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN og prjónið þannig: Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handvegi = fyrir miðju ofan á öxl (ATH! Fyrir miðju ofan á öxl er ekki sami staður og lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki heldur ca 4 cm niður á framstykki). Prjónið upp lykkjur í kringum handveg innan við 3 lykkjur, notið hringprjón 3 og byrjið fyrir miðju í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – prjónið upp 86-92-96-102-106-112 lykkjur – stillið af þannig að prjónaðar séu upp jafnmargar lykkjur hvoru megin við merki. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir handvegi (= byrjun umferðar). Skiptið yfir á hringprjón 4. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpu til að forma pífuna, byrjun umferðar er fyrir miðju undir handvegi, snúið og prjónið umferð 1 frá stuttum umferðum þannig: UMFERÐ 1 (= stuttar umferðir): Prjónið brugðið þar til eftir eru 4-4-6-6-8-8 lykkjur í umferð á undan merkiþræði, snúið stykkinu – munið eftir LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 12 lykkjur slétt, prjónið A.1 9-10-10-11-11-12 sinnum, prjónið slétt þar til eftir eru 4-4-6-6-8-8 lykkjur í umferð á undan merkiþræði, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= stuttar umferðir): Prjónið A.1 (þ.e.a.s. brugðið frá röngu) þar til eftir eru 10-10-12-12-14-14 lykkjur í umferð á undan merkiþræði, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið 6 lykkjur slétt, prjónið A.1 9-10-10-11-11-12 sinnum, prjónið slétt þar til eftir eru 10-10-12-12-14-14 lykkjur í umferð á undan merkiþræði, snúið stykkinu. UMFERÐ 5 (= ranga): Prjónið A.1 (þ.e.a.s. brugðið frá röngu) þar til eftir eru 16-16-18-18-20-20 lykkjur að byrjun umferðar, snúið stykkinu. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið A.1 9-10-10-11-11-12 sinnum (það eru eftir 16-16-18-18-20-20 lykkjur í umferð á undan merkiþræði), snúið stykkinu. UMFERÐ 7 (= ranga): Prjónið A.1 (þ.e.a.s. brugðið frá röngu) út umferðina (= fyrir miðju undir handvegi). Þegar stuttar umferðir hafa verið prjónaðar til loka, eru 113-122-126-135-139-148 lykkjur í umferð. Síðan er prjónað í hring frá réttu, skiptið yfir í litinn Sjávarblár og prjónið 1 umferð sléttprjón. Fellið af með PICOT – lesið leiðbeiningar að ofan, í litnum Sjávarblár. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sailorfrilltop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 259-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.