Donna Neckritz skrifaði:
What is the ease? Is it a positive or negative ease? My chest measurements are between size medium and large so I followed the size large. It turned out pretty nice but a little too big at the shoulder area. Wasn’t sure of the best size to follow.
05.06.2025 - 05:52DROPS Design svaraði:
Dar Mrs Neckritz, to find out the appropriate size and ease, just measure a similar garment you have and like the shape then compare them to the ones in the chart (convert inches into cm here); read more about charts here. Happy knitting!
05.06.2025 - 09:01
White Jasmine Top#whitejasminetop |
|
![]() |
![]() |
Prjónaður toppur úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 258-29 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (á við um hálsmál og handveg): AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 212 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d.18) = 11,8. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 12. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 4 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig, ofan frá og niður að handvegi. Byrjið á að fitja upp lykkjur fyrir vinstri öxl á framstykki, prjónið fram og til baka og aukið út fyrir hálsmáli. Bíðið með lykkjurnar á meðan hægri öxl á framstykki er prjónuð. Síðan eru stykkin sett saman og framstykkið er prjónað fram og til baka niður að handvegi. Síðan er bakstykkið prjónað á sama hátt. Við handveg er framstykkið og bakstykkið sett saman og fram- og bakstykki er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Axlasaumarnir eru saumaðir saman. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og í kringum báða handvegi og prjónaður er kantur í hring. VINSTRI ÖXL FRAMSTYKKI (séð þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 15-17-17-20-21-24 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Safran. Prjónið sléttprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 3-3-4-4-5-5 cm, aukið út lykkjur fyrir hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 6-6-7-7-7-7 sinnum (= 12-12-14-14-14-14 umferðir prjónaðar) = 21-23-24-27-28-31 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægri öxlin prjónuð. HÆGRI ÖXL FRAMSTYKKI (séð þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 15-17-17-20-21-24 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Safran. Prjónið sléttprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 3-3-4-4-5-5 cm, aukið út lykkjur fyrir hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 6-6-7-7-7-7 sinnum (= 12-12-14-14-14-14 umferðir prjónaðar) = 21-23-24-27-28-31 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Nú eru framstykkin sett saman eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI (hægri og vinstri öxl sett saman): Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 21-23-24-27-28-31 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 30-30-30-30-32-32 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið 21-23-24-27-28-31 lykkjur frá vinstra framstykki = 72-76-78-84-88-94 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 13-13-12-11-10-9 cm (frá uppfitjunarkanti á öxl) – ATH: Í stærð XXXL er þetta mælt strax þegar stykkið er sett saman. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 10-12-15-18-22-25 sinnum (= 20-24-30-36-44-50 umferðir prjónaðar) = 92-100-108-120-132-144 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm frá uppfitjunarkanti á öxl, endið með umferð frá röngu. Setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón. Nú er bakstykkið prjónað eins og útskýrt er að neðan. HÆGRI ÖXL BAKSTYKKI (séð þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 15-17-17-20-21-24 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Safran. Prjónið sléttprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 2 cm, aukið út lykkjur fyrir hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2 sinnum (= 4 umferðir prjónaðar) = 17-19-19-22-23-26 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstri öxlin prjónuð. VINSTRI ÖXL BAKSTYKKI (séð þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 15-17-17-20-21-24 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Safran. Prjónið sléttprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 2 cm, aukið út lykkjur fyrir hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2 sinnum (= 4 umferðir prjónaðar) = 17-19-19-22-23-26 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Síðan eru bakstykkin sett saman eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI (hægri og vinstri öxl sett saman): Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 17-19-19-22-23-26 lykkjur frá vinstra bakstykki, fitjið upp 38-38-40-40-42-42 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið 17-19-19-22-23-26 lykkjur frá hægra bakstykki = 72-76-78-84-88-94 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 13-13-12-11-10-9 cm (frá uppfitjunarkanti á öxl) – ATH: Í stærð XXXL er þetta mælt strax þegar stykkið er sett saman. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 10-12-15-18-22-25 sinnum (= 20-24-30-36-44-50 umferðir prjónaðar) = 92-100-108-120-132-144 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm frá uppfitjunarkanti á öxl, endið með umferð frá röngu. Nú er bakstykkið og framstykkið sett saman eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 92-100-108-120-132-144 lykkjur frá bakstykki slétt, fitjið upp 12-14-16-18-22-26 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (= í hlið fyrir miðju undir handveg), prjónið 92-100-108-120-132-144 lykkjur frá framstykki og fitjið upp 12-14-16-18-22-26 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir handveg) = 208-228-248-276-308-340 lykkjur í umferð. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, fyrir miðju í 12-14-16-18-22-26 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi og látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðir þegar fækka á lykkjum í hliðum á fram- og bakstykki. Prjónið sléttprjón umferðina hringinn. Þegar stykkið mælist 5-5-6-6-6-6 cm frá handvegi, er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í hverjum 5-5-5-5-6-6 cm alls 4 sinnum = 192-212-232-260-292-324 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm frá handveg. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) jafnframt sem aukið er út um 16-18-20-20-22-24 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 = 208-230-252-280-314-348 lykkjur. Þegar prjónaðar hafa verið 3 umferðir stroff er fellt af aðeins laust. Toppurinn mælist ca 44-46-48-50-52-54 cm frá öxl. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 2,5. Byrjið frá réttu við annan axlasauminn og prjónið upp ca 114-118-126-128-138-140 lykkjur innan við 1 lykkju – lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-3½-3½-4-4 cm. Fellið af aðeins laust. KANTUR ERMAR: Notið hringprjón 2,5. Byrjið frá réttu neðst í handvegi og prjónið upp ca 112-120-126-134-140-148 lykkjur innan við 1 lykkju – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið 3 umferðir stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Fellið af aðeins laust. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #whitejasminetop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 258-29
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.