Carmel Hogan skrifaði:
What is the centimetre conversion for the pattern sizes? Thank you.
15.03.2025 - 17:06DROPS Design svaraði:
Dear Carmel, the cm for each size are in the size schematic, at the bottom of the pattern. Here you can read more on how to interpret these charts. The chest measurements are the bottom line of the chart. Happy knitting!
16.03.2025 - 19:34
Misty Hill Cardigan#mistyhillcardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með 1 þræði DROPS Soft Tweed og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, sléttprjóni og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 259-44 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LASKALÍNA: Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð): Prjónið frá réttu þar til 4 lykkjur eru eftir í lok umferðar, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman og prjónið 2 lykkjur slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu strax eftir stroff efst í hálsmáli. Síðan er fellt af fyrir 4-4-5-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 9½-10-8½-9-9-9½ cm millibili. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 93-95-97-101-103-107 lykkjur með 1 þræði DROPS Soft Tweed og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir) á hringprjón 5,5. Prjónið 3 umferðir sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá réttu). Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið síðan þannig – frá röngu: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið 1 umferð frá réttu með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 lykkjur GARÐAPRJÓN í hvorri hlið (= kantur að framan), í þessari umferð er aukið út um 7-5-3-15-13-9 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 100-100-100-116-116-116 lykkjur. Nú eru settir 4 merkiþræðir í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Merkiþræðirnir eru notaðir þegar auka á út fyrir laskalínu og hver merkiþráður er settur á milli 2 lykkja. Þessar 2 lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur. Að auki er sett 1 merki eftir 50-50-50-58-58-58 lykkjur (= miðja að aftan). Teljið 18-18-18-22-22-22 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1 merkiþráð, teljið 20 lykkjur (= ermi), setjið 1 merkiþráð, teljið 24-24-24-32-32-32 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 merkiþráð, teljið 20 lykkjur (= ermi), setjið 1 merkiþráð, það eru 18-18-18-22-22-22 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta merkiþræði (= hægra framstykki). HÁLSMÁL: Nú er hálsmálið prjónað með stuttum umferðum eins og útskýrt er að neðan. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Klippið þráðinn og byrjið við merki fyrir miðju að aftan. UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan, hvoru megin við fyrstu 2 laskalínur (= 4 lykkjur fleiri), snúið stykkinu þegar prjónaðar hafa verið 3 lykkjur fram hjá öðrum merkiþræðinum UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við allar laskalínur (= 8 lykkjur fleiri), snúið stykkinu þegar prjónaðar hafa verið 3 lykkjur fram hjá síðasta merkiþræðinum. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við allar laskalínur (= 8 lykkjur fleiri), snúið við þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við allar laskalínur (= 8 lykkjur fleiri), snúið við þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 5 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við allar laskalínur (= 8 lykkjur fleiri), snúið við þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 6 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við allar laskalínur (= 8 lykkjur fleiri), snúið við þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 7 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin fyrstu 2 laskalínur (= 4 lykkjur fleiri), prjónið slétt að miðju að aftan. Klippið þráðinn. Þegar stuttar umferðir hafa verið prjónaðar til loka og aukið hefur verið út 6 sinnum fyrir laskalínu = 148-148-148-164-164-164 lykkjur í umferð. Síðan er prjónað fram og til baka yfir allar lykkjur frá miðju að framan. Nú byrjar úrtaka fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan. BERUSTYKKI: Prjónið sléttprjón með 5 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið og haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu þannig: Nú er aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð (= hverri umferð frá réttu), en í annað hvert skipti sem aukið er út er einungis aukið út á framstykkjum/bakstykki. Þ.e.a.s. aukið er út á framstykkjum/bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð, aukið er út til skiptis 8 og 4 lykkjur Aukið svona út 14-16-20-22-24-24 sinnum á fram- og bakstykki (7-8-10-11-12-12 sinnum á ermum). Nú eru 232-244-268-296-308-308 lykkjur í umferð. Stærð S, M, L, XXL og XXXL (útaukning í stærð XL er lokið): Haldið áfram í sléttprjóni og útaukningu fyrir laskalínu, en nú er einungis aukið út á fram- og bakstykki, útaukningu fyrir ermar er nú lokið. Aukið út í annarri hverri umferð alls 3-3-2-0-1-5 sinnum. ALLAR STÆRÐIR: Nú hefur verið aukið út alls 23-25-28-28-31-35 sinnum á fram- og bakstykki og 13-14-16-17-18-18 sinnum á ermum (ásamt útaukningu í stuttum umferðum í hálsmáli). Á eftir síðustu útaukningu eru 244-256-276-296-312-328 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón og garðaprjón í kanti að framan þar til stykkið mælist ca 21-24-26-26-30-34 cm, mælt frá miðju að framan eftir stroffi í hálsmáli. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Prjónið fyrstu 41-43-46-50-53-57 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 46-48-52-54-56-56 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-12-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 70-74-80-88-94-102 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 46-48-52-54-56-56 lykkjur á þráð og fitjið upp 10-12-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið undir ermi), prjónið þær 41-43-46-50-53-57 lykkjur sem eftir eru (= framstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 172-184-196-216-232-252 lykkjur. Prjónið sléttprjón með garðaprjóni í kanti að framan þar til stykkið mælist 17-16-15-17-16-14 cm frá skiptingunni. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 40-40-44-48-52-56 lykkjur jafnt yfir (lykkjur eru ekki auknar út yfir kant að framan) = 212-224-240-264-284-308 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið næstu umferð þannig – frá röngu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMAR: Setjið 46-48-52-54-56-56 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-12-12-14-16-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 56-60-64-68-72-74 lykkjur. Setjið einn merkiþráð mitt í nýjar lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm, fækkið um 2 lykkjur undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í ca hverjum 4-3-2½-2½-1½-1 cm alls 4 sinnum = 48-52-56-60-64-66 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 17-15-14-14-11-7 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og prjónið 4 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið 3 umferðir slétt. Fellið af með sokkaprjónum 5,5. Ermin mælist ca 20-17-16-16-13-9 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mistyhillcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 259-44
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.