Camilla Sloth Sonne skrifaði:
Under stykket hvor samling af forstykket er beskrevet, står der strik til arbejdet måler 24 cm(str m). Men hvor skal man måle fra? Fra hvor man samlede masker op?
26.04.2025 - 19:24DROPS Design svaraði:
Hej Camilla, ja det stemmer :)
30.04.2025 - 15:01
Engel skrifaði:
Bij de garenkwaliteit staat: Drops Alpaca Bouclé behoort tot garengroep B. Maar deze kwaliteit behoort toch tot de groep C?
13.03.2025 - 19:52
Pearl Mist#pearlmistsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Alpca Bouclé. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með evrópskri öxl / skáhallandi öxl og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 258-20 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja á frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja á frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjið á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er bakstykkið látið bíða og framstykkið er prjónað. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 hlutum. Byrjið á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, prjónið mynstur samtímis sem aukið er út við hálsmál. Endurtakið á hinni öxlinni. Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukning fyrir hálsmál hefur verið gerð til loka. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Nú er framstykkið og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermarnar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 30-32-32-32-34-34 lykkjur á hringprjón 5,5 með DROPS Alpaca Bouclé. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 10-11-12-13-14-15 sinnum (= 20-22-24-26-28-30 prjónaðar umferðir), eftir síðustu útaukningu eru = 70-76-80-84-90-94 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er nú stykkið mælt! Prjónið síðan í sléttprjóni - Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu – þar til stykkið mælist 12-12-12-12-13-12 cm mælt frá merki yst meðfram handveg. Nú eru aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-2-3-4-4-5 sinnum = 74-80-86-92-98-104 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 14-14-15-16-17-17 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi, endið með eina umferð frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að öxl þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju = 20-22-24-26-28-30 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 6-7-8-9-9-10 cm, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-4-4-4-5-5 sinnum = (8-8-8-8-10-10 umferðir prjónaðar) = 24-26-28-30-33-35 lykkjur (næsta umferð sem er prjónuð á að vera frá réttu). Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykkið prjónað meðfram hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru prjónaðar upp lykkjur meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Prjónið upp 1 lykkjur í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 20-22-24-26-28-30 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 6-7-8-9-9-10 cm, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-4-4-4-5-5 sinnum (= 8-8-8-8-10-10 umferðir prjónaðar) = 24-26-28-30-33-35 lykkjur (= næsta umferð sem er prjónuð á að vera frá réttu). Síðan eru framstykkin sett saman – lesið útskýringu að neðan. FRAMSTYKKI (hægra og vinstra stykki sett saman): Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 24-26-28-30-33-35 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 22-24-24-24-24-24 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið síðan 24-26-28-30-33-35 lykkjur frá vinstra framstykki = 70-76-80-84-90-94 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 22-24-24-24-25-26 cm. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-2-3-4-4-5 sinnum (= 4-4-6-8-8-10 prjónaðar umferðir) = 74-80-86-92-98-104 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 24-26-27-28-29-31 cm, endið á umferð frá röngu. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. Stykkið er nú mælt héðan! FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 74-80-86-92-98-104 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 2-4-4-6-8-12 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (= í hlið mitt undir ermi), prjónið síðan 74-80-86-92-98-104 lykkjur frá bakstykki og fitjið upp 2-4-4-6-8-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) = 152-168-180-196-212-232 lykkjur í umferð. Nú er prjónað í hring. Prjónið þar til stykkið mælist ca 31-32-33-34-35-36 cm frá handveg. Fellið af með sléttum lykkjum. Peysan mælist ca 53-55-57-59-61-63 cm, mælt frá innst við hálsmál. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handveg og niður á við. Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = mitt ofan á öxl (ATH! Mitt ofan á öxl er ekki á sama stað og lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur ca 5 til 7 cm niður á framstykki). Prjónið upp lykkjur í kringum handveg, notið hringprjón 5,5 og byrjið mitt í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – prjónið upp 56-62-66-74-78-86 lykkjur – stillið af að prjónaðar séu upp jafn margar lykkjur hvoru megin við merki. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpu til að ermin fá betra form og passi betur, umferðin byrjar fyrir miðju undir ermi þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 4-5-6-6-7-7 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 4-5-6-6-7-7 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 3-3-3-4-4-4 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 3-3-3-4-4-4 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4. Snúið hefur verið við alls 12-12-12-12-14-16 sinnum (= 6-6-6-6-7-8 sinnum í hvorri hlið og síðasta prjónaða umferðin er frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er endurtekin, endið umferð með að snúa stykkinu, prjónið síðan frá réttu að byrjun á umferð (fyrir miðju undir ermi). Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi, það á að nota hann þegar fækka á lykkjum undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. Nú er prjónað í hring í sléttprjón yfir allar lykkjur. Þegar ermin mælist 1 cm mælt frá miðju undir ermi er fækkað um 2 lykkjur, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverjum 10-5-5-4-4-3 cm alls 2-4-4-5-5-6 sinnum = 52-54-58-64-68-74 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 30-30-29-29-28-28 cm frá miðju ofan á öxl. Fellið af með sléttum lykkjum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 5,5. Byrjið frá réttu við annan kantinn þar sem lykkjur voru prjónaðar upp og prjónið upp ca 70 til 84 lykkjur innan við 1 lykkju. Prjónið 4 umferðir slétt. Fellið af með sléttum lykkjum JAFNFRAMT sem slegið er 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverri lykkju – uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja (þetta er gert til að affellingarkanturinn verði ekki of stífur). |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #pearlmistsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 258-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.