Rising Cloud#risingcloudtop |
|
![]() |
![]() |
Prjónaður toppur úr DROPS Alpca Bouclé. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með útaukningu á öxl, bátahálsmáli og i-cord. Stærð S - XXXL.
DROPS 259-42 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eins og útskýrt er að neðan: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI Á UNDAN MERKI: Sláið 1 sinni uppá hægri prjón með því að leggja þráðinn yfir hægri prjón aftan frá og fram, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt í fremri lykkjubogann. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI Á EFTIR MERKI: Sláið 1 sinni uppá hægri prjón með því að leggja þráðinn framan við prjóninn og síðan að herða á þræði, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt í aftari lykkjubogann. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja á frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-3: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja á frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. I-CORD: FYRSTU 3 LYKKJUR: Prjónið í hverri umferð þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið. SÍÐUSTU 3 LYKKJUR: Prjónið í hverri umferð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl og prjónað er ofan frá og niður. Þegar öll útaukning fyrir öxl hefur verið gerð til loka, skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig niður að handveg. Síðan er framstykkið og bakstykkið sett saman og fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna að loka máli. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið aðeins laust upp 90-90-94-100-104-104 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Alpaca Bouclé. Prjónið 1 umferð sléttprjón þar til fækkað er um 10-10-10-12-12-12 lykkjur jafnt yfir = 80-80-84-88-92-92 lykkjur. BERUSTYKKI: Nú eru sett 2 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett á milli 2 lykkja og eru notuð þegar auka á út fyrir skáhallandi öxl. Setjið 1 merki í byrjun umferðar og setjið 1 merki eftir fyrstu 40-40-42-44-46-46 lykkjur (= miðja ofan á öxl). SKÁHALLANDI ÖXL: Prjónið sléttprjón hringinn jafnframt því sem aukið er út um 4 lykkjur í umferð þannig: Aukið út þegar eftir er 1 lykkja á UNDAN hverju merki og aukið út þegar prjónuð hefur verið 1 lykkja á EFTIR hverju merki – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í hverri umferð alls 13-13-13-14-14-15 sinnum = 132-132-136-144-148-152 lykkjur. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Á eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 6-6-6-6-6-7 cm frá uppfitjunarkanti. Nú skiptist berustykkið fyrir framstykki og bakstykki. SKIPTING FYRIR FRAMSTYKKI OG BAKSTYKKI: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir framstykki og bakstykki þannig: Byrjið 1 lykkju á undan fyrsta merki, fellið af fyrstu 2 lykkjur (þ.e.a.s. fellið af 1 lykkju hvoru megin við merkið), prjónið 3 lykkjur I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið sléttprjón þar til 4 lykkjur eru eftir á undan næsta merki, prjónið 3 lykkjur i-cord (= framstykki), fellið af 2 lykkjur (þ.e.a.s. fellið af 1 lykkju hvoru megin við merki), prjónið 3 lykkjur i-cord, prjónið sléttprjón þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur i-cord (= bakstykki). BAKSTYKKI: = 64-64-66-70-72-74 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 3 lykkjur i-cord í hvorri hlið. Prjónið þar til stykkið mælist 14-12-13-14-14-14 cm mælt yst meðfram handveg. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2, prjónið 3 lykkjur i-cord, 1 lykkja slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 4 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 1 lykkju slétt og 3 lykkjur i-cord. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 3 lykkjur i-cord, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur i-cord. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 5-8-6-5-5-4 sinnum (= 10-16-12-10-10-8 umferðir prjónaðar) = 74-80-78-80-82-82 lykkjur í umferð. Útaukningu er nú lokið í stærð S og M. Prjónið síðan og aukið út í stærð L, XL, XXL og XXXL þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2, prjónið 3 lykkjur i-cord, 1 lykkja slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 4 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 1 lykkju slétt og 3 lykkjur i-cord. UMFERÐ 2 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-3, prjónið 3 lykkjur i-cord, 1 lykkja brugðið, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 4 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 1 lykkju brugðið og 3 lykkjur i-cord. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 0-0-2-3-5-7 sinnum (= 0-0-4-6-10-14 umferðir prjónaðar) = 74-80-86-92-102-110 lykkjur í umferð. ALLAR STÆRÐIR: Prjónið síðan þar til stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm, mælt yst meðfram handveg, endið með umferð frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón. Nú er framstykkið prjónað á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 64-64-66-70-72-74 lykkjur. Setjið inn lykkjur af þræði á hringprjón 4,5 og prjónið á sama hátt og bakstykki. Aukið út fyrir handveg á sama hátt og á bakstykki = 74-80-86-92-102-110 lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm, mælt yst meðfram handveg, endið eftir umferð frá röngu. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 74-80-86-92-102-110 lykkjur frá framstykki eins og áður, notið auka þráð og fitjið upp 8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar með tvöföldum þræði (= í hlið fyrir miðju undir ermi – fitjað er upp með tvöföldum þræði til að kanturinn verði aðeins grófari/þykkari), takið frá auka þráðinn, prjónið 74-80-86-92-102-110 lykkjur frá bakstykki, notið auka þráð og fitjið upp 8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð með tvöföldum þræði (= í hlið fyrir miðju undir ermi), takið frá auka þráðinn = 164-180-196-212-236-256 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm mælt frá hæsta punkti á stykki inn við hálsmál. Skiptið yfir á hringprjón 3,5, prjónið 3 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið), skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið 3 umferðir sléttprjón. Fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum. Toppurinn mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá hæsta punkti á öxl inn að hálsmáli. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #risingcloudtop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 259-42
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.