Leda Masi skrifaði:
Ritiro la domanda stupida, ho capito. :-) grazie comunque Leda
14.04.2025 - 10:22
Leda skrifaði:
Non mi è chiaro l'ultimo passaggio del corpo: lavorare A2 e allo stesso tempo aumentare in modo uniforme 10 maglie sulle maglie del motivo. Devo aumentare tra ogni ripetizione con un dritto? Grazie
10.04.2025 - 16:42DROPS Design svaraði:
Buonasera Leda, deve aumentare 20 maglie a intervalli regolari. Buon lavoro!
12.04.2025 - 17:41
Nicole Vena skrifaði:
I'm confused on the 2nd set of increases for the body and sleeves. It never specifies when to slip the markers like it did previously. If we are knitting to 2 stitches before marker, increasing to right, knit 2, increase to left, the sleeve stitches will always be 26. Do we slip the marker then increase to left? Please specify how to slip the markers.
20.03.2025 - 00:42DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Vena, you will now increase on each side of the knit 2 sts so that the number of stitches on body and sleeves will increase by 1 on each front piece and by 2 on sleeves and back piece. Happy knitting!
20.03.2025 - 10:16
Bright Day Cardigan#brightdaycardigan |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópsku berustykki og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 257-16 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur garðaprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að allar lykkjur fyrir hálsmáli hafa verið fitjaðar upp. Fellið síðan af fyrir 3-3-3-3-4-4 næstu hnappagötum með 8½-9-9-9-8-8½ cm millibili. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjað er á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til lykkjufjöldi fyrir axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið smá skáhallandi öxl. Nú er bakstykkið látið bíða og byrjun á framstykkjum er prjónað. Byrjið á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni á bakstykki, prjónað og aukið út að hálsmáli. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp fyrir ermar meðfram hliðum á framstykkjum og lykkjur frá bakstykki eru settar til baka á prjóninn. Prjónað er fram og til baka yfir allar lykkjur. Lykkjur eru auknar út á berustykki. Fyrst eru lykkjur einungis auknar út fyrir ermar, síðan eru lykkjur auknar út bæði fyrir ermar og fyrir framstykki/bakstykki. Stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka fyrir sig niður á við fram og til baka á hringprjóna með gatamynstri, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður í hring. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 30-32-34-36-36-40 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Paris. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur brugðið. EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 8-8-8-8-9-9 sinnum (= 16-16-16-16-18-18 prjónaðar umferðir), eftir síðustu útaukningu eru = 62-64-66-68-72-76 lykkjur í umferð. Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða hjálparprjón. HÆGRI ÖXL: Finnið hægri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttun upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur af þræði / hjálparprjóni snúi að þér, hægri hlið á stykki = hægri öxl. Prjónið upp lykkjur meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 16-16-16-16-18-18 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 9 cm, aukið út lykkjur við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2 sinnum (= 4 umferðir prjónaðar) = 18-18-18-18-20-20 lykkjur. Í lok síðustu umferðar frá röngu, prjónið síðustu 2 lykkur brugðið saman = 17-17-17-17-19-19 lykkjur. Setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykki prjónað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRI ÖXL: Prjónið upp lykkjur meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 16-16-16-16-18-18 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 9 cm, aukið út lykkjur við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2 sinnum (= 4 umferðir prjónaðar) = 18-18-18-18-20-20 lykkjur. Í byrjun síðustu umferðar frá röngu, prjónið fyrstu 2 lykkjur snúnar brugðið saman = 17-17-17-17-19-19 lykkjur. Síðan eru framstykkin og bakstykkið sett saman og lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermakúpu, prjónið eins og útskýrt er að neðan. UMFERÐ 1 (rétta): Byrjið frá réttu með lykkjur frá vinstra framstykki: Prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út til vinstri, prjónið slétt yfir þær lykkjur sem eftir eru á vinstra framstykki, setjið 1 merki hér, prjónið upp 20 lykkjur meðfram hlið frá vinstra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjur prjónaðar upp innan við ystu lykkju), setjið 1 merki, prjónið fyrstu 2 lykkjur frá bakstykki slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki, prjónið upp 20 lykkjur meðfram hlið frá hægra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjur prjónaðar upp innan við ystu lykkju), setjið 1 merki, setjið lykkjurnar til baka frá hægra framstykki á vinstri prjóninn, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, prjónið síðustu 3 lykkjur = 136-138-140-142-150-154 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið yfir allar lykkjur. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út til vinstri, prjónið fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út til vinstri, prjónið 20 lykkjur slétt, aukið út til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið slétt fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út til vinstri, prjónið 20 lykkjur slétt, aukið út til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, aukið út til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt = 142-144-146-148-156-160 lykkjur. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið, í lok umferðar eru fitjaðar upp 18-19-20-21-21-23 nýjar lykkjur = 160-163-166-169-177-183 lykkjur. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið slétt fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út til vinstri, prjónið 22 lykkjur, aukið út til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 22 lykkjur, aukið út til hægri, færið merki yfir á hægri prjón, prjónið út umferðina. Í lok umferðar eru fitjaðar upp 18-19-20-21-21-23 nýjar lykkjur = 182-186-190-194-202-210 lykkjur í umferð. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið brugðið með kant að framan með i-cord í hvorri hlið. UMFERÐ 7 (= rétta): Í þessari umferð byrjar úrtaka fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan. Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið slétt fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út til vinstri, prjónið 24 lykkjur, aukið út til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út til vinstri, prjónið 24 lykkjur, aukið út til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið kant að framan eins og áður. Nú eru 60-62-64-66-70-74 lykkjur á bakstykki, 37-38-39-40-42-44 lykkjur á hvoru framstykki og 26 lykkjur á hvorri ermi = 186-190-194-198-206-214 lykkjur í umferð. UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið brugðið með kant að framan í hvorri hlið. Síðan er aukið út bæði á ermum og á fram- og bakstykki, næsta umferð er prjónuð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið kant að framan og sléttprjón þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merki, aukið út til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út til vinstri, prjónið yfir 26 lykkjur á ermi, aukið út til hægri, prjónið 2 lykkjur, aukið út til vinstri, prjónið 56-58-60-62-66-70 lykkjur, aukið út til hægri, prjónið 2 lykkjur, aukið út til vinstri, prjónið yfir 26 lykkjur á ermi, aukið út til hægri, prjónið 2 lykkjur, aukið út til vinstri, prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið kant að framan (= 8 lykkjur fleiri, hvoru megin við 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið með kant að framan í hvorri hlið. Endurtakið þessar 2 umferðir þar til aukið hefur verið út alls 10-12-13-15-17-18 sinnum á fram- og bakstykki og ermum. Nú hefur verið aukið út alls 13-15-16-18-20-21 sinnum á ermum = 266-286-298-318-342-358 lykkjur. Stykkið mælist nú ca 12-14-15-16-18-19 cm á ermi, þegar peysan er brotin saman tvöföld, á hún að mælast ca 18-20-21-22-24-25 cm frá toppi á öxl. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 47-50-52-55-59-62 lykkjur eins og áður (= framstykki, setjið næstu 46-50-52-56-60-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 80-86-90-96-104-110 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 46-50-52-56-60-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið síðustu 47-50-52-55-59-62 lykkjur slétt (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 190-206-218-234-254-270 lykkjur. Prjónið sléttprjón með kant að framan í hvorri hlið eins og áður í 5-5-6-7-7-8 cm, í síðustu umferð er aukið út um 1-1-5-5-1-1 lykkjur jafnt yfir = 191-207-223-239-255-271 lykkjur. Prjónið síðan þannig – frá miðju að framan. Kantur að framan, A.1 þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt (svo að mynstrið verði alveg eins í hvorri hlið) og prjónið kant að framan. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið kant að framan eins og áður og mynstur A.2 – jafnframt sem aukið er út um 10-11-12-13-14-15 lykkjur jafn yfir lykkjur í mynstri. Prjónað er þannig: Kantur að framan, A.2 þar til 7 lykkjur eru eftir (munið eftir útaukning) og prjónið kant að framan = 201-218-235-252-269-286 lykkjur. Prjónið til loka A.2 og fellið af. Peysan mælist ca 44-46-48-50-52-54 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 46-50-52-56-60-62 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-10-12-14-16-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 54-60-64-70-76-80 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón umferðina hringinn – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 8-6½-5½-3½-3-2½ cm alls 2-4-5-8-10-11 sinnum = 50-52-54-54-56-58 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 37-37-38-38-38-38 cm frá öxl. Prjónið A.1 hringinn yfir allar lykkjur. ATH! Vegna úrtöku þá gengur A.1 ekki jafnt upp undir ermum, staðsetjið því 1 mynstureiningu af A.1 fyrir miðju ofan á ermi og prjónið lykkjur sem ekki ganga upp í heila mynstureiningu í sléttprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.2 yfir allar lykkjur – ATH! Í fyrstu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út til 51-51-51-51-68-68 lykkjur. Prjónið A.2 til loka og fellið af. Ermin mælist ca 54-54-55-55-55-55 cm frá öxl. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp ca 88 til 120 lykkjur í kringum hálsmál á prjón 4, lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 7 kantlykkjur að framan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 7 kantlykkjur að framan. Fellið af þegar stroffið mælist 3 cm. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #brightdaycardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 257-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.