Magdalena Brown skrifaði:
När jag kom till mönster A1, förstår jag inte hur många maskor jag ska sticka mellan upprepningen av A1? Storlek Tacksam för svar.
16.03.2025 - 23:38DROPS Design svaraði:
Hej Magdalena. Sticka framkanten som tidigare, * 2 maskor slätstickning, A.1, 1 maska slätstickning *, sticka från *-* totalt 24-25-27-28-30-32 gånger, sticka 1 maska slätstickning och framkanten som tidigare = 183-190-204-211-225-239 maskor. Du upprepar alltså "2 maskor slätstickning, A.1, 1 maska slätstickning" det antal gånger det står för din storlek. Mvh DROPS Design
18.03.2025 - 07:45
Wildflower Sprinkles Cardigan#wildflowersprinklescardigan |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Fabel og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með hringlaga berustykki, rúllukanti og i-cord. Stærð S - XXXL.
DROPS 258-37 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 9-9-9½-8-8½-8½ cm á milli hverra hnappagata. Nesta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1(= 2 lykkjur fleiri) og A.2 (= 1 lykkja fleiri). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 121 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 14 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 29) = 3,7. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn ca eftir 4. hverja lykkju (lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 117-121-125-131-137-145 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði DROPS Fabel og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Skiptið yfir á hringprjón 3 (fitjað er upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur) og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): 7 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan, prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan með i-cord. UMFERÐ 2 (= rétta): 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið slétt þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður. UMFERÐ 3 (= ranga): 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður. UMFERÐ 4 (= rétta): 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið slétt þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður. UMFERÐ 5 (= ranga): 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt), prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 7 kantlykkjur að framan eins og áður. UMFERÐ 6 (= rétta): 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 7 kantlykkjur að framan. EFTIR UMFERÐ 6: Prjónið síðan sléttprjón (brugðið frá röngu, slétt frá réttu) og kant að framan eins og áður þar til kantur í hálsmáli mælist 4-4-5-5-6-6 cm frá uppfitunarkanti – endið með umferð frá röngu. Setjið eitt merki að innanverðu í kant að framan í aðra hliðina á stykki, stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið fyrstu umferð frá réttu með byrjun frá miðju að framan þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið 103-107-111-117-123-131 lykkjur sléttprjón jafnframt því sem aukið er út um 18-19-25-24-28-30 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, prjónið kant að framan eins og áður og munið eftir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan = 135-140-150-155-165-175 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón og kanta að framan eins og áður. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar berustykkið mælist 4-4-4-4-5-5 cm frá merki, aukið út lykkjur með því að prjóna MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan og prjónið þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, * 2 lykkjur sléttprjón, A.1, 1 lykkja sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 24-25-27-28-30-32 sinnum, prjónið 1 lykkju sléttprjón og kant að framan eins og áður = 183-190-204-211-225-239 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kanta að framan þar til berustykkið mælist 8-8-8-9-10-10 cm frá merki. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, * 3 lykkjur sléttprjón, A.1, 2 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 24-25-27-28-30-32 sinnum, prjónið 1 lykkju sléttprjón og kant að framan eins og áður = 231-240-258-267-285-303 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og kant að framan þar til berustykkið mælist 12-13-13-14-15-16 cm frá merki. FINNDU ÞÍNA STÆRÐ: Prjónið síðan mynstur og aukið út mismunandi eftir mismunandi stærðum, prjónaðu eftir þinni stærð að neðan – fyrsta umferð er prjónuð frá réttu. STÆRÐ S, M og L: Prjónið kant að framan eins og áður, * 4 lykkjur sléttprjón, A.2, 3 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 24-25-27 sinnum, prjónið 1 lykkju sléttprjón og kant að framan eins og áður = 255-265-285 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og kanta að framan þar til berustykkið mælist 16-18-18 cm frá merki. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, * 4 lykkjur sléttprjón, A.2, 4 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 24-25-27 sinnum, prjónið 1 lykkju sléttprjón og kant að framan eins og áður = 279-290-312 lykkjur. Prjónið síðan frá ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ XL, XXL og XXXL: Prjónið kant að framan eins og áður, * 4 lykkjur sléttprjón, A.1, 3 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 28-30-32 sinnum, prjónið 1 lykkju sléttprjón og kant að framan eins og áður = 323-345-367 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og kanta að framan þar til berustykkið mælist 19-20-22 cm frá merki. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, * 4 lykkjur sléttprjón, A.2, 5 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 28-30-32 sinnum, prjónið 1 lykkju sléttprjón og kant að framan eins og áður = 351-375-399 lykkjur. Prjónið síðan frá ALLAR STÆRÐIR. ALLAR STÆRÐIR: = 279-290-312-351-375-399 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og kanta að framan. Þegar berustykkið mælist 18-20-20-21-22-24 cm frá merki er aukið út um 0-9-7-0-0-0 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan) = 279-299-319-351-375-399 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 21-23-24-24-26-28 cm frá merki fyrir miðju að framan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 48-51-54-58-63-68 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 50-54-58-66-68-70 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 83-89-95-103-113-123 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 50-54-58-66-68-70 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 48-51-54-58-63-68 lykkjur sléttprjón (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 195-207-223-239-263-283 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður þar til stykkið mælist 44-46-48-48-50-52 cm frá merki fyrir miðju að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT er aukið út um 30-30-36-36-42-44 lykkjur jafnt yfir í umferð (lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan) = 225-241-259-279-305-329 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningu) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 5-5-5-6-6-6 cm fellið af. Peysan mælist 49-51-53-54-56-58 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 54-56-58-60-62-64 cm 52-54-56-58-60-62 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 50-54-58-66-68-70 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 58-62-68-76-80-82 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn - JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3-3-3-2-2-2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkað er um 2 lykkjur í hverjum 3-3-2½-1½-1½-1½ cm alls 3-4-6-9-10-10 sinnum = 52-54-56-58-60-62 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 41-40-40-40-38-36 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið 3 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt / 1 lykkja brugðið). Prjónið síðan 3 umferðir sléttprjón. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 43-42-42-42-40-38 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #wildflowersprinklescardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 258-37
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.