Christine skrifaði:
Bonjour, Est-il possible de tricoter les manches à part en aller-retour en commençant par le bas ( côtes) et de les coudre ensuite au corps de la veste ?
03.04.2025 - 18:36DROPS Design svaraði:
Bonjour Christine, probablement oui, pensez juste à faire les ajustements nécessaires pour adapter les manches de bas en haut et retrouvez plus d'infos sur les aiguilles circulaires ici. Bon tricot!
04.04.2025 - 08:32
Helena Jonsson skrifaði:
Hej! Jag vill sticka denna kofta med Drops air istället för att bara ha en tråd. I storlek XL, hur mycket Drops air går det åt? Ska jag endast ersätta drops fabel eller även Drops brusched alpacka?
14.03.2025 - 09:00DROPS Design svaraði:
Hei Helena. DROPS Air tilhører garngruppe C, denne jakken er strikket med både DROPS Brushed Alpaca Silk (garngruppe C) og DROPS Fabel (garngruppe A), slik at strikkes den med bare Air er det ikke sikkert oppskriften vil stemme helt/samme utrykk. Om du skal strikke: Husk strikkefastheten. Du vil trenge ca 10 nøster Air. mvh DROPS Design
17.03.2025 - 10:52
Anna skrifaði:
Buongiorno e grazie per i bellissimi modelli 😀. Vorrei sapere che vivagno consigliate sul margine del lavoro dal lato dello scalfo, giusto per rendere più facile la ripresa delle maglie per le maniche? Grazie mille in anticipo ☺️
08.03.2025 - 08:37DROPS Design svaraði:
Buongiorno Anna, non ci sono particolari suggerimenti. Buon lavoro!
08.03.2025 - 11:41
Kristin Mård skrifaði:
Hej! Jag tycker denna modellen av en cardigan är supersnygg. Men jag önskar att göra den enfärgad, och helst bara använda en tråd. Låter detta sig göra? Och kan ni rekommendera garn? Tack på förhand!
16.02.2025 - 17:22DROPS Design svaraði:
Hej Kristin, ja du kan bruge en tråd af vores garner fra garngruppe C: DROPS Garngrupper men se till at holde strikkefastheden som står i mønsteret, da vil du få den rigtige størrelse :)
18.02.2025 - 11:46
Anna skrifaði:
Buona sera, grazie per i bellissimi modelli che proponete! Il filato impiegato è Fiesta o Fabel ? Grazie in anticipo per la risposta 😄
12.02.2025 - 19:41DROPS Design svaraði:
Buonasera Anna, grazie per la segnalazione: abbiamo corretto il testo, il filato usato è DROPS Fabel. Buon lavoro!
12.02.2025 - 20:52
Snowy Sparkles Cardigan#snowysparklescardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Fabel og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með v-hálsmáli og i-cord og ísaumuðum ermum. Stærð XS - XXL.
DROPS 259-32 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur garðaprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið fjórðu og fimmtu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: XS: 5, 11, 17, 23 og 29 cm. S: 6, 12, 18, 24 og 30 cm. M: 7, 13, 19, 25 og 31 cm. L: 5, 11, 18, 25 og 32 cm. XL: 6, 12, 19, 26 og 33 cm. XXL: 6, 13, 20, 27 og 34 cm. V-HÁLSMÁL: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fellið af fyrir V-hálsmáli innan við 7 lykkjur í kanti að framan á báðum framstykkjum. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið kant að framan eins og áður, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið þar til 9 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið kant að framan eins og áður. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað, neðan frá og upp. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka með kanti að framan í hvorri hlið upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvert stykki er prjónað fram og til baka hvert fyrir sig. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg. Ermar eru fyrst prjónaðar fram og til baka, síðan í hring. Kantar að framan eru saumaðir saman og saumaðir við kant í hálsmáli. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 195-215-227-243-257-285 lykkjur á hringprjón 3,5 með 1 þræði DROPS Fabel og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið stroff og kanta að framan með byrjun frá réttu þannig: Prjónið 7 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan, * prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 7 kantlykkjum að framan með i-cord. Prjónið fram og til baka með stroff og kant að framan í hvorri hlið þar til stykkið mælist 4-4-5-5-6-6 cm. Síðasta umferð er prjónuð frá réttu. Fellt er af fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið brugðið og fækkið um 29-33-33-37-39-43 lykkjur jafnt yfir næstu 181-201-213-229-243-271 lykkjur og prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður = 166-182-194-206-218-242 lykkjur. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið sléttprjón yfir 38-42-45-48-51-57 lykkjur, setjið 1 merkiþráð hér, prjónið 76-84-90-96-102-114 lykkjur sléttprjón, setjið 1 merkiþráð hér, prjónið 38-42-45-48-51-57 lykkjur sléttprjón og 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni með kanta að framan eins og áður. Prjónið þar til stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm. Nú byrjar úrtaka fyrir V-HÁLSMÁL – lesið útskýringu að ofan. Haldið áfram í sléttprjóni og kanta að framan, fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli í hvorri hlið í annarri hverri umferð 20-20-21-21-22-22 sinnum í hvorri hlið. Jafnframt þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm skiptist stykkið við handveg eins og útskýrt er að neðan. SKIPTING FYRIR HANDVEG: Í næstu umferð frá réttu skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki þannig – munið eftir úrtöku fyrir v-hálsmáli. Prjónið eins og áður þar til 1-4-5-6-8-12 lykkjur eru eftir að 1. merkiþræði, fellið af næstu 2-8-10-12-16-24 lykkjur fyrir handveg (= hægra framstykki), prjónið yfir næstu 74-76-80-84-86-90 lykkjur eins og áður (= bakstykki) – það eru eftir 1-4-5-6-8-12 lykkjur að 2. merkiþræði, fellið af næstu 2-8-10-12-16-24 lykkjur fyrir handveg, prjónið þær lykkjur sem eftir eru eins og áður (= vinstra framstykki). Nú eru framstykkin og bakstykkið prjónað til loka hvert fyrir sig. FRAMSTYKKI: Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu. Framstykkið er prjónað fram og til baka í sléttprjóni og kantur að framan eins og áður jafnframt því sem lykkjum er fækkað til loka í v-hálsmáli. Þegar úrtaka fyrir v-hálsmáli er lokið, eru 24-25-26-28-28-30 lykkjur á framstykki. Prjónið eins og áður þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Í byrjun næstu umferða frá handveg, fellið af 17-18-19-21-21-23 fyrstu lykkjur þannig að einungis er kantur að framan eftir. Prjónið kant að framan eins og áður áfram í 15-15-15-15-17-17 cm. Fellið af. Prjónið hitt framstykkið á sama hátt. BAKSTYKKI: = 74-76-80-84-86-90 lykkjur. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu. Bakstykkið er prjónað fram og til baka í sléttprjóni eins og áður. Prjónið þar til stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm. Fellið af miðju 36-36-38-38-40-40 lykkjur og prjónið hvora öxl fyrir sig = 19-20-21-23-23-25 lykkjur. Í næstu umferð frá hálsmáli eru felldar af 2 lykkjur fyrir hálsmáli = 17-18-19-21-21-23 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið tölur í vinstri kant að framan. Saumið kanta að framan saman við miðju að aftan og saumið við hálsmál aftan í hnakka. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handveg og niður á við á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Frá réttu eru prjónaðar upp 60-64-68-70-74-76 lykkjur meðfram handveg – byrjið frá botni á handveg. Setjið 1 merki fyrir miðju í umferð = fyrir miðju ofan á öxl – ermin er nú mæld frá þessu merki. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til ermin mælist 1-3-3-4-6-8 cm, þetta mál jafngildir nú dýpt á handvegi á fram- og bakstykki. Nú er prjónað í sléttprjóni hringinn JAFNFRAMT sem sett er 1 merkiþráður í byrjun umferðar (= fyrir miðju undir ermi – hér byrjar umferðin), látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu, hann er notaður þegar fækka á lykkjum fyrir miðju undir ermi. Þegar ermin mælist 3-5-5-6-7-10 cm frá merki ofan á öxl, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 4½-4-3½-3½-3-2½ cm alls 9-10-11-11-12-12 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 43-44-43-43-42-42 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 8-8-8-10-10-10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 50-52-54-58-60-62 lykkjur. Fellið af þegar stroffið mælist 4-4-5-5-6-6 cm. Ermin mælist 47-48-48-48-48-48 cm frá öxl. Saumið opið undir ermi við botninn á handveg. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #snowysparklescardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 259-32
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.