Susanne Behrens skrifaði:
Guten Tag, ich möchte diesen Pulli mit Fabel in der Farbe Kornblumenblau 116 und einem Faden Kid Silk, Ton in Ton stricken. Können Sie mir ein Blauton empfehlen? LG Susanne
28.03.2025 - 16:07DROPS Design svaraði:
Liebe Susanne, dafür wenden Sie sich bitte direkt an Ihren DROPS Händler, sie werden Ihnen gerne die besten passenden Farben empfehlen - auch per Telefon oder per E-Mail. Viel Spaß beim Stricken!
31.03.2025 - 07:27
Emma skrifaði:
Finns detta mönster möjligtvis även i barnstorlekar? Så himla fin tröja! :)
24.03.2025 - 14:38DROPS Design svaraði:
Hej Emma. Nej, exakt detta mönster finns dessvärre inte i barnstorlek, men du hittar alla tröjor till barn här. Om du hittar en liknande modell med samma stickfasthet så kan du alltid byta ut garnet till det vi använt i detta. Mvh DROPS Design
27.03.2025 - 10:38
Signe skrifaði:
Kas see on ikka õige juhend?
13.02.2025 - 15:06
CM skrifaði:
Wildflowers sprinklers sweater og cardigan ser ut til å være avbildet med Fabel print 925, berries & cream. Men i oppskriften står det at man skal bruke farge 924, confetti cake, som også er brukt i Snowy Sparkles. Bør kanskje rettes opp 🙂
11.02.2025 - 10:29
Wildflower Sprinkles#wildflowersprinklessweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Fabel og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með hringlaga berustykki og rúllukanti. Stærð S - XXXL.
DROPS 258-38 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 (= 2 lykkjur fleiri) og A.2 (= 1 lykkja fleiri). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 102 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 29) = 3,5. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir 4. og 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 102-108-112-118-124-130 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði DROPS Fabel og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Skiptið yfir á hringprjón 3 (fitjað er upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 4 umferðir sléttprjón, prjónið síðan 3 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið síðan í sléttprjóni þar til kantur í hálsmáli mælist 4-4-5-5-6-6 cm frá uppfitjunarkanti. Setjið eitt merki eftir fyrstu 34-36-37-39-41-43 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 18-17-23-22-26-30 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 120-125-135-140-150-160 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar berustykkið mælist 4-4-4-4-5-5 cm frá merki, lykkjur eru auknar út með því að prjóna MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan og prjónið þannig: * 2 lykkjur sléttprjón, A.1, 1 lykkja sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 24-25-27-28-30-32 sinnum hringinn á berustykki = 168-175-189-196-210-224 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til berustykkið mælist 8-8-8-9-10-10 cm frá merki. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 3 lykkjur sléttprjón, A.1, 2 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 24-25-27-28-30-32 sinnum hringinn á berustykki = 216-225-243-252-270-288 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til berustykkið mælist 12-13-13-14-15-16 cm frá merki. FINNDU ÞÍNA STÆRÐ: Prjónið síðan mynstur og aukið út mismunandi eftir mismunandi stærðum, prjónaðu eftir þinni stærð að neðan. STÆRÐ S, M og L: Prjónið * 4 lykkjur sléttprjón, A.2, 3 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 24-25-27 sinnum hringinn á berustykki = 240-250-270 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til berustykkið mælist 16-18-18 cm frá merki. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 4 lykkjur sléttprjón, A.2, 4 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 24-25-27 sinnum á berustykki hringinn = 264-275-297 lykkjur. Prjónið síðan frá ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ XL, XXL og XXXL: Prjónið * 4 lykkjur sléttprjón, A.1, 3 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 28-30-32 sinnum hringinn á berustykki = 308-330-352 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til berustykkið mælist 19-20-22 cm frá merki. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 4 lykkjur sléttprjón, A.2, 5 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 28-30-32 sinnum á berustykki hringinn = 336-360-384 lykkjur. Prjónið síðan frá ALLAR STÆRÐIR. ALLAR STÆRÐIR: = 264-275-297-336-360-384 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar berustykkið mælist 18-20-20-21-22-24 cm frá merki er aukið út um 0-13-7-4-0-4 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 264-288-304-340-360-388 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 21-23-24-24-26-28 cm frá merki fyrir miðju að framan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 50-54-58-66-68-70 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 82-90-94-104-112-124 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 50-54-58-66-68-70 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 82-90-94-104-112-124 lykkjur sléttprjón (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 180-196-208-228-248-272 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 42-44-46-46-48-50 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt / 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 30-30-36-36-42-44 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 210-226-244-264-290-316 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5-5-5-6-6-6 cm fellið af. Peysan mælist 47-49-51-52-54-56 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 50-54-58-66-68-70 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 58-62-68-76-80-82 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn - JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3-3-3-2-2-2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkað er um 2 lykkjur í hverjum 3-3-2½-1½-1½-1½ cm alls 3-4-6-9-10-10 sinnum = 52-54-56-58-60-62 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 42-40-39-40-38-36 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið 3 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt / 1 lykkja brugðið). Prjónið síðan 3 umferðir sléttprjón. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 44-42-41-42-40-38 cm frá skiptingunni. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #wildflowersprinklessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 258-38
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.