Giusy skrifaði:
Buongiorno, non riesco a capire. Ho fatto il campione del maglione con i ferri circolari n.5 e, facendo le mie misurazioni ho visto che in larghezza le 17 maglie avviate misurano non 10 cm, ma 8.5 cm e in altezza 22 ferri misurano 8.5 cm. Mi dite per favore quante maglie in più avviare per arrivare a 10 cm? Oppure che numero di ferri usare? Grazie, mi è arrivata la lana e vorrei iniziare il maglione per mio nipote. Spero in una vostra risposta
22.05.2025 - 21:06DROPS Design svaraði:
Buonasera Giusy, deve rifare il campione fino ad utilizzare il numero di ferri che le permette di ottenere il campione indicato. Buon lavoro!
27.05.2025 - 19:31
Giusy skrifaði:
Buongiorno, non riesco a capire. Ho fatto il campione del maglione con i ferri circolari n.5 e, facendo le mie misurazioni ho visto che in larghezza le 17 maglie avviate misurano non 10 cm, ma 8.5 cm e in altezza 22 ferri misurano 8.5 cm. Mi dite per favore quante maglie in più avviare per arrivare a 10 cm? Oppure che numero di ferri usare? Grazie, mi è arrivata la lana e vorrei iniziare il maglione per mio nipote.
22.05.2025 - 10:27DROPS Design svaraði:
Buonasera Giusy, deve rifare il campione fino ad utilizzare il numero di ferri che le permette di ottenere il campione indicato. Buon lavoro!
27.05.2025 - 19:31
Giusy skrifaði:
Buonasera, ho bisogno di un chiarimento. Nel diagramma 1 del maglione le maglie sono un multiplo di 6? Ho fatto il campione e per arrivare a 10 cm devo aumentare 3 maglie e fare 25 ferri. Grazie anticipatamente per la risposta.
18.05.2025 - 19:51DROPS Design svaraði:
Buonasera Giusy, il diagramma A.1 parte con 6 maglie. Se vuole apportare delle modifiche al modello deve ricalcolare le proporzioni. Buon lavoro!
27.05.2025 - 21:35
Sajni skrifaði:
Thankyou very much I made thi s for my grandson
27.01.2025 - 04:44
Marcella skrifaði:
Op de foto bestaat de sneeuwpop neus uit 2 steken. In het patroon staat maar 1 steek aangegeven.
17.11.2024 - 18:41
Elsje skrifaði:
Vertaling klopt niet. Zie bovenaan tip voor het breien. De laatste zin: Gebruik een naald in een maat groter wanneer u in patroon breit en het wordt wat te strak.
10.11.2024 - 10:51
Barbro skrifaði:
Hur får jag fram diagrammet ?
05.11.2024 - 14:58DROPS Design svaraði:
Hej Barbro - tack för info :) Nu ligger diagrammet nederst i opskriften :)
05.11.2024 - 15:03
Snowman Magic#snowmanmagicsweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Nepal. Peysan er prjónuð ofan frá og niður, með hringlaga berustykki, snjókörlum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð 2 – 14 ára. Þema: Jól.
DROPS Children 48-14 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til að reikna út hvernig auka eigi út jafnt yfir í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 68 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 10) = 6,8. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 7. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn - svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þegar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir í eitt númer grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt yfir í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 208 lykkjur) og deilið með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 12) = 17,3. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 16. og 17. hverja lykkju slétt saman. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfaldur að röngu og saumaður niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 64-68-68-72-76-76-80 lykkjur á hringprjón 5 með litnum þoka í DROPS Nepal. Skiptið yfir á sokkaprjóna / hringprjóna 3,5 (fitjað er upp með grófari prjónum til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 7-7-7-9-9-9-9 cm. Síðar á að brjóta kant í hálsmáli inn að röngu og við frágang þá verður tvöfaldur kantur í hálsmáli ca 3-3-3-4-4-4-4 cm. Byrjið umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 21-23-23-24-25-25-27 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 2-4-10-6-8-8-10 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 66-72-78-78-84-84-90 lykkjur. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Prjónið síðan A.1 alls 11-12-13-13-14-14-15 sinnum hringinn á berustykki – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN og MYNSTUR í útskýringu að ofan. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 15-15-15-15-18-18-18 cm frá merki = 176-192-208-208-224-224-240 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með litnum þoka jafnframt því sem í umferð 1 er fækkað um 4-8-12-8-12-4-8 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 = 172-184-196-200-212-220-232. Þegar berustykkið mælist 15-15-16-17-18-19-20 cm frá merki skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 36-38-40-40-42-44-48 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 50-54-58-60-64-66-68 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 36-38-40-40-42-44-48 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 50-54-58-60-64-66-68 lykkjur sléttprjón (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt frá! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 112-120-128-132-140-144-148 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= fyrir miðju í 6 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar héðan og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 15-19-22-24-27-28-29 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 20-20-24-24-24-24-28 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 132-140-152-156-164-168-176 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5-5 cm fellið af. Peysan mælist ca 36-40-44-48-52-54-56 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 36-38-40-40-42-44-48 lykkjur frá ermi af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjóna 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 42-44-46-46-48-50-54 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 3-5-6-7-8-9-8 cm alls 4-4-4-4-4-4-5 sinnum = 34-36-38-38-40-42-44 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 16-21-25-27-31-35-39 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 6-8-6-6-8-6-8 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 40-44-44-44-48-48-52 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5-5 cm fellið af. Ermin mælist ca 20-25-29-32-36-40-44 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #snowmanmagicsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 48-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.