Sharin skrifaði:
Is er een video hoe je de A1 en A2 moet breien in dit patroon? Mij lukt het niet. Is er een andere manier van meerderen die ik eventueel kan gebruiken met hetzelfde resultaat voor het breien van de ‘pas’ voor dit patroon?
14.03.2025 - 18:13DROPS Design svaraði:
Dag Sharin,
Wellicht heb je wat aan deze twee video's: Hoe u 2 steken naar 3 steken meerdert en Hoe u 2 steken meerdert naar 4 steken als u in de rondte breit..
15.04.2025 - 19:53
Sharin skrifaði:
Is er een video hoe je de A1 en A2 moet breien in dit patroon? Mij lukt het niet. Is er een andere manier van meerderen die ik eventueel kan gebruiken met hetzelfde resultaat voor het breien van de ‘pas’ voor dit patroon?
13.03.2025 - 09:55
Sharin skrifaði:
Ik ben bezig met patroon 252-13 en ben bijna klaar met de halsrand. Er staat ‘eindig met een naald op de verkeerde kant ‘ heb ik het goed dat je dan eindigt ‘voordat’ je de averechtse naald gaat breien?
11.03.2025 - 22:54DROPS Design svaraði:
Dag Sharin,
Als er staat 'eindig met een naald op de verkeerde kant', dan is het de bedoeling dat je de laatste naald aan de verkeerde kant hebt gebreid.
12.03.2025 - 10:03
Sharin skrifaði:
Voor dit patroon worden 2 soorten garen gebruikt fabel en kid-slik. Waarom van de fabel 350 gram en van de kid-slik maar 175 gram. Voor patroon brei je met 2 draden van elk dus 1. Daarom dacht ik van beiden evenveel garen nodig te hebben. Met vriendelijke groet,
11.02.2025 - 14:22DROPS Design svaraði:
Dag Sharin,
DROPS Kid-Silk is heel licht in gewicht en heeft een lange looplengte, vandaar dat je er veel minder van nodig hebt.
11.02.2025 - 20:43
Stojanka Strugar-gospavic skrifaði:
How many metars require one jumper size 12 to be made of of kids moher- silk yarn?
22.01.2025 - 16:26DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Strugar-gospavic, it will depend on the tension, pattern, shape etc... to help you find all our jumpers worked with a yarn group A - as DROPS Kid-Silk - that you can work either alone or together with another yarn (use yarn converter if needed) here. Happy knitting!
23.01.2025 - 09:52
Ella skrifaði:
Jag får inte fram något stickdiagram. Enbart en överblick över koftan. Eller ör det diagrammet?
09.11.2024 - 17:19DROPS Design svaraði:
Hej Ella. Precis över måttskissen (överblicken) på koftan så finns 2 små diagram. Mvh DROPS Design
11.11.2024 - 08:02
Marianne De Jonge skrifaði:
Bij het vest winter poem staat 21 steken, bij de winter poem trui 18. Ik denk dat 21 fout is, dit aantal gaat over naald 3, niet over 4,5 waarin het vest, net als de trui, gebreid wordt. Verwarrend...
09.11.2024 - 16:10
Winter Poem Cardigan#winterpoemcardigan |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Fabel og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með hringlaga berustykki, rúllukanti og i-cord. Stærð S - XXXL.
DROPS 252-13 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 10½-11-9½-9½-10-10 cm á milli hverra hnappagata. Nesta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 (= 2 lykkjur fleiri) og A.2 (= 1 lykkja fleiri). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 121 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan (t.d. 14 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 29) = 3,7. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju (ekki er aukið út yfir kantlykkjur að framan). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 111-115-121-125-131-137 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Fabel og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Skiptið yfir á hringprjón 3 (fitjað er upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur) og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): 7 kantlykkjur að framan með I-CORD – lesið útskýringu að ofan, prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan með i-cord. UMFERÐ 2 (= rétta): 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið slétt þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður. UMFERÐ 3 (= ranga): 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður. UMFERÐ 4 (= rétta): 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið slétt þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður. UMFERÐ 5 (= ranga): 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt), prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 7 kantlykkjur að framan eins og áður. UMFERÐ 6 (= rétta): 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 7 kantlykkjur að framan eins og áður. UMFERÐ 7 (= ranga): 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt), prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 7 kantlykkjur að framan eins og áður. EFTIR UMFERÐ 7: Prjónið síðan í sléttprjóni og kant að framan eins og áður þar til kantur í hálsmáli mælist 4-4-4-5-5-5 cm mælt eftir stroff – endið með umferð frá röngu. Setjið eitt merki að innanverðu í kant að framan í annarri hlið á stykki, stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið fyrstu umferð frá réttu með byrjun frá miðju að framan þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið 97-101-107-111-117-123 lykkjur sléttprjón jafnframt sem aukið er út um 24-25-29-30-34-38 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, prjónið kant að framan eins og áður og munið eftir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan = 135-140-150-155-165-175 lykkjur í umferð. Síðan er prjónað sléttprjón og kant að framan. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar berustykkið mælist 4-4-4-5-5-5 cm frá merki, aukið út lykkjur með því að prjóna MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan og prjónið þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, * 2 lykkjur sléttprjón, A.1, 1 lykkja sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 24-25-27-28-30-32 sinnum, prjónið 1 lykkju sléttprjón og kant að framan eins og áður = 183-190-204-211-225-239 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og kant að framan þar til berustykkið mælist 8-8-8-10-10-10 cm frá merki. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, * 3 lykkjur sléttprjón, A.1, 2 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 24-25-27-28-30-32 sinnum, prjónið 1 lykkju sléttprjón og kant að framan eins og áður = 231-240-258-267-285-303 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og kant að framan þar til berustykkið mælist 12-13-13-15-15-16 cm frá merki. FINNDU ÞÍNA STÆRÐ: Síðan er mynstrið prjónað mismunandi eftir stærðum, prjónaðu eftir þinni stærð að neðan. STÆRÐ S, M og L: Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, * 4 lykkjur sléttprjón, A.2, 3 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 24-25-27 sinnum, prjónið 1 lykkju sléttprjón og kant að framan eins og áður = 255-265-285 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og kant að framan þar til berustykkið mælist 16-18-18 cm frá merki. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, * 4 lykkjur sléttprjón, A.2, 4 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 24-25-27 sinnum, prjónið 1 lykkju sléttprjón og kant að framan eins og áður = 279-290-312 lykkjur. Síðan er prjónað frá ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ XL, XXL og XXXL: Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, * 4 lykkjur sléttprjón, A.1, 3 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 28-30-32 sinnum, prjónið 1 lykkju sléttprjón og kant að framan eins og áður = 323-345-367 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og kant að framan þar til berustykkið mælist 20-20-22 cm frá merki. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, * 4 lykkjur sléttprjón, A.2, 5 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 28-30-32 sinnum, prjónið 1 lykkju sléttprjón og kant að framan eins og áður = 351-375-399 lykkjur. Síðan er prjónað frá ALLAR STÆRÐIR. ALLAR STÆRÐIR: = 279-290-312-351-375-399 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og kant að framan. Þegar berustykkið mælist 18-20-20-22-22-24 cm frá merki er aukið út um 0-9-7-0-0-0 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (ekki er aukið út yfir kant að framan) = 279-299-319-351-375-399 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 21-23-24-25-26-28 cm frá merki skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 48-51-54-58-63-68 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 50-54-58-66-68-70 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 83-89-95-103-113-123 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 50-54-58-66-68-70 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 48-51-54-58-63-68 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 195-207-223-239-263-283 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður þar til stykkið mælist 43-45-47-48-49-51 cm frá merki mitt að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT er aukið út um 30-34-34-40-40-46 lykkjur jafnt yfir í umferð (ekki er aukið út yfir kant að framan) = 225-241-257-279-303-329 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukning) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm er fellt af með ítalskri affellingu eða fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 49-51-53-55-56-58 cm frá merki mitt að framan og ca 54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 50-54-58-66-68-70 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 58-62-68-76-80-82 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn í umferð – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3-3-3-3-2-2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 3-2½-2-1½-1½-1½ cm alls 4-5-7-10-11-11 sinnum = 50-52-54-56-58-60 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 44-43-42-42-42-40 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið 3 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið síðan 3 umferðir sléttprjón. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og fellið aðeins laust af. Ermin mælist ca 46-45-44-44-44-42 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterpoemcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 252-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.