Lucia Resenterra skrifaði:
Buonasera ho un dubbio sulle spiegazioni sul modello : INFINITE SWEETNESS. Io calcolo come dietro del maglione la codina di inizio.Voi mi dite che l' inizio del giro è sul dietro della spalla destro. Da dove conto le 48 maglie per mettere il marca punto di inizio giro da dove devo misurare il lavoro? Me lo potete spiegare con un esempio grafico? Voglio capire da dove comincio con gli aumenti e il diagramma del motivo. Grazie aspetto fiduciosa la vs risposta.
21.10.2024 - 21:19DROPS Design svaraði:
Buonasera Lucia, l'inizio del giro è il punto di unione delle maglie iniziali, ed è posizionato sul dietro della spalla destra: può utilizzare un marcapunti per indicarlo. Il segnapunti successivo da cui prendere le misure deve essere posizionato dopo 48 maglie dall'inizio del giro. Buon lavoro!
21.10.2024 - 22:57
Hanne Juel skrifaði:
Hvad betyder krydserne i mønsterdiagrammet? Det er ikke anført.
08.10.2024 - 20:21DROPS Design svaraði:
Hej Hanne. Ser att det är fel symbol i diagramförklaringen, vi ska få rättat det. Krydserne i diagrammen är vrang maske. Mvh DROPS Design
09.10.2024 - 10:03
Birgit skrifaði:
Was heißt in Ihrer Anleitung :\r\nDer Rundenbeginn ist an der rechten Schulter hinten. Ich habe bis jetzt für den Anfang 6cm in Runden gestrickt.\r\nDas Modell von Ihnen heißt Infinite Sweetness.. LG Birgit
03.10.2024 - 08:20DROPS Design svaraði:
Liebe Birgit, dh die Runden beginnen mit dem rechten Ärmel und enden mit Rückenteil, so ist der Rundbeginn am Übergang zwischen Ärmel und Rückenteil. Viel Spaß beim Stricken!
03.10.2024 - 09:59
Gabriele Konietzni skrifaði:
Hallo. Wofür steht das x in den Diagrammen? Vorab danke für die Antwort.
29.09.2024 - 17:03DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Konietzni, Symbol soll hier korrigiert werden, es sollte eine linke Masche sein (= Kreuzchen in den Diagramme); danke für den Hinweis. Viel Spaß beim Stricken!
30.09.2024 - 09:32
Johanne skrifaði:
Porcelain relief
08.08.2024 - 21:50
Infinite Sweetness#infinitesweetnesssweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, áferðamynstri, köðlum og rúllukanti. Stærð S - XXXL.
DROPS 255-24 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 134 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 34) = 3,9. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 4 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 134-140-146-154-160-168 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Baby Merino. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 (fitjað er upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 3 umferðir í sléttprjóni, prjónið síðan 2 umferðir í stroffprjóni (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið síðan sléttprjón þar til kantur í hálsmáli mælist 5-5-6-6-7-7 cm frá uppfitjunarkanti. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 47-48-49-54-56-58 lykkjur í umferð (= ca mitt að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 34-36-38-40-42-46 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 168-176-184-194-202-214 lykkjur. Prjónið síðan í sléttprjóni. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar berustykkið mælist 3-3-3-3-4-4 cm frá merki, aukið út um 40-40-40-42-42-50 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 208-216-224-236-244-264 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til berustykkið mælist 4-5-5-5-6-6 cm frá merki. Prjónið síðan MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, þ.e.a.s. prjónið A.1 alls 52-54-56-59-61-66 sinnum berustykkið hringinn – jafnframt í hverri umferð merktri með ör í A.1 á að auka út lykkju jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Ör-1: Aukið út 24-24-28-32-32-40 lykkjur jafnt yfir = 232-240-252-268-276-304 lykkjur. Ör-2: Aukið út 24-28-32-36-40-44 lykkjur jafnt yfir = 256-268-284-304-316-348 lykkjur. Ör-3: Aukið út 32-32-40-44-56-60 lykkjur jafnt yfir = 288-300-324-348-372-408 lykkjur. Síðan er aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu = 336-350-378-406-434-476 lykkjur í umferð á undan ör-4. Ör-4: Aukið út 24-30-30-38-42-44 lykkjur jafnt yfir = 360-380-408-444-476-520 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.2 alls 90-95-102-111-119-130 sinnum berustykkið hringinn. Haldið svona áfram með mynstur JAFNFRAMT sem í hverri umferð merktri með ör í A.2 eru lykkjur auknar út jafnt yfir þannig: Ör-5: Aukið út 20-24-32-36-36-36 lykkjur jafnt yfir = 380-404-440-480-512-556 lykkjur. Ör-6: Aukið út 8-12-8-20-20-20 lykkjur jafnt yfir = 388-416-448-500-532-576 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina mælist berustykkið ca 19-20-20-23-24-24 cm frá merki. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar berustykkið mælist 20-22-23-23-25-27 cm frá merki mitt að framan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 74-78-86-98-100-106 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 120-130-138-152-166-182 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 74-78-86-98-100-106 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 120-130-138-152-166-182 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 260-280-300-328-360-392 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= mitt í 10-10-12-12-14-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 43-45-47-47-49-51 cm frá merki mitt að framan. Skipti yfir á hringprjón 2,5, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 36-40-44-48-52-58 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 296-320-344-376-412-450 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5 cm er fellt af. Peysan mælist 47-49-51-52-54-56 cm frá merki mitt að framan og ca 52-54-56-58-60-62 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 74-78-86-98-100-106 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 3 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 84-88-98-110-114-120 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 10-10-12-12-14-14 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkað er um 2 lykkjur 3-3-4-5-5-6 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 1½-1½-1-1-1-1 cm alls 7-7-10-14-14-15 sinnum = 64-68-70-72-76-78 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 43-41-41-41-39-38 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 6-6-8-8-8-8 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 70-74-78-80-84-86 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5 cm er fellt af. Ermin mælist ca 47-45-45-46-44-43 cm frá skiptingunni. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #infinitesweetnesssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 255-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.