Ginette Cousineau skrifaði:
Il y a erreur dans ce modèle. Il ne devrait pas y avoir de diagramme A2 ni A4. Le modèle a seulement les diagrammes A1 et A3. Sinon les mesures ne fonctionnent pas. Merci de me répondre et de confirmer ce que je vous ais écrit.
08.01.2025 - 19:51DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Cousineau, les diagrammes A.2 et A.4 ne sont pas à tricoter en plus en hauteur, mais après les diagrammes A.1 et A.3, ils permettent ainsi que les motifs soient symétriques de chaque côté, ils sont tricotés en fin de rang sur l'endroit/début de rang sur l'envers (on les lit alors de gauche à droite). Bon tricot!
10.01.2025 - 10:07
Ritva Aaltonen skrifaði:
Beautifull, calm and light. IT IS Babylove
08.08.2024 - 21:42
Infinite Sweetness Cardigan#infinitesweetnesscardigan |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, áferðamynstri, köðlum, rúllukanti og i-cord. Stærð S - XXXL.
DROPS 255-23 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1 og A.2). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 149 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 14 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 34) = 3,9. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju (lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 4 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 4 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 6-6-6-6-7-7 næstu hnappagötum með ca 7-7½-8-8-7-7½ cm á milli hverra hnappagata. Nesta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 149-153-159-167-173-181 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Baby Merino. Skiptið yfir á hringprjóna 2,5 (fitjað er upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 7 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan, prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan með i-cord – munið eftir útskýringu að ofan. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið slétt þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið kant að framan eins og áður. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið kant að framan eins og áður. UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og prjónið kant að framan eins og áður. UMFERÐ 5 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og prjónið kant að framan eins og áður. EFTIR UMFERÐ 5: Prjónið síðan í sléttprjóni og kant að framan þar til kantur í hálsmáli mælist 5-5-6-6-7-7 cm frá uppfitjunarkanti. Setjið eitt merki að innanverðu í kanti að framan í annarri hliðinni á stykkinu (= mitt að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið fyrstu umferð frá réttu með byrjun frá miðju að framan þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið 135-139-145-153-159-167 lykkjur sléttprjón jafnframt því sem aukið er út um 34-36-38-40-42-46 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, prjónið kant að framan eins og áður = 183-189-197-207-215-227 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón og kant að framan. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar berustykkið mælist 3-3-3-3-4-4 cm frá merki, aukið út um 37-39-39-41-41-49 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 220-228-236-248-256-276 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og kant að framan þar til stykkið mælist 4-5-5-5-6-6 cm frá merki. Nú er prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið A.1 alls 51-53-55-58-60-65 sinnum meðfram berustykki, prjónið A.2, prjónið kant að framan eins og áður. JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1 eru lykkjur auknar út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (ekki er aukið út yfir kanta að framan): Ör-1: Aukið út 24-24-28-32-32-40 lykkjur jafnt yfir = 244-252-264-280-288-316 lykkjur. Ör-2: Aukið út 24-28-32-36-40-44 lykkjur jafnt yfir = 268-280-296-316-328-360 lykkjur. Ör-3: Aukið út 32-32-40-44-56-60 lykkjur jafnt yfir = 298-310-334-358-382-418 lykkjur. Síðan er aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu = 346-360-388-416-444-486 lykkjur í umferð á undan ör-4. Ör-4: Aukið út 22-32-32-36-40-42 lykkjur jafnt yfir = 368-392-420-452-484-528 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið A.3 alls 88-94-101-109-117-128 sinnum, prjónið A.4, prjónið kant að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur – JAFNFRAMT sem í hverri umferð merktri með ör í A.3 eru lykkjur auknar út jafnt yfir þannig: Ör-5: Aukið út 24-24-32-36-36-36 lykkjur jafnt yfir = 392-416-452-488-520-564 lykkjur. Ör-6: Aukið út 10-14-10-26-26-26 lykkjur jafnt yfir = 402-430-462-514-546-590 lykkjur. Þegar A.3 og A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina mælist berustykkið ca 19-20-20-23-24-24 cm frá merki. Prjónið sléttprjón og síðan kant að framan. Þegar berustykkið mælist 20-22-23-23-25-27 cm frá merki mitt að framan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 67-72-76-83-90-98 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 74-78-86-98-100-106 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 120-130-138-152-166-182 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 74-78-86-98-100-106 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 67-72-76-83-90-98 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 274-294-314-342-374-406 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður þar til stykkið mælist 43-45-47-47-49-51 cm frá merki mitt að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT er aukið út um 35-41-45-47-53-57 lykkjur jafnt yfir í umferð (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 309-335-359-389-427-463 lykkjur, prjónað er þannig: Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukning) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5 cm fellið af. Peysan mælist 47-49-51-52-54-56 cm frá merki mitt að framan og ca 52-54-56-58-60-62 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 74-78-86-98-100-106 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 3 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 84-88-98-110-114-120 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 10-10-12-12-14-14 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkað er um 2 lykkjur 3-3-4-5-5-6 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 1½-1½-1-1-1-1 cm alls 7-7-10-14-14-15 sinnum = 64-68-70-72-76-78 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 43-41-41-41-40-38 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 6-6-8-8-8-8 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 70-74-78-80-84-86 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5 cm er fellt af. Ermin mælist ca 47-45-45-46-45-43 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #infinitesweetnesscardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 255-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.