Ayse Coskun skrifaði:
Kære venner, jeg strikker Spring Memories Cardigan (254-14)men jeg har et problem nu! Efter Halskant startede jeg Bærestykke - jeg skal strikke den første knaphul - jeg kunne ikke gøre den selvom jeg har læst forklaringen mange gange under KNAPHUL. I-Cord Forkant gav lidt besværlighed!
08.02.2025 - 17:36DROPS Design svaraði:
Hej, når du har 5 masker tilbage på forkanten, lav 1 omslag, strik 2 ret sammen 1 ret, tag 1 maske løst af pinden 1 ret. På næste pind strikker du omslaget ret og de andre masker som før :)
12.02.2025 - 14:40
Eva Vestergaard Holm skrifaði:
I skriver at når man strikker ret fra retsiden og vrang på vrangsiden så bliver det til glatstrik. Det er jeg enig i, men det er ikke det der står i opskriften. der står strik 1 maske ret. I bør rette opskriften i det afsnit der hedder forkant med i-cord. så der står 1 maske glatstrik.
24.10.2024 - 08:56DROPS Design svaraði:
Hej Eva, det er ikke glatstrik, kantmasken som hører til I-cord kanten strikkes ret både fra retsiden og fra vrangen. Se her: I-cord kant frem og tilbage
24.10.2024 - 09:21
Eva Vestergaard Holm skrifaði:
Hej når jeg sammenligner den norske og danske opskrift står der forskellige instruktioner når det gælder forkanten med icord. Den danske oversættelse er forvirrende, for der skriver man retstrik (ret på både ret og vrangsiden) og ret.. (ret på retsiden og vrang på vrangsiden) på Norsk bruger man rillestrik og retstrik. Det giver meget bedre mening. Dog vil jeg foreslå at man bruger rillestrik og glatstrik. Det er mindre forvirrende.
24.10.2024 - 08:32DROPS Design svaraði:
Hej Eva, når man strikker ret på hver pind og altså både fra retsiden og fra vrangen så hedder det retstrik på dansk. Når man strikker ret fra retsiden og vrang fra vrangen så bliver det til glatstrik :)
24.10.2024 - 08:38
Annica skrifaði:
Varför är det så många mönster till tröjor/koftor med rundstickade ok eller har raglanärm? Halsringningen dras ut, plagget blir lätt formlöst och sitter inte bra, koftors knäppningar veckar sig. Alla har inte axlar för denna typ av konstruktion. Var har hänt med isydda ärmar? Jag menar inte oversize med nedhasade axlar utan väl skräddade kläder.
12.09.2024 - 19:36
Aurora skrifaði:
Le printemps
11.08.2024 - 08:36
Madelaine skrifaði:
Porcelain cardigan
09.08.2024 - 19:21
Spring Memories Cardigan#springmemoriescardigan |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Daisy eða DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, norrænu mynstri og tvöföldum kanti í hálsmáli og i-cord. Stærð S - XXXL.
DROPS 254-14 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 116 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 14 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d.15) = 6,8. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 7. hverja lykkju (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 9-9-8-8-8½-9 cm milli hnappagata. Neðsta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við og fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við. Kantur í hálsmáli er brotinn saman tvöfaldur að röngu og saumaður niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 104-108-112-116-120-124 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Daisy í litnum marsipan eða DROPS Karisma í litnum ljós beige. Skiptið yfir á hringprjón 3 (fitjað er upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt og 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka. Þegar kantur í hálsmáli mælist 4 cm, fitjið upp 6 nýjar lykkjur í lok 2 næstu umferða = 116-120-124-128-132-136 lykkjur. Haldið áfram með stroff eins og áður, en ystu 7 lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar eins og KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Prjónið þar til kantur í hálsmáli mælist 9 cm – endið eftir eina umferð frá röngu. Síðar er kantur í hálsmáli brotinn tvöfaldur og við frágang verður kantur í hálsmáli ca 4 cm. Setjið eitt merki innan við kant að framan í annarri hliðinni á stykkinu, stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið fyrstu umferð frá réttu með byrjun frá miðju að framan þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið 102-106-110-114-118-122 lykkjur sléttprjón jafnframt sem aukið er út um 15-17-16-19-21-23 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, prjónið kant að framan eins og áður – munið eftir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan = 131-137-140-147-153-159 lykkjur í umferð. Prjónið síðan í sléttprjóni og kant að framan. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar berustykkið mælist 3-3-4-4-4-4 cm frá merki, aukið út um 30-34-33-37-43-45 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) = 161-171-173-184-196-204 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og kant að framan þar til stykkið mælist 5-6-7-8-9-9 cm frá merki. Í næstu umferð frá réttu er prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður í litnum marsipan/ljós beige, prjónið A.1 yfir næstu 147-157-159-170-182-190 lykkjur JAFNFRAMT er aukið út um 46-48-52-59-65-69 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið fyrstu lykkju í A.1, prjónið kant að framan eins og áður í litnum marsipan/ljós beige = 207-219-225-243-261-273 lykkjur (nú er pláss fyrir 32-34-35-38-41-43 mynstureiningar með A.1 eftir þessa útaukningu). Haldið svona áfram með mynstur – JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1 er lykkjum aukið út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan): Ör-1: Aukið út 48-60-54-60-66-78 lykkjur jafnt yfir = 255-279-279-303-327-351 lykkjur. Ör-2: Aukið út 48-48-60-60-66-72 lykkjur jafnt yfir = 303-327-339-363-393-423 lykkjur. Ör-3: Aukið út 38-26-38-50-56-50 lykkjur jafnt yfir (þegar mynstrið er prjónað endar það með 3 fyrstu lykkjum í A.1, þannig að mynstrið verði alveg eins í hvorri hlið) = 341-353-377-413-449-473 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið 1 umferð þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 344-360-384-412-448-472 lykkjur. Síðan er peysan prjónuð til loka með litnum marsipan/ljós beige. Prjónið þar til berustykkið mælist 23-24-25-26-28-30 cm frá merki mitt að framan. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 58-61-64-68-75-80 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 62-64-70-76-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-12-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 104-110-116-124-138-148 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 62-64-70-76-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-12-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 58-61-64-68-75-80 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 232-248-264-284-312-336 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður þar til stykkið mælist 45-47-49-49-51-53 cm frá merki mitt að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 24-24-28-28-32-36 lykkjur jafnt yfir í umferð (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 256-272-292-312-344-372 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið – munið eftir útaukningu) þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af. Peysan mælist 51-53-55-56-58-60 cm frá merki mitt að framan og ca 56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 62-64-70-76-80-82 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-8-10-12-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-72-80-88-92-96 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-8-10-12-12-14 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn með litnum marsipan/ljós beige, JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3-3-3-2-2-2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkað er um 2 lykkjur í hverjum 8-8-4-3-2½-2 cm alls 5-5-8-11-12-13 sinnum = 58-62-64-66-68-70 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 38-38-37-36-35-33 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 6-6-4-6-8-6 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 64-68-68-72-76-76 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af. Ermin mælist ca 44-44-43-43-42-40 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að framan í kanti að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #springmemoriescardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 254-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.