Ginny skrifaði:
What size does the model wear in the photo?
07.09.2024 - 18:56DROPS Design svaraði:
Dear Ginny, our model usually wears an M size. Happy knitting!
08.09.2024 - 19:31
Lisa skrifaði:
Cosy
10.08.2024 - 13:18
Stimla skrifaði:
Enjoyably
10.08.2024 - 11:39
Lisette skrifaði:
Bookish cardigan
10.08.2024 - 07:06
Petra skrifaði:
Komfortabel
09.08.2024 - 14:57
Uta skrifaði:
Wunderschön besticht mit Schlichtheit.
09.08.2024 - 08:35
Jesse skrifaði:
Cosy
09.08.2024 - 00:21
Frosty Dream Cardigan#frostydreamcardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð síð / oversize peysa úr 1 þræði DROPS Fabel, 1 þræði DROPS Kid-Silk og 1 þræði DROPS Alpaca Bouclé. Prjónuð ofan frá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, v-hálsmáli, I-cord og vösum. Stærð S - XXXL.
DROPS 252-22 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: RÉTTA: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt og 9-9-9-10-10-10 lykkjur í garðaprjóni. RANGA: Prjónið 9-9-9-10-10-10 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki og prjónið 1 lykkju slétt. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: RÉTTA: Prjónið 9-9-9-10-10-10 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki og prjónið 1 lykkju slétt. RANGA: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt og 9-9-9-10-10-10 lykkjur í garðaprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu ca 1 cm á eftir síðustu útaukningu fyrir v-hálsmáli. Fellið síðan af fyrir 3-3-3-4-4-4 næstu hnappagötum með ca 10½-11-11-9-9-9½ cm á milli hverra hnappagata. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Byrjað er á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er bakstykkið látið bíða og framstykkin eru prjónuð. Á framstykkjum er fyrst prjónaður listi í kanti að framan sem saumaður er saman meðfram hnakka í frágangi í lokin, síðan er framstykkið prjónað með því að prjónaðar eru upp lykkjur meðfram annarri öxlinni á bakstykki. Prjónið niður á við að handvegi JAFNFRAMT því sem lykkjur eru auknar út að hálsmáli. Endurtakið á hinni öxlinni. Við handveginn eru framstykkin og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við fram og til baka á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Listi í kanti að framan frá hvoru framstykki er saumaður saman, saumur = mitt að aftan, saumið lista í kanti að framan við lykkjur í kringum hálsmáli. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 20-20-22-22-24-24 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði DROPS Fabel, 1 þræði DROPS Kid-Silk og 1 þræði DROPS Alpaca Bouclé (= 3 þræðir). UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur brugðið. EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 9-10-10-11-11-11 sinnum (= 18-20-20-22-22-22 prjónaðar umferðir), á eftir síðustu útaukningu eru = 56-60-62-66-68-68 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki yst í hlið. Héðan er nú stykkið mælt! Prjónið síðan í sléttprjóni - Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu – þar til stykkið mælist 11-12-10-10-9-8 cm mælt frá merki yst meðfram handvegi. Nú er lykkjum aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-3-5-5-7-8 sinnum (= 6-6-10-10-14-16 prjónaðar umferðir) = 62-66-72-76-82-84 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 15-16-17-17-18-19 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi, endið með eina umferð frá réttu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstri kantur að framan prjónaður og vinstra framstykki meðfram vinstri öxl frá bakstykki – lesið útskýringu að neðan. VINSTRI LISTI Í KANTI AÐ FRAMAN: Fitjið upp 11-11-11-12-12-12 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði í hvorri tegund (= 3 þræðir). Prjónið VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Haldið áfram þar til listi í kanti að framan mælist 8-8-9-9-10-10 cm, endið með umferð frá röngu, prjónið síðan eins og útskýrt er að neðan á vinstra framstykki. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur af þræði/hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að öxl þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið fyrst 11-11-11-12-12-12 lykkjur frá lista í kanti að framan, prjónið síðan upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (prjónaðar eru upp 18-20-20-22-22-22 lykkjur frá bakstykki) = 29-31-31-34-34-34 lykkjur. Öll mál á lengdina eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 11-11-11-12-12-12 lykkjur eru eftir, prjónið 11-11-11-12-12-12 kantlykkjur að framan eins og áður. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 11-11-11-12-12-12 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 11-11-11-12-12-12 lykkjur eru eftir, prjónið 11-11-11-12-12-12 kantlykkjur að framan eins og áður. Prjónið UMFERÐ 3 og 4 þar til stykkið mælist 6-6-7-7-7-7 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Nú á að fækka lykkjum í sjálfum kanti að framan, auka út fyrir v-hálsmáli, jafnframt því sem einnig er aukið út í hlið við handveg. Útaukning í hlið byrjar áður en útaukning fyrir V-hálsmáli er lokið, lestu því alla næstu 3 kafla áður en þú prjónar áfram, til að fá betri yfirsýn yfir hvernær útaukning fyrir handveg byrjar. ÚRTAKA Í KANTI AÐ FRAMAN: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið fyrstu 2 lykkjur í kanti að framan eins og áður, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið afgang af kantlykkjum að framan eins og áður, aukið út fyrir v-hálsmáli eins og útskýrt er að neðan og prjónið afgang af framstykki eins og áður (= 1 lykkja færri). Endurtakið þessa umferð í hverjum 7-7-7-6-6-6 cm alls 3-3-3-4-4-4 sinnum, þ.e.a.s. kantur að framan nær frá 11-11-11-12-12-12 lykkjum til 8 lykkja í öllum stærðum. ÚTAUKNING FYRIR V-HÁLSMÁLI: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið kant að framan eins og áður, aukið út 1 lykkju til vinstri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið fram að kanti að framan, prjónið kant að framan eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-4-5-5-6-6 sinnum (= 8-8-10-10-12-12 prjónaðar umferðir). Aukið síðan út þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið kant að framan eins og áður, aukið út 1 lykkju til vinstri – lesið ÚTAUKNING-1 og prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið fram að kanti að framan, prjónið kant að framan eins og áður. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið fram að kanti að framan, prjónið kant að framan eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 4 alls 4-4-4-4-4-4 sinnum (= 20-20-20-20-20-20 prjónaðar umferðir). Aukið síðan út þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið kant að framan eins og áður, aukið út 1 lykkju til vinstri – lesið ÚTAUKNING-1 og prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið fram að kanti að framan, prjónið kant að framan eins og áður. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið fram að kanti að framan, prjónið kant að framan eins og áður. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið brugðið fram að kanti að framan, prjónið kant að framan eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 til 6 alls 2-2-2-2-2-2 sinnum (= 12-12-12-12-12-12 prjónaðar umferðir). Nú hefur verið aukið út alls 10-10-11-11-12-12 sinnum fyrir V-hálsmáli. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og kantlykkjur að framan (ATH: Síðasta útaukning fyrir v-hálsmáli er gerð eftir að framstykkin og bakstykkið er sett saman eins og útskýrt er neðar í mynstri). ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: Þegar stykkið mælist 23-24-22-24-23-22 cm (frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp), aukið út í hlið við handveg þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið fram að kanti að framan, prjónið kant að framan eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-3-5-5-7-8 sinnum (= 6-6-10-10-14-16 prjónaðar umferðir). Prjónið síðan þar til stykkið mælist 27-28-29-31-32-33 cm, mælt frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp efst á framstykki, endið með eina umferð frá réttu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægri kantur að framan prjónaður og hægra framstykki meðfram hægri öxl frá bakstykki – lesið útskýringu að neðan. HÆGRI LISTI Í KANTI AÐ FRAMAN: Fitjið upp 11-11-11-12-12-12 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði í hvorri tegund (= 3 þræðir). Prjónið HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Haldið áfram þar til listi í kanti að framan mælist 8-8-9-9-10-10 cm, endið með umferð frá röngu. Klippið þráðinn og setjið lykkjur á hjálparprjón, það á síðan a prjóna áfram yfir lista í kanti að framan þegar lykkjur eru prjónaðar upp fyrir hægra framstykki. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (prjónaðar eru upp 18-20-20-22-22-22 lykkjur frá bakstykki), prjónið síðan inn 11-11-11-12-12-12 lykkjur frá lista í kanti að framan í umferð = 29-31-31-34-34-34 lykkjur í umferð. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 11-11-11-12-12-12 lykkjur frá kanti að framan eins og áður, prjónið brugðið út umferðina. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið slétt þar til eftir eru 11-11-11-12-12-12 lykkjur, prjónið 11-11-11-12-12-12 kantlykkjur að framan eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til stykkið mælist 6-6-7-7-7-7 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Nú á að fækka lykkjum í sjálfum kanti að framan, auka út fyrir v-hálsmáli, jafnframt því sem einnig er aukið út í hlið við handveg, lestu því alla næstu 3 kafla áður en þú prjónar áfram, til að fá yfirlit yfir hvernær útaukning fyrir handveg byrjar. ÚRTAKA Í KANTI AÐ FRAMAN: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir við miðju að framan, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman, prjónið síðustu 2 lykkjur eins og áður (= 1 lykkja færri). Endurtakið þetta í hverjum 7-7-7-6-6-6 cm alls 3-3-3-4-4-4 sinnum, þ.e.a.s. kantur að framan næst frá 11-11-11-12-12-12 lykkjur til 8 lykkjur í öllum stærðum. ÚTAUKNING FYRIR V-HÁLSMÁLI: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt fram að kanti að framan, aukið út 1 lykkju til hægri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið kant að framan eins og áður. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið brugðið út umferðina. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-4-5-5-6-6 sinnum (= 8-8-10-10-12-12 prjónaðar umferðir). Aukið síðan út þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt að kanti að framan, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið kant að framan eins og áður. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið brugðið út umferðina. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt að kanti að framan, prjónið kant að framan eins og áður. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið brugðið út umferðina. Prjónið UMFERÐ 1 og 4 alls 4-4-4-4-4-4 sinnum (= 20-20-20-20-20-20 prjónaðar umferðir). Aukið síðan út þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt fram að kanti að framan, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið kant að framan eins og áður. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið brugðið út umferðina. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt fram að kanti að framan, prjónið kant að framan eins og áður. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið brugðið út umferðina. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið slétta fram að kanti að framan, prjónið kant að framan eins og áður. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið brugðið út umferðina. Prjónið UMFERÐ 1 til 6 alls 2-2-2-2-2-2 sinnum (= 12-12-12-12-12-12 prjónaðar umferðir). Nú hefur verið aukið út alls 10-10-11-11-12-12 sinnum fyrir V-hálsmáli. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og kantlykkjum að framan (ATH: Síðasta útaukning er gerð eftir að framstykkin og bakstykkið er sett saman eins og útskýrt er neðar í mynstri). ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: Þegar stykkið mælist 23-24-22-24-23-22 cm (frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp), aukið út í hlið við handveg þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur, aukið út um 1 lykkju til vinstri – munið eftir ÚTAUKNING-1, prjónið slétt fram að kanti að framan, prjónið kant að framan eins og áður. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið brugðið út umferðina. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-3-5-5-7-8 sinnum (= 6-6-10-10-14-16 prjónaðar umferðir). Prjónið síðan þar til stykkið mælist 27-28-29-31-32-33 cm, mælt frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp efst á framstykki, endið með eina umferð frá réttu. Nú eru framstykkin og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu – byrjið með lykkjur yfir hægra framstykki og prjónið umferðina þannig: Prjónið lykkjur frá hægra framstykki eins og áður, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur í lok umferðar (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 62-66-72-76-82-84 lykkjur frá bakstykki eins og áður, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur (= í hlið mitt undir ermi), prjónið lykkjur frá vinstra framstykki eins og áður. Héðan er nú stykkið mælt! Prjónið fram og til baka frá miðju að framan yfir allar lykkjur í sléttprjóni og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir v-hálsmáli í hvorri hlið eins og áður. Þegar útaukning fyrir v-hálsmáli er lokið, eru 152-160-172-184-196-204 lykkjur í umferð – munið eftir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan. Prjónið þar til stykkið mælist 14-15-16-16-17-18 cm frá handveg. Nú á að gera op fyrir vasa. VASAOP: Jafnframt sem næsta umferð er prjónuð, er op fyrir vasa gert þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið 6-8-8-10-10-12 lykkjur sléttprjón, setjið næstu 22-22-24-24-26-26 lykkjur á þráð fyrir vasa, fitjið upp 22-22-24-24-26-26 nýjar lykkjur í umferð, prjónið sléttprjón þar til eftir eru 36-38-40-42-44-46 lykkjur í umferð, setjið næstu 22-22-24-24-26-26 lykkjur á þráð fyrir vasa, fitjið upp 22-22-24-24-26-26 nýjar lykkjur í umferð, prjónið 6-8-8-10-10-12 lykkjur sléttprjón og kant að framan eins og áður = 152-160-172-184-196-204 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón og kant að framan eins og áður, en þær 22-22-24-24-26-26 lykkjur sem fitjaðar voru upp yfir hvoru vasaopi, eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan. Þegar prjónaðar hafa verið alls 6 umferðir í garðaprjón á hæðina yfir vasa, prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur (kantur að framan er prjónaður eins og áður). Prjónið þar til stykkið mælist 38-39-40-39-40-41 cm frá handvegi. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT er aukið út um 42-46-46-50-54-58 lykkjur jafnt yfir í umferð (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 194-206-218-234-250-262 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið – munið eftir útaukning) þar til 10 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 8-8-8-9-9-9 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Framstykkið mælist 73-75-77-79-81-83 cm mælt frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, framstykkið er ca 3 cm lengra en loka mál þar sem kantur þar sem lykkjur voru prjónaðar upp eru ekki mitt ofan á öxl, heldur aðeins niður á bakstykki, peysan mælist 70-72-74-76-78-80 cm. VASAR: Setjið 22-22-24-24-26-26 lykkjur af þræði á hringprjón 8 og prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 þræði í hvorri tegund (= 3 þræðir) í 24-24-24-23-23-23 cm, eða þar til vasinn nær niður þar sem stroffið byrjar á fram- og bakstykki – endið eftir eina umferð frá röngu. Fellið af. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handvegi og niður á við. Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = mitt ofan á öxl (ATH! Mitt ofan á öxl er ekki á sama stað þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki heldur ca 6 til 7 cm niður á framstykki). Prjónið upp lykkjur í kringum handveg, notið hringprjón 6 og byrjið mitt í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi og prjónið upp 48-50-54-58-62-66 lykkjur – stillið af að prjónaðar séu upp jafn margar lykkjur hvoru megin við merki. Skiptið yfir á hringprjón 8. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpu til að ermin fái betra form og passi betur, umferðin byrjar mitt undir ermi þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3-3-4-4-5-5 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 3-3-4-4-5-5 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 2-2-3-3-2-2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 2-2-3-3-2-2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4. Prjónið þar til snúið hefur verið við alls 14-14-14-16-16-20 sinnum (= 7-7-7-8-8-10 sinnum í hvorri hlið og síðasta umferð er prjónuð frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er prjónuð þá endar umferðin með því að snúa stykkinu, síðan er prjónað frá réttu í byrjun umferðar (mitt undir ermi). Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi, það á að nota hann þegar lykkjum er fækkað undir ermi. Látið síðan merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. Nú er prjónað í hring í sléttprjóni yfir allar lykkjur JAFNFRAMT er lykkjum fækkað undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Þegar ermin mælist 1 cm mælt mitt undir ermi er fækkað um 2 lykkjur 3-3-5-5-7-7 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 3-3-3-2-2-1½ cm alls 5-6-5-7-6-7 sinnum = 32-32-34-34-36-38 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 42-42-42-40-40-41 cm frá öxl. Skiptið yfir á sokkaprjóna 6 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 8-8-6-10-8-10 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 40-40-40-44-44-48 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 48-48-48-47-47-48 cm frá miðju ofan á öxl. FRÁGANGUR: Listi í kanti að framan frá hvoru framstykki er saumaður saman – saumur = miðja að aftan, saumið síðan listann við lykkjur aftan í hnakka. Saumið tölur í vinstri kant að framan. Saumið vasana niður í hvorri hlið með lausu spori. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #frostydreamcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 252-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.