DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Fabel yarn
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 682.00 kr /50g
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Product image DROPS Alpaca Bouclé yarn
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 1122.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 16742.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Frosty Dream Cardigan

Prjónuð síð / oversize peysa úr 1 þræði DROPS Fabel, 1 þræði DROPS Kid-Silk og 1 þræði DROPS Alpaca Bouclé. Prjónuð ofan frá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, v-hálsmáli, I-cord og vösum. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 252-22

#frostydreamcardigan

DROPS Design: Mynstur fa-554
Garnflokkur A + A + C eða E
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS FABEL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-250-250-300-300-350 gr litur 913, vetur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-125-125-150-150-175 gr litur 44, tunglskin
Og notið:
DROPS ALPACA BOUCLÉ frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
350-400-400-450-500-550 gr litur 0100, natur

TÖLUR:
DROPS TALA NR 538: 4-4-4-5-5-5 stykki.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 6: Lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hverri tegund (= 3 þræðir) með prjóna nr 8 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 682.00 kr /50g
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Product image DROPS Alpaca Bouclé yarn
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 1122.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 16742.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD:
RÉTTA:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt og 9-9-9-10-10-10 lykkjur í garðaprjóni.
RANGA:
Prjónið 9-9-9-10-10-10 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki og prjónið 1 lykkju slétt.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD:
RÉTTA:
Prjónið 9-9-9-10-10-10 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki og prjónið 1 lykkju slétt.
RANGA:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt og 9-9-9-10-10-10 lykkjur í garðaprjóni.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1:
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2:
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann.
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu ca 1 cm á eftir síðustu útaukningu fyrir v-hálsmáli. Fellið síðan af fyrir 3-3-3-4-4-4 næstu hnappagötum með ca 10½-11-11-9-9-9½ cm á milli hverra hnappagata.

LEIÐBEININGAR PRJÓN:
Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig:
Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum).
Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf.
Byrjað er á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er bakstykkið látið bíða og framstykkin eru prjónuð.
Á framstykkjum er fyrst prjónaður listi í kanti að framan sem saumaður er saman meðfram hnakka í frágangi í lokin, síðan er framstykkið prjónað með því að prjónaðar eru upp lykkjur meðfram annarri öxlinni á bakstykki.
Prjónið niður á við að handvegi JAFNFRAMT því sem lykkjur eru auknar út að hálsmáli. Endurtakið á hinni öxlinni. Við handveginn eru framstykkin og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við fram og til baka á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring.
Listi í kanti að framan frá hvoru framstykki er saumaður saman, saumur = mitt að aftan, saumið lista í kanti að framan við lykkjur í kringum hálsmáli.

BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 20-20-22-22-24-24 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði DROPS Fabel, 1 þræði DROPS Kid-Silk og 1 þræði DROPS Alpaca Bouclé (= 3 þræðir).
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið.
UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt.
UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur brugðið.
EFTIR UMFERÐ 3:
Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 9-10-10-11-11-11 sinnum (= 18-20-20-22-22-22 prjónaðar umferðir), á eftir síðustu útaukningu eru = 56-60-62-66-68-68 lykkjur í umferð.
Setjið 1 merki yst í hlið. Héðan er nú stykkið mælt!
Prjónið síðan í sléttprjóni - Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu – þar til stykkið mælist 11-12-10-10-9-8 cm mælt frá merki yst meðfram handvegi. Nú er lykkjum aukið út í hvorri hlið fyrir handveg.

ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG:
UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-3-5-5-7-8 sinnum (= 6-6-10-10-14-16 prjónaðar umferðir) = 62-66-72-76-82-84 lykkjur í umferð.
Prjónið síðan þar til stykkið mælist 15-16-17-17-18-19 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi, endið með eina umferð frá réttu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstri kantur að framan prjónaður og vinstra framstykki meðfram vinstri öxl frá bakstykki – lesið útskýringu að neðan.

VINSTRI LISTI Í KANTI AÐ FRAMAN:
Fitjið upp 11-11-11-12-12-12 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði í hvorri tegund (= 3 þræðir).
Prjónið VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Haldið áfram þar til listi í kanti að framan mælist 8-8-9-9-10-10 cm, endið með umferð frá röngu, prjónið síðan eins og útskýrt er að neðan á vinstra framstykki.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur af þræði/hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl.
Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að öxl þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið fyrst 11-11-11-12-12-12 lykkjur frá lista í kanti að framan, prjónið síðan upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (prjónaðar eru upp 18-20-20-22-22-22 lykkjur frá bakstykki) = 29-31-31-34-34-34 lykkjur.
Öll mál á lengdina eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 11-11-11-12-12-12 lykkjur eru eftir, prjónið 11-11-11-12-12-12 kantlykkjur að framan eins og áður.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 11-11-11-12-12-12 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið slétt út umferðina.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 11-11-11-12-12-12 lykkjur eru eftir, prjónið 11-11-11-12-12-12 kantlykkjur að framan eins og áður.
Prjónið UMFERÐ 3 og 4 þar til stykkið mælist 6-6-7-7-7-7 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Nú á að fækka lykkjum í sjálfum kanti að framan, auka út fyrir v-hálsmáli, jafnframt því sem einnig er aukið út í hlið við handveg. Útaukning í hlið byrjar áður en útaukning fyrir V-hálsmáli er lokið, lestu því alla næstu 3 kafla áður en þú prjónar áfram, til að fá betri yfirsýn yfir hvernær útaukning fyrir handveg byrjar.

ÚRTAKA Í KANTI AÐ FRAMAN:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið fyrstu 2 lykkjur í kanti að framan eins og áður, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið afgang af kantlykkjum að framan eins og áður, aukið út fyrir v-hálsmáli eins og útskýrt er að neðan og prjónið afgang af framstykki eins og áður (= 1 lykkja færri).
Endurtakið þessa umferð í hverjum 7-7-7-6-6-6 cm alls 3-3-3-4-4-4 sinnum, þ.e.a.s. kantur að framan nær frá 11-11-11-12-12-12 lykkjum til 8 lykkja í öllum stærðum.

ÚTAUKNING FYRIR V-HÁLSMÁLI:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið kant að framan eins og áður, aukið út 1 lykkju til vinstri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið slétt út umferðina.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið fram að kanti að framan, prjónið kant að framan eins og áður.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-4-5-5-6-6 sinnum (= 8-8-10-10-12-12 prjónaðar umferðir).
Aukið síðan út þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið kant að framan eins og áður, aukið út 1 lykkju til vinstri – lesið ÚTAUKNING-1 og prjónið slétt út umferðina.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið fram að kanti að framan, prjónið kant að framan eins og áður.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið slétt út umferðina.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið fram að kanti að framan, prjónið kant að framan eins og áður.
Prjónið UMFERÐ 1 og 4 alls 4-4-4-4-4-4 sinnum (= 20-20-20-20-20-20 prjónaðar umferðir).
Aukið síðan út þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið kant að framan eins og áður, aukið út 1 lykkju til vinstri – lesið ÚTAUKNING-1 og prjónið slétt út umferðina.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið fram að kanti að framan, prjónið kant að framan eins og áður.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið slétt út umferðina.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið fram að kanti að framan, prjónið kant að framan eins og áður.
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið slétt út umferðina.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið brugðið fram að kanti að framan, prjónið kant að framan eins og áður.
Prjónið UMFERÐ 1 til 6 alls 2-2-2-2-2-2 sinnum (= 12-12-12-12-12-12 prjónaðar umferðir).
Nú hefur verið aukið út alls 10-10-11-11-12-12 sinnum fyrir V-hálsmáli. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og kantlykkjur að framan (ATH: Síðasta útaukning fyrir v-hálsmáli er gerð eftir að framstykkin og bakstykkið er sett saman eins og útskýrt er neðar í mynstri).

ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG:
Þegar stykkið mælist 23-24-22-24-23-22 cm (frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp), aukið út í hlið við handveg þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, 3 lykkjur slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið fram að kanti að framan, prjónið kant að framan eins og áður.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-3-5-5-7-8 sinnum (= 6-6-10-10-14-16 prjónaðar umferðir).
Prjónið síðan þar til stykkið mælist 27-28-29-31-32-33 cm, mælt frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp efst á framstykki, endið með eina umferð frá réttu.
Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægri kantur að framan prjónaður og hægra framstykki meðfram hægri öxl frá bakstykki – lesið útskýringu að neðan.

HÆGRI LISTI Í KANTI AÐ FRAMAN:
Fitjið upp 11-11-11-12-12-12 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði í hvorri tegund (= 3 þræðir).
Prjónið HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Haldið áfram þar til listi í kanti að framan mælist 8-8-9-9-10-10 cm, endið með umferð frá röngu. Klippið þráðinn og setjið lykkjur á hjálparprjón, það á síðan a prjóna áfram yfir lista í kanti að framan þegar lykkjur eru prjónaðar upp fyrir hægra framstykki.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig:
Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (prjónaðar eru upp 18-20-20-22-22-22 lykkjur frá bakstykki), prjónið síðan inn 11-11-11-12-12-12 lykkjur frá lista í kanti að framan í umferð = 29-31-31-34-34-34 lykkjur í umferð.
Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp.
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 11-11-11-12-12-12 lykkjur frá kanti að framan eins og áður, prjónið brugðið út umferðina.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið slétt þar til eftir eru 11-11-11-12-12-12 lykkjur, prjónið 11-11-11-12-12-12 kantlykkjur að framan eins og áður.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til stykkið mælist 6-6-7-7-7-7 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Nú á að fækka lykkjum í sjálfum kanti að framan, auka út fyrir v-hálsmáli, jafnframt því sem einnig er aukið út í hlið við handveg, lestu því alla næstu 3 kafla áður en þú prjónar áfram, til að fá yfirlit yfir hvernær útaukning fyrir handveg byrjar.

ÚRTAKA Í KANTI AÐ FRAMAN:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir við miðju að framan, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman, prjónið síðustu 2 lykkjur eins og áður (= 1 lykkja færri). Endurtakið þetta í hverjum 7-7-7-6-6-6 cm alls 3-3-3-4-4-4 sinnum, þ.e.a.s. kantur að framan næst frá 11-11-11-12-12-12 lykkjur til 8 lykkjur í öllum stærðum.

ÚTAUKNING FYRIR V-HÁLSMÁLI:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt fram að kanti að framan, aukið út 1 lykkju til hægri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið kant að framan eins og áður.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið brugðið út umferðina.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-4-5-5-6-6 sinnum (= 8-8-10-10-12-12 prjónaðar umferðir).
Aukið síðan út þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt að kanti að framan, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið kant að framan eins og áður.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið brugðið út umferðina.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt að kanti að framan, prjónið kant að framan eins og áður.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið brugðið út umferðina.
Prjónið UMFERÐ 1 og 4 alls 4-4-4-4-4-4 sinnum (= 20-20-20-20-20-20 prjónaðar umferðir).
Aukið síðan út þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt fram að kanti að framan, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið kant að framan eins og áður.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið brugðið út umferðina.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt fram að kanti að framan, prjónið kant að framan eins og áður.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið brugðið út umferðina.
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið slétta fram að kanti að framan, prjónið kant að framan eins og áður.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið brugðið út umferðina.
Prjónið UMFERÐ 1 til 6 alls 2-2-2-2-2-2 sinnum (= 12-12-12-12-12-12 prjónaðar umferðir).
Nú hefur verið aukið út alls 10-10-11-11-12-12 sinnum fyrir V-hálsmáli. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og kantlykkjum að framan (ATH: Síðasta útaukning er gerð eftir að framstykkin og bakstykkið er sett saman eins og útskýrt er neðar í mynstri).

ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG:
Þegar stykkið mælist 23-24-22-24-23-22 cm (frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp), aukið út í hlið við handveg þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur, aukið út um 1 lykkju til vinstri – munið eftir ÚTAUKNING-1, prjónið slétt fram að kanti að framan, prjónið kant að framan eins og áður.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið brugðið út umferðina.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-3-5-5-7-8 sinnum (= 6-6-10-10-14-16 prjónaðar umferðir).
Prjónið síðan þar til stykkið mælist 27-28-29-31-32-33 cm, mælt frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp efst á framstykki, endið með eina umferð frá réttu.
Nú eru framstykkin og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu – byrjið með lykkjur yfir hægra framstykki og prjónið umferðina þannig:
Prjónið lykkjur frá hægra framstykki eins og áður, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur í lok umferðar (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 62-66-72-76-82-84 lykkjur frá bakstykki eins og áður, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur (= í hlið mitt undir ermi), prjónið lykkjur frá vinstra framstykki eins og áður.
Héðan er nú stykkið mælt!
Prjónið fram og til baka frá miðju að framan yfir allar lykkjur í sléttprjóni og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir v-hálsmáli í hvorri hlið eins og áður.
Þegar útaukning fyrir v-hálsmáli er lokið, eru 152-160-172-184-196-204 lykkjur í umferð – munið eftir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan.
Prjónið þar til stykkið mælist 14-15-16-16-17-18 cm frá handveg. Nú á að gera op fyrir vasa.

VASAOP:
Jafnframt sem næsta umferð er prjónuð, er op fyrir vasa gert þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið 6-8-8-10-10-12 lykkjur sléttprjón, setjið næstu 22-22-24-24-26-26 lykkjur á þráð fyrir vasa, fitjið upp 22-22-24-24-26-26 nýjar lykkjur í umferð, prjónið sléttprjón þar til eftir eru 36-38-40-42-44-46 lykkjur í umferð, setjið næstu 22-22-24-24-26-26 lykkjur á þráð fyrir vasa, fitjið upp 22-22-24-24-26-26 nýjar lykkjur í umferð, prjónið 6-8-8-10-10-12 lykkjur sléttprjón og kant að framan eins og áður = 152-160-172-184-196-204 lykkjur.
Prjónið síðan sléttprjón og kant að framan eins og áður, en þær 22-22-24-24-26-26 lykkjur sem fitjaðar voru upp yfir hvoru vasaopi, eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan.
Þegar prjónaðar hafa verið alls 6 umferðir í garðaprjón á hæðina yfir vasa, prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur (kantur að framan er prjónaður eins og áður). Prjónið þar til stykkið mælist 38-39-40-39-40-41 cm frá handvegi.
Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT er aukið út um 42-46-46-50-54-58 lykkjur jafnt yfir í umferð (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 194-206-218-234-250-262 lykkjur, prjónið þannig:
Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið – munið eftir útaukning) þar til 10 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og kant að framan eins og áður.
Þegar stroffið mælist 8-8-8-9-9-9 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Framstykkið mælist 73-75-77-79-81-83 cm mælt frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, framstykkið er ca 3 cm lengra en loka mál þar sem kantur þar sem lykkjur voru prjónaðar upp eru ekki mitt ofan á öxl, heldur aðeins niður á bakstykki, peysan mælist 70-72-74-76-78-80 cm.

VASAR:
Setjið 22-22-24-24-26-26 lykkjur af þræði á hringprjón 8 og prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 þræði í hvorri tegund (= 3 þræðir) í 24-24-24-23-23-23 cm, eða þar til vasinn nær niður þar sem stroffið byrjar á fram- og bakstykki – endið eftir eina umferð frá röngu. Fellið af.

ERMAR:
Ermin er prjónuð frá handvegi og niður á við.
Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = mitt ofan á öxl (ATH! Mitt ofan á öxl er ekki á sama stað þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki heldur ca 6 til 7 cm niður á framstykki).
Prjónið upp lykkjur í kringum handveg, notið hringprjón 6 og byrjið mitt í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi og prjónið upp 48-50-54-58-62-66 lykkjur – stillið af að prjónaðar séu upp jafn margar lykkjur hvoru megin við merki. Skiptið yfir á hringprjón 8.
Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpu til að ermin fái betra form og passi betur, umferðin byrjar mitt undir ermi þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3-3-4-4-5-5 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 3-3-4-4-5-5 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 2-2-3-3-2-2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 2-2-3-3-2-2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu.
Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4.
Prjónið þar til snúið hefur verið við alls 14-14-14-16-16-20 sinnum (= 7-7-7-8-8-10 sinnum í hvorri hlið og síðasta umferð er prjónuð frá röngu).

Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ:
Í síðasta skipti sem umferð 4 er prjónuð þá endar umferðin með því að snúa stykkinu, síðan er prjónað frá réttu í byrjun umferðar (mitt undir ermi).
Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi, það á að nota hann þegar lykkjum er fækkað undir ermi. Látið síðan merkiþráðinn fylgja með í stykkinu.
Nú er prjónað í hring í sléttprjóni yfir allar lykkjur JAFNFRAMT er lykkjum fækkað undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig:
Þegar ermin mælist 1 cm mælt mitt undir ermi er fækkað um 2 lykkjur 3-3-5-5-7-7 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 3-3-3-2-2-1½ cm alls 5-6-5-7-6-7 sinnum = 32-32-34-34-36-38 lykkjur í umferð.
Prjónið síðan þar til ermin mælist 42-42-42-40-40-41 cm frá öxl.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 6 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 8-8-6-10-8-10 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 40-40-40-44-44-48 lykkjur.
Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Ermin mælist ca 48-48-48-47-47-48 cm frá miðju ofan á öxl.

FRÁGANGUR:
Listi í kanti að framan frá hvoru framstykki er saumaður saman – saumur = miðja að aftan, saumið síðan listann við lykkjur aftan í hnakka.
Saumið tölur í vinstri kant að framan.
Saumið vasana niður í hvorri hlið með lausu spori.

Mynstur

Diagram measurements for DROPS 252-22

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #frostydreamcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 252-22

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Lea skrifaði:

Hello, \r\nI have trouble understanding the increases for the armholes. It says: ROW 1 (right side): Knit 3, increase 1 stitch towards the left - remember INCREASE TIP-1, knit as far as the band, work the band as before. But this doesn’t make sense, seeing as the row starts on the I band on the right side and ends on the I band on the wrong side … there must be à mistake. Could someone clarify this for me please

24.04.2025 - 19:42

DROPS Design svaraði:

Dear Lea, on the left front piece you will increase for armhole at the end of a row from the right side when 3 sts remain before end of the row, but on the right front piece you will increase at the end of a row from the right side just before band stitches. Can this help? Happy knitting!

25.04.2025 - 07:38

country flag Raunier Jean Luc skrifaði:

Bonjour, Comprends pas les explications pour les manches il y a t il une vidéo ou mieux m expliquer Merci

23.02.2025 - 11:27

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mr Raunier, cette vidéo devrait être celle qu'il vous faut. Pour la technique des rangs raccourcis utilisée ici, c'est cette vidéo. Bon tricot!

24.02.2025 - 09:07

country flag Jean Luc Raunier skrifaði:

Bonjour \r\nPour la diminution de la bordure et l augmentation de l encolure doit t on le faire en même temps ou l un après l autre\r\nMerci

15.01.2025 - 06:48

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mr Raunier, les diminutions de la bordure devant commencent en même temps que les augmentations pour l'encolure V, mais elles se font à une fréquence différente - tous les 7-6 cm pour les diminutions de la bordure devant et 4 à 6 fois tous les 2 rangs, 4 fois tous les 4 rangs et 2 fois tous les 6 rangs pour l'encolure. Bon tricot!

15.01.2025 - 09:39

country flag Jean Luc Raunier skrifaði:

Un question pour rassembler le dos au devant on doit positionner le dos comment endroit au dessus ou au dessous car si on met l endroit en dessous

07.01.2025 - 07:21

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mr Raunier, le rang qui réunit les devants et le dos va se faire sur l'envers: vous tricotez d'abord les mailles du devant droit, puis vous montez les mailles pour le côté, vous tricotez les mailles en attente du dos, vous montez les mailles du côté et vous terminez par les mailles du devant gauche - dans cette leçon, nous montrons (pour un pull) comment tricoter cette partie DOS & DEVANT, la seule différence par rapport à la veste, c'est que les rangs commencent ici au milieu du devant par le devant droit (sur l'envers). Bon tricot!

07.01.2025 - 09:55

country flag Jean Luc Raunier skrifaði:

Bonjour je ne comprends pas comment comment fixe la bordure devant icord au dos car j ai la parti tricoter de bordure devant de 8 cm qui reste non rattaché Merci de votre aide

02.01.2025 - 17:04

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mr Raunier, pour le devant gauche, tricotez d'abord les mailles de la bordure devant comme avant puis relevez les mailles le long de l'épaule gauche du dos (cf vidéo ou leçon) et tricotez comme comme indiqué. Pour le devant droit, vous tricotez d'abord la bordure devant, vous coupez le fil, puis vous relevez les mailles le long de l'épaule droite du dos et vous terminez, sur l'endroit par les mailles de la bordure du devant droit. Bon tricot!

03.01.2025 - 07:46

country flag Cecilia skrifaði:

Har fastnat i upptagning av maskor till ärmen. Ska jag börja plocka upp i armhålan,sen bara ha 48maskor runt hela?har markerat på axeln. Eller hur jag förstår inte hur jag stickar armen?hoppas ni kan förklara. Jättemysig kofta så vill få till armen med.

17.11.2024 - 19:06

DROPS Design svaraði:

Hej Cecilia. Jag tror att denna video kan hjälpa dig att förstå hur du ska göra. Mvh DROPS Design

20.11.2024 - 14:14

country flag Suzanne skrifaði:

Wanneer moet je nou beginnen met het meerderen voor de V-hals? Volgens het patroon voor links, tegelijk met het minderen voor de voorbies en voor rechts na het minderen voor de voorbies. Dan worden de voorpanden toch ongelijk...

23.09.2024 - 21:52

DROPS Design svaraði:

Dag Suzanne,

Voor beide voorpanden geldt dat de meerderingen voor het armsgat al beginnen voordat de meerderingen voor de hals klaar zijn. De beide panden zijn gespiegeld van elkaar. Voor het armsgat meerder je ook op eenzelfde hoogte voor beide panden.

25.09.2024 - 08:22

country flag Camilla skrifaði:

In the pattern, there are instructions for Icord in the back. but checking the pictures I can't understand where it should be done, after making the increases for the armhole.

21.09.2024 - 16:51

DROPS Design svaraði:

Dear Camilla, the I-cord is worked in the left and right bands, which serve as the starting point for the front pieces, before picking up stitches from the shoulders in the back piece. These bands are later sewn together in the mid-back. Happy knitting!

23.09.2024 - 00:49

country flag Giada skrifaði:

I have troubles in understanding how to pickup stitches on the left shoulder. There is something like a video tutorial which can help me?? I don't know how to go on from this point on because I've done the Left Band with the I-CORD but i don't understand how to attach it. many thanks

12.09.2024 - 10:18

DROPS Design svaraði:

Sure Gloria, in this video as well as in this lesson we show how to pick up the stitches for the shoulder on such a pattern. Find even more videos/lessons for European shoulders under both tabs Videos/Lessons. Happy knitting!

13.09.2024 - 08:02

country flag Lisa Bergmann skrifaði:

Das ist toll , eine super Sache

08.09.2024 - 07:27