Marie Fraiteur skrifaði:
Bonjour, Le raglan est censé se faire différemment pour les manches et pour le dos et les devants - mais à quels endroits précis augmente-t-on tous les 2 ou les 4 rangs, vu que chaque augmentation touche à la fois une manche et un devant ou le dos ?
04.02.2025 - 16:04DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Fraiteur, quand on augmente alternativement pour les devants & le dos tous les 2 rangs et partout (comme avant) pour les manches, vous allez augmenter - comme avant 1 maille avant/après le fil marqueur - les 4 mailles ainsi: avant le 1er marqueur (devant gauche), après le 2ème marqueur et avant le 3ème marqueur (dos) et après le 4ème marqueur (devant droit), quand vous augmentez 8 mailles, augmentez comme avant de chaque côté des 2 mailles avec le fil marqueur entre elles. Bon tricot!
04.02.2025 - 16:16
Sisi skrifaði:
Det står i oppskriften: "Etter siste økning er det 256-260-284-300-320-336 masker på pinnen, og arbeidet måler ca 22-22-25-25-28-30 cm fra merket etter halskanten. Strikk videre uten å øke til arbeidet måler 22-23-25-25-28-30 cm fra merket midt foran. Nå deles bærestykket til bol og ermer." Vil det si at det ikke skal strikkes lengre etter økning bortsett fra i den nest minste størrelsen?
29.01.2025 - 12:36DROPS Design svaraði:
Hei Sisi. Ja, det stemmer. I str. M strikkes det ca 1 cm til. mvh DROPS Design
03.02.2025 - 11:13
Kiki skrifaði:
Kan dit patroon gemaakt worden met verkorte toeren aan de achterkant? En als dat het geval is, hoe dan?
15.09.2024 - 15:06DROPS Design svaraði:
Dag Kiki,
We hebben daar geen speciale instructie voor per maat, maar je zou bij een vergelijkbaar patroon kunnen kijken met raglan en dezelfde garendikte om een idee te krijgen hoe je dit kunt doen.
17.09.2024 - 20:40
Midnight Glow Cardigan#midnightglowcardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, rúllukanti og i-cord. Stærð S - XXXL.
DROPS 254-40 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 4-5-5-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 10-9-9½-9½-10-10 cm á milli hverra hnappagata. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan. Á UNDAN MERKIÞRÆÐI: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR MERKIÞRÆÐI: Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 180 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 14 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 20) = 8,3. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 8. hverja lykkju (ekki er aukið út yfir kanta að framan). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn - svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við og fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 96-100-100-120-120-124 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Nepal. Skiptið yfir á hringprjón 4 (fitjað er upp með grófari prjónum til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur) og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 7 kantlykkjur að framan með I-CORD – lesið útskýringu að ofan, prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð og prjónið 7 kantlykkjur að framan með I-cord. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 7 kantlykkjur að framan með I-cord, prjónið slétt þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð og prjónið 7 kantlykkjur að framan með I-cord. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið 7 kantlykkjur að framan með I-cord, prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð og prjónið 7 kantlykkjur að framan með I-cord. UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið 7 kantlykkjur að framan með I-cord, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og prjónið 7 kantlykkjur að framan með I-cord. UMFERÐ 5 (= ranga): Prjónið 7 kantlykkjur að framan með I-cord, prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og prjónið 7 kantlykkjur að framan með I-cord. Haldið svona áfram með stroff þar til kantur í hálsmáli mælist ca 6-6-6-7-7-7 cm og síðasta umferð er prjónuð frá röngu. Setjið eitt merki að innanverðu í kant að framan í annarri hliðinni á stykki (= fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú eru settir 4 merkiþræðir í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkiþræðirnir eru settir á milli 2 lykkja slétt frá stroffi, þessar lykkjur kallast nú fyrir laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni. Teljið 20-20-20-24-24-24 lykkjur og setjið 1. merkiþráðinn á undan næstu lykkju, teljið 16-16-16-20-20-20 lykkjur (= ermi), setjið 2. merkiþráðinn á undan næstu lykkju, teljið 24-28-28-32-32-36 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. merkiþráðinn á undan næstu lykkju, teljið 16-16-16-20-20-20 lykkjur (= ermi), setjið 4. merkiþráðinn á undan næstu lykkju, það eru eftir 20-20-20-24-24-24 lykkjur (= framstykki). Munið eftir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið sléttprjón fram og til baka með kant að framan eins og áður jafnframt sem aukið er út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan, þ.e.a.s. aukið er út fyrir laskalínu á undan/á eftir 2 lykkjur í sléttprjóni við hvern merkiþráð í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma í annarri hverri umferð alls 8-8-11-9-7-7 sinnum = 160-164-188-192-176-180 lykkjur (= 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Síðan heldur útaukningin áfram þannig: Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð á framstykki og bakstykki, en á ermum er nú einungis aukið út í 4. hverri umferð (= til skiptis 4 og 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð), endurtakið þessa útaukningu alls 16-16-16-18-24-26 sinnum á framstykki og bakstykki og 8-8-8-9-12-13 sinnum á ermum. Á eftir síðustu útaukningu eru 256-260-284-300-320-336 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 22-22-25-25-28-30 cm frá merki eftir kant í hálsmáli. Prjónið síðan án þess að auka út þar til stykkið mælist 22-23-25-25-28-30 cm frá merki mitt að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 44-44-47-51-55-57 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 48-48-54-56-58-60 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-14-18-20-22 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 72-76-82-86-94-102 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 48-48-54-56-58-60 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-14-18-20-22 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 44-44-47-51-55-57 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 180-188-204-224-244-260 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður þar til stykkið mælist 44-46-48-48-50-52 cm frá merki mitt að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT er aukið út um 20-20-24-24-28-28 lykkjur jafnt yfir í umferð – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 200-208-228-248-272-288 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið – munið eftir útaukningu) þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm prjónið 4 umferðir sléttprjón. Fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Peysan mælist 51-53-55-56-58-60 cm frá merki mitt að framan og ca 56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 48-48-54-56-58-60 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-12-14-18-20-22 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 58-60-68-74-78-82 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 10-12-14-18-20-22 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn í umferð – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, er lykkjum fækkað mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 7-7-4-3-2½-2 cm alls 5-5-8-10-11-12 sinnum = 48-50-52-54-56-58 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 39-39-38-36-34-32 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 4-6-4-6-4-6 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 52-56-56-60-60-64 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm eru prjónaðar 4 umferðir sléttprjón. Fellið af aðeins laust með garðaprjóni. Ermin mælist ca 46-46-45-44-42-40 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #midnightglowcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 254-40
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.