Ingrid skrifaði:
Betrifft Ärmel: Wenn beim Rippenmuster abgenommen werden soll, wieso sind dann plötzlich mehr Maschen auf der Nadel als zuvor? Habe ich da einen Denkfehler? Ich habe 54 Maschen auf der Nadel, dann soll ich insgesamt 10 Maschen abnehmen und habe dann 64 Maschen ? Oder soll zugenommen werden?
12.11.2024 - 22:12DROPS Design svaraði:
Liebe Ingrid, bei den Ärmeln soll man zunehmen anstatt abnehmen, da man mehr Maschen für Bündchen mit kleineren Maschen als für Glattrechts mit grösseren Nadeln braucht; deutsche Anleitung wird angepasst, danke für den Hinweis. Viel Spaß beim Stricken!
13.11.2024 - 07:57
Marta skrifaði:
Northern Sun
11.08.2024 - 20:59
Monica H Kristiansen skrifaði:
Amazing
08.08.2024 - 20:10
Alexandra Marshall skrifaði:
Dominoes
08.08.2024 - 16:52
Sun Wreath#sunwreathsweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, norrænu mynstri og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 255-13 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 86 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 18) = 4,8. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfaldur að röngu og saumaður niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 86-92-96-100-102-106 lykkjur á hringprjón 5 með litnum gulur í DROPS Air. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 (fitjað er upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið sléttprjón þar til kantur í hálsmáli mælist 4-4-4-5-5-5 cm. Prjónið 1 umferð brugðið (= uppábrot). Skiptið yfir í litinn hveiti og prjónið sléttprjón þar til kantur í hálsmáli mælist 8-8-8-10-10-10 cm frá uppfitjunarkanti. Byrjun á umferð er við hægri öxl að aftan. Setið 1 merki eftir fyrstu 30-32-33-35-35-36 lykkjur í umferð (= ca mitt að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 18-20-24-28-30-32 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 104-112-120-128-132-138 lykkjur. Prjónið síðan í sléttprjóni. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar berustykkið mælist 3-3-4-4-4-4 cm frá merki, aukið út um 32-34-40-40-48-56 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 136-146-160-168-180-194 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til berustykkið mælist 6-7-8-8-9-9 cm frá merki. Nú er prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, þ.e.a.s. prjónið A.1 berustykkið hringinn jafnframt því sem aukið er út um 34-34-40-42-50-56 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 170-180-200-210-230-250 lykkjur (það er pláss fyrir 17-18-20-21-23-25 mynstureiningar með A.1 á eftir þessari útaukningu). Haldið áfram með mynstur – JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1 á að auka út lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Ör-1: Aukið út 38-40-44-46-50-58 lykkjur jafnt yfir = 208-220-244-256-280-308 lykkjur. Ör-2: Aukið út 36-40-44-48-52-52 lykkjur jafnt yfir = 244-260-288-304-332-360 lykkjur. Ör-3: Aukið út 12-12-12-12-12-12 lykkjur jafnt yfir = 256-272-300-316-344-372 lykkjur. Prjónið þar til berustykkið mælist 21-23-24-24-26-28 cm frá merki mitt að framan (allar útaukningar verða að vera lokið og að minnsta kosti 5 umferðir skulu prjónaðar eftir síðustu útaukningsumferð). Mynstrið er ekki lokið, mynstrið er nú prjónað áfram á fram- og bakstykki og ermum. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 48-50-56-60-64-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-12-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 80-86-94-98-108-118 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 48-50-56-60-64-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-12-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 80-86-94-98-108-118 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig og byrjun á umferð er í skiptingunni á milli fram- og bakstykki og ermi. Klippið þráðinn. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 176-188-204-220-240-260 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= mitt í 8-8-8-12-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Byrjið umferð við merki og prjónið í hring, þ.e.a.s. haldið áfram með mynstur frá berustykki – mynsturbekkurinn sem heldur áfram frá berustykki kemur ekki til með að ganga jafnt upp í hlið undir ermum, en prjónið mynstur eins langt og hægt er inn að hvorri hlið undir ermum. Næsti mynsturbekkur kemur til með að ganga jafnt upp. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið síðan sléttprjón með litnum hveiti þar til stykkið mælist 45-47-49-49-51-53 cm frá merki mitt að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3,5, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 32-32-36-40-44-44 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 208-220-240-260-284-304 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af. Peysan mælist 51-53-55-56-58-60 cm frá merki mitt að framan og ca 56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 48-50-56-60-64-68 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-12-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 56-58-64-72-76-80 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-8-8-12-12-12 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Haldið áfram með mynstur frá berustykki – mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp mitt undir ermi, en prjónið mynstrið eins langt og hægt er að miðju undir ermi – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3-3-3-2-2-2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkað er um 2 lykkjur í hverjum 3-3-2-1½-1-1 cm alls 4-4-6-10-11-12 sinnum = 48-50-52-52-54-56 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 40-38-37-38-37-35 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 8-10-8-12-10-12 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 56-60-60-64-64-68 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af. Ermin mælist ca 46-44-43-45-44-42 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sunwreathsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 255-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.