Françoise LELARGE skrifaði:
Bonjour, Pour se modèle puis-je prendre la laine alpaca à la place de daisy Merci bonne journée
04.09.2024 - 15:03DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Lelarge, DROPS Alpaca appartient au groupe A et DROPS Daisy au groupe B, on ne peut pas remplacer ici Daisy par Alpaca, utilisez le convertisseur pour voir les alternatives possibles à DROPS Daisy et la quantité correspondante. Bon tricot!
05.09.2024 - 09:02
Novella skrifaði:
Pink Spike
11.08.2024 - 23:20
Linda skrifaði:
Lilac dreams
09.08.2024 - 23:15
Helga Elínborg Auðunsdóttir skrifaði:
Flétta
08.08.2024 - 22:27
Veela skrifaði:
Lilja / Lily
08.08.2024 - 13:39
Kasia skrifaði:
Piękny!
08.08.2024 - 12:37
Tetiana skrifaði:
Wzór nie jest trudny, ale przepiękny
08.08.2024 - 11:41
Tetiana skrifaði:
Piękny swetryk
08.08.2024 - 11:39
Twilight Trail#twilighttrailsweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Daisy og DROPS Kid-Silk eða DROPS Merino Extra Fine og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, gatamynstri og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð XS - XXL.
DROPS 255-12 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALÍNU: Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALÍNU: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfaldur að röngu og saumaður niður. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 90-96-102-102-108-114 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði DROPS Daisy og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir), eða 1 þræði DROPS Merino Extra Fine og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Skiptið yfir á hringprjón 4 (fitjað er upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt / 2 lykkjur brugðið) í 9 cm. Síðar er kantur í hálsmáli brotinn inn að röngu og við frágang verður kantur í hálsmáli ca 4 cm. Byrjun á umferð er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 30-32-33-33-35-36 lykkjur í umferð (= ca mitt að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju og þessar lykkjur kallast nú fyrir laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni. Setjið 1. merki í fyrstu lykkju, teljið 14 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 29-32-35-35-38-41 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 14 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru 29-32-35-35-38-41 lykkjur eftir síðasta merki (= bakstykki). Í næstu umferð er prjónað MYNSTUR, prjónið þannig: Prjónið 1 laskalykkju, prjónið 14 lykkjur slétt (= ermi), prjónið 1 laskalykkju, prjónið 1-3-4-4-6-7 lykkjur slétt jafnframt sem fækkað er um 0-1-0-0-1-0 lykkjur jafnt yfir þær (= 1-2-4-4-5-7 lykkjur), setjið 1 merkiþráð í umferð, prjónið A.1 (= 27 lykkjur), setjið 1 merkiþráð í umferð, prjónið 1-2-4-4-5-7 lykkjur slétt (= framstykki), prjónið 1 laskalykkju, prjónið 14 lykkjur slétt (= ermi), prjónið 1 laskalykkju (= ermi), prjónið 29-32-35-35-38-41 lykkjur slétt (= bakstykki). Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Prjónið sléttprjón hringinn A.1 er endurtekið á milli merkiþráð á framstykki og aukið JAFNFRAMT út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 merkin – lesið útskýringu að ofan. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 16-19-20-22-22-22 sinnum = 218-247-262-278-283-290 lykkjur (= 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). Útaukning fyrir ermar er nú lokið, en haldið áfram að auka út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki í annarri hverri umferð 3-1-1-1-2-4 sinnum til viðbótar = 230-251-266-282-291-306 lykkjur í umferð (= 4 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). Prjónið síðan án þess að auka út þar til stykkið mælist 20-21-23-24-25-27 cm frá merki eftir kanti í hálsmáli. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 1 lykkju (= tilheyrir bakstykki), setjið næstu 46-52-54-58-58-58 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-12-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 69-73-79-83-87-95 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 46-52-54-58-58-58 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-12-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 68-73-78-82-87-94 lykkjur sléttprjón (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 154-163-178-190-207-226 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= mitt í 8-8-10-12-16-18 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón og A.1 eins og áður þar til stykkið mælist 41-44-46-47-49-51 cm frá merki mitt að framan. Skiptið yfir á hringprjón 4, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 17-20-23-23-27-29 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 171-183-201-213-234-255 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5 cm fellið af aðeins laust. Peysan mælist 45-48-50-52-54-56 cm frá merki mitt að framan og ca 49-52-54-56-58-60 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 46-52-54-58-58-58 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-12-16-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-60-64-70-74-76 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-8-10-12-16-18 nýjar lykkjur undir ermi – byrjun á umferð er við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn á prjóni – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið lLEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 9-5-4-2½-2-2 cm alls 4-7-8-11-12-12 sinnum = 46-46-48-48-50-52 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 35-34-32-31-30-28 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 8-8-9-9-10-11 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 54-54-57-57-60-63 lykkjur. Þegar stroffið mælist 8-8-8-9-9-9 cm fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 43-42-40-40-39-37 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #twilighttrailsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 255-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.