Linda Gilkes skrifaði:
When picking up the stitches for the sleeves (size L), I can only get 100 stitches instead of 116. I pick up one stitch from each edge stitch. Will my arm hole be too small? In the sleeve cap, do you go all around the sleeve edging each time or just stay up top sleeve?
23.05.2025 - 17:02DROPS Design svaraði:
Dear Linda, you need to pick up 58 sts in total per armhole; just make sure that you have the same number of stitches on each side of the marker (so 29 on each side). You shouldn't pick up 1 stitch in each stitch, so you should skip some stitches evenly to ensure to have 29 stitches per armhole. Happy knitting!
25.05.2025 - 22:49
Lene Teppel skrifaði:
Er det muligt at strikke denne model i Drops air og brushed alpaca? og i så fald hvad er garn forbruget? på forhånd mange tak for tilbagemelding. mvh Lene Teppel
04.05.2025 - 18:50DROPS Design svaraði:
Hei Lena. Ja, men da kan du bare bruke 2 farger. Bruk vår garnkalkulator å regne om hvor mye garn du trenger. Til høyre for bildene eller under bildene: Garnforbruk ved alternativt garn – Bruk vår garnkalkulator her. mvh DROPS Design
05.05.2025 - 14:15
Simona skrifaði:
Ciao. Nella sezione "DAVANTI (destro e sinistro)", quando dice "Lavorare a maglia rasata in piano fino a quando il lavoro misura 22-23-25-25-27-28 cm" da dove misuro? Dal primo ferro lavorato unendo i due davanti? Grazie per i vostri preziosi consigli.
27.04.2025 - 00:18DROPS Design svaraði:
Buongiorno Simona, se non diversamente indicato, le misure vanno prese dall'inizio del lavoro. Buon lavoro!
01.06.2025 - 15:47
Simona skrifaði:
Ciao. Dopo aver unito i davanti e lavorato in piano, prima dell' aumento per gli scalfi, da dove misuro i 25 cm del lavoro? Inoltre, posso riprendere le maglie per le maniche senza lavorare short rows o il risultato non è gradevole? Grazie
24.04.2025 - 19:09DROPS Design svaraði:
Buonasera Simona, quali sono i 25 cm a cui fa riferimento? Buon lavoro!
25.04.2025 - 18:29
Bora skrifaði:
Awesome
05.02.2025 - 17:31
De Vrieze Gilberte skrifaði:
Minder breimodellen met rondbreinldn
04.02.2025 - 10:06
Maja skrifaði:
Hei, Hvilke farger på Drops kid silk er det som er brukt på bildene? Det står limonade på siden, men det kan vel ikke stemme?
01.02.2025 - 21:52DROPS Design svaraði:
Hei Maja, Du bruker 1 tråd i hver farge, slik at limonade er bare 1 farge blant de 4. Blandingen av farger gir effekten du ser på bildet. God fornøyelse!
03.02.2025 - 07:21
Angèle skrifaði:
Hoeveel bollen heb ik nodig voor maat S m.v.g. Angèle.
23.01.2025 - 12:14DROPS Design svaraði:
Dag Angèle,
Bovenaan bij de materialenlijst staat per maat aangegeven hoeveel gram je nodig hebt. (Het eerste getal geldt voor maat S, het tweede getal voor maat M, enzovoort). 1 bol weegt meestal 50 gram, maar let erop dat dit per garensoort verschillend kan zijn. Dus als er bijvoorbeeld 400 gram staat dan zou je 8 bollen nodig hebben als 1 bol 50 gram weegt.
23.01.2025 - 20:41
Guadalupe skrifaði:
Me encanta el patron y las lanas drops
18.01.2025 - 07:00
Eline skrifaði:
Do you have this in English? I don't think that the translation is ok. About the sleeve: Als de mouw 1 cm meet (gemeten midden onder de mouw), minder dan 2 steken midden onder de mouw – lees TIP VOOR HET MINDEREN, minder om de naald 3 keer, minder dan minder iedere 18-18-12-8-6-5 cm 2-2-3-3-4-5 keer in totaal = 42-44-46-48-50-52 steken op de naald. Thanks Eline
13.01.2025 - 22:30DROPS Design svaraði:
Dag Eline,
De beschrijving van het minderen onder de mouw liep inderdaad niet helemaal goed. Het is nu aangepast en hopelijk is het nu duidelijk.
14.01.2025 - 07:25
Pink Melody#pinkmelodysweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 4 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl. Stærð S - XXXL.
DROPS 255-6 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjið á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til lykkjufjöldi fyrir axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið smá skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er hægt að láta bakstykkið bíða á meðan framstykkið er prjónað. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 stykkjum. Byrjið á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, samtímis sem aukið er út við hálsmál. Endurtakið á hinni öxlinni. Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukningu er lokið fyrir hálsmáli. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Nú er framstykkið og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 26-26-28-30-30-30 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði í hvorum lit með DROPS Kid-Silk. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur brugðið. Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 9-10-11-11-12-14 sinnum, á eftir síðustu útaukningu eru = 62-66-72-74-78-86 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er nú stykkið mælt frá! Prjónið síðan í sléttprjóni - Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu – þar til stykkið mælist 12-13-13-13-13-14 cm mælt frá merki yst meðfram handvegi. Nú er lykkjum aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-2-2-3-3-3 sinnum = 66-70-76-80-84-92 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 15-16-16-17-17-18 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi, endið með eina umferð frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að öxl þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju = 18-20-22-22-24-28 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 9 cm, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4 sinnum = 22-24-26-26-28-32 lykkjur, (næsta umferð sem er prjónuð á að vera frá réttu). Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykkið prjónað meðfram hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru prjónaðar upp lykkjur meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Prjónið upp 1 lykkjur í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 18-20-22-22-24-28 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 9 cm, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4 sinnum = 22-24-26-26-28-32 lykkjur (= næsta umferð sem er prjónuð á að vera frá réttu). Síðan eru framstykkin sett saman – lesið útskýringu að neðan. FRAMSTYKKI (hægra og vinstra stykki sett saman): Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 22-24-26-26-28-32 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 18-18-20-22-22-22 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið síðan 22-24-26-26-28-32 lykkjur frá vinstra framstykki = 62-66-72-74-78-86 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 22-23-25-25-27-28 cm. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-2-2-3-3-3 sinnum = 66-70-76-80-84-92 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 25-26-28-29-31-32 cm, endið á umferð frá röngu. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. Stykkið er nú mælt héðan! FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 66-70-76-80-84-92 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 2-2-2-2-6-6 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (= í hlið mitt undir ermi), prjónið síðan 66-70-76-80-84-92 lykkjur frá bakstykki og fitjið upp 2-2-2-2-6-6 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) = 136-144-156-164-180-196 lykkjur í umferð. Prjónið hringinn þar til stykkið mælist ca 59-61-63-65-66-67 cm, mælt frá efsta punkti á öxl. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 2 umferðir með stroffi 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, prjónið síðan 4 umferðir í sléttprjóni. Notið hringprjón 6 og fellið af með sléttum lykkjum. Framstykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm mælt frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, framstykkið er ca 2 cm lengra en loka mál þar sem kantur þar sem lykkjur voru prjónaðar upp er ekki mitt ofan á öxl, heldur aðeins neðar á bakstykki, peysan mælist 60-62-64-66-68-70 cm. ERMAR: Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = mitt ofan á öxl (ATH! Mitt ofan á öxl er ekki á sama stað og lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur ca 5-5-6-6-7-7 cm niður á framstykki). Prjónið upp lykkjur í kringum handveg, notið hringprjón 6 og byrjið mitt í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – prjónið upp 52-54-58-60-64-68 lykkjur – stillið af að prjónaðar séu upp jafn margar lykkjur hvoru megin við merki. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpu til að ermin fá betra form og passi betur, umferðin byrjar mitt undir ermi þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 6-6-7-7-8-8 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 6-6-7-7-8-8 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 5-5-5-5-4-4 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skiptið, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 5-5-5-5-4-4 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skiptið, snúið stykkinu. Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4. Prjónið þar til snúið hefur verið við alls 6-6-8-8-10-10 sinnum (= 3-3-4-4-5-5 sinnum í hvorri hlið og síðasta umferð er frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er endurtekin, endið umferð með að snúa stykkinu, prjónið síðan frá réttu að byrjun á umferð (mitt undir ermi). Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi, það á að nota hann þegar fækka á lykkjum undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. Nú er prjónað í hring í sléttprjón yfir allar lykkjur jafnframt því sem fækka á lykkjum undir ermi þannig: Þegar ermin mælist 1 cm (mælt mitt undir ermi), fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA, fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 3 sinnum, síðan er lykkjum fækkað í hverjum 18-18-12-8-6-5 cm alls 2-2-3-3-4-5 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 45-45-44-44-43-42 cm frá öxl. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og prjónið 2 umferðir með stroffi 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, prjónið síðan 4 umferðir í sléttprjóni. Notið sokkaprjóna 6 og fellið af. Ermin mælist ca 48-48-47-47-46-44 cm frá miðju ofan á öxl. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp ca 80 til 94 lykkjur í kringum hálsmál með hringprjón 4,5 og 1 þræði í hvorum lit með DROPS Kid-Silk. Prjónið sléttprjón í 6 cm, síðan eru prjónaðar 2 umferðir með stroffi 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið. Prjónið 4 umferðir í sléttprjóni. Notið hringprjón 6 og fellið af í garðaprjóni. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #pinkmelodysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 255-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.