Terry skrifaði:
Could someone explain row 4 differently to me. I don’t understand the 360 twist
13.01.2025 - 21:32
Terry skrifaði:
Could someone explain row 4 differently to me. I don’t understand the 360 twist
13.01.2025 - 21:29DROPS Design svaraði:
Dear Terry, in this video, we show how to work this row - note that the number of stitches is different in the video, remember to always follow the written pattern you are working on, as video is showing the technique and can be worked over another number of stitches. Happy knitting!
14.01.2025 - 10:23
Judith skrifaði:
Klaar! Dankjewel voor dit prachtige patroon. De trui is goed gelukt, de afmetingen kloppen precies. Wel jammer dat ik zoveel wil overhoud: in maat M 2 licht en 1 donker ongebruikt
20.10.2024 - 14:08
Mama skrifaði:
In the photos, it does not look like rolled edge, is it ok to work rib ?
09.10.2024 - 19:00DROPS Design svaraði:
Dear Mama, the rolled edge might not be visible on the picture because of the black color but however that's how the neck starts; feel free to start direct with rib if you rather get the neck edge like this. Happy knitting!
10.10.2024 - 08:54
Dorthe Gjelsvik skrifaði:
Mønster A1 på rad 5-15 stemmer ikke med bildet når jeg strikker i str M. Mønster mellom pil 1 og pil 2 er lik uavhengig av str, men får det ikke til å ligne på mønsterrad 2 på bildet.
30.09.2024 - 07:06DROPS Design svaraði:
Hei Dorthe. Takk for at du gjorde oss oppmerksom på dette, det vil bli fikset asap. Men du kan fint strikke etter diagrammet om du ønsker det. Blir ikke helt likt bildet, men like pent :) mvh DROPS Design
14.10.2024 - 08:16
Veronica Ekengren skrifaði:
When I compare the pictures with the pattern, it doesn't look the same as in A1. From row 5 to row 15. There are more rows with the dark color in the pattern than on the picture.
29.09.2024 - 09:35DROPS Design svaraði:
Dear Veronica, take into account that there may be some differences depending on the size worked. The model is wearing an M size. Happy knitting!
30.09.2024 - 00:09
Nina skrifaði:
När jag delar för fram- och bakstycke ska det göras från markören?
18.09.2024 - 09:17DROPS Design svaraði:
Hej Nina. Nej, du delar från varvets början. Mvh DROPS Design
18.09.2024 - 13:40
Barbara Kandel skrifaði:
Hallo, wenn ich am Ärmel eine ungerade Maschenzahl habe, kann denn das Muster hinkommen? Liebe Grüße
13.09.2024 - 20:41
Martine skrifaði:
Bonjour, Je ne trouve pas ce modèle en Français... l'avez vous svp ? Merci d'avance
09.09.2024 - 03:13DROPS Design svaraði:
Bonjour Martine, vous pouvez cliquez à tout instant sur le menu déroulant près de l'icône imprimante pour changer la langue, ou bien ici pour ce modèle. Bon tricot!
09.09.2024 - 11:00
Elmarie Spiring skrifaði:
Double chocolate
12.08.2024 - 06:31
Moonlit Mountain#moonlitmountainsweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, norrænu mynstri og rúllukanti. Stærð S - XXXL.
DROPS 252-5 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 88 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 24) = 3,7. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3. og 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli er fyrst prjónaður fram og til baka á hringprjóna þar til rúllukanturinn hefur verið prjónaður til loka, síðan er kantur í hálsmáli og berustykki prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 90-94-98-102-106-110 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum koksgrár í DROPS Air. Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, prjónið brugðið þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (= rétta): 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið slétt þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni. UMFERÐ 3 (= ranga): 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið brugðið þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni. UMFERÐ 4 (= rétta): Nú er prjónaður rúllukantur þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið 4 lykkjur slétt, * snúið lykkjunum á hægri prjóni 360 gráður í hring þannig: Leggið þráðinn framan við stykkið, færið hægri prjón frá þér niður undir stykki og síðan að þér upp framan við stykki þannig að stykkið snúist, síðan eru prjónaðar 4 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir í umferð, endið með 1 lykkju í garðaprjóni. Nú er stykkið sett saman þannig að hægt sé að prjóna í hring frá réttu þannig: UMFERÐ 5: Prjónið 2 fyrstu lykkjur í umferð snúnar slétt saman, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt), þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið saman = 88-92-96-100-104-108 lykkjur. UMFERÐ 6: Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) umferðina hringinn. Prjónið UMFERÐ 6 þar til stroffið (mælt eftir rúllukant) mælist 4-4-4-5-5-5 cm. Byrjun á umferð er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 31-32-33-35-37-38 lykkjur í umferð (= ca mitt að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 24-26-28-30-32-34 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 112-118-124-130-136-142 lykkjur. Prjónið síðan í sléttprjóni. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar berustykkið mælist 3-4-4-4-5-5 cm frá merki, aukið út um 32-34-38-42-46-48 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 144-152-162-172-182-190 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 6-8-7-7-9-9 cm frá merki, aukið út um 32-36-42-48-50-54 lykkjur jafnt yfir = 176-188-204-220-232-244 lykkjur. Í næstu umferð er prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, þ.e.a.s. prjónið A.1 alls 44-47-51-55-58-61 sinnum berustykkið hringinn – jafnframt í hverri umferð merktri með ör i A.1 eru lykkjur auknar út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Ör-1: Aukið út 36-40-44-48-52-60 lykkjur jafnt yfir = 212-228-248-268-284-304 lykkjur. Ör-2: Aukið út 22-24-28-32-34-38 lykkjur jafnt yfir = 234-252-276-300-318-342 lykkjur. Ör-3: Aukið út 12-12-12-18-18-24 lykkjur jafnt yfir = 246-264-288-318-336-366 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina mælist berustykkið ca 20-22-23-23-25-27 cm frá merki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. ATH: Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið A.2 berustykkið hringinn að réttu máli áður en stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar, en skipta verður stykkinu á undan síðasta mynsturbekk í A.2. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð (eins og fyrsta umferð í A.2, eða eins og næsta umferð í A.2 ef A.2 byrjaði á berustykki), skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 45-46-52-59-62-65 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 78-86-92-100-106-118 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 45-46-52-59-62-65 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 78-86-92-100-106-118 lykkjur sléttprjón (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig og byrjun umferðar er í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og erma. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 176-192-208-224-240-264 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= mitt í 10-10-12-12-14-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar núna hér og prjónað er í hring. Prjónið A.2 alls 22-24-26-28-30-33 sinnum hringinn á fram- og bakstykki, eða haldið áfram með A.2 hringinn á fram- og bakstykki ef A.2 byrjar á berustykki. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið sléttprjón með litnum ljós beige þar til stykkið mælist 46-48-50-50-52-54 cm frá merki mitt að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 32-32-36-40-44-48 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 208-224-244-264-284-312 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5-5-5-6-6-6 cm fellið af. Peysan mælist 51-53-55-56-58-60 cm frá merki mitt að framan og ca 56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 45-46-52-59-62-65 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 5, prjónið að auki þessar lykkjur eins og fyrsta umferð í A.2, eða eins og næsta umferð í A.2 ef A.2 byrjaði á berustykki JAFNFRAMT sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 45-47-53-59-61-65 lykkjur í lok umferðar, prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 55-57-65-71-75-79 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 10-10-12-12-14-14 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Að auki er sett 1 merki í miðjulykkju í umferð (= mitt ofan á ermi). Merkiþráðurinn mitt undir ermi er notaður þegar fækka á lykkjum undir ermi og merkið mitt ofan á ermi er notað til að telja út hvar mynstrið á að byrja undir ermi. Nú er prjónað mynstur JAFNFRAMT sem lykkjum er fækkað mitt undir ermi – lestu því MYNSTUR og ÚRTAKA að neðan áður en ermin er prjónuð áfram. MYNSTUR: Haldið áfram með umferð við merkiþráðinn mitt undir ermi og prjónið A.2 hringinn á ermi – A.2 kemur ekki til með að ganga jafnt upp mitt undir ermi, en teljið út frá miðju á ermi hvar mynstrið á að byrja. Merkið mitt ofan á ermi á að passa við ör í A.2. Prjónið mynstur eins langt og hægt er inn að miðju undir ermi. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið sléttprjón með litnum ljós beige. ÚRTAKA: Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA að ofan og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 2-2-2-1½-1½-1 cm alls 4-4-7-9-10-11 sinnum = 47-49-51-53-55-57 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 42-40-39-40-38-37 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 9-9-9-9-9-9 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 56-58-60-62-64-66 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5-5-5-6-6-6 cm fellið af. Ermin mælist ca 47-45-44-46-44-43 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið saman efsta hluta í kanti í hálsmáli innan við 1 lykkju í garðaprjóni. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #moonlitmountainsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 252-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.