Hazy Dream Cardigan#hazydreamcardigan |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð stór / oversize peysa úr DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, v-hálsmáli og víðum ermum. Stærð XS - XXL.
DROPS 250-18 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: RÉTTA: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. RANGA: Prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: RÉTTA: Prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. RANGA: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (= ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðið – svo það myndist gat, síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar jafn óðum inn í mynstur. V-HÁLSMÁL: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju innan við 10 kantlykkjur að framan með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (= ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið – svo það myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar jafn óðum inn í mynstur. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn – svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkað er um 2 lykkjur í umferð með því að fækka lykkjum hvoru megin við lykkju með merki í þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með merki í, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt (merkið situr í þessari lykkjur), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan frá réttu. UMFERÐ 1: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur brugðið saman, prjónið síðan kant að framan eins og áður. UMFERÐ 2: Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar öll útaukning fyrir v-hálsmáli er lokið og prjónað hefur verið ca 1 cm á eftir síðustu útaukningu (framstykkið mælist ca 29-30-33-35-36-37 cm, mælt frá öxl), síðan er fellt af fyrir hnappagötum þegar kantur að framan mælist: XS: 33-38-43-48 cm S: 35-40-45-50 cm M: 37-42-46-51 cm L: 39-44-48-53 cm XL: 40-45-49-54 cm XXL: 41-46-51-56 cm (= fellt er af fyrir síðasta hnappagatinu í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs neðst á framstykki). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Byrjið með að prjóna 2 lausa kanta að framan sem sauma á saman meðfram hnakka við frágang, síðan eru lykkjur fitjaðar upp fyrir hálsmáli á milli þessa 2 kanta að framan og berustykkið er prjónað ofan frá og niður og fram og til baka á hringprjóna. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Eftir fram- og bakstykki eru ermar prjónaðar niður á við í hring á hringprjóna / sokkaprjóna. Kantar að framan frá hvoru framstykki eru saumaðir saman, saumur = mitt að aftan, síðan eru kantar að framan saumaðir við lykkjur í kringum hálsmál. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. VINSRI KANTUR AÐ FRAMAN: Fitjið upp 10 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Kid-Silk. Prjónið VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Haldið áfram þar til kantur að framan mælist 17-17-17-19-19-19 cm, endið með síðustu umferð frá réttu, klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón og prjónið síðan hægri kant að framan. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Fitjið upp 10 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Kid-Silk. Prjónið HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Haldið áfram þar til kantur að framan mælist 17-17-17-19-19-19 cm, endið með síðustu umferð frá röngu, klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón og prjónið síðan hægri kant að framan. BERUSTYKKI: Haldið eftir 10 lykkjum frá hægra framstykki á prjóni (síðasta umferð er prjónuð frá röngu), fitjið upp 77-77-77-85-85-85 lykkjur í lok umferðar, setjið inn lykkjur frá vinstri kanti að framan yfir á vinstri prjón og prjónið frá röngu eins og áður yfir þessar 10 lykkjur = 97-97-97-105-105-105 lykkjur. Nú eru settir 4 merkiþræðir í stykkið. Merkiþræðirnir eru settir í stykkið frá réttu, án þess að prjóna lykkjurnar, merkiþræðirnir eru notaðir þegar auka á út fyrir laskalínu. Teljið 12 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 19 lykkjur (= ermi), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 35-35-35-43-43-43 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 19 lykkjur (= ermi), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju. Það eru 12 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta merkiþræði (= hægra framstykki). Nú er prjónað MYNSTUR fram og til baka jafnframt því sem aukið er út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 merkiþræðina (= hvoru megin við 2 lykkjur sléttprjón) og aukið út fyrir V-HÁLSMÁL innan við kantlykkjur að framan– lesið útskýringu að ofan, þ.e.a.s. fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið vinstri kant að framan með I-cord eins og áður, aukið út 1 lykkju fyrir v-hálsmáli, prjónið A.1, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 2 lykkjur sléttprjón (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.2, prjónið A.3, prjónið A.4 (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.2, prjónið A.3 alls 3-3-3-4-4-4 sinnum, prjónið A.4 (= bakstykki), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.2, prjónið A.3, prjónið A.4 (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.5, aukið út 1 lykkju fyrir v-hálsmáli og prjónið hægri kant að framan með I-cord eins og áður = 107-107-107-115-115-115 lykkjur. UPPLÝSINGAR ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM: Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka, þ.e.a.s. gatamynstur er prjónað á framstykkjum, bakstykki og ermum, 2 lykkjur sléttprjón í hverri skiptingu á milli framstykkja/bakstykkis og erma og 10 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður. Þegar A.1 og A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina á framstykkjum, haldið áfram með gatamynstur eins og útskýrt er í A.2, A.3 og A.4 yfir þessar lykkjur. En lykkjur sem ekki ganga upp í gatamynstri við miðju að framan þegar aukið er út fyrir v-hálsmáli eru prjónaðar í sléttprjóni. Á ermum og bakstykki er pláss fyrir 2 mynstureiningar fleiri með A.3 á milli A.2 og A.4, í hvert skipti sem prjónuð er 1 mynstureining á hæðina með A.2, A.3 og A.4. Í viðbót er aukið út fyrir laskalínu og v-hálsmáli eins og útskýrt er að neðan: PRJÓNIÐ ÞANNIG: Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 28-32-36-36-36-40 sinnum (ásamt útaukningu í fyrstu umferð) og aukið út fyrir v-hálsmáli í 4. hverri umferð alls 16-14-10-20-18-16 sinnum (ásamt útaukningu í fyrstu umferð) og eftir það í 6. hverri umferð alls 0-2-6-0-2-4 sinnum í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu mælist stykkið ca 20-23-26-26-26-29 cm frá uppfitjunarkanti aftan í hnakka – útaukning fyrir v-hálsmáli er ekki lokið. Í næstu umferð (= ranga), á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Munið eftir að útaukning fyrir v-hálsmáli er ekki lokið. Byrjið frá röngu og prjónið eins og áður fram að fyrsta merkiþræði (= hægra framstykki), setjið næstu 75-83-91-91-91-99 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 13-13-13-13-21-21 nýjar lykkjur á prjóni (= í hlið undir ermi), prjónið 91-99-107-115-115-123 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 75-83-91-91-91-99 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 13-13-13-13-21-21 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu lykkjur eins og áður (= vinstra framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: Haldið áfram fram og til baka, þ.e.a.s. prjónið gatamynstur fram og til baka yfir allar lykkjur með 10 kantlykkjum að framan í hvorri hlið eins og áður og haldið áfram með útaukningu fyrir v-hálsmáli (passið uppá að gatamynstrið passi á hæðina yfir lykkjur frá berustykki). Þegar síðasta útaukning fyrir v-hálsmáli er lokið, eru 229-245-261-277-293-309 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður – lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstrið við miðju að framan, eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið þar til stykkið mælist 23-22-20-22-23-22 cm frá skiptingu – munið eftir HNAPPAGAT sjá útskýringu að ofan. Í næstu umferð (= rétta) byrjar stroff JAFNFRAMT er aukið út um 73-77-77-85-93-97 lykkjur jafnt yfir í umferð – lesið ÚTAUKNING = 302-322-338-362-386-406 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 2,5, prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið – munið eftir útaukning) þar til 12 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 4-4-5-5-6-6 cm, fellið af með 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 75-83-91-91-91-99 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 3,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 13-13-13-13-21-21 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 88-96-104-104-112-120 lykkjur. Setjið 1 merki í miðju af 13-13-13-13-21-21 nýjum lykkjum undir ermi – umferðin byrjar á undan lykkju með merki. Merkið er notað þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Haldið áfram hringinn með gatamynstri – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 4-3-3-3-3-3 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 4-3-2½-2½-2½-1½ cm alls 8-12-12-12-12-16 sinnum (lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í gatamynstri þegar lykkjum er fækkað, eru prjónaðar í sléttprjóni) = 72-72-80-80-88-88 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 40-38-35-35-35-33 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 24-24-28-28-28-28 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 96-96-108-108-116-116 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-5-5-6-6 cm, fellið af með 2 þráðum. Ermin mælist ca 44-42-40-40-41-39 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið saman kanta að framan (= mitt að aftan, saumið síðan kanta að framan við uppfitjunarkantinn aftan í hnakka. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #hazydreamcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 250-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.