DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6600.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Jacqueline Cardigan

Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Safran eða 1 þræði DROPS Paris. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í perluprjóni, ísaumuðum puffermum og með vösum. Stærð S - XXXL.

DROPS 250-29
DROPS Design: Mynstur w-914
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
600-650-750-800-900-950 g litur 01, eyðimerkurrós
100-100-100-100-100-150 g litur 18, natur

Eða notið:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
650-700-800-850-950-1050 g litur 58, púðurbleikur
100-100-100-100-100-150 g litur 17, natur

DROPS TALA NR 541: 6-6-6-7-7-7 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm.

PRJÓNFESTA:
18 lykkjur á breidd og 31 umferðir á hæð með A.1 (perluprjón) = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6600.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:


-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Prjónið fram að merki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið lykkju með merki, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat (= 2 lykkjur fleiri). Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar inn í mynstur.

HNAPPAGAT:
Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir kant að framan, eru gerð 6-6-6-7-7-7 hnappagöt í hægra framstykki með því að hoppa fram um ½ cm á framstykki og slá 1 sinni uppá prjóninn, hnappagötin skiptast þannig:
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu 6-7-8-4-5-6 cm frá neðri kanti á peysu og gerið hnappagötin með ca 6-6-6-5-5-5 cm millibili – síðasta hnappagatið er ca 1 cm undir kanti í hálsmáli.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf.
Stykkið er prjónað fram og til baka, neðan frá og upp að handveg. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvert stykki er prjónað hvert fyrir sig.
Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp og prjónað er í hring fram að handvegi, síðan er ermin prjónuð til loka fram og til baka. Stykkin eru saumuð saman. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram framstykkjum og í kringum hálsmál, prjónaður er kantur að framan / kantur í hálsmáli fram og til baka. Í lokin eru prjónaðir 2 vasar sem saumaðir eru á framstykkin.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 177-193-209-229-249-269 lykkjur á hringprjón 4,5 með 2 þráðum DROPS Safran eða 1 þræði DROPS Paris í litnum natur. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN fram og til baka – lesið útskýringu að ofan.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu.
Nú eru sett 2 merki í stykkið, þetta er gert frá réttu og án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru notuð þegar lykkjum er fækkað í hliðum á fram- og bakstykki:
Teljið 45-49-53-58-63-68 lykkjur (= framstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 85-93-101-111-121-131 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju, það eru eftir 45-49-53-58-63-68 lykkjur á eftir síðasta merki (= framstykki). Látið merkin fylgja með í stykkinu.

Skiptið yfir í 2 þræði DROPS Safran í litnum eyðimerkurrós eða 1 þræði DROPS Paris í litnum púðurbleikur og prjónið MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan: Prjónið A.1 (perluprjón) fram og til baka yfir allar lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 8 cm og næsta umferð er prjónuð frá réttu, fækkið um 2 lykkjur í hvorri hlið þannig: Prjónið fram að 1 lykkju á undan fyrri merkiþræði, prjónið 3 lykkjur slétt saman eða 3 lykkjur brugðið saman – stillið af eftir mynstri og haldið merki hringinn á þessari lykkju, fækkið lykkjum á sama hátt við næsta merki (= 4 lykkjur færri).
Fækkið lykkjum svona í hverjum 6-4-4-4-4-4 cm alls 3-4-4-4-4-4 sinnum = 165-177-193-213-233-253 lykkjur.
Haldið áfram að prjóna perluprjón þar til stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm. Nú skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki.

SKIPTING FYRIR FRAMSTYKKI OG BAKSTYKKI:
Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið 39-41-43-47-50-54 lykkjur (= framstykki), fellið af næstu 7-9-13-15-19-21 lykkjur fyrir handveg (lykkja með merki situr í miðju á þessum), prjónið 73-77-81-89-95-103 lykkjur (= bakstykki), fellið af næstu 7-9-13-15-19-21 lykkjur fyrir handveg (lykkja með merki situr í miðju á þessum) og prjónið síðustu 39-41-43-47-50-54 lykkjur (= framstykki).
Framstykkin og bakstykkið er prjónað til loka hvert fyrir sig.

FRAMSTYKKI:
= 39-41-43-47-50-54 lykkjur. Haldið áfram með A.1 fram og til baka eins og áður, það á að fella af fyrir handveg jafnframt því sem fellt er af fyrir hálsmáli. Lestu því allan næsta kafla áður en þú prjónar áfram.
Fellið af lykkjur í hlið fyrir handveg í annarri hverri umferð: Fellið af 2 lykkjur 1-1-1-2-2-3 sinnum, 1 lykkju 2-3-4-5-7-8 sinnum. Síðan er fellt af fyrir handveg í 4. hverri umferð þannig: Fellið af 1 lykkju 2-2-2-2-2-2 sinnum = 33-34-35-36-37-38 lykkjur eftir.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm, fellið af lykkjur fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 12-12-12-12-12-12 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni, 3 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni og 1 lykkja 4-4-5-5-6-6 sinnum = 14-15-15-16-16-17 lykkjur eftir á öxl.
Fellið af þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm.

BAKSTYKKI:
= 73-77-81-89-95-103 lykkjur. Haldið áfram með A.1 fram og til baka eins og áður og fellið af lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 1-1-1-2-2-3 sinnum, 1 lykkja 2-3-4-5-7-8 sinnum. Síðan eru lykkjur felldar af fyrir handveg í 4. hverri umferð þannig: Fellið af 1 lykkju 2-2-2-2-2-2 sinnum = 61-63-65-67-69-71 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm, fellið af miðju 29-29-31-31-33-33 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.

ÖXL:
= 16-17-17-18-18-19 lykkjur. Haldið áfram með A.1 og fellið síðan af 2 lykkjur fyrir hálsmáli 1-1-1-1-1-1 sinni = 14-15-15-16-16-17 lykkjur. Prjónið síðan eins og áður þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Fellið af.

ERMAR:
Ermin er prjónuð í hring.
Fitjið upp 43-45-47-49-51-53 lykkjur á hringprjón / sokkaprjóna 4,5 með 2 þráðum DROPS Safran eða 1 þræði DROPS Paris í litnum natur. Setjið eitt merki í fyrstu lykkju í byrjun umferðar (= mitt undir ermi) og látið merkið fylgja áfram með í stykkinu, merkið er notað þegar auka á út undir ermi.
Prjónið 4 umferðir garðaprjón, síðan 1 umferð slétt.
Skiptið yfir í 2 þræði DROPS Safran í litnum eyðimerkurrós eða 1 þráð DROPS Paris í litnum púðurbleikur og prjónið A.1 hringinn yfir allar lykkjur.
Þegar ermin mælist 4-7-8-7-6-5 cm, aukið út 1 lykkju hvoru megin við lykkju með merki – lesið ÚTAUKNING! Aukið svona út í hverjum 3-2½-2-2-2-2 cm alls 14-14-16-16-16-16 sinnum = 71-73-79-81-83-85 lykkjur.
Prjónið A.1 þar til ermin mælist 45-44-43-41-40-38 cm. Nú er ermakúpan prjónuð eins og útskýrt er að neðan.

ERMAKÚPA:
Í næstu umferð eru felldar af 7-9-13-15-19-21 lykkjur mitt undir ermi (lykkja með merki í situr í miðju á þessum lykkjum, þ.e.a.s. byrjið affellingu 3-4-6-7-9-10 lykkjur á undan merki) = 64-64-66-66-64-64 lykkjur.
Prjónið stykkið til loka fram og til baka eins og áður, JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir ermakúpu þannig: Fellið af 1 lykkju í hvorri hlið í 2-3-4-5-6-8 hverri umferð þar til ermin mælist 55-55-56-56-57-57 cm = ca 34-42-46-48-48-50 lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = ca 17-21-23-24-24-25 lykkjur. Fellið af. Ermin mælist ca 55-55-56-56-57-57 cm.

FRÁGANGUR-1:
Saumið axlasauma. Saumið ermi við handveg – allt umfram efni safnast saman í miðju ofan á erminni.

KANTUR AÐ FRAMAN / KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Setjið 1 merki mitt aftan í hnakka á bakstykki. Notið hringprjón 4,5 og 2 þræði DROPS Safran í litnum eyðimerkurrós eða 1 þráð DROPS Paris í litnum púðurbleikur. Prjónið upp lykkjur frá réttu yfir bleiku lykkjurnar meðfram framstykkjum og í kringum kant í hálsmáli þannig:
Byrjið neðst á hægra framstykki og prjónið upp innan við 1 lykkju ca 65-66-68-70-72-74 lykkjur (ásamt uppslætti frá hnappagötum) meðfram framstykki og upp að kanti í hálsmáli JAFNFRAMT því sem hnappagöt eru gerð – lesið HNAPPAGAT að ofan, prjónið síðan upp ca 95-97-103-105-111-113 lykkjur í kringum kant í hálsmáli – passið uppá að það séu jafn margar lykkjur hvoru megin við merki mitt að aftan, prjónið síðan upp ca 65-66-68-70-72-74 lykkjur innan við 1 lykkju meðfram vinstra framstykki niður að kanti = ca 225-229-239-245-255-261 lykkjur (= lykkjufjöldinn jafngildir ca 18 lykkjum fyrir hverja 10 cm meðfram kanti).
Skiptið yfir í 2 þræði DROPS Safran eða 1 þráð DROPS Paris í litnum natur, prjónið fram og til baka þannig:
UMFERÐ 1: Byrjið frá réttu (= neðst á hægra framstykki) með að prjóna upp 2 lykkjur í kant í litnum natur í garðaprjóni neðst á fram- og bakstykki, prjónið garðaprjón út umferðina, endið með að prjóna upp 2 lykkjur í kant í garðaprjóni neðst á fram- og bakstykki = ca 229-233-243-249-259-265 lykkjur.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið slétt JAFNFRAMT er slegið 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við lykkju í skiptingunni á milli kants að framan og kants í hálsmáli, uppslátturinn er gerður til að skiptinginn verði ekki of stíf (= 4 lykkjur fleiri).
UMFERÐ 5 (= rétta): Fellið af, uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja.

VASI:
Fitjið upp 19-21-23-25-29-31 lykkjur á sokkaprjóna 4,5 með 2 þráðum DROPS Safran eða 1 þræði DROPS Paris í litnum natur.
Prjónið garðaprjón fram og til baka í 9-10-11-12-14-15 cm, prjónið næstu umferð þannig:
Prjónið 9-10-11-12-14-15 lykkjur slétt, takið síðan upp miðju sléttu lykkjuna í stykkinu ca 2 cm upp frá uppfitjunarkanti og setjið hana í umferð (það á að myndast smá faldur), prjónið síðan 2 lykkjur slétt saman og prjónið slétt út umferðina.
Haldið áfram að prjóna garðaprjón fram og til baka þar til vasinn mælist 11-12-13-14-16-17 cm mælt meðfram hlið. Fellið af.
Prjónið annan vasa til viðbótar á sama hátt.
Saumið einn vasa mitt á hvort framstykki ca 7-7-8-8-8-9 cm frá neðri kanti á peysu – sjá mynd.

FRÁGANGUR-2:
Saumið tölur meðfram kanti að framan á vinstra framstykki.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 02.04.2024
Uppskriftin hefur verið uppfærð. Leiðrétting á ermi.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 250-29

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Marie-france ALTMAYER wrote:

Bonjour Malgré la correction de la manche, j'ai encore un problème pour la tète de manche de ma taille, il faudrait 11 cm de jersey depuis l'ouverture ors je ne vois pas de jersey sur les photos ? Merci par avance Marie-France

14.04.2024 - 09:01

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Altmayer, effectivement, je remonte l'info à qui de droit, merci pour votre retour; continuez au point de riz comme avant. Bon tricot!

15.04.2024 - 07:54

country flag Robi wrote:

Buongiorno,nelle spiegazioni della lavorazione delle maniche compare questa frase:continuare a maglia rasata fino a quando la manica misura... Non è maglia a grana di riso?

21.03.2024 - 08:55

DROPS Design answered:

Buonasera Robi, grazie per la segnalazione: il modello è stato aggiornato. Buon lavoro!

03.04.2024 - 20:10

country flag Gunilla Hamel wrote:

I mönstret står det ”slätstickning” på ärmen, före ärmkullen. Varför? Ser inte så ut på bilden. Ser ut som mosstickning hela vägen

19.03.2024 - 14:21

DROPS Design answered:

Hej Gunilla. Ja du har rätt, det ska vara mosstickning där med, det kommer en rättelse på detta. Mvh DROPS Design

20.03.2024 - 09:50

country flag Else Merete Thyness wrote:

Kjempefin

04.03.2024 - 09:25

country flag Alicja wrote:

Jacqeline

27.02.2024 - 17:17

country flag Hanna wrote:

Raspberry cake

21.01.2024 - 16:13

country flag Maria Roshed Sandström wrote:

Classy in pink

21.01.2024 - 08:53

country flag Élysées wrote:

Pakistan chic

20.01.2024 - 18:52

country flag Lalanne wrote:

Jackie Kennedy

20.01.2024 - 11:06

country flag Erin Gabriel wrote:

Coco in Paris

19.01.2024 - 14:00