Zuzana skrifaði:
V českom preklade v odstavci 'sedlo' v druhom riadku máte 'přidáme' 6-5-4-3-2 ok ale za tým nie je súčet, ale rozdiel. Treba teda pridať, alebo ubrať očká? Som z toho trochu zmätená.
04.03.2025 - 21:01DROPS Design svaraði:
Dobrý den, Zuzano, děkujeme za upozornění! Máte pravdu, v popisu je chyba – místo "přidáme" má být správně "ujímat". Návod jsme opravili, aby byl popis jasný. Ať se vám dobře plete!
05.03.2025 - 18:48
Heidi skrifaði:
The increase is difficult to understand. A video would be helpful.
31.07.2024 - 15:41DROPS Design svaraði:
Dear Heidi, then this video might be the right for you. Happy knitting!
01.08.2024 - 08:57
Solvejg Klaris-Jensen skrifaði:
Spørgsmål ! Jeg ønsker at strikke denne op skrift med andet garn - Viking Garn Bjørk med pinde 3. Kan jeg bruge denne opskrift med enkelt tråd ? Tænkte at bestille 6 nøgler Viking Bjørk ? Mvh. Solvejg
21.07.2024 - 17:21
Rodica skrifaði:
Lilac blossom
21.01.2024 - 21:45
Karin skrifaði:
Lavender field
21.01.2024 - 18:31
Mariana skrifaði:
Ice cream
19.01.2024 - 19:57
AndreaW skrifaði:
"You CAN Dress Me Up!!!
19.01.2024 - 09:21
Lina Ged skrifaði:
I'd name it BlueberryPIE
18.01.2024 - 16:49
Sunny Lavender#sunnylavendertop |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónaður toppur úr 2 þráðum DROPS Safran. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, áferðamynstri og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 250-31 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Aukið er út um 4 lykkjur í umferð með því að auka út hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 4 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið síðan útaukningu við merkiþráðinn í hinni hliðinni (= 4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat, nýjar lykkjur eru síðan prjónaðar í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 2 lykkjur í umferð með því að fækka lykkjum hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Hálsmál og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka er lykkjum skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Ermar eru síðan prjónaðar niður á við í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 96-100-104-108-112-116 lykkjur á hringprjón 3,5 með 1 þræði í hvorum lit með DROPS Safran. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Setjið 1 merki í byrjun umferðar (= mitt að aftan), berustykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem fækkað er um 6-5-4-3-2-1 lykkjur jafnt yfir = 90-95-100-105-110-115 lykkjur. Síðan er prjónað sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 2 cm frá merki, prjónið A.1 berustykkið hringinn alls 18-19-20-21-22-23 sinnum = 126-133-140-147-154-161 lykkjur. Þegar stykkið mælist 5-5-5-5-6-6 cm frá merki, prjónið A.2 berustykkið hringinn alls 18-19-20-21-22-23 sinnum = 162-171-180-189-198-207 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8-8-8-8-10-10 cm frá merki, prjónið A.3 berustykkið hringinn alls 18-19-20-21-22-23 sinnum = 198-209-220-231-242-253 lykkjur. Þegar stykkið mælist 11-11-11-11-14-14 cm frá merki, prjónið A.4 berustykkið hringinn alls 18-19-20-21-22-23 sinnum = 234-247-260-273-286-299 lykkjur. STÆRÐ S OG M: = 234-247 lykkjur. Útaukningu er lokið. STÆRÐ L OG XL: Þegar stykkið mælist 14-14 cm frá merki, prjónið A.5 berustykkið hringinn þannig: * Prjónið A.5, prjónið 13-13 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 280-294 lykkjur. STÆRÐ XXL OG XXXL: Þegar stykkið mælist 18-18 cm frá merki, prjónið A.5 berustykkið hringinn alls 22-23 sinnum = 330-345 lykkjur. ALLAR STÆRÐIR: Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 236-256-280-308-328-344 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar berustykkið mælist 18-18-20-21-24-26 cm frá merki skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt því sem næsta umferð er prjónuð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 36-39-42-46-50-54 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki), setjið næstu 46-50-56-62-64-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 72-78-84-92-100-108 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 46-50-56-62-64-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 36-39-42-46-50-54 lykkjur í sléttprjóni (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 160-172-188-204-224-244 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir hvorri ermi og látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðir þegar auka á út lykkjum í hliðum á fram- og bakstykki. Byrjið umferð við merkiþráð, prjónið hringinn og stykkið er síðan mælt frá skiptingunn. Þegar stykkið mælist 4 cm, aukið út 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 5. hverjum cm alls 3 sinnum = 172-184-200-216-236-256 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 29-30-30-31-30-30 cm. Prjónið síðan með hringprjón 3,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT því sem aukið er út um 28-32-36-36-40-44 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 200-216-236-252-276-300 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2 cm er fellt af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Toppurinn mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 46-50-56-62-64-64 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-66-72-76-78 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í 3. hverjum cm alls 1-2-2-2-1-0 sinnum = 52-54-62-68-74-78 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 15-16-15-14-12-10 cm frá skiptingunni. Skipti yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 8-10-10-12-14-14 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 60-64-72-80-88-92 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2 cm er fellt af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 17-18-17-16-14-12 cm frá skiptingunni. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sunnylavendertop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 250-31
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.