Gerda skrifaði:
Guten Tag. Die Strickschrift sieht anders aus als auf dem Foto. Es sieht aus als würde an manchen reihen die linke Runde fehlen. Ist das richtig?
10.05.2024 - 09:17DROPS Design svaraði:
Liebe Gerda, alle Reihen bzw Runden sind im Diagram gezeichnet, die Runden mit einem kleinen Kreuz werden links gestrickt, alle anderen werden rechts gestrickt. Viel Spaß beim Stricken!
10.05.2024 - 12:59
Ghislaine skrifaði:
Bonjour, est-ce que le point fantaisie augmente le travail... Car pour moi en taille M je commence le point fantaisie avec 119m/aig., sur 17fois et je vais me retrouver avec 340m/aig..donc avec les jetées du point fantaisie on augmente.. Merci
09.05.2024 - 07:44DROPS Design svaraði:
Bonjour Ghislaine, le point fantaisie A.1 va effectivement augmenter le nombre de mailles, soit 14 mailles pour chaque A.1, en taille M on répète 17 fois le diagramme; quand A.1 est terminé, on a ainsi 21 mailles dans chacun des 17 motifs de A.1 soit 21x17=357 mailles. On tricote ensuite 1 tour endroit en diminuant 17 mailles à intervalles réguliers = il reste 340 mailles. Bon tricot!
10.05.2024 - 08:25
Skogstrikker skrifaði:
Ecco
22.01.2024 - 10:32
Nonne skrifaði:
Daisies
21.01.2024 - 13:27
Sarinna skrifaði:
Anemone
18.01.2024 - 18:45
Fabiola Catalan skrifaði:
Se ve tan delicado
18.01.2024 - 14:12
Peace Dove#peacedovesweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með ¾ löngum ermum úr DROPS Belle eða DROPS Cotton Light. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og öldumynstri á berustykki. Stærð S - XXXL.
DROPS 249-21 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Hálsmál og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan og er prjónað ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka er lykkjum skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Ermar eru síðan prjónaðar niður á við í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 108-112-120-126-130-136 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Belle eða DROPS Cotton Light. Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Setjið 1 merki í byrjun umferðar (mitt að aftan), berustykki er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-7-6-14-17-18 lykkjur jafnt yfir = 112-119-126-140-147-154 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar berustykkið mælist 3-3-4-5-6-7 cm frá merki, prjónið MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, þ.e.a.s. prjónið A.1 alls 16-17-18-20-21-22 sinnum hringinn á berustykki. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, eru 336-357-378-420-441-462 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 18-18-19-21-22-23 cm frá merki. Síðan er prjónað sléttprjón. Jafnframt í fyrstu umferð er fækkað um 24-17-14-20-17-2 lykkjur jafnt yfir = 312-340-364-400-424-460 lykkjur. Prjónið þar til berustykkið mælist 19-21-22-23-25-27 cm frá merki. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 48-53-56-61-66-73 lykkjur sléttprjón (hálft bakstykki), setjið næstu 60-64-70-78-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 96-106-112-122-132-146 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 60-64-70-78-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 48-53-56-61-66-73 lykkjur eins og áður (hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 208-228-244-264-288-316 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hlið á stykki, mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Prjónið fram að merki, umferðin byrjar núna hér. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 26-26-26-27-27-27 cm frá skiptingunni. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 46-46-50-54-60-64 lykkjur jafnt yfir = 254-274-294-318-348-380 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Nú er prjónað stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 60-64-70-78-80-84 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / hringprjóna 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-72-80-88-92-96 lykkjur. Setjið 1 merki mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi. Byrjið umferð við merki og prjónið sléttprjón hringinn þar til ermin mælist 19-17-17-17-15-14 cm frá skiptingunni. Það eru eftir 4 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10-12-12-14-16-16 lykkjur jafnt yfir = 58-60-68-74-76-80 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 23-21-21-21-19-18 cm frá skiptingunni. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #peacedovesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 249-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.