Civario skrifaði:
Pour ce modèle quelle laine me permettra d'avoir un pull plus léger Flora ou baby merinos.? Merci .
05.11.2024 - 09:01DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Civario, tout dépend de ce que vous entendez par léger; n'hésitez pas à demander conseil à votre magasin, même par mail ou téléphone, on saura vous conseiller la meilleure qualité correspondant à vos besoins/envies. Bon tricot!
05.11.2024 - 10:02
Judith skrifaði:
Delicious Apple
20.01.2024 - 09:57
Jeanine Vanwinkel skrifaði:
Heerlijk patroon
19.01.2024 - 08:39
Kristine De Hon skrifaði:
Miss Gracefull
19.01.2024 - 07:17
Prisci skrifaði:
Hierba buena
19.01.2024 - 00:47
Ann-Christine Corneliusson skrifaði:
Grön symfoni
18.01.2024 - 16:32
Maria Teresa Lopez skrifaði:
Sugerencia de nombre para el modelo: Grazalema
18.01.2024 - 13:18
Fresh Mint Tea#freshmintteasweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk eða DROPS Baby Merin og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, laskalínu, gatamynstri og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 249-13 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn og í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt – svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan, síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. Á UNDAN MERKI: Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Á EFTIR MERKI: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 2 lykkjur í umferð með því að fækka um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Hálsmál og berustykki er prjónað í hring á hringprjón og prjónað er ofan frá og niður Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka er lykkjum skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfalt að röngu og saumaður niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 99-99-102-102-108-108 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk eða 1 þræði DROPS Baby Merinog og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Skiptið yfir á hringprjón 3,5 (fitjað er upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt / 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Síðar á að brjóta uppá kantinn að röngu og við frágang þá verður kantur í hálsmáli ca 4 cm. Setjið Prjónið eitt merki í þessa umferð, berustykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 13-13-24-24-32-32 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 112-112-126-126-140-140 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð til að merkja byrjun umferðar. Nú er prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, A.1 er prjónað alls 16-16-18-18-20-20 sinnum hringinn á berustykki. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru sett 4 merki í stykkið þannig: Merkin eru sett í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar og eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu – passið uppá að laskalykkjurnar eru fyrir miðju yfir miðjulykkju á gatamynstri / A.1. Teljið 3 lykkjur, setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 27 lykkjur (= ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 27-27-34-34-41-41 lykkjur (= framstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 27 lykkjur (= ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju, það eru 27-27-34-34-41-41 lykkjur að fyrsta merki (= bakstykki). Prjónið sléttprjón hringinn og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 merkin – lesið útskýring að ofan (= 8 lykkjur fleiri). Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 15-17-19-21-22-24 sinnum = 232-248-278-294-316-332 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram í sléttprjóni án þess að auka út þar til stykkið mælist 17-19-20-22-23-25 cm frá merki eftir kant í hálsmáli. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Byrjið við byrjun umferðar og prjónið fram að 1. merki, prjónið lykkju með merki í sléttprjóni, prjónið 4-4-1-3-3-5 lykkjur sléttprjón (tilheyrir bakstykki). Stykkið skiptist núna hér: Setjið næstu 49-53-63-63-65-65 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 67-71-76-84-93-101 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 49-53-63-63-65-65 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið undir ermi) og prjónið næstu 67-71-76-84-93-101 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 150-162-176-196-214-234 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 19-19-20-20-21-21 cm frá skiptingu. Prjónið síðan með hringprjón 3,5, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt / 2 lykkjur brugðið) jafnframt því sem aukið er út um 18-21-22-23-26-27 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 168-183-198-219-240-261 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6 cm, fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 49-53-63-63-65-65 lykkjur frá öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-10-12-14-14-16 maskorna som lades upp på under ärmen = 57-63-75-77-79-81 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-10-12-14-14-16 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 2-2-1-1-1-1 cm alls 6-6-9-8-5-4 sinnum = 45-51-57-61-69-73 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 16-15-13-12-10-9 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 3-6-6-8-9-8 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 48-57-63-69-78-81 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6 cm, fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 22-21-19-18-16-15 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #freshmintteasweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 249-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.