Ujwala skrifaði:
Have a question regarding this instruction for Sleeves after picking up the 10 additional stitches It says ‘Begin round at the marker’ I don’t understand how to begin round at the marker as after picking up the needle would be at the beginning of the 58 stitches placed from the thread isn’t it? Could you please explain in detail?
02.07.2024 - 14:28DROPS Design svaraði:
Dear Ujwala, just insert a marker in the middle of the new stitches, this is now the beg of the round, you might have 1 round difference between but it won't be visible. Happy knitting!
02.07.2024 - 15:57
Juliane skrifaði:
Meine Frage bezieht sich auf den I-cord. Wenn in der Anleitung geschrieben ist, auf der Rückreihe 4 m kraus rechts, 1 M wie zum Linksstricken abheben und zuletzt eine rechte Masche stricken, bedeutet das, dass die letzte Masche LINKS gestrickt werden muss, damit sie auf der Vorderseite rechts erscheint?
28.04.2024 - 16:09DROPS Design svaraði:
Liebe Juliane, diese Masche wird rechts gestrickt, siehe auch dieses Video (time code 0:55 z.B.). Viel Spaß beim Stricken!
29.04.2024 - 09:38
Nekkache skrifaði:
Bonsoir. Que veut dire i-cor dans vos explications ? Dans l'attente de vous lire. Cordialement
28.03.2024 - 19:57DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Nekkache, la bordure I-cord se tricote en début de rang/en fin de rang sur l'endroit/sur l'envers comme indiqué sous BORDURE DEVANT AVEC I-CORD: et comme le montre cette vidéo. Bon tricot!
02.04.2024 - 13:58
Hanna skrifaði:
Dreamy muscari
21.01.2024 - 16:10
Blueberry Leaf Cardigan#blueberryleafcardigan |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Sky eða DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, gatamynstri, I-cord og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 249-10 |
||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í hálsmáli mælist ca 2 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 9-9½-8-8½-9-9 cm á milli hnappagata – neðsta hnappagatið er staðsett ca í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð mínus kantlykkjur að framan (t.d. 122 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 29) = 4,2. Í þessu dæmi er aukið út á eftir ca 4. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 4 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Hálsmál og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan og er prjónað ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka er lykkjum skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Ermar eru síðan prjónaðar niður á við í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 134-138-142-146-154-162 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Sky eða DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað fram og til baka frá miðju að framan. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: prjónið 6 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan, prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt og 6 kantlykkjur að framan með I-cord. Haldið svona áfram fram og til baka, þegar stykkið mælist 2 cm er fellt af fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan. Haldið áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 3 cm. Í næstu umferð frá réttu eru allar lykkjur í einingu með 2 lykkjur brugðið auknar út til 3 lykkjur brugðið – aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkjur brugðið sem prjónað er snúið í næstu umferð = 164-169-174-179-189-199 lykkjur. Prjónið síðan með kantlykkjum að framan eins og áður og stroff (2 lykkjur slétt / 3 lykkjur brugðið) þar til kantur í hálsmáli mælist alls 5 cm og síðasta umferð er prjónuð frá röngu. Setjið 1 merki mitt að aftan, berustykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið fram og til baka í sléttprjóni með kantlykkjum að framan eins og áður, jafnframt í fyrstu umferð (frá réttu) er aukið út um 29-34-39-44-44-54 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) – lesið ÚTAUKNING = 193-203-213-223-233-253 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 3 cm frá merki mitt að aftan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið A.1 þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju eins og 1. lykkja í A.1 og 6 kantlykkjur að framan eins og áður. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 229-241-253-265-277-301 lykkjur í umferð. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan eins og áður, A.2, prjónið A.3 þar til 13 lykkjur eru eftir, A.4 og 6 kantlykkjur að framan eins og áður. Þegar A.2 til A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 265-279-293-307-321-349 lykkjur í umferð. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið A.5 þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju eins og 1. lykkja í A.5 og 6 kantlykkjur að framan eins og áður. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 283-298-313-328-343-373 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 12 cm frá merki mitt að aftan. Nú eru kantlykkjur að framan prjónaðar eins og áður og sléttprjón, jafnframt því í fyrstu umferð frá réttu er aukið út um 12-17-21-32-38-35 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 295-315-334-360-381-408. Prjónið síðan eins og áður þar til stykkið mælist 15-15-16-17-17-18 cm frá merki, í næstu umferð frá réttu, aukið út 13-17-22-32-39-36 lykkjur jafnt yfir = 308-332-356-392-420-444 lykkjur. Prjónið síðan kantlykkjur að framan og sléttprjón þar til stykkið mælist 18-19-21-22-23-25 cm frá merki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 51-55-58-63-69-74 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 58-62-68-76-78-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (í hlið undir ermi), prjónið 90-98-104-114-126-136 lykkjur sléttprjón (bakstykki), setjið næstu 58-62-68-76-78-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 51-55-58-63-69-74 lykkjur eins og áður (framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 212-228-244-264-292-316 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður þar til stykkið mælist 14-15-15-15-16-16 cm frá skiptingunni. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 38-42-46-50-54-58 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) = 250-270-290-314-346-374 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Nú er prjónað stroff, fyrsta umferð er frá röngu: 6 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið stroff (2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) þar til 8 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur brugðið og 6 kantlykkjur að framan eins og áður. Haldið áfram þar til stroffið mælist 6 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 44-46-48-50-52-54 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 58-62-68-76-78-80 lykkjur af þræði í annarri hlið á sokkaprjóna / hringprjóna 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 68-72-80-88-92-96 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í miðju á 10-10-12-12-14-16 nýjum lykkjum undir ermi (mitt undir ermi), merkiþráðurinn er notaður þegar fækka á lykkjum undir ermi. Byrjið umferð við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn, JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA (lykkjum er ekki fækkað í stærð XXL og XXXL). Fækkið lykkjum svona í hverjum 2-1-1-1½-0-0 cm alls 2-2-2-2-0-0 sinnum = 64-68-76-84-92-96 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 10-9-8-8-7-5 cm frá skiptingunni. Nú eru eftir ca 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd á ermi. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-12-12-16-16-20 lykkjur jafnt yfir = 72-80-88-100-108-116 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 16-15-14-14-13-11 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #blueberryleafcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 249-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.