Paglam skrifaði:
Hej,det-måste-vara-något-fel-på-maskantalet-när-man-börjar-sticka-efter-delningen.Se-"FRAM- OCH BAKSTYCKE: = 118-126-134-142-146-154 maskor. ".Stl-3/4år-ska-man-ha-126maskor-men-det-finns-bara-118maskor-efter-ökningarna.Är-det-fel-på-mönstret?
11.07.2024 - 15:02DROPS Design svaraði:
Hei Paglam. Nei, ingen feil. Har du fått med deg alle økningene? Du har 49 + 49 masker på bakstykket / forstykket og 41 masker på hvert erme + de 4 maskene med merke = 49+49+41+41+4= 184 masker. Etter delingen strikker du 28 masker, setter 37 masker på 1 tråd, legger opp 8 nye masker, strikker 55 masker, setter 37 masker på 1 tråd, legger opp 8 nye masker og så strikke 27 masker = 28+8+55+8+27=126 masker. mvh DROPS Design
12.07.2024 - 12:51
Hanna skrifaði:
Stricke den Pulli in der Größe 9-10 Jahre. Verstehe ich richitg, dass beim Raglan jeer 2. Runde abwechslungsweise 4 Maschen beim 2. und 4. Markierer zugenommen werden?
09.07.2024 - 14:48DROPS Design svaraði:
Liebe Hanna, Sie nehmen 1x an allen Markierern zu, dann nehmen Sie abwechselnd NUR vor dem 1., nach dem 2., vor dem 3. und nach dem 4. Markierer zu (Zunahmen am Vorder- und Rückenteil, 4 Maschen zugenommen) und dann wieder an allen Markierern zu (8 Maschen zugenommen). Die Zunahmen an den genannten vier Markierern machen Sie in jeder 2. Runde, die Zunahmen an allen Markierern in jeder4. Runde. Viel Spaß beim Weiterstricken!
15.07.2024 - 22:01
Natalia skrifaði:
Ich verstehe die Zunahme beim Raglan nicht...Reihe 1 ich nehmen bei allen 4 markieren beidseitig eine Masche zu, Reihe 2 ich stricke alles glatt rechts, Reihe 3 müsste ich ja 4 machen also bei 2 markierern 2 Maschen von jeder Seite machen zunehmen. Aber bei welchen markierern genau?weil der vorderteil hat 2 markieren und der rückenteil hat ja auhc 2. reihe 4 stricke ich dann wieder glatt rechts?reihe 5 nehme ich wieder 8 maschen statt 4 zu?
03.07.2024 - 15:52DROPS Design svaraði:
Liebe Natalia, am Anfang wird es 8 Maschen für den Raglan (2 M für je Vorder-, Rückenteil und beide Ärmel) (4-7-2-5-1-1 Mal in jeder 2. Runde = 1 Runde mit Zunahme, 1 Runde ohne - siehe Größe) zugenommen - dann nehmen Sie in jeder 2. Runde abwechslungsweise 4 Maschen (nur Vorder- und Rückenteil) und 8 Maschen (wie zuvor), insgesamt 10-8-14-12-16-18 Mal (so wird man 5-4-7-6-8-9 Mal für die Ärmel zunehmen). Viel Spaß beim Sricken!
03.07.2024 - 16:02
Anna skrifaði:
Die Aufteilung bei der Passe mit 96 Maschen stimmt nicht. 96-11-21-25-21=15 Maschen für die zweite Hälfte des Rückenteil. Somit haben Vorder- und Rückseite nicht idänte Maschenanzahl.Bringt das nicht die Zunahme durcheinander?
02.07.2024 - 19:37DROPS Design svaraði:
Liebe Anna, so werden die Maschen mit 96 Maschen verteilt: 14 M (1/2 Rückenteil), 1 M mit einer Markierung, 21 M (Ärmel), 1 M mit einer Markierung, 25 M (= Vorderteil), 1 M mit einer Markierung, 21 M (Ärmel), 1 M mit einer Markierung, 11 M (2. 1/2 Rückenteil) = 14+1+21+1+25+1+21+1+11=96 Maschen. Viel Spaß beim Stricken!
03.07.2024 - 08:19
Daniela S skrifaði:
Hola! Al iniciar el Canesu, se teje el punto que lleva el marcador para las líneas del Raglan o se pasa solamente? \r\nGracias!!
18.04.2024 - 00:50
Ann skrifaði:
There must be some mistakes in the stitch counts at least in size 3/4 years. I managed to modify to get the stitch amounts but if you increase the way it is guided, you won't end up with the stitch amounts suggested.
23.03.2024 - 15:09
Spring Smiles#springsmilessweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr tveimur þráðum DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu. Stærð 2 – 12 ára.
DROPS Children 48-4 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju á undan/eftir lykkju með prjónamerki í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður þannig: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Lyftið uppslættinum á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, setjið til baka yfir á vinstri prjón, þ.e.a.s. uppslátturinn er snúinn, prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Það á ekki að myndast gat. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). Það á ekki að myndast gat. Síðan eru útauknar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 80-80-88-88-96-96 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með 1 þræði í litnum natur og 1 þræði í litnum ljós blár DROPS Alpaca. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Stykkið er síðan mælt héðan! Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu og hvert prjónamerki er sett í lykkju (ekki á milli lykkja). Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið slétt yfir næstu 10-10-12-12-14-14 lykkjur (ca hálft bakstykki), setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju (slétt lykkja), prjónið slétt yfir næstu 19-19-19-19-21-21 lykkjur (ermi), setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju, prjónið slétt yfir næstu 19-19-23-23-25-25 (framstykki) lykkjur, setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, prjónið slétt yfir næstu 19-19-19-19-21-21 lykkjur (ermi), setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju, prjónið þær 9-9-11-11-11-11 lykkjur sem eftir eru slétt. Prjónið sléttprjón hringinn og aukið út fyrir laskalínu eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 prjónamerkin – lesið útskýring að ofan, í annarri hverri umferð alls 4-7-2-5-1-1 sinnum = 112-136-104-128-104-104 lykkjur. Haldið áfram með útaukningu í annarri hverri umferð, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki/bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. það er aukið út á framstykki/bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 10-8-14-12-16-18 sinnum á framstykki/bakstykki (5-4-7-6-8-9 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 14-15-16-17-17-19 sinnum á framstykki/bakstykki og 9-11-9-11-9-10 sinnum á ermum. Á eftir síðustu útaukningu eru 172-184-188-200-200-212 lykkjur í umferð (47-49-55-57-59-63 lykkjur á milli lykkju með prjónamerki á framstykki/bakstykki og 37-41-37-41-39-41 lykkjur á milli lykkju með prjónamerki á ermum) og stykkið mælist ca 13-14-15-16-16-18 cm eftir stroff mitt að framan. Prjónið e.t.v. sléttprjón núna án útaukninga að loka máli. Berustykkið skiptist núna fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 26-28-29-31-32-34 lykkjur sléttprjón (ca hálft bakstykki), setjið næstu 35-37-37-39-39-41 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 51-55-57-61-61-65 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 35-37-37-39-39-41 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið sléttprjón út umferðina (= 51-55-57-61-61-65 lykkjur á bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 118-126-134-142-146-154 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 16-19-22-24-28-29 cm frá skiptingunni, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 22-22-22-26-26-26 lykkjur jafnt yfir = 140-148-156-168-172-180 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist ca 37-41-45-49-53-56 cm frá öxl. ERMI: Setjið 35-37-37-39-39-41 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5. Prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 43-45-47-49-51-53 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi – mitt í 8-8-10-10-12-12 nýju lykkjurnar. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3-3-3-5-5-5 cm frá skiptingunni, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 2.-3.-3.-3.-4.-4. hverjum cm alls 6-6-7-7-7-7 sinnum = 31-33-33-35-37-39 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 17-22-25-29-33-36 cm frá skiptingunni. Nú eru eftir ca 3 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 5-5-7-7-7-7 lykkjur jafnt yfir = 36-38-40-42-44-46 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 20-25-28-32-36-39 cm frá skiptingunni. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #springsmilessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 48-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.