Carmen Robertson skrifaði:
Je suis rendue à faire la grille. J’ai fait l’augmentation de la flèche 1. Pour la taille L, j’ai donc 257 Mailles. Or le motif compte 10 mailles. Il reste donc 7 mailles à la fin du premier rang, pas assez pour un motif complet + 1 maille. Qu’est-ce que je n’ai pas compris?
07.05.2025 - 03:41DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Robertson, tricotez vos 257 mailles ainsi: 8 m de bordure devant comme avant, répétez 24 fois les 10 mailles de A.1, tricotez la 1ère maille de A.1 et 8 m de bordure devant comme avant = 8+(24x10)+1+8=257. Bon tricot!
07.05.2025 - 09:23
Carmen Robertson skrifaði:
Je suis rendue à faire les mailles de la grille. J’ai fait l’augmentation de la flèche 1. Pour la taille L j’ai donc 257 mailles. Or, le motif est de 10 mailles. Il me reste donc 7 mailles à la fin du premier rang, pas assez pour un motif + 1 maille. Qu’est-ce que je n’ai pas compris?
06.05.2025 - 18:45
Berit Langeland skrifaði:
Jeg kan ikke se hvor mange garnnøster som er beregnet for å kunne strikke denne. Hvordan vet jeg hvor mye jeg skal bestille?
25.07.2024 - 18:47DROPS Design svaraði:
Hei Berit, Drops Muskat selges i 50 g nøster, slik at for størrelse S trenger du 11 nøster, M 12 nøster osv. God fornøyelse!
30.07.2024 - 06:54
Christina skrifaði:
Sand Notes cardigan increase tip reads: “Do not increase over the outermost 12 st on each side.”To work out how to increase evenly… count total # st, minus the 12 st each side, divide remaining by # increases to make. So I should have ignored this? And just worked A1 from 8 band st even if increase row? Thank you
05.07.2024 - 19:27DROPS Design svaraði:
Dear Chirstina, the increase rows are rows that are knitted withouth patterning (only knits from the right side) except for the stitches for the button band. These 8 stitches that are left out from the calculations for the increases done evenly. In other words, you increase in rows that have no patterns, then the next time you knit patterned rows, you knit those patterns between the stitches for the two buttionbands. Happy Knitting!
06.07.2024 - 00:35
Christina skrifaði:
Pattern 248-32 has an 8-stitch band. But as we knit yoke, we’re instructed not to increase for 12 stitches from each end (8 band +4). When we get to chart A1, do we only follow chart after the 12 st? Just do stockinette st on those 4 st and follow band pattern for the 8?
03.07.2024 - 22:50DROPS Design svaraði:
Dear Christina, work diagram A.1 over all stitches between both front band stitches, ie work A.1 with 8 sts front band sts as before. Happy knitting!
04.07.2024 - 09:03
Elizabeth Garton skrifaði:
Thank you for your response but I have started 'cable princess' bonnet and the stitches do not inc that much. Do you have patterns with mistakes?
07.04.2024 - 21:04DROPS Design svaraði:
Dear Elizabeth, the cable princess bonnet is a different pattern; M.1 means something different there. In that case M.1 is the cable chart, which you can find at the end of the written instructions. So, when it says M.1 it means 1 repeat of the chart. You can see how to read our knitting charts here: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=68&cid=19. If you are making a questions regarding a different pattern from the one you are making the comment on, please indicate the pattern name or number beforehand to avoid confusion. Happy knitting!
08.04.2024 - 00:37
Elizabeth Garton skrifaði:
Thank you for your response but I have started 'cable princess' bonnet and it says M1 but the amount of stitches does not inc that much. Do you have patterns with mistakes?
07.04.2024 - 21:02DROPS Design svaraði:
Dear Elizabeth, the cable princess bonnet is a different pattern; M.1 means something different there. In that case M.1 is the cable chart, which you can find at the end of the written instructions. So, when it says M.1 it means 1 repeat of the chart. You can see how to read our knitting charts here: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=68&cid=19. If you are making a questions regarding a different pattern from the one you are making the comment on, please indicate the pattern name or number beforehand to avoid confusion. Happy knitting!
08.04.2024 - 00:37
Elizabeth Garton skrifaði:
How do I do M1?
07.04.2024 - 06:30DROPS Design svaraði:
Dear Elizabeth, please refer to our previous answer. Happy Knitting!
07.04.2024 - 13:53
Elizabeth Garton skrifaði:
How do I do M1?
07.04.2024 - 06:29DROPS Design svaraði:
Dear Elizabeth, if you are referring M.1 as make one (increase), then please read the INCREASE TIP (for the yoke) at the beginning of the pattern. According to the pattern, increases are done by making a yarnover that is knitted (or purled) twisted in the next row (round). Happy Knitting!
07.04.2024 - 13:52
Elizabeth Dorothy Garton skrifaði:
How do I do M1?
07.04.2024 - 06:28
Sand Notes Cardigan#sandnotescardigan |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki og I-cord. Stærð S - XXXL.
DROPS 248-32 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 6 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 6 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Lykkjum er ekki aukið út yfir ystu 12 lykkjur í hvorri hlið. Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 125 lykkjur), mínus lykkjur sem ekki á að auka út yfir (t.d. 24 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 30) = 3,3. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónað til loka. Fellið síðan af fyrir næstu 5-5-6-6-6-6 hnappagötum með 8-8-8½-9-8-8 cm millibili. Neðsta hnappagatið á að vera staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Hálsmál og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og er prjónað ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka er lykkjum skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Ermar eru síðan prjónaðar niður í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. Kantur í hálsmáli er brotin tvöfalt að röngu og saumaður niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 111-115-119-123-127-135 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Muskat. Skiptið yfir á hringprjón 3 (lykkjur eru fitjaðar upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegri). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff. Þegar kantur í hálsmáli mælist 4 cm, fitjið upp 7 nýjar lykkjur í lok 2 næstu umferða = 125-129-133-137-141-149 lykkjur. Haldið áfram með stroff eins og áður, en ystu 8 lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar eins og KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Prjónið þar til kantur í hálsmáli mælist 9 cm – endið eftir umferð frá röngu. Síðar á að brjóta kant í hálsmáli saman þannig að hann verði tvöfaldur og við frágang verður kantur í hálsmáli ca 4 cm. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 1 merki að innanverðu í kant að framan. Berustykkið er nú mælt frá þessu merki. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 30-32-36-40-42-44 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING og munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – lesið útskýringu að ofan (kantar að framan eru prjónaðir eins og áður) = 155-161-169-177-183-193 lykkjur. Síðan er prjónað sléttprjón fram og til baka með 8 kantlykkjum að framan í hvorri hlið eins og áður. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar berustykkið mælist 3-3-4-4-5-6 cm frá prjónamerki, aukið út 33-36-40-44-47-52 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 188-197-209-221-230-245 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 8 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður þar til berustykkið mælist 4-4-5-5-6-7 cm frá merki. Nú er prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, þ.e.a.s. fyrsta umferð er prjónuð frá réttu: Prjónið 8 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið A.1 þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins, endið með 8 kantlykkjur að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur. Jafnframt í hverri umferð merktri með ör í A.1, aukið út lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚTAUKNING. Ör-1: Aukið út 39-40-48-56-57-62 lykkjur jafnt yfir = 227-237-257-277-287-307 lykkjur. Ör-2: Aukið út 42-47-51-55-66-70 lykkjur jafnt yfir = 269-284-308-332-353-377 lykkjur. Ör-3: Aukið út 44-53-53-61-64-72 lykkjur jafnt yfir = 313-337-361-393-417-449 lykkjur. Ör-4: Aukið út 3-7-7-11-11-15 lykkjur jafnt yfir = 316-344-368-404-428-464 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, mælist berustykkið ca 18-18-19-19-22-23 cm frá merki. Prjónið síðan sléttprjón með 8 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður þar til berustykkið mælist 19-20-22-23-25-27 cm frá merki. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 54-59-62-67-72-79 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 58-62-68-76-78-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 92-102-108-118-128-142 lykkjur sléttprjón (bakstykki), setjið næstu 58-62-68-76-78-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 54-59-62-67-72-79 lykkjur eins og áður (framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er núna stykkið mælt frá! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 216-236-252-272-296-324 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 8 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður þar til stykkið mælist 26-27-27-28-28-28 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 43-43-47-53-59-61 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) = 259-279-299-325-355-385 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Nú er prjónað stroff frá röngu þannig: 8 kantlykkjur að framan, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 8 kantlykkjur að framan. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 4 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 58-62-68-76-78-82 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / hringprjóna 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 66-70-78-86-90-94 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3-3-2-2-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 3-3-2-1½-1½-1½ hverjum cm alls 5-6-9-12-13-13 sinnum = 56-58-60-62-64-68 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 43-42-41-40-39-37 cm frá skiptingu. Það eru eftir 4 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-12-12-14-14-14 lykkjur jafnt yfir = 68-70-72-76-78-82 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 47-46-45-44-43-41 cm frá skiptingu. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að framan í köntum að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sandnotescardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 248-32
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.