Natasja skrifaði:
What is the size of the sweater on the picture?
26.03.2025 - 22:19DROPS Design svaraði:
Dear Natasja, most of the time our models wear either a size S or a size M; but to find the right size, measure a similar garment you have and like the shape and compare these measurements to the ones in the chart - read more here. Happy knitting!
27.03.2025 - 08:25
Agnès L'HERMITTE skrifaði:
Bonjour, je ne comprends pas pourquoi dans les explications il y a un devant droit et un devant gauche alors qu'il s'agit d'un pull. Pouvez vous m'envoyer les bonnes explications pour le modèle 250-24 ? merci
14.03.2025 - 18:26DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme L'hermitte, ce pull se tricote de haut en bas avec une construction dite "épaules européennes": on tricote d'abord le dos, puis le devant en commençant par l'épaule gauche, puis on tricote l'épaule droite, et on monte les mailles de l'encolure entre les 2 devants. On termine ensuite le bas du pull en rond, après les emmanchures. Retrouvez des photos et des vidéos montrant les différentes étapes de ce type de construction sous les onglets "Vidéos" et "Leçons" à droite de l'onglet "Explications" en haut de page. Bon tricot!
17.03.2025 - 07:15
Natasja skrifaði:
Jeg undrer mig lidt over, hvordan skulderen bliver skrå? Derudover hvilken størrelse er modellens strikket i?
28.02.2025 - 14:53
Marie skrifaði:
Hi! Could you please help explain how to do the split hems for the body? I finished with the front piece (end of the yarn thread), but my problem is that I want to start the back part but how do I add a yarn to knot with? Currently all the stitches are on a stitch holder. Thank you!
12.01.2025 - 00:39DROPS Design svaraði:
Dear Marie, are you referring to the lower splits? You can put a new thread as when you pick up stitches, like in this video: https://www.garnstudio.com/video.php?id=59&lang=en. Happy knitting!
12.01.2025 - 18:16
Panna Kvell skrifaði:
Hi. I am really not sure about the front piece of the pattern. Why do we need to the 3 stich and the begging when we leave 5 at the end? Its not going to be equal. What does At the same time mean? I need to increase 12 stitches on those 5 leftover stich? What type of increase should this Be? How do I knit the leftover 5 stich?
05.01.2025 - 15:07DROPS Design svaraði:
Dear Panna, the pattern is the same. You have 3 stitches in garter stitch at the start, then work rib until 5 stitches are left. The next 2 stitches are still in rib, it's a knit 2, but we specify it so that we ensure that the pattern ends with knit 2; this will help us align the rib in the next row. Then you finish with 3 stitches in garter stitch. So you have 3 stitches in garter stitch on each side and the rest is in rib stitch. You work rib and at the same time increase 12 stitches over the ribbed stitches, so you increase with yarn overs over the rib stitches between the 3 initial stitches and the 5 remaining stitches. Happy knitting!
05.01.2025 - 20:25
Manuela skrifaði:
Wie viel Garn wird denn benötigt? Ich finde leider keine Angabe. Vielen Dank
15.12.2024 - 18:52DROPS Design svaraði:
Liebe Manuela, Garnmenge für jede Größe finden Sie oben unter Tab "Anleitung", so in XS z.B. brauchen Sie 250 g DROPS Melody/50 das Knäuel = 5 Knäuel Melody. Viel Spaß beim Stricken!
16.12.2024 - 11:04
Tove skrifaði:
Hej! Jag förstår inte hur och när man ska göra ökningarna på fram och bakdelen när man byter till de mindre stickorna och den ribbade delen ska börja, kan ni förklara lite tydligare eller på ett annat sätt hur man ska göra? Och varför ska man göra ökningarna? Är det för att man byter till mindre stickor? Tack på förhand!
17.11.2024 - 00:02DROPS Design svaraði:
Hej Tove, hvis du strikker den mindste størrelse, deler du arbejdet i hver side når arbejdet måler 24 cm fra ærmegabet. På næste varv skifter du til pind 6 og tager 12 masker ud samtidig som du strikker resår i 8 cm. :)
22.11.2024 - 14:23
Dominika skrifaði:
Dzień dobry, jeśli chodzi o podwójne wykończenie dekoltu, to po przerobieniu 9 cm powinniśmy zakończyć i zgiąć(plisa ma wtedy 4,5cm) czy przerobić następne 9cm drutami nr 7(9cm plisy)? Pozdrawiam
18.10.2024 - 21:59DROPS Design svaraði:
Witaj Dominiko, zgodnie z opisem wykonujesz 9 cm plisy na drutach nr 6, a następnie zamykasz wszystkie oczka na drutach nr 7. Po zagięciu plisa powinna mieć wys. ok. 4,5 cm. Na zdjęciu wygląda jakby była dłuższa, zadam pytanie w dziale projektów. Pozdrawiamy!
21.10.2024 - 08:55
Sessa skrifaði:
Hej, Går det att sticka den här nerifrån och upp? Hur många maskor ska man isf lägga upp? Tråkigt att nästan alla mönster är uppifrån och ner. Tack på förhand!
18.08.2024 - 12:35DROPS Design svaraði:
Hej Sessa, det er meget lettere at strikke oppefra og ned. Men selvfølgelig kan du følge opskriften og starte nederst i mønsteret :) Eller så vælger du en opskrift som er strikket nedefra: Tröjor - nerifrån och upp
21.08.2024 - 10:10
Charlotte skrifaði:
Hallo! Müssten es nicht 60 statt 58 Maschen sein um das Rippenmuster zu stricken? Bei 58 habe ich ja am Ende und am Anfang der Runde rechte Maschen, also vier nebeneinander.\r\nAuch ist mir aufgefallen, dass die Wortwahl in dem Satz etwas irreführend sein könnte: \"Bei einer Länge des Rippenmusters von 8-8-8-9-9-9 cm etwas lockerer rechte Maschen rechts und linke Maschen links stricken.\" Hier wäre vielleicht statt \"stricken\" \"abketten\" hilfreicher!
18.06.2024 - 18:21
White Bay Ridge#whitebayridgesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með skáhallandi öxl / evrópskri öxl, klauf í hliðum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð XS - XXL.
DROPS 250-24 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka. Byrjið á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við, jafnframt því sem lykkjum er aukið út hvoru megin á stykkið þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er bakstykkið látið bíða og framstykkið er prjónað. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 hlutum. Byrjið á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni, prjónið mynstur samtímis sem aukið er út við hálsmál. Endurtakið á hinni öxlinni. Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukningu fyrir hálsmáli er lokið. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Nú er framstykkið og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfaldur að röngu og saumaður niður. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 26-26-28-30-30-30 lykkjur á hringprjón 7 með DROPS Melody. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið, UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur brugðið. Síðan er prjónuð UMFERÐ 2 og 3 þar til aukið hefur verið út alls 9-10-11-11-12-14 sinnum, á eftir síðustu útaukningu eru = 62-66-72-74-78-86 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er stykkið mælt! Prjónið síðan í sléttprjóni – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA – þar til stykkið mælist 8-9-9-9-10-10 cm mælt frá merki yst meðfram handvegi. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir ÚTAUKNING-1 og prjónið 13 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið umferð 1 og 2 alls 2-2-2-3-3-3 sinnum = 66-70-76-80-84-92 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 11-12-12-13-14-14 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi, endið með umferð frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er framstykkið prjónað meðfram öxl – lesið útskýringu að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Legið bakstykkið flatt á borð með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur af þræði/hjálparprjóni snýr að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að öxl þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 18-20-22-22-24-28 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum upp prjónaða kanti. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 9 cm, aukið út lykkjur við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið umferð 1 og 2 alls 4 sinnum = 22-24-26-26-28-32 lykkjur, (næsta umferð sem á að prjóna á að vera frá réttu). Klippið þráðinn, setjið lykkjur á hjálparprjón, nú er framstykkið prjónað meðfram hægri öxl – lesið útskýringu að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkjur inn við hálsmál þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 18-20-22-22-24-28 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum upp prjónaða kanti. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 9 cm, aukið út lykkjur við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt – munið eftir ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið umferð 1 og 2 alls 4 sinnum = 22-24-26-26-28-32 lykkjur, (næsta umferð sem á að prjóna á að vera frá réttu). Síðan eru framstykkin sett saman – lesið útskýringu að neðan. FRAMSTYKKI (hægra og vinstra stykki saman): Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 22-24-26-26-28-32 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 18-18-20-22-22-22 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið síðan 22-24-26-26-28-32 lykkjur frá vinstra framstykki = 62-66-72-74-78-86 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 20-21-23-23-24-26 cm. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið umferð 1 og 2 alls 2-2-2-3-3-3 sinnum = 66-70-76-80-84-92 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 23-24-26-27-28-30 cm, endið með eina umferð frá röngu. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. Stykkið er nú mælt héðan! FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 66-70-76-80-84-92 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 2-2-2-2-6-6 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (= í hlið mitt undir ermi – setjið einn merkiþráð mitt í þessar lykkjur), prjónið síðan 66-70-76-80-84-92 lykkjur frá bakstykki og fitjið upp 2-2-2-2-6-6 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi – setjið einn merkiþráð mitt í þessar lykkjur) = 136-144-156-164-180-196 lykkjur í umferð. Látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðir þegar stykkinu er skipt upp fyrir klauf í hvorri hlið, byrjið umferð við merkiþráðinn, prjónið hringinn. Prjónið þar til stykkið mælist ca 24-26-27-27-28-29 cm, mælt frá handvegi. Nú skiptist stykkið fyrir klauf í hvorri hlið á fram- og bakstykki, skiptið stykkinu við merkiþræðina með því að bíða með lykkjur frá bakstykki í smá stund og prjóna fyrst lykkjur frá framstykki fram og til baka – lesið útskýringu að neðan. FRAMSTYKKI: = 68-72-78-82-90-98 lykkjur í umferð Prjónið áfram í umferð 6 og prjónað er fram og til baka þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 3 lykkjur GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) þar til 5 lykkjur eru eftir – JAFNFRAMT er aukið út um 12-12-14-14-18-18 lykkjur jafnt yfir strofflykkjur, síðustu 5 lykkjur eru prjónaðar 2 lykkjur slétt og 3 lykkjur í garðaprjóni = 80-84-92-96-108-116 lykkjur. Þegar stroffið mælist 8-8-8-9-9-9 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 49-52-54-56-58-60 cm frá öxl BAKSTYKKI: Prjónið á sama hátt og framstykki. ERMAR: Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = mitt ofan á öxl (ATH! Miðja ofan á öxl er ekki sami staður og þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur ca 6-6-7-7-7-8 cm niður á framstykki). Prjónið upp lykkjur í kringum handveg, notið hringprjón 7 og byrjið mitt í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – prjónið upp 46-48-52-56-60-64 lykkjur – stillið af að prjónaðar séu upp jafn margar lykkjur hvoru megin við merki. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpuna til að ermin passi betur, umferðin byrjar mitt undir ermi þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 6-6-7-7-8-8 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Þegar stykkinu er snúið verður lítið gat – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina GERMAN SHORT ROWS – leitaðu í myndböndunum okkar, prjónið 6-6-7-7-8-8 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 8-9-6-7-6-6 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 8-9-6-7-6-6 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. UMFERÐ 5 og síðan: Endurtakið umferð 3 og 4 þar til snúið hefur verið við 0-0-1-1-2-2 sinnum í hvorri hlið (snúið hefur verið við alls 2-2-3-3-4-4 sinnum í hvorri hlið). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er endurtekin, endið umferð með að snúa stykkinu, prjónið síðan frá réttu að byrjun umferðar (mitt undir ermi). Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi, það á að nota merkiþráðinn þegar fækka á lykkjum undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. Nú er prjónað í hring í sléttprjóni yfir allar lykkjur jafnframt því sem lykkjum er fækkað undir ermi þannig: Þegar ermin mælist 4-4-5-5-6-6 cm (mælt mitt undir ermi), fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA, fækkið lykkjum svona í hverjum 18-18-12-8-6-5 cm alls 2-2-3-4-5-6 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 40-40-39-38-37-35 cm frá öxl. Skiptið yfir á hringprjóna 6 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 10-8-10-8-10-8 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 52-52-56-56-60-60 lykkjur. Þegar stroffið mælist 8-8-8-9-9-9 cm, fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 48-48-47-47-46-44 cm frá miðju ofan á öxl. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón / sokkaprjóna 6. Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna, prjónið upp 76 til 88 lykkjur innan við 1 lykkju, prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er e.t.v. jafnaður út - lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 9-9-9-11-11-11 cm. Skiptið yfir á hringprjón 7 og fellið af aðeins laust. Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #whitebayridgesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 250-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.